Morgunblaðið - 29.08.1965, Síða 8

Morgunblaðið - 29.08.1965, Síða 8
9 MORGUNBLADID \ Sunnuclagur 29. Sgúst 1965 Siðbuin uppskera ÁRIÐ 1958 kom út hjá AI- menna bókafélaginu í Reykjavík ljóðabókin „Spá maðurinn“ eftir líbanska skáldið Khalil Gibran, í þýðingu Gunnars Dal. Bók þessi er af mörgum talin ein vinsælasta ljóðabók ald arinnar og hefur verið gef- in út í tuttugu tungumál- um síðan hún kom fyrst út á prenti árið 1923. Höfundur hennar, Khalil Gibran, er talinn með mestu ritsnillingum okkar daga á arabiska tungu en „Spámanninn" skrifaði hann á ensku og segist sjálf ur hafa legið yfir handrit- inu árum saman til þess að 1 vera viss um að „hvert orð ___ væri það hezta sem ég i hafði upp á að bjóða“ eins og segir í umsögn Gunnars Dal um bókina. Hvergi hefur bókin þó selzt betur en í Bandaríkj- unum og af því tilefni birt- ist fyrir skömmu í „Time“ grein um „Spámanninn“, sem hér fer á eftir í laus- legri þýðingu Mbl. ÁRHD 1919 varð einn vina bandaríska bókaútgefandans Alfred A. Knopf til þess að kynna hann fyrir líbönskum listamanni og skáldi á kaffi- húsi einu í listamannahverfi New York-borgar, Greenwich Yillage. Knopf var þá aðeins , 23 ára gamall og nýtekinn til við útgáfustarfsemi. Hann hafði aldrei heyrt á Khalil Gibran minnst, en fyrirtæki hans var nýtt af nálinni og stóð höllum fseti í samkeppn- inni við eldri og reyndari út- gefendur og tók því fegin- samlega flestum þeim höf- undum, sem á fjöiur þess rak. Á næstu fjórum árum gaf Knopf út þrjár bækux eftir Gibran sem allar seld- ust einstaklega illa. Fjórða bókin var „Spámaðurinn“ sem út kom árið 1923, og um hana fór mjög á annan veg. Knopf lét fyrst prenta af henni 2000 eintök og þótti töluvert þar sem um frumút- gáfu verks eftir nær óþekkt- an höfund var að ræða. Þó selduist af bókinni 1.159 ein- tök fyrsta árið og hélt Knopf þá að tæplega myndu fleiri kaupa „Spámanninn* í bráð né lengd. Honum til mikillar undr- unar jókst eftirspurn efitir bókinni um allan helming ár- ið eftir og næsta ár fór enn á sömu leið. Síðan hefur sala á „Spámanninum“ verið í stöðugum vexti og svo öar- um, að furðulegt má heita. Árið 1935 seldust af bókinni 12.000 eintök, árið 1961 voru þau orðin 111 þúsund og í fyrra nam salan 240,000 ein- tökum. Nú eru til á prenti meira en 2 milljónir éintaka af „Spámanninum", en samt seljast af þókinni 5 þúsund eintötk á viku íhverri. Þessi furðulega sala bókar innar er öllum hreinasta ráð gáta, því ekkert hefur verið til þess gert að hafa áhrif á hana á einn eða annan máta. Fyrir allmörgum árum hóf Knopf reyndar að auglýsa „Spámanninn", en þá brá sv© við að sala á bókinni dróst saman og hefur fyrirtækið ekki borið við að auglýsa hana síðan. Þrjár útgáfur eru fáanlegar af „Spámanninum“ hjá forlagi Knopfs og eru tvær þeirra myndskreyttar af Gibran sjálfum. Knopí segist sjálfur ekíki Khalil Gibran £á skilið hverjir kaupi „Spá- manninn“. „Þetta hlýtur að vera einhver sértrúarflokk- ur“ segir hann, „að minnsta kosti er þetta einhver átrún aður eða dýrkun, en engan mann hef ég fyrinhitt úr þess um hópi. Ég held ekki ég viti um fimm manneskjur sem hafa lesið Gibran“. William Koshland, sem starfar við fyrirtæki Knopfs hefur aðra skýringu á reið- um höndum. „Bókin er mönn um til huggunar" segir hann. „Þegar einhver deyr, seljast af henni tugir eintaka". Fjar- skyldur ættingi skáldsins leiddi eitt sinn að því getum, að