Morgunblaðið - 15.10.1965, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 15.10.1965, Blaðsíða 21
' Föstudagur 15. október 1965 MOkGU N BLAÐIÐ 21 Kveðjur til Kjarvals Kjarval áttræður! Hver skyldi trúa því, ef kirkjubækur tækju ekki af allan vafa. Ég befi þekkt harui í þrjátíu -ár, (og milli okk- ar hefur aldrei verið stríð, það er að segja nema vopnaburður andans). Ennlþá er mér í fersku minni, þegar minn látni vinur Magnús Kjaran vann að undirbúningi málverkasýningar Kjarvals í til- efrii fimmtugs afmælis hans haustið 1935. Var sýning sú hald in í Latínuskólahúsinu við Lækj- argötu og þótti takast með ágæt- um. Ég var þá svo að segja í inæsta húsi, sextán ára unglingur imeð áhuga fyrir listum. Óbjörgu legt á þeim hörmungar kreppu tímum, þá var hægt áð fara á Hótel Borg að kvöldi dags og heyra hljómsveit hússins spila, kaupa sér kaffi og meðlæti fyr- ir hiálfa aðra krónu (það er að segja ef maður var dömulaus). ] Á Borginni sá ég Kjarval fyrst og þar er hann enn daglegur gest ! iuir en ég eigi, því nú dugir ekki ! króna og fimmtíu lengur. Og i rómantíkin virðist fjarri, nema i í sumum teikningum Kjarvals. En hér vei'ður list Kjarvals ekki skeggrædd. Morgunblaðið dugir ekki til þess, — heldur eilífðin. Þetta er venj'uleg afmælis- kveðja frá mér til Kjarvals með þakklæti til hans fyrir ótal margt T.d. myndina af mér er ég ‘fékk frá honum sem nokkurskonar af mælisgjöf á sínum tíma. En fyrst og fremst þakka ég honum fyrir góð persónuleg kynni, ótal á- nægjustundir. Á gönguferðum út í náttúrunni etc. Sérstaklega er mér minnisstæð Jónsmessu- nótt fyrir nokkrum árum, er við gengum saman í nágrenni bæjar- ins. Öll sú sólglitadýrð skaparans líður mér seint úr minni, þá nótt var lítið um svefn: Nú málar þú mynd sem skal heita Jónsmessu- næturdraumur, sagði ég við Kjarval að skilnáði. Síðan hefur Kjarval málað margar myndir. Sumar þeirra eru vaka, aðrar draumar, og enn aðrar vökudraumur. Kæri vinur Kjarval! Ég þakka þér fyrir fegurðina í myndum þínum. Mér finnst stundum, að ég hafi lampa Alladíns við hönd- ina er ég skoða sumar teikningar þínar. Sömuleiðis þakka ég þér fyrir trygga vináttu, sem mér er meira virði en silfur og gull, því góð vinátta er gulli betri. Megi svo Heiðveig halda enn í hönd þér og svífa með þér ofar skýj- um enn um stund. — Æfin er stutt, listin er löng. Góðar stund ir! Mjög er kunn og kostarik. — Kjarvals æfisaga. Guðleg list er gulli lík, gildir alla daga. Með vinarkveðju Reykjavík, 15. okt. 1065 Stefán Rafn. Heill þér — Kjarval! Konung lista krýndi þig ungan eylands tigin drottning — rétti þér sprota roðasteinum settan — ríkis síns epli — " unnið skýru gulli. Aldinn þú stendur ungum frjórri. Örvar hjarta heillar þjóðar. Nemur hljóður náttúrunnar speki — ynnir hana allra svara. Þekki ég kröfur konungssálar sjálfs sín til og sinnar listar — beytir óvægin aga hörðum — en dæmir naumlega nýgræðinginn. Aldrei einmana einn þó farir utan meðal okkar hinna. Flýgur þú — skáldsál - flestum ofar — leitar samfylgdar ljóssins barna. Auðmjúkur hlýðir Alföður. Hógvær skilur skapadóm. Bljúg er lundin þó berserk leikir þá ólgar eldur í æðnm. Veit ég allar vættir landsins árna þér-gæfu — yndisstunda. Hylla þig há-fjöU hraun og mosi. Lofar þig „lítil" leirskáld undirritað. Steingerður