Morgunblaðið - 29.08.1965, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 29.08.1965, Qupperneq 17
Sunnudagur 29. ágúst 1965 MORGUNBLADIÐ 17 Tveir áttræðir MEÐ fárra daga millibili áttu nú fyrir skemmstu áttræðisafmæli þeir Þorsteinn M. Jónsson og Sigurbjörn Þorkelsson. Á hvor- ugum þeirra er nokkur ellimörk að sjá, báðir eru léttir í spori og eldfjörugir í samræðum. Sú var tíðin, að hvert manns- barn í Reykjavík þekkti Sigur- björn í Vísi og hann vissi skil á fleiri Reykvíkingum en nokk- ur annar. Hin mikla fjölgun í bænum hefur leitt til þess, að ó- hægara er en áður að átta sig á öllum. En sjálfur er Sigurbjörn óbreytanlegur, skjótur til átaka, allra manna hjálpsamastur, glað- ur og reifur á hverju sem gengur. Báðir hafa þeir Sigurbjörn og Þorsteinn M. ákveðnar skoðanir og eru ófeimnir að láta þær uppi við hvern sem er. Þorsteinn ílutti ekki til Reykjavíkur fyrr en á efri árum, en Sigurbjörn hvarf snemma úr Kjósinni hingað til bæjarins og er fyrir löngu orð- inn Reykvíkingur í húð og hár. Þorsteinn er upprunninn á Aust- Nýfallinn snjór í Lan&adalsfj öllum, á föstudag. (Ljósmynd Björn Bergmann). sem með málum hafði fylgzt Lætur Lúðvík sér þó ekki allt fyrir brjósti brenna, samanber yfirlýsinguna, sem hann ásamt flokksbræðrum sínum gaf í fyrra um samningaviðræðurnar við Brezhnev og skrif Þjóðviljans nú. Þessa dagana er gefið í skyn, að Lúðvík hafi haft sérstöðu gegn öðrum íslenzkum nefndarmönn- um í samningaviðræðunum 1 Moskva að undanförnu. Það er þó vissulega harla lítil hollusta við málstað sinnar eigin þjóðar að láta uppi, á meðan samningum er eigi enn slitið að hann hafi viljað ganga lengra til móts við útlendinga en aðrir. Þetta verður þó.enn furðulegra, þegar haft er í huga, að Lúðvík var ekki linari en aðrir nefndarmenn í tillögum til ríkisstjórnarinnar um, að til- boð Rússa væri með öllu óað- gengilegt. Segjast vera út- flytjendur síldar REYKJAVÍKURBRÉF urlandi og gerðist þingmað- ur og komst skjótt í röð atkvæða- mestu þingmanna, átti þó ekki lengi setu á Alþingi heldur gerð- urlandi, varð þar ungur þingmað ist kennari og nafntogaður skóla- stjóri á Akureyri jafnframt því, sem hann varð einn umsvifa- mesti bókaútgefandi og bókasafn- ari á landinu. Báðir kunna frá mörgu að segja og Sigurbjörn hefur þegar lokið samningu fyrsta heftis endurminninga sinna. Af æviferli beggja er ljóst, að mikil vinna þarf ekki að verða mönnum að aldurtila eða til heilsutjóns, ef skynsamlegum lifnaðarháttum er haldið. I Við góða heilsu 21 ári eftir brott- fall sambands- las;anna Þorsteinn M. Jónsson var einn af höfundum sambandslaganna 1918. Hann var yngstur þeirra, sem þá tóku þátt í samningsgerð- inni við Dani. Eðli málsins sam- kvæmt höfðu aðrir meiri forystu um samningsgerðina en Þor- steinn, en hann var þess mjög hvetjandi, að tryggilega væri bú- ið um fullveldisviðurkenninguna, því að fullt sjálfstæði íslands hefur allt frá æskudögum verið eitt hans mesta hugðarefni. Sam- kvæmt sambandslögunum sjálf- um skyldu þau gilda í 25 ár a.m.k. eða nær heilan manns- aldur. Á árinu 1918 virtist því hugsanlegt brottfall þeirra vera óralangt í burtu, langt í ókunnri framtíð. Nú er meira en 21 ár lið- ið frá því, að heimildin til að fella sambandslögin úr gildi var notuð. Eftir á sýnist hvorugt ýkjalangur tími, gildistími sam- bandslaganna né árabilið frá endurreisn lýðveldis. Þorsteinn