Morgunblaðið - 15.10.1965, Blaðsíða 32
Lang siærsta og
íjölbreyttasta
blað landsins
M
MYNDAMOT HF.
MORGUNBLAÐSHÚSINU SlM117152
Likan að sýningarhúsi myndlistarmanna við Miklatun, sem Hannes Davíðsson, arkitekt, hefur
teiknað. Þannig lítur húsið út frú Miklubraut. — (Ljósm. MbL: Ól. K. M.)
Borgin gengst fyrir byggingu
sýningarhúss myndlistarmanna
Verður tengt nafni Jóhannesar S. Kjarvals
að því er Geir Hallgrímsson, borgarstjóri,
skýrði frá við opnun Kjarvals-
sýningarinnar í gær
1 ÁVARPI er Geir Hallgríms-
son, borgarstjóri, flutti við opn
un Kjarvalssýningarinnar í
Listamannaskálanum kl. 6 síð-
degis í gær skýrði hann frá því,
að borgarráð hafi samþykkt á
fundi fyrr um daginn, að
Reykjavíkurborg gangist fyrir
byggingu sýningarhúss mynd-
listarmanna og standi fyrir
byggingu sýningarhúss, sem sér
staklega verði ætlað til sýninga
á verkum Jóhannesar S. Kjar-
vals og verði byggingarnar
tengdar nafni hans.
Fjöldi manna var viðstaddur
©pnun sýningarinnar, sem hald-
in er i tilefni áttræðisafmælis
listamannsins, en það er í dag.
Meðal sýningargesta voru
Bjarni Benediktsson forsætisráð
herra, Gylfi í>. Gíslason mennta
málaráðherra, frú Auður Auð-
uns forseti borgarstjórnar og er
lendir sendiherrar.
Er Jóhannes Kjarval gekk í
salinn var hpnum vel fagnað af
hinum mörgu vinum sínum og
velunnurum. Gekk hann um og
heilsaði upp á kunningja sína
og var í hinu bezta skapi.
Geir Hallgrímsson, borgar-
stjóri, kvaddi sér hljóðs og
mælti:
„Á aðfangadegi áttræðisaf-
mælis Jóhannesar Kjarvals, list-
málara, flytjum við honum hug
heilar hamingjuóskir og tjáum
honum með lotningu þakkir
okkar fyrir list hans og líf.
Það er í samræmi við list- og
lífsferil Jóhannesar Kjarvals og
stórlátan hug hans að leyfa
nokkrum vinum að efna til sýn-
ingar á verkum hans, svo að
virkja megi vinarhug og gjaf-
Hinn almenni kirkju-
fundur hefst í dag
f DAG hefst hinn almenni kirkju
fundur hér í Reykjavík í húsi
K.F.U.M. við Amtmannisstág kl. 4
síðdegis. Fundurinn stendur til
mánudagsins 18. okt. Aðalfundar
efnið er safnaðarþjónusta, eink-
um varðandi aldrað fólk.
Að undanförnu hafa á annað
hundrað fulitrúar sóknarnefnda
víðsvegar að af landinu sótt
fundi þessa. Enn er ekki með
vissu vitað hve margir sækja
fundinn nú.
Dagskrá fundarins er sem hér
segir:
Föstudagur 15. okt.
Kl. 4: Fundarsetning og skrán-
ing fulltrúa. Kl. 5: Framsögu-
erindi: Prófessor Jóhann Hannes
son: Safnaðarþjónusta (Dia-
konia). Prófessor Þórir Kr. í>órð
arson: Safnaðarþjónusta, einkum
varðandi aldrað fólk. — Skipað
í nefndir.
Laugardagurinn 16. okt.
Kl. 9,30: Morgunbænir. Kl. 10:
Framsöguerindi: Gísli Sigur-
björnsson: Þjónusta við aldrað
fólk. Unnur Halldórsdóttir, dia-
konissa: Ávarp. Árni Árnason:
Ávarp, leikmannsstarfsemi innan
kirkjunnar. — Kl. 12—2 Matar-
hlé. Kl. 2 Umræður. Kl. 4—5:
Framhald umræðna.
Mánudagurinn 18. okt.
Kl. 9,3t) Morgunbænir. Kl. 10:
Dr. Robert Abraham Ottósson:
Ávarp: Hlutverk organista og
söngstjóra í söfnuðunum. —
Kl. 11 Nefndarálit aðalnefndar.
Kl. 12—2 Matarhlé. Kl. 2—3,30:
Önnur mál. Kl. 3,30—4,30 Kaffi-
hlé. Kl. 4,30 Atkvæðagreiðsla:
Kosið í undirbúningsnefnd. —
Kl. 6 Guðsiþjónusta með altaris-
göngu. Kl. 8,30 Kveðjusamsæti.
mildi aðdáendanna, í því skyni
að ráðizt verði í stórátak fyrir
íslenzka myndlist, að reisa
henni nýtt sýningarhús.