bókin keyptu ungir menn til að „heilla konur“ með tilvitnunum í hana. Banda- ríska stúlknablaðið „Seven- teen“ hafði eftir einum les- anda sinna, stúlku innan við tvítugt, að „Spámaður- inn“ væri „alveg einstök bók og tilvalin til þess að greiða úr alls konar geðflækj um og veita þreytturfi og þj ök uðum sálum aukin lífsþrótt". Bókin virðst eftir þessu að dæma vera eins konar herm- spekikenning fyrir þá, sem skammt eru á veg komnir, lífsspeki góðviljaðra manna og framtakslausra, huggun þeim til handa, sem halda að trú sé einhvers konar óljós til- finning uim eitthvað æðra. Gibran var sjálfur upp- fræddur í helgisiðum Marón- íta, sem tilheyra rómverk- kaþólsku kirkjunni, en hann var ekki maður kirkjuræk- inn. í bók hans segir frá spá- manninum Almustapha, sem er í þann veginn að leggja upp frá landi, sem hann hef- ur gist um tólf áraibil, kveðja sonu og dætur Orphaile.su. En áður en hann hiverfi brottu, iegigja menn fyrir hann ýmsar spurningar, um Ástina, Gleð- ina, Sorgina, Frelsið, Þján- inguna, Gjafmildina, Vinnuna og ótal margt annað, sem mennina varðar og spámað- urinn svarar í spakmælum er virðast hafa mikinn boðskap og merkan að flytja. Dulúðin, hið óraunverulega og leyndardómsfulla, liggur eins og rauður þráður gegn- um verk skáldsins og líf. Þeg ar hann var að alast upp í Bsherri, fjallaþorpi í Norður Líbanon, er frá þvj sagt að drengurinn hafi fjögurra ára gamall tekið sér fyrir hend- ur að sá pappírssnifsum í garðinn sinn og hafi síðan beðið þolinmóður eftir þvi að uppskera heil og falleg blöð. Dulspekingurinn Gibran átti ekki almennu fylgi að fagna fyrr en hann fluttist til Bandaríkjanna, þar sem hann hélt sýningu á teikningum sínum — sem minna um sumt á William Blake og um ann- að á Maxfield Parrish — og hélt eins konar dulspekihirð heima hjá sér í Greenwich Village. Gibran kvæntist aldrei, en hafði mikil andleg áhrif á konur. Eiginkona gimsteiniaisala eins í Man- hattan skrifaðist á við hann í fjölda ára og lagði svo fyrir við andlát sitt, að bréf hans skyldu fylgja sér í gröfina. Skáldkonan Bahbara Young sór meistara Gibran trúnað er hún hafði hlýtt á „Spá- manninn" lesinn í kirkju einni í Greenwioh Village — að Gibran sjálfum viðstödd- um — og var einkaritari hans æ síðan, allt til þess er hann lézt úr krabbameini 1931, 48 ára gamalL ★ Bréfsnifsin, sem Khalil Gibran sáði forðum daga í garðinn sinn heima í Bsherri hafa borið ríkulegan ávöxt. þó efkki yxu upp af þeim fall-' egiu bl'öðin, sem sáðimaður- inn unigi bjiósit við. Þau hafa gefið af sér miiljón dali til þessa og enn bætast við um 100,000 dalir árlega. Skáldið, sem forðum daga sótti fast að öðlast hvort tveggja, fé og frama, fór þó sjálft að mestu vanhluta af þessari siðbúnu uppskeru. í erfðaskrá sinni ánafnaði Gibran fæðingarbæ sínum hieima í Líbanon ailiar eigur sínar. En þess sér lít- inn stað í Bsherri, utan hvað grafreitur skáldsins er þar í Mar Markis-klaustrinu. Fjöru tíu manna nefnd sem skipuð var til að sjá um þessi óvæntu auðæfi er Gibran lét eftir sig, gengst fyrir árlegri Gibran-hátíð og heldur uppi dálitlu Gibran-safni, sem er enginn baggi á höfuðstólnum, þar sem aðgangseyrir stend- ur undir öllum kostnaði og skilar jafnvel afgangi þegar bezt lætur. Uppi eru áform um að reisa stærra safn og veglegra til minningar um Gibran og einnig hefur verið rætt um að byggja sjúkrahús og efna til sam- keppni