Morgunblaðið - 29.08.1965, Síða 1

Morgunblaðið - 29.08.1965, Síða 1
32 slður 8 daga geimferð lýkur í dag Coopei og Conrad fara 121 umferð eins og til stóð í upphafi Houston, Texas, 28. ágúst, AP. 'Á HÁDEGI í dag var geimförun- um Gordon Cooper og Charles Conrad tiikynnt að þeir skyidu Ijúka 121 umferð umhverfis $éröu eins og áformað var í fyrstu og lenda norðvestan San Salvador um hálf-tvö leytið á sunnudag. Nákvæmlega var fylgst með Stlum tækjum í nótt og aðgætl fevort nóg eldsneyti væri fyrir feendi o.þ.h. Er allt reyndist í bezta lagi var Cooper og Conrad •agt að þeir þyrftu ekki að koma niður fyrr en á sunnudag. Létu J»eir hið bezta yfir þessum frétt- tim og sendu þakkarávarp til baka, svohljóðandi: „Over the ocean, over the blue, From Gemini V, here’s thanks to you. Ekki var það eini skáldskap- urinn sem fór milli geimgesta og jarðarbúa því er eiginkonur geimfaranna litu út í dögun og sáu Gemini V. á hringsóli sínu, orti Jane, kona Conrads ljóð eitt og sendi manni sínum, þar sem hún kvaðst vona að fá hann heil- an á húfi aftur heim utan úr geimnum. Geimfararnir segja allt gott af sínum ferðum og eru byrjaðir að undirbúa heimferðina. Háir það þeim helzt, að sögn, hver kynstur og býsn hafa safnast fyrir af rusli hjá þeim í Gemini V. Francois Billoux, einn úr miðstjórn franska koVnmúnistaflokksins fagnar Le Duc Tho, aðalritara kotmmúnistaflokks N-Vietnam við koniuna til Parísar. Sfyrjöldin í Viet-Nam Sendinefnd frá Alltaf reioubunir til vioræðna segir Rusk utanríkisráðherra Wasihington, 28. ágúst, AP, NTB. DEAN Rusk, utanríkisráð- lierra Bandaríkjanna, sagði á fundi með fréttamönnum í gær að Bamdaríkin myndu geta eætzt á að haldnir yrðu undir- húningsfundir um Vietnam áð- nr en fram færu formlegar samn ingaviðræður, ef þess væri ósk- að, og bætti því við, að haldið hefði verið uppi fyrirspurnum um hverjar myndu undirtektir N-Vietnamstjórnar ef Banda- rikin drægju úr loftárásum sín- um á N-Vietnam. Sagði Rusk að umleitanir Bandaríkjamanna hefðu til þessa borið litinn árangur og ekki væri að sjá að kommún- istar hefðu mikinn hug á að koma á friði í N-Vietnam. Banda ríkin vildu aftur á máti einskis láta ófreistað tii þess að binda enda á Vietnam-málið og hefðu jýmsir aðilar gerzt milligöngu- menn þeirra. Ekki vildi Rusk þó segja, hverjir þessir aðilar væru, en ítrekaði að Bandaríkin væru reiðubúin til viðræðna og myndu taka til gaumgæfilegrar yfirvegunar hverjar þær tillög- ur sem andstæðingarnir hefðu fram að færa. Utanríkisráðherr- Biui lagði áherzlu á að Banda- ríkin hefðu engan hug á að koma sér upp fastri hernaðar- bækistöð í SA-Asíu. Járnbrautarslys París, 28. ágúst, NT3- A.m.k. þrettán manns fórust í dag er tvær hraðlestir rákust á ekammt frá borginni Cihampagn- ©le í Austur Frakklandi. Lest- irnar sem á rákust voru hrað- lestin milli Mílano og Farísar og Lombardi-ihraðlestin og var hin fyrrnefnda á heimleið til París- ar með ferðamenn er verið hiöfðu í sumarleyfi á Ítalíu. Bandaríska stórblaðið „The New York Times“ sagði í gær að Bandaríkin hefðu boðið N-Vietnamstjórn að draga úr hernaðaraðgerðum sínum í Viet nam, ef norðanmenn kölluðu aftur heim eitthvað af herliði sínu sem suður var sent. Segir blaðið að tilboð þetta hafi verið lagt fram fyrir milligöngu þriðja aðila og hafi stjórnin í Hanoi sýnt á því áhuga en ekki hafi enn borizt neitt formlegt svar frá henni. Talsmaður Hvíta hússins, Bill Moyers, ræddi nokkuð frétt New York Times síðar um daginn og ítrekaði að Bandaríkjamenn myndu hætta hernaðaraðgerðum í Vietnam þegar er linnti árásum norðanmanna. Sagði Moyers að fréttin fæli ekki í sér neitt annað Harmdauði í hænsna- garðinum Beirút, 28. ágúst, AP. BÓNDI einn hér utan við borgina, Badr E1 Mohammad, 'liofur komið að máli við lög- regluna og segir þrjár af tíu hænum sem hann á hafa gef- ið upp öndina af sorg og sút síðan nágrauni bóndans stal eina hananum á bænum. Ekki lauk þó þar harmatöl- um bónda, því hænurnar sjö sem eftir eru neita með öllu að verpa og segir Badr E1 Mohammad það énga furðu, slíkar sálarkvalir sem þær hljóti að líða. Málið er í