M. Jónsson, sem full- tíða maður átti þátt í samningu laganna, hefur lifað hvort tveggja þetta tímaskeið. Þau eru einungis rúmur helmingur ævi hans. Er það til áminningar um hversu skammæ slík tímabil eru í sögu heillar þjóðar og hversu menn þurfa lítt að óttast slíka fresti, þegar rétt er á hald- ið. Menn geta seint vænzt þess að fá öll heimsins gæði í einu. Um aö gera að nota tímann til að ■tyrkja aðstöðu sína, svo að ætíð miði nokkuð á leið. Sígandi lukka •r bezt. Fornöldin beðin afsökunar í I í síðasta Reykjavíkurbréfi var Laugard. 28. ágúst vikið að hinum fáránlegu skrif- um Timans um héraðsmót Sjálf- stæðismanna. Vegna misritunar- og mislesturs komst einkennileg villa inn. Talað var um „fornald- arhátt Tímans“, en átti að vera hornhagldarháttur Tímans. Þó að margt hafi verið öðruvísi áður en æskilegt hefði verið, þá er þó ekki kunnugt um, að í fornöld- inni hafi þekkzt svipað fyrirbæri og Tíminn. Hornhalgdarháttur Tímans, þ.e. amasemi eða ill- skeytni hans, fer hins vegar ekki á milli mála. Sjaldan hefur sú amasemi verið hjákátlegri en þegar Tíminn fjölyrti um hversu héraðsmót Sjálfstæðismanna hefðu verið illa sótt, einmitt um þær mundir, þegar aðsókn að þeim var meiri en nokkru sinni áður. Aðsókn að slíkum mótum er raunar ærið ótryggur mæli- kvarði á fylgi þeirra flokka, sem fyrir þeim standa. Kjósa menn þó að sjálfsögðu fremur að þeirra eigin mót séu vel sótt held ur en illa. Annarlegar ástæður geta miklu ráðið um lélega að- sókn á stöku stað. Allt þetta þekkja þeir, sem þéssari starf- semi eru vanir og miklast því ekki af góðri sókn né æðrast yfir þótt út af bregði. Því furðulegra er, að Tíminn skyldi fjölyrða um sóknina hjá Sjálfstæðismönnum og láta þúsundir manna um land allt sjá, að orðum hans væri ekki treystandi, þar sem ætla hefði mátt, að hann hefði ærið verk- efni að skýra frá samkomum síns eigin flokks. En m.a.s. svo að sjá sem fulltrúi eins af heimsblöðun- um hafi verið kallaður til að lýsa allri dýrðinni. f Alþýðublaðinu sl. þriðjudag, hinn 24. ágúst, er svohljóðandi grein: „Bretinn“ sem fór á héraðsmót Brezkur blaðamaður að nafni Richard Gott, starfsmaður hins frjálslynda stórblaðs, „The Guar- dian“, hefur verið á íslandi og skrifað þaðan tvær greinar í blað sitt. Lýsir hann ýmsum íslenzk- um málefnum á litrikan hátt, ekki sízt stjórnmálum og öðrum samtíðardeilum. Gott fannst Framsóknarflokk- urinn dapurlegastur allra stjórn- málaflokkanna, þar sem fram- sóknarmenn þykist fæddir til að stjórna, eins og brezkir íhalds- menn, en uni sér illa utan stjórn- ar. Ekki hefur blaðamaðurinn hugmyndir sínar eftir andstæð- ingum framsóknarmanna, því hann sótti héraðsmót með Ólafi Jóhannessyni á Norðurlandi. — Hann lýsir því svo: „Mótið kom mér kunnuglega fyrir sjónir frá Englandi. — Klukkan níu leit aðalræðumað- urinn, Ólafur Jóhannesson, pró- fessor, varaformaður framsókn- armanna, kvíðafullur á áheyr- endur, sem voru fimm eða sex. Klukkustund síðar var mættur myndarlegur hópur, um sjötíu bændur. Fundurinn hófst með söng eins þekktasta tenórsöngv- ara íslendinga, sem flutti með þrótti „Una furtiva lacrima“ og aðrar svipmiklar ítalskar aríur í þessu þorpssamkomuhúsi fjarri allri byggð. Lítið var hlustað á pólitísku ræðunnar, en á eftir þeim kom hermikráka, sem tætti í sundur stjórnmálamenn íslands með völdum setningum og svipbrigð- um. Stjórnmálamennirnir