Morgunblaðið - 27.06.1965, Side 10

Morgunblaðið - 27.06.1965, Side 10
10 MORGUNBLADID Sunnudagur 27. júní 1965 Heiðmörk: friðland og griðastaður Reykvíkinga Það sló gullnum roða á Vífilfellið og fjöllin í grenndinni, Hengilinn, Esju og Skálafellið, þegar við komum í Heiðmörk einn fagran sumardag fyr- ir skömmu. Við gerðum okkur ferð þangað til þess að fræðast um þetta frið- land Reykvíkinga og nut- um í því skyni leiðsagnar Einars Sæmundsen, fram- kvæmdastjóra Skógrækt- arfélags Reykjavíkur. Við ókum út íyrir borgar- mörkin árla morguns, og þeg- ar við beygðum inn á afleggj arann að Rauðhólum, sagði Einar: — í rauninni er þetta merk isdagur. í>eir eru einmitt að loka landinu í dag. Nú ök- um við eftir nýjum vegi inn í Heiðmörk. Áður var ekið um Rauðhólana, en þar er nú friðlýst svæði. Nokkrir ungir menn voru að tengja girðinguna við nýtt hlið, sem sett hefur ver- ið á nýjum vegi inn i Heið- mörk. — Þetta hlýtur að vera feiknarlega ]öng girðing, Ein ar? — Já, hún er alls 32 kíló- metrar. Heiðmörk spannar yf ir 2.300 hektara. Og svo böldum við fram hjá ungu mönnunum, sem eru önnum kafnir við að loka landinu. Þegar við komum upp á haeðina fram undan, blasir við höfuðbólið Elliða- vatn, reisulegt býli í fallegu og rómantísku umhverfi. Hér var vettvangur ástarævintýr- is, sem getur í Kjalnesinga- sögu. Á liðnum öldum var hér hið mesta höfuðbýli og hét býlið þá Vatn undir Heiði. Stórhöfðingjar hafa setið þarna fram á þessa öld. Skemmst er að minnast Ben- edikts Sveinssonar, föður Ein ars skálds Benediktssonar. Hann var þá landsyfirdómari. En ekki skulum við tefja lengi við sögulegar staðreynd Nýtt hlið hefur verið sett á nýjum vegi iim í Heiðmörk. ir. Þess skal þó getið, að að EUiðavatni býr nú Reynir Sveinsson. Hann er eftirlits- maðúr í Heiðmörk og hefur þar verkstjórn með höndum. Við erum komrtir að gömlu mörkunum svonefndu, eða þar sem vegurinn inn í Heið- mörk hófst áður fyrr. Hér ber mikið á havöxnum plönt um með bláum blómum. Það eru lúpínur. Lúpinan er fjöl- aer jurt, hið mesta þarfaþing. Einar lýsir henni svo fyrir okkur: — Hún er í rauninni nokk- urs konar verksmiðja. Hún vinnur köfnunarefni úr loft- inu og bindur það í rótun í jarðevginum. Hún er sett niður með fjögurra til fimm metra millibili. Síðan dreif- ir hún úr sér sjálf allt um kring í stórurn breiðum. Á heitum sumardegi heyrirðu oft undarlegan söng í kring- um þig, þar sem lúpínan er. Þá er hún að þeyta frá sér fræjunum. Lúpinan kemur frá Alaska og henni er plant- að á mela og ógróið land. Við reiknum með að geta gróð- ursett, þar sem hún er búin að leggja undir sig landið. Við höldum lengra inn í Mörkina, en skammt fyrir innan hliðið bendir Einar okkur á svartan spotta, sem liggur yfir veginn. — Þessi spotti telur alla bíla, sem hingað koma. Á sumrin kemur mikill fjöldi fólks í Heiðmörk, einkum fjölskyldur til þess að njóta sólar á fallegum og kyrrlát- um stað. Um eina helgi fyrir skömmu taldi mælirinn til dæmis um þúsund bíla. Þeg- ar líður á sumarið má segja, að hér sé krökt af fólki í hverri laut. Heiðmörk er eink ar vel til gönguferða fallin. Það má segja, að alls staðar sé eitthvað nýtt að sjá og ó- víða er betra að koma til gróðurathugana. Sóldýrkend- ur hafa líka komið auga á það, að hér er hréinasta Para dís. Það má segja að fólk sé hvarvetna útaf fyrir sig, því að vegakerfið er orðið nokk- uð þéttriðið og fólk dreifist víða. Vegir um Heimörk eru samtals 22 kílómetrar, — þeir hafa allir verið byggðir á þeim árum frá því gróður- setning hér hófst. — Og hvenær var það? — Það var árið 1950, Þá var byrjað að gróðursetja hér sitkagreni. Það sem vakti fyrir Skógræktarfélagi ís- lands, þegar það hóf málsis á því að friða Heiðmörk, var að tryggja