Guðmundsdóttir Skútukarl með áttatiu ár enn þá stikar sigurbeinn og frár, Dyrfjöll opnast drepi hann á þil, dvergar brosa, hefja trumbuspil. Dansa álfar, djásn sín leggja á borð, dagur ljómar, yfir nýja storð lítur hann sem ungur eygði og sá auðinn þann er milli steina lá. Þeir sem ganga honum undir • hönd, horfa á dranga, fella "og gjögraströnd, hljóta að launum lífs og sálar bót, lofa Drottinn fyrir þetta grjót. Hverju launar þjóðin þvílíkt starf, þennan mikla, dýra snilli-arf, frestar hún enn þá dægur-dóma- fús dagsverkinu að reis Kjarvalshús? Stórt er lifað — áttatíu ár, enn er lyngtó græn og himinn blár, eitt er meira en loforð lýðs og gjörð: land þitt er og verður heilög jörð. Sem mun geyma afreksverk þín öll, ávalt bekkja þig í sinni höll, þar sem engin sjón.nje mannleg mund mælir veggjahæð nje lokastund. Árni G. Eylands Heill þér áttræðum, horski vinur! Hylli þig vættir þessa lands: Sævarins stuna, stormsins hvinur, stígandi norðurljósa-bands. Björn á Ketilsstöðum. Félagslíi Aðalfundur Skíðaráðs Reykjavíkur verður haldinn mánudaginn 18. okt. ’65 kl. 8.30 að Café Höll, uppi. Laugavegi 27. — Sími 15135. Ný sendimg þýzkar blússur Fantið tíma < síma 1-47-72 LOFTUR hf. Ingólfsstræti 6, — Verzlunarskólinn Framhald af bls. 17. kennsluefnið ákveðið í reglu- gerð þeirri, er birt var 1942. Þarf auðvitað leyfi þings og stjórnar til róttækra breytinga á þvL Lærdómsdeild skólans heyrir eins og aðrir skólar, sem stúdentsmenntun veita, undir menntamálaráðherra. En verzl- unardeild má heldur ekki breyta verulega frá því, sem ákveðið er í fyrrnefndri reglu gerð, þar eð lærdómsdeild skól- ans byggir á þeirri fræðslu í ýmsum undirstöðugreinum, sem þar er veitt. Þess ber að geta, að ýmsir merkir skólamenn, sem ég hef sýnt námsskrá skól- ans, bæði austan hafs og vestan, hafa farið um hana lofsamleg- um orðum, einkum fyrir það, hve gott jafnvægi sé þar milli almennrar menntunar og sér- greina á verzlimarsviðinu. En allir töldu þeir mikilvægt að hafa ríflegan skammt af hinni almennu menntun, því að hún yki aðlögunarhæfni manna. Að- löguarhæfni er einmitt sá eig- inleiki, sem flestum mun koma bezt að eiga í ríkum mæli, ekki sízt ef það er rétt, að unga kynslóðin megi eiga von á að þurfa að skipta um starf og læra nýtt þrisvar til fjórum sinn um á ævirini, svo ör mun þró unin verða. Enginn skilji orð mín samt svo, að ég telji engra umbóta þörf í fræðslustarfi skólans. Þar þarf einmitt. að gera stórátak, einkum á sviði kennslutækni. Skólinn þarf nauðsynlega vegna tungumálanámsins að eingast language laboratory, máltækni- stofu, eða hvað nú á að kalla þetta nýja fyrirbæri á sviði tungumálakennslunnar. Fleiri sérkennslustofur þyrftu einnig að bætast við, þar sem góð að- staða væri til notkunar fræðslu- mynda, að ég minnist ekki á sér kennslustofur fyrir alla hina nýju og margbrotnu skrifstofu- tækni. En allt þetta kostar mikið fé. Þó að ég geti ekki, að svo komnu, bent á nýjar tekjuöfl- unarleiðir, þá vil ég taka skýrt fram, að ég tel alveg fráleitt að afla nauðsynlegs viðbótarfjár með mikini hækkun skóla gjalda. Þau eru, að mínum dómi, þegar orðin það há, að ekki er miklu á bætandi. Auk þess gengi slík aðferð beinlínis í ber högg við þróunina í nágranna- löndum vorum, þar sem svo margir námsmenn fá svo háa