fóru en fundarmenn, sem nú voru meira en hundrað talsins, sneru sér að aðalatriði kvöldsins — dans og drykkjuskap. Áfengis- neyzla er þjóðarmeinsemd og hin sterka bindindishreyfing, sem skilur þetta, sér um að allur bjór sé sérlega veikur. En holurnar eru stórar í löggjöfinni. Hver sem ráð hefur á getur drukkið sterk vín í flöskutali, ef hann vill. Þetta er furðulegt einkenni hjá þjóð, sem að öðru leyti virð- ist skynsöm — og að því er virð- ist áhyggjulítil“. r r A Island að hætta að vera réttarríki? Um fá mál skrifar Tíminn af meira óviti en landhelgismálið. Framsóknarmenn fóru óslitið með stjórnarforystu frá 1927 til 1942. Á öllum þeim árum aðhöfð- ust þeir ekkert í landhelgismál- inu og var þó þá jafn heimilt að segja upp landhelgissamningnum við Breta, eins og eftir að áhrif Sjálfstæðismanna jukust. Ólafur Thors lét 1946 hefja undirbúning að útfærzlu landhelginnar. Sjálf- stæðismenn beittu sér síðan með tilstyrk allra annarra þing- manna en kommúnista fyrir framkvæmdum í málinu. — Á vinstristjórnarárunum var málið aftur tekið upp, en þá svo ó- hönduglega, að einsdæmi eru í sögu þjóðarinnar. Sjálf var stjórnin þríklofin í málinu og lá í stöðugum innbyrðisdeilum, en duldi þjóðina hins sanna sam- hengis. Sjálfstæðismen kröfðust þess að öll plögg væru birt, svo að almenningur væri ekki dulinn þess hvað raunverulega væri að gerast. Með viðræðum innan Atlantshafsráðsins í París, sem kommúnistar voru algerlega and- vígir og neituðu öðru hverju að ættu sér stað, tókst að koma í veg fyrir allsherjarherhlaup á íslandsmið. En vegna þess, að ráðum Sjálfstæðismanna var ekki fylgt og efnt til fundar æðstu manna, sendu Bretar hing- að herskip haustið 1958. Það hafði þó verið sjáanlegt lengi sum- ars en stjórnarflokkarnir vildu ekki viðurkenna hver hætta væri á ferðum. Þá var enn fylgt þeirri reglu, sem Hermann Jón- asson lýsti yfir haustið 1958, að setja Sjálfstæðismenn „til hlið- ar“. Þess vegna mátti ekki fylgja þeirra ráðum. Þegar Framsóknarmenn höfðu gefizt upp og kommúnistar hrökl- azt úr stjórninni, tókst núverandi stjórnarflokkum smám saman að leysa málið farsællega. Engum hlutlausum manni blandast hug- ur um, að með landhelgissamn- ingnum við Breta 1961 unnu ís- lendingar sinn stærsta stjórn- málasigur. Sigurinn var ekki sízt fólginn í því að tryggja, að ekki yrði framar beitt valdi og síðari hugsaniegar deilur lagðar undir Alþjóðadómstólinn. Fyrir ísland er slíkt ómetanleg trygging, því að vissulega er það rétt, sem Ól- afur Jóhannesson prófessor sagði haustið 1960, að íslendingar verða ætíð að halda svo á málum að þeir geti óhikað lagt málstað sinn undir Alþjóðadómstólinn. Árið 1959 samþykkti Alþingi einum rómi að afla þyrfti við- urkenningar annarra fyrir því, að íslenzk fiskveiðilögsaga skyldi ná til landgrunnsins alls. Að sjálfsögðu hlýtur sú þróun þjóðarréttarins, sem til þessa leiðir að taka nokkurn tíma, en án hennar er þvílík útfærzla ófram- kvæmanleg. Þetta sjá og skilja allir skyni bornir menn og vita, að velferð þjóðarinnar verður einungis borgið með þolgæði og framsýni. ísland má aldrei hætta að vera réttarríki. Moskvuferðir Lúðvíks A árinu 1958 beindist áhugi Framsóknarflokksins í landhelgis málinu fyrst og fremst að því að halda þáverandi ríkisstjórn saman. Framsóknarmenn voru þá reiðubúnir til þess að bjóða Bret- um og buðu þeim raunar meiri hlunnindi hér