um bókmenntaverð- laun til þess að halda nafni hans á lofti um aldur. En öll verða áform þessi að sitja á hakanum meðan nefndar- menn útkljá ýmis deilumál sín í milli og standa í mála- ferlum við lögfræðinga Mariönnu Gibran, systur skáldsins, sem búsett er í Boston og Gibran gat ekki að neinu í erfðaskrá sinni. i Btaðburðarfólk Suðurlandsbraut - Meðalholt - Aðalstræti Meistaravellir - Lauídsvegur II Skúlagata - Ingólísstræti ' Lynghagi - Sörlaskjól í Hlíðunum og við Kringlumýrarbraut athugið að SKÓVINNUSTOFAN er að Skipholti 70. Afgreiði allar skóviðgerðir með stuttum fyrirvara. Gjörið svo vel og Iítið inn. Skdvinnustofðit Skipholti 70 (Iimgangur frá bakhlið hússins). • Utan úr heimi Framh. af bls. 16 sem ömmur ykkar og lang- ömmur áttu. Nútímakonan er grönn og létt og sóldökk á hörund, hefur á sér svip úti- vistar og íþrótta. Það er ekk- ert vit í því að hún klæði sig eins og aldamótakonan, sem var yfirleitt dável í holdum, mjallhvít á hörund og allt annað en létt á sér“. Konur þær sem fyrstar urðu til þess að taka upp Courreges-tizkuna vöktu al- menna athygli, aðdáun karl- manna' og öfund kynsystra sinna. Frá Parísarborg hefur hún hreiðzt út eins og eldur í sinu og hefur náð miklum vinsældum vestanhafs ekki síður en í Evrópu. Alls 6taðar skjóta ( Courreges-eftirliking- ar upp kollinum, stígvélin hans og stuttu hvítu kjólarn- ir spankúlera hvarvetna um stræti. Courreges hefur gjörbreytt viðhorfi manna til tízkunnar en það er honum ekki nóg. Hann vill líka breyta öllu skipulagi á henni, endavenda gjörvöllum tízkumarkaðnum. „Góður kjóll á að geta enzt töluvert“ segir hann. Það er fráleitt að hann sé strax kominn úr tízku. Og þessar tízkusýning- ar tvisvar á ári eru að gera út af við menn, það er þeim að kenna, hversu ©fboðslega dýrt þetta allt saman er“. Þessvegna hefur Courreges hætt við að halda fleiri tízku- sýningar í bráð. Hann hefur lagt heilann í bleyti og sam- ingjan má vita, hvað úr því verður. Það er fáum slík sál- arró gefin að þeir geti sezt í helgan stein að nýhöndlaðri frægð og frama „til þess aS hugsa sinn gang“. En þó Courreges sé hættur við að halda tízkusýningu í ár geta hinir nýjungagjörnu engu aS síður látið huggast Emanuel Ungaro, sem undan- farin tíu ár hefur unnið hjá Balenciaga og hjá Courreges, heldur sína fyrstu tízkusýn- ingu nú í ár og ef að líkum lætur, verður þar sitthvað foj vitnilegt að sjá. 14 þúsund * Arbæjargestir ÁRBÆJARSAFNI verður lokað 12. september nk., svo nú eru aðeins þrjár helgar eftir af sýn- ingartímanum. Um þessa helgi verður glímusýning. 16 mann* flokkur úr Ármanni, undir stj órn Harðar Gunnarssonar, sýnir brögð og bændaglímu á sunnu- dag kl. 4.30. ef veður leyfir. Aðsókn að safninu hefur verið mjög góð í sumar og eru sýn- ingargestir nú eitthvað um 14 þúsund. > Allt sím- skákir SAKVÆMT frétt í v-þýzka skákblaðinu „Schach Echo“, tekur Bobby Fischer þátt í Havanamótinu, sem haldið er tii minningar um Capablanca. Mua bann tefla allar skákir sinar 1 áma b. a. 19 simskákir. Frá barna- og unglinga- skdla Garðahrepps, Silfurtúni Kennsla hefst 1. sept. — Nemendur mæti þá sem hér segir: Kl. 9 fyrir hádegi börn 10 og 11 ára. Kl. 2 e.h. börn 7, 8 og 9 ára. 12 ára börn mæti miðvikud. 15.sept.kl. 8,30 árdegis. Nýir nemendur hafi með sér skilríki frá þeim skólum sem þeir áður voru L SKÓLASTJÓRI.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.