land í nágrenni Reykjavíkur, sem gæti verið griðland Reykvíkinga. Allur aðdragandi að fyrstu gróður- setningunni hafði staðið yfir í 10 ár, en þá var málið far- sællega leitt til lykta með góðri samvinnu við þáver- andi borgaryfirvöld. Heið- mörk var síðan vígð 1950 af Gunnari Thorodssen, þáver- andi borgarstjóra. — Og frá þeim tíma hefur landið væntanlega tekið miki um stakkaskiptum? — Já, það má segja, að þau sár, sem þá voru, séu nú óðum að græðast. Það er keppikefli okkar, að öll Heið- mörk verði græn. Það ætti að takast innan fárra áratuga. — En margir aðilar hljóta að hafa lagt hönd á plóginn við gróðursetninguna? — Já, það hefur aldrei vantað sjálfboðaliða. Yfir 50 félög ýmissa aðila hafa hér útmæida skika til gróð- ursetningar. Þú sérð nöfn þessara féiaga á skiltum hvar vetna meðfram veginum. Það Um 80 stulkur úr vinnuskóla sem við komum inn, beygj- um við inn á annan veg, sem liggur um neðri hluta Mark- arinnar. Þar eru plönturnar skemmra á veg komnar, enda ekki eins skjóisælt hér og annars staðar. Hér er órækt- arspilda óðum að breytast i skógi vaxið land, og það eru stúlkur úr vinnuskólanum, sem þessa stundina vinna við að hreinsa gras og illgresi frá plöntunum og bera á þær áburð. Á þessum stað hefur landið fyrst verið plægt og síðan gróðursett í förin. Þessa hefur þurft sökum þess, hve gróðurmagn moldarinnar er lítið. Við stöldrum við hjá stúlk- unum og virðum fyrir okk- ur sitkagrenið, sem þær eru að hlúa að. Þessar plöntur hafa vaxið upp af fræjum frá •• ... , | næg verkefni við að hlúa aðnum starfa i Heiðmörk og hafa Helga Valdimarsdóttir og er plöntunum. Þetssi stúlka heitir 14 ára gömui. eru starfsmannafélög, átthaga félög, fagtélög, sóknarfélög, kvenfélög, póiitísk félög og þannig niætti lengi telja. Þarna er tii dæmis skilti, sem gefur til kynna reit kenn- arafélags Au á; urbæj arbarna- skólans — og þarna hafa starfsmenn Afengls og tóbaks verzlunannnar sinn reit. Hvert fétag hefur 5 hekt- ara til Umráða, og það eru gróðursettar 1500 plöntur á ári í samtals 20 ár, en þá er spildan fuJlgróðursett. 5f •# VÍ’íi t ‘ y .{ <s>. ir’ I Heiðmörk. Hér má sjá sitk agreni og ísieuzkt birkl, sem vaxið hefur upp, eftir að Heið- mörk var gert að friðuðu svæði. Álengdar sér á Rauðhóla og Esjuna. Við erum nú komnir að Hólmshraum og skammur spölur er að hliðinu við Sil- ungapollsveg. Við veitum því athygíi, að blágresið skartar hér sinu fegursta, en þegar út fyrir hliðið kemur, sér hvergi blágresi. Þar sjá um við hixis vegar nagaða víðirunna og gamla birki- runna, sem haldið hafi velli undan ágangi sauðkindarinn- ar. Við höldum nú gegnum Mörkina sömu leið til baka, en skammt frá þeim stað, þar Alaska, sem jafnöldrur þeirra úr vinnuskólanum gróður- settu fyrir fjórum árum. Áfram er haldið suður Hjallabraut og enn er sömu sögu að segja: Þar sem áður voru óræktarmóar, þurrir og ófrjóir, er nú vísir að skógi. Þarna hefur áburði úr flug- vél verið dreift á melana. Mörkina utan og innan girð- ingar eru skörp. Að utan upp urið land. Tiltölulega skammt er síð- an þessi vegur var lagður, en Einar segir okkur, að um helgar komi hingað mikill fjöldi fólks enda náttúrufeg- urð einstök. Þegar kemur upp á Hjallabrún er mjög víðsýnt og fagurt um að lit- ast: í suðri Búrfell, það forna eldfjall, og úr því ligg- ur Búrfellsgjá. Þá er Vala- hnjúkar og Helgafell. Nokkru vestar er fjallaskagi: Löngu- hlíðarfjall og síðan fellin þrjú: Húsfell, Kóngsfell og Vífilsfell. Einar segir, að þess muni ekki langt að bíða, að komið verði fyrir útsýnis- skífu þarna á staðnum. Við komum inn í Heiðmörk af Suðurlandsvegi, en nú ök- um við leiðina, sem lggur að Hafnarfjarðarveginum. A leið MWlll

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.