Morgunblaðið - 08.08.1965, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 08.08.1965, Blaðsíða 16
MOkCUNBLADIÐ Sunnudagur 8. ágúst 196b w tJtgefandi: Framkvsemdast j óri: Ritstjórar: Ritst j órnarf ull trúi: Auglýsingar: Ritstjórn: Auglýsingar og afgreiðsla: Áskriftargjald kr. 90.00 í lausasölu kr. Hf. Árvakur, Reykjavík. Sigfús Jónsson. Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Þorbjörn Guðmundsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6. Aðalstræti 6. Sími 22480. á mánuði innanlands. 5.00 eintakið. AUKIN FJÖL- BREYTTNI í SÍLDAR- IÐNAÐI Ékv-M mij UTAN ÚR HEIMI Hálft ár frá því að ioftárásir á N.-Vietnam hófust NÚ HAFA Bandaríkjamenn haldið uppi nær stöðugum loftárásum á N-Vietiiiam í sex mánuði. Einn af fréttamönn- um Associated Press í Viet- nam, Peter Arnett, hefur af því tilefni átt viðtöl við marga flugmenn, sem þátt hafa tekið í árásunum og embættismenn er um þær fjalla. Fer hér á eftir grein eftir Arnett, byggð á þessum viðtölum. Liðnir eru sex mánuðir frá því að Bandaríkjamenn hófu loftárásir á N-Vietnam og þótt þeim hafi vart linnt síð- an, vantar enn mikið á, að þær hafi náð tilgangi sín- um .Samkvæmt upplýsingum háttsetts embættismanns, verð ur að auka árásirnar til muna og hætta á að missa hlutfalls- Iga fleiri flugvélar, ef árang- urinn á að verða betri. Bandarískar flugvélar hafa varpað um 10 þús. lestum sprengiefnis á N-Vietnam frá því að loftárásirnar hófust 7. febrúar, og fimmtíu þeirra hafa verið skotnar niður. í upphafi höfðu loftárásirnar tvö markmið. í fyrsta lagi átti að loka mð þeim þirgðaflutn- ingaleiðum Viet Cong frá N- Vietnam og í öðru lagi neyða ríkisstjórn N-Vietnam að samningaborðinu. Meðal embættismanna eru margir, sem efast um að tek- izt hafi að vinna verulegt tjón á flutningaleiðum Viet Cong. „Við höfum sprengt brýr í loft upp, eyðilagt vegi og sökkt bátum þeirra“ sagði bandarískur liðsforingi, „en þrátt fyrir það virðist skæru- liðana í S-Vietnam ekki skorta neitt. Þeir fá birgðir eftir leiðum, sem liggja um Laos og við getum ekkert ann að gert en varpað sprengjum á frumskóginn. Skæruliðarnir koma einnig suður með strönd inni og gegnum Kambódíu, án þess að vrða fyrir miklu tjóni.“ Ekkert bendir heldur ti-I þess að hitt takmarkið, þ.e. að koma fulltrúum stjórnarinnar í Hanoi að samningaborðinu, náist í bráð. Kommúnistarnir hafa látið sm vind um eyrun þjóta öll tilboð Bandaríkja- manna um samningaviðræður og sama máli gegnir um til- raunir annarra þjóða og U Thants, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, til að koma á viðræðum. En bandarísku sprengjurn- ar hafa eyðilagt mörg mann- virki í N-Vietnam. Skýrslur, sem nýlega voru gerðar sýna, að sprengjum hefur verið varp að á öll hernaðarlega mikil- væg skotmörk frá borginni Vinh til landamæra S-Viet- nam ig er um 240 km vegur á milli. En meðal þessara skot marka eru ekki hernaðarleg mannvirki í^borgum og þorp- um. Á þau hefur ekki verið ráðizt vegna hættu á að skaða óbreytta borgara. Undanfarnar vikur hafa ár- ásirnar fyrst og fremst beinzt að hernaðarmannvirkjum í fjöllunum fyrir norðvestan Hanoi. Talið er, að ætlunin sé afi færa árásirnar smám sam- an nær höfuðborginni, en til þessa hefur sprengjum ekki verið varpað nær hnni en 5f> km. Samkvæmt áætlu-num, sem gerðar hafa verið, hafa um 2700 byggingar verið eyði- lagðar í loftárásunum á