námsstyrki, að næstum því má kveða svo að orði, að þeir séu á námslaunum. Það sjónarmið fær sívaxandi fýlgi, að arðbær- asta fjárfesting rikisins sé fræðslustarfið og skólarnir. Hver unglingur eigi því að fá eins mikla menntun og hæfileik ar hans frekast leyfa. Undir því sé eigi aðeins komin velferð ein staklinganna, heldur allrar rík- isheildarinnar. Á meðan ungl- ingar hér á landi eiga jafnvirk- an þátt í framleiðslustörfunúm og nú, er auðvitað ekkert á móti því, að þeir greiði nokkur skólagjöld. En gæta verður hófs. Engan má fé skorta til þess þjóðnytj astarf s að afla sér menntunar. Nú, á þessum tímamótum í sögu Verzlunarskóla íslands, vill undirritaður þakka öllum, sem hann hefur átt við að skipta í málefnum skólans, skólanefndum, kennurum og nemendum fyrir ánægjulegt samstarf. Þó að oft hafi verið við ramman reip að draga, hef ur allt farið vel með samstilltu átaki að lokum. Verzlunarskóla íslands óska ég allra heilla á komandi árum og vona, að hann megi hér eftir, sem hingað til, koma mörgum góðum manns efnum, körlum og konum, til nokkurs þroska. Bjarni Beinteinsson lögfræðingur AUSTURSTRÆTI 17 (SILUI & VALDl) SlMI 13536 — Nýr áfangi Framhald af bls. 17 biu-t. Að austanverðu, á neðri hæð, eru fatageymslur, skóla- búðin, snyrtiherbergi o.fl. Há- talarakerfi tengir saman gamla og nýja húsið. Öll nýbyggingin er 3833 rúm- metrar. Kostnaðarverð með öll- um húsbúnaði er um það bil kr 7.400.600.00. Er þá ekki talinn með kostnaður við 25-27 bíla- stæði, sem nam rúml. kr. 242. 000.00. Húsameistari var Þór Sand- holt, skólastjóri. Mörgum stofnimum og ein- staklijigum á skólinn þakkir að gjalda fyrir ýmis konar hjálp og stuðning við byggingu nýja skólahússins. Hér skal þó aðeins nefna tvær stofnanir, sem mest og bezt hafa stutt skólann með lánum og annarri fyrirgreiðslu: Lífeyrissjóð verzlimarmanna og Verzlunarbanka íslands. En mörgum öðrum, bæði opinber- um stjórnarvöldum, ýmsum stofnunum og einstaklingum vill skólinn við þetta tækifæri flytja alúðarþakkir fyrir marg- víslegan stuðning í orði og verki. Það er þessum ágætu að- ilum fyrst og fremst að þakka, að Verzlunarskóli íslands á nú á sextugsafmælinu við rýmri og fullkomnari húsakynni að búa en nokkru sinni fyrr. Nú í sumar hafa einnig miklar um- bætur verið gerðar á lóð skól- ans, einkum með gerð bílastæð- anna. Verzlunarskólinn er sjálfseign arstofnun undir vernd og yfir- stjórn Verzlunarráðs íslands. Er búið að ganga frá til fúlls öllum formsatriðum, sem þar að lúta. Á síðustu árum hefur kennslu véla-kostur skólans verið auk- inn stórum. Er lögð áherzla á að fylgjast með nýjungum á sviði verzlunarfræðslunnar. Nemendur fá fræðslu í vélabók- haldi, öðlast leikni í meðferð reiknivéla og ýmissa annarra skrifstofuvéla. Nýja skólahúsið táknar nýjan og betri grundvöll fyrir árang- ursríka kennslu. Hið nýja skóla- hús Verzlunarskóla íslands er því merkilegur áfangi í þróun verzlunarmenntunar á landi hér. Mikils er um vert, hve nem- endur skólans, fyrr og síðar, hafa sýnt honum mikla ræktar semi og hollustu. Hafa þeir jafn- an borið hag skólans fyrir brjósti og viljað veg hans sem mestan í hvívetna. Oft hafa þeir fært honum góðar gjafir, bæði fjárupphæðir til húsbyggingar- innar og annarra þarfa, kennslu tæki, listaverk o.s.frv. Félagslíf í