rann- sókn. en það sem forsetinn hefði sagt alla tíð og reynt að koma banda- rísku þjóðinni og andstæðingum sínum í skilning um, sem sé það, að hernaðaraðgerðir Bandaríkja- manna í Vietnam stæðu í beinu sambandi við tilraunir þeirra til að koma á friði í landinu. ★ Ekkert virðist hafa orðið úr hinni miklu regntímaherferð skæruliða Viet Cong og segja fangar sem teknir hafa verið að hinar miklu loftárásir Banda- ríkjamanna dragi mjög kjark úr skæruliðum. í gærkvöldi fóru bandarískar orustuvélar af gerðinni B-52 aftur yfir D-hersvæðið norð- austan Saigon annan daginn í röð. Er það í tólfta sinn sem þessum vélum hefur verið beitt í styrjöldinni. Skæruliðar skutu niður tvær flugvélar sunnanmanna og eina þyrlu í Phnog Dinh-héraðinu um 160 km. sunnan höfuðborgarinn- ar. Sex Bandaríkjamenn féllu og einn sunnanmanna. Könnun- arvél var skotin niður yfir Quang Tri-héraðinu langt norð- ur í landi i gærkvöldi og týndu báðir lífi, flugmaðurinn sem var bandarískur og aðstoðarmaður hans S-Vietnambúi. Annar bandarískur flugmaður og fjórir hermenn einnig bandarískir, fórust í flugtaki hjá Camu 1 um 230 km. suðvestan Saigon og er talið að slys þetta hafi verið um að kenna hermdarverkum Viet Cong. Richard Nixon, fyrrum vara- forseti Bandaríkjanna, sem nú er á ferðalagi um Asíu sagði í Tókíó í gær, að hinar síendur- teknu sáttaumleitanir Banda- ríkjamanna veiktu málstað þeirra í Vietnammálinu og drægju styrjöldina á langinn. Hanoi í París Engcy: obinberar viðræður BANDARÍSKA stórblaðið New York Times segir frá því að á fimmtudag hafi komið til Parísar fjölmenn scndiniefnd frá komm- únistaflokki N-Vietnam til við- ræðna við franska kommúnista og til að skoöa ýmsar verksmiðj- ur í borginni. Talsmaður franska utanríkisráðuneytisins sagði að engar opinherar viðræður mynidu fram fara þær tvær vikur sem sendinefndin dveldist í París. „Þetta er allt innan flokksins“ sagði hann. Formaður sendinefndarinnar, sem telur tylft manna, er Le Duc Tho, aðalritari miðstjórnar flokks ins sem vakti máls á því, að þetta væri í fyrsta sinn sem leið togar N-Vietnam sæktu Parísar- borg heim. Beindi Duc Tho máli sínu til hinna 10.000 landsmanna sinna, sem búsettir eru í París, og bað þá styðja „hinn helga málstað“ og berjast gegn „árás- um og ofbeldi Bandaríkjanna“. Franskir kommúnistar hafa í tilefni heimsóknarinnar ítrekað fyrri kröfur um að komið verði á fót eðlilegu stjórnmálasam- bandi Frakklands og Norður- Vietnam, en síðan styrjöldínni í Indó-Kína lauk 1054 hafa Frakk ar haft í Hanoi sérlega „delega- tion generale“ sem er ekki alls kostar á við sendiráð, en þó meira en ræðismannsskrifstofa, eins og haft er eftir einum sér- fræðing utanríkisráðuneytisins. I París hefur N-Vietnam-stjórn „verzlunarsendinefnd“ og er for- maður hennar skráður „sendi- herra“ hjá stjórn sinni. Suður- Vietnamstjórn sleit svo sem kunn ugt er stjórnmálasambandi við Frakkland í júní s.l. Ólíklegt að stjérnin haldi velli 4TKVÆÐAGREIDSLA á að fara fram í gríska þinginu í dag, laugardag, um traust til lianda stjórn Tsirimokos, en fregnir af úrslitum hennar munu ekki berast fyrr en í kvöld. Óliklegt er þó talið að stjórnin muni halda velli. -V. Aðild Kína aftur á dagskrá S.Þ., 28. ágúst, AP, NTB. TÍU RÍKI fóru þess formlega á leit í gær, að aðild Kína að samtökum S.Þ. yrði sett á dag- skrá Allsherjarþingsins, sem hefst 21. sept. n.k. og er hið tutt ugasta í röðinni. Lönd þau sem að tillögunni standa emi: Albanía, Alsír, Bur- undi, Kaiiibodsja, Kongó (Brazz aville), Kúba, Ghana, Guinea, Mali og Rúmenía. Til þessa hafa allar tilraunir til þesy að fá því framgengt að Peking-stjórnin taki sæti Kína á þingi S.Þ. reynzt árangurslausar og er ekki ráð fyrir því gert að þjóðernissinnastjórninni á For- mósu verði bolað burtu þessu sinni að heldur, þó munurinn verði vafalaust minni nú, ef til atkvæða kemur en áður. Alls hefur mál þetta verið á dag- skrá 15 allgherjarþinga og síð- ast var það rætt árið 1963. Þá greiddu 41 ríki atkvæði með að- ild Kína að samtökunum, 57 voru á móti og 12 sátu hjá.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.