N- Vietnam og 500 brýr hafa skemmzt eða eyðilagzt. Marg- ir embættismenn eru þirrar skoðunar, að Bandaríkjamenn myndu missa hlutfallslega miklu fleiri flugvélar og menn. ef þir beindu árásum sínum og flugvöllum og eld- flaugastöðvum í nágrenni Hanoi. Þrjár bandarískar flug- vélar voru t.d. skotnar niður, er árásir voru gerðar á tvær stöðvar, sem Rússar hafa byggt fyrir loftvarnaeldflaug- ar fyrir norðan Hanoi. Flest bendir til þess, að kommún- istar hafi lagt megináherzlu á loftvarnir umhverfis höfuð- borgina og í iðnaðarhéruðun- um í norðri, og talið er lík- .legt, að þeir hafi flutt þangað vopn frá svæðinu fyrir sunn- an Vinh. Ýmsir innan Bandaríkjahers eru þeirrar skoðunar, að rétt hefði verið að beina árásun- um í upphafi að flugvöllum Framh. á bls. 31 Skuggi af bandarískri flugvéi frá N-Vietnam eftir loftárás. á fiugi framhjá brennandi bát CJíldveiðin er nú að glæðast á ^ ný og er komið í ljós, að fiskifræðingar okkar hafa enn einu sinni verið sannspá- ir um göngur síldarinnar. Vonandi verður áframhald á þeirri síldveiði, sem nú er fyr ir Austurlandi og síldarver- tíðin á þessu sumri ekki lak- ari en í fyrra. Hér í blaðinu hefur oft ver- ið rætt um nauðsyn þess, að efla síldariðnað okkar, svo að verðmætasköpunin hér innan lands verði meiri en nú er og síldin ekki seld úr landi ó- unnin að mestu. Þetta er hins vegar ekki auðunnið verk, því að síldarvinnsla er vanda- söm og markaðir fyrir síldar- vörur nokkuð takmarkaðir og sérstæðir. Saltsíldin er fyrst og fremst seld til germanskra þjóða í N- Evrópu og nokkuð til A-Ev- rópuríkjanna og einnig að ein hverju leyti -til fólks af germ- önskum stofni í Bandaríkjun- um. — Saltsíldarmarkaðirnir eru nokkuð stöðugir og vafa- samt að hægt sé að auka þá mikið. Saltsíldin er ýmist not- uð til neyzlu eða niðurlagn- ingar. N "ðurlandaþjóðirnar kaupa af okkur saltsíld og nota hana að mestu til niður- lagningar og selja hana þann- ig, aðallega heima fyrir. Mark aðsástæður og ýmsar orsakir valda því, að nokkrum erfið- leikum er bundið, að koma hér á fót stórfelldri niðurlagn ingu síldar, þótt sjálfsagt sé að gera það sem unnt er í þeim efnum. Öðru máli gegnir :im niður suðu. Fryst síld, sem héðan er seld, er fyrst og fremst notuð til niðursuðu og reykingar. Innan skamms tekur til starfa niðursuðuverksmiðja Norður- stjörnunnar í Hafnarfirði og starfar sú verksmiðja í sam- vinnu við norskan aðila, sem hefur ráð á stórum mörkuð- um, m.a. í Bandaríkjunum. Reynsla fyrri ára bendir til þess, að mjög erfitt sé að koma nýju merki niðursoð- innar síldar inn á erlenda markaði, nema með gífurlegri fjárfestingu í auglýsingum og kynningarstarfsemi. — Þess vegna virðist hyggilegt að fara inn á þá braut í ríkari mæli, sem verksmiðjan í Hafnarfirði hefur valið, að taka upp samvinnu við er- lenda aðila um sölu á niður- soðinni síld undir þeirra vöru- merki. Tiltölulega góðar að- stæður eiga að vera til þess hér á landi, þar sem innlend- ir framleiðendur eiga að geta fengið nýja síld til niðursuðu og geta þar með komist að einhverju leyti framhjá einu vinnslustigi, þ.e. frystingu. Þetta er þó ekki einhlítt þar sem ekki er alltaf völ á réttu hráefni til niðursuðunnar. Það mun nokkrum vand- kvæðum bundið að afla mark aða fyrir reykta síld erlendis en þó ættu einhver tækifæri að vera til þess, ef tekin er upp samvinna við erlenda að- ila, sem hafa