skólanum hefur jafnan staðið með miklum blóma og verið merkur þáttur skólalífsins. Á þeim vettvangi hafa ýmsir hlotið nokkra æf- ingu í félagsmálastörfum, ræðu mennsku, kosningabaráttu o.s. frv. Langflestir nemendur skólans hafa orðið honum til sóma og getið sér hið bezta orð. Hafa þeir lagt á margt gjörva hönd og verzlunarskólamenntunin komið þeim að góðu haldi, hvar sem þeir hafa haslað sér völl til starfa. Sumir hafa skarað fram úr og orðið mikilhæfir forystu- menn á ýmsum sviðum. Það, sem skólanum hefur á- unnizt til heilla fyrr og síðar, hefur öllum forvígismönnum hans, og þá fyrst og fremst skólanefndinni, að sjálfsögðu verið hið mesta gleðiefni. Bæði skólastjórar, fyrr og nú, og kena arar eiga þakkir skildar fyrir árvekni og alúð við sín mikil- vægu störf. Sjálft fræðslustarfið er auðvitað burðarás sérhvers skóla, og þeir, sem það rækja af kostgæfni, stuðla mest og bezt að góðum árangri. Hagnýt þekking á traustum grundvelli góðrar, almennrar menntunar er það veganesti, sem Verzlunarskóli íslands hef- ur viljað veita nemendum sín- um. Hefur það engan svikið, en öllum komið að góðu haldi, sem það hafa vUjað nýta. Skólastjóri Verzlunarskóla Is- lands er nú, og hefur verið frá 1953, dr. Jón Gíslason. Skóla- nefnd skipa enn hinir sömu menn, er voru í nefndinni, þeg- ar hafizt var handa um bygg- ingu nýja skólahússins. Þeir eru Magnús J. Brynjólfsson, fram- kvæmdastjóri, formaður, Gunn- ar Ásgeirsson, stórkaupmaður, Gunnar Magnússon, aðalbókari, Sigurbjörn Þorbjörnsson ríkis- skattstjóri og Þorvarður Jón Júl íusson framkvæmdastjóri Verzl unarráðs Islands. Magnús J. Brynjólfsson ■— Bilasmiðjan Framh. af bis. 10. til að byrja með. Við vonum að það dugi. — Hvað byggið þið yfir marga áætlunarvagna? Eða takið þið líka smábíla eðá * jeppa? — Við byggðum yfir 20' stóra bíla á ári hér. Við vor- um líka með jeppana, en er- um hættir því, höfum nóg með hina. Og nú vonumst við til að geta bygát yfir 30—40 stóra vagna, þegar við verð- um komnir í gang á nýja staðnum. Við verðum líka að vera komnir í fulla vinnu, þeg ar breytt verður yfir í hægri handar akstur. Áður en það kemur til framkvæmda, þarf að vera búið að breyta tals- vert mörgum bilum. Að minnsta kosti 20 strætisvögn- um til dæmis, en við höfum byggt yfir flesta strætisvagn- ana að undanförnu. Nú kemur verkfræðingur- inn frá Sjónvarpinu, Jón Þor- steinsson, í dyrnar; ætlar að tala við Lúðvík. Þessir tveir aðilar búa um þessar mundir saman í húsinu, — og reyna að liðka til hver fyrir öðrum. Bílasmiðjan vék úr skrifstof- unni fyrr en stóð í samn- ingum og Sjónvanið leyfði henni að vera lengur á verk- stæðinu en til stóð. Við ökum nú með Lúðvík upp í Selásinn, þar sem er að rísa 10 þús. manna íbúðar- hverfi og þar fyrir norðan eru fyrstu iðnfyrirtækin að rísa. ofnasmiðjan fyrst, Johnson & Kaaber búinn að grafa grunninn að kaffibrennslu og þar fyrir austan lóð Samein- uðu bílasmiðjunnar, sem kem- ur til með að standa norðan við nýja Suðurlandsveginn á háhæðinni. Þar er kominn stór húsagrunnur og fyrsti upp- sláttur. LOIMDON dömudeiBd Nýkomnir hollenzkir dömukjólar tví- og þrískiptir, stór númer. LOIMDOIM dömudeiEd I\Semi í húsgagnabúlstrun getur komist að nú þegar. — Upplýsingar í síma 15102.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.