Nauðsyn þeirrar framkvæmd-
ar er okkur öllum Ijós, er stönd
um hér í þessum skála, sem að
vísu hefur gegnt mikilvægu
hlutverki, en er nú að hruni
kominn. Feginn vildum við eiga
í dag veglegri stað en þennan
Framh. á bls. 31
Fá utanlandsferð
í verðlaun fyrir
söltunarafrek
Saltaði 1000 tunnur í sumar
og fékk 63 þús. í kaup
í GÆR áttum viö tal viö
Olaf Oskarsson, forstjóra
Hafölclunnar á Seyðisfirði,
en söltunarstöð hans þar
og systurfyrirtæki hans á
Raufarhöfn eru nú hæstar
með söltun eftir sumarið.
Hefir Olafur saltað í rúm-
ar 18 þúsund tunnur.
— Ég er hættur að salta,
sagði Ólafur, — og nú er fólk-
ið allt að halda heim á leið.
Þetta hefir gengið vel og ég á
þetta allt stúlkunum að þakka,
sem salta. Sjómennirnir vilja
leggja upp hjá okkur vegna
þess að hér er gott starfsfólk,
sem afgreiðir skipin fljótt og
vel. Það er starfsfólkið sem
afgreiðir skipin. Við eigum
alia okkar velgengni undir
því.
— Það eru einkum fimm
stúlkur hér, sagði Ólafur, —
sem skilað hafa stórkostleg-
um árangri. „Það eru nú
meiri byssurnar maður“, bætti
hann við í gamni. — Krist-
björg Jónsdóttir frá Drangs-
nesi er hæst og hún á systur
sem Stella heitir, sem er engu
síðri, en hún hefir bara verið
hér skemur. Kristbjörg er bú-
in að salta í 1000 tunnur. Hún
hefir saltað mest 55 tunnur í
19 klst. törn. Fyrir þessar
1000 tunnur fær hún 63 þús-
und í söltunarlaun en útflutn-
ingsverðmæti þess, sem hún
hefir saltað er 1,1 milljón kr.
Það er ekki lítið, sem þessi
eina stúlka hjálpar til að
leggja í þjóðarbúið.
— En hún er ekki ein um
að vera afkastamikil, heldur
Ólafur áfram. — Hér á stöð-
inni eru fjórar aðrar, sem
skilað hafa miklum afköstum.
Tvær eru frá Grindavík, þær
Margrét Jónsdóttir og Guð-
björg Sigurðardóttir, sem
saltað hafa í 902 og 905 tunn-
ur og svo eru tvær frá Hafn-
arfirði, Gyða Helgadóttir og
Guðný Gísladóttir sem sölt-
uðu í rúmar 800 tunnur hvor,
en þess er að geta, að tvær
hinar síðastnefndu tóku sér 6
Framhald á bls. 31.
Auður Ragnarsdóttir Jónssonar í Smára selur borgarstjóra, Geir
Hallgrímssyni, sýningarskrá, sem jafnframt gildir sem miði í
haþpdrætti til ágóða fyrir byggingu nýs listamannaskála.
T résmiðadeilan
leystist í gær
Verkfalli og verkbanni aflýst
SAMNINGAR hafa tekizt í deilu
Trésmiðafélags Reykjavíkur og
Meistarafélags húsasmiða. Til-
laga sáttasemjara var samþykkt
í báðum félögunum og er því
verkfalli og verkbanni aflýst.
Úrslit atkvæðagreiðslu í Tré-
smiðafélaginu urðu þau, að 135
greiddu atkv. með tillögu sátta-
semjara, en 87 á móti 3 seðlar
voru auðir. Á kjörskrá voru 421
en 225 greiddu atkv.
1 Meistarafélagi húsasmiða var
tillagan samþykkt með 72' atkv.
gegn 12, en 2 seðlar voru auðir.
Á kjörskrá voru 255 en 86
greiddu atkv.
Samningavið-
ræður við bor^-
arstarfsmenn
AÐ undanförnu hafa staðið yfir
viðræður um nýja kjarasamninga
milli starfsmanna Reykjavíkur-
borgar og borgarinnar. Samn-
ingaviðræður stóðu í alla fyrri-
nótt, en báru engan árangur.
Þá hefur kjaramálum starfs-
manna Akureyrarbæjar verið vís
að til kjaradóms.
Meðalvigt einu
kílói meiri
Hofsós, 13. október.
HAUSTSLÁTRUN er lokið hér
á Hofsósi. Slátrað var tæpum
7000 dilka og reyndist meðalvigt
um einu kílói meiri en í fyrra eða
14 kíló. Kjötþungi er nú rúm-
um 6 tonnum meiri en síðast-
liðið ár. af sama fjölda. Kúa-
slátrun stendur nú yfir og eru
allar líkur á að hún verði miklu
meiri en í fyrra, vegna þess að
kúm hefur fölgað verulega og
allmargir bændur eru nú að
skipta yfir á sauðfé.
— Björn í Bæ.
Siglufjarðaskarð
teppt
Siglufirði, 14. okt.: —
HÉR HEFIR gert snjókomu í
nótt og alhvítt niður í fjöru.
Siglufjarðarskarð er teppt af
þeim sökum. Skarðið verður
væntanlega opnað á morgun ef
snjókomu linnir. Bleytuslydda
er í dag. — Stefán.