ráð yfir mark- aðskerfi á þessu sviði. Niðurstaðan verður því sú, að rétt sé að leggja fyrst og fremst áherzlu á aukna niður- suðu síldarinnar og samvinnu við erlenda aðila um sölu hennar, jafnframt því, sem við sjálfir gerum tilraun til að vinna nýja markaði fyrir niðursoðna síld og jafnvel frysta síld. Auk þess ber að sjálfsögðu að huga vel að öðr- um tækifærum sem gefast. NÝIR MARKAÐIR í ÞRÖUNAR- LÖNDUM V/mislegt bendir til þess, að möguleikar kunni að vera að opnast í hinum nýju ríkjum Afríku til sölu á nið- ursoðinni og frystri síld þang- að. Afríkuþjóðirnar eru í aukn- um mæli að taka upp neyzlu á frystum matvörum og þær neyta einnig fiskjar, sem um margt er mjög líkur þeirri síld, sem veiðist hér við land. Af þeim sökum ætti að vera auðveldara en ella að afla nýrra mark'aða þar í landi, þar sem sú vara er boðin væri, yrði um margt lík þeirri, sem þær þekkja nú þeg ar. Einnig má telja líklegt, að markaðurinn í Afríku verði ekki eins viðkvæmur fyrir þekktu vörumerki og neyt- endamarkaðurinn í V-Evrópu. Nú munu standa yfir hér á landi tilraunir með niðursuðu síldar í ódýrar umbúðir, sem hafa hingað til tekizt vel. í Afríku er mikil þörf fyrir fæðu, sem auðug er af eggja- hvítuefnum og þess vegna er síldin okkar kjörin fæða fyrir þjóðirnar þar. Nauðsynlegt er, að kannað verði til hlítar, hverjir mögu- leikar eru þarna fyrir hendi. Annars gegnir það nokk- urri furðu, að svo mikil síld- arþjóð, sem við erum, leggi ekki meiri áherzlu á að auka fjölbreyttni á matvælafram- leiðslu úr síldinni, því að vafalaust eru margvíslegir möguleikar fyrir hendi til þess að framleiða fjölbreytta síldarrétti. Einhver einn aðili verður að taka það mál föst- um tökum og væri t.d. ekki ó- eðlilegt, að Síldarverksmiðjur ríkisins, sem nú eru orðnar nokkuð öflugar og hafa verið reknar með töluverðum hagn- aði síðustu árin, tækju það verkefni að sér. Hér er mikið í húfi fyrir okkur íslendinga og tækifæri til að margfalda verðmæti þeirrar síldar, sem nú er seld úr landi. SENDIHERRA í WASHINGTON ¥Tm þessar murtdir er nýr ^ sendiherra að taka við stjórn sendiráðs íslands í Washington. Pétur Thorsteins son, sem skipaður hefur verið sendiherra íslands í Washing- ton, hefur undanfarin þrjú ár gegnt störfum í París, sem sendiherra hjá ríkisstjórn Frakklands, og jafnframt fastafulltrúi íslands í ráði Atlantshafsbandalagsins og Efnahags- og Framfarastofn- unarinnar. Ennfremur hefur Pétur undanfarin ár verið fulltrúi íslands gagnvart Efnahagsbandalagi Evrópu. í hugum flestra íslendinga mun sendiherrastaðan í Was- hington vera ein mesta trúrt- aðarstaða íslenzka ríkisins á erlendri grund. Sæti Thor heitins Thors er þar vand- skipað, en álmennt munu menn sammála um, að með skipun Péturs Thorsteinsson- ar, sem sendiherra íslands í Washington, hafi vel til tek- izt. Hinn nýi sendiherra í Was- hington á að baki glæsilegan feril í utanríkisþjónustunni. Hann var fyrst skipaður sendi herra aðeins 35 ára gamall, og hefur nú þegar gegnt sendi- herraembætti í Moskvu, Bonn og París, og fer nú til Wah- hington. Mun það sjaldgæft í hinum diplómatíska heimi, að sami maður gegni sendiherra- embætti í svo mörgum þýð- ingarmestu höfuðborgum heims á ferli sínum. Morgun- blaðið óskar Pétri Thorsteins- syni og konu hans velfarnaðar í hinu nýja og vandasama starfi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.