á landi um fisk- veiðar innan 12-mílna landhelgi en samkomulag varð um 1961. Þá gleymdu þeir einnig með öllu að fá viðurkenndar hinar nýju grunnlínur sem sámþykktar voru 1961, og eru þær þó víða enn þýðingarmeiri en sjálf 12-mílna landhelgin. Kommúnistar höfðu aftur á móti tvennaþ, tilgang. Út af fyrir sig vildu þeir vafálaust fá sem stærsta landhelgi, en þeir vildu ekki síður nota málið til þess að teygja íslendinga úr Atl- antshafsbandalaginu. Lúðvík Jós- epssOn hélt þannig á málum, að sem allra mest tortryggni skap- aðist í okkar garð. Um þetta bar ferðalag hans til Moskva sumarið 1958 glöiggt vitni. Frá þeim fyrir- ætlunum skýrði hann bandarísk- um fræðimanni, en síðar birti hann þær í riti sínu og treysti Lúðvík sér ekki fyrr en seint og um síðir að véfengja það, sem þar kom fram, enda gat sann- gildi þess ekki dulizt neinum, Fyrir tæpu ári var í Þjóðviljan- um skrifað á þá leið að fáanlegur væri við Sovét-Rússland „grund- vallarsamningur“ um sölu á nið- ursoðinni og niðurlagðri sild fyr- ir 200 milljónir. Strax á árinu 1964 átti að vera hægt að selja austur þangað þessa vöru fyrir 50—60 eða jafnvel 70 milljónir! Nú buðu Rússar einungis kaup fyrir allt að 24 milljónum gegn því að fella alveg niður kaup á freðsíld og stórminnka kaup á saltsíld. Jafnvel Lúðvík Jóseps- syni ofbauð þetta tilboð svo, að hann ráðlagði að fresta öllum samningaviðræðum. Þetta raúsn- artilboð Rússa er sem sagt aðeins rösklega tíundi partur af því, sem kommúnistar hér létu í fyrra, að væri auðfengið. Skýringin á þess um aðförum er sú, að Sovétmenn segjast vera útflytjendur síldar en ekki kaupendur. Ef svo er — og engin ástæða til að rengja frá- sögn þeirra sjálfra um þetta, — 'þá er greinilegt, að Sovét-mark- aðurinn er ekki til frambúðar. Þetta er út af fyrir sig engin nýjung, því að á það hefur verið margbent áður, að sívaxandi fisk veiðar Rússa, einmitt í Norður- höfum, mundu leiða til þess, að kaup þeirra af íslendingum yrðu harla ótrygg. Af hverju þegir Magnús um sölu- skattinn í Sovét- Rússlandi? Þjóðviljinn lætur nú eins og viðskiptunum við Sovét-Rússland sé stefnt í stórhættu, ef um þessi mál sé hreinskilnislega skriíað hér á landi. Sannleikurinn er sá, að öll atvik sýna, að það eru stjórnmálatillit, sem skera úr um það, hvort Sovét-stjórnin kaupir af okkur eða ekki. Langlíklegasta ráðið til að ná viðunandi samn- ingum nú er, að það verði alveg ljóst, að erindrekar kommúnista hér á landi standi berstrípaðir sem ósannindamenn ef viðskiptin falla niður. Hagsmunir Sovét- stjórnarinnar af að bjarga flokks deildinni hér er sennilegasta ráð- ið til þess að kaupum verði hald- ið áfram. En viðurkenna verður, að viðskipti á þeim grundvelli eru harla óviss og naumast til frambúðar. Þjóðviljamenn eiga og ekki eingöngu í vök að verjast vegna þess, hversu haldlitlar yfir lýsingar þeirra um sölumöguleik ana í Sovét-Rússlandi hafa reynzt, heldur af því, að. aukin kynni af stjórnarháttum Sovét- manna eru sízt vænleg til að efla fylgi þeirra hér. Magnús Kjart- ansson fæst t. d. ekki með neinu móti til þess að gera grein fyrir hvernig söluskatti í Sovét-Rúss- landi er varið. Hann ætti þó að vera manna kunnugastur því hversu mikill þáttur hann er í tekjuöflun ríkisins. Þögnin verð- ur honum að litlu haldi held- ur sýnir einungis hans slæmu samvizku.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.