Morgunblaðið - 24.10.1965, Qupperneq 1
32 síður oy Lesbok
Dr. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins flytur
raeðu á sveitarstjórnaráðstefnu Sjálfstæðisflokksins í gær,
Fundarstjóri var Jóhann Hafstein, varaformaður Sjálfstæðis-
flokksins.
Kína ekki lengur vina-
— nafn Alþýðulýðveldisins fellt úr lista
í „Pravda“ yíir vinveittar bjóðir
Moskva, 22. okt. — (NTB) —
MOSKVUBLAÐIÐ „Pravda“
telur Alþýðulýðveldið Kína
ekki lengur til þeirra þjóða,
sem vinveittar eru Sovétríkj-
unum. Bendir ýmislegt í skrif
um blaðsins í dag, laugardag,
til þess, að Sovétstjórnin und-
Sveitarstjórnaráðstefn-
an hófst í gær
FJöIdi fulltrúa sækir hana
FORMAÐUR Sjálfstæðisflokks-
ins, dr. Bjarni Benediktsson, for-
sætisráðherra, setti flokksráðs-
JufmI og sveitarstjórnnráðstefnu
Sjálfstæðisflokksins í Sjálfstæðis
húsinu í gær kl. 10 f. h. Mikili
íjölcli flokksráðsmanina og sveit-
arstjórnafulltrúa viðsvegar af
landinu var kominn til fundar.
Fundarstjóri var varaformaður
Sjálfstæðisflokksins, Jóhann Haf-
stein dómsmálaráðherra en fund
arritari, I>orvaldur Garðar Kristj
ánsson, fram-kvæmdastjóri Sjálf-
síæöisflokksinis.
í upphafi fundarins í gær flutti
dr. Bjarni Benediktsson yfirlits-
ræðu um stjórnmálaviðhorfið og
ræddi þar helztu vandamál, sem
við hefði verið að étja að undan-
förnu og hina nýju stefnuyfir-
flýsingu ríkisstjórnarinnar. I>á var
kjörin 10 manna nefnd til að
fjalla um ályktun um sveitar-
stjórnamál.
Að loknu matarhléi flutti Geir
Hailgrímsson, borgarstj óri, ræðu
um verkefni sveitarfélaga og Jón
G. Sólnes, forseti bæjarstjórnar
Akureyrar, ræddi um fjármál
sveitarfélaga. Þá flutti Þorvaldur
Garðar Kristjánsson ,ræðu um
undirbúning og framkvæmd
9veitarstjórnakosninga.
í dag verður fundum fram hald
ið kl. 10 f.h. og verður þá tekin
fyrir ályktun um sveitarstjórna-
mál. Almennar umræður halda
áfram eftir matarhlé kl. 14 og
siðar um daginn mun flokksráðið
koma saman til sérstaks fundar.
Siðdegisboð verður fyrir full-
trúa á ráðstefnunni og konur
'þeirra kl. 17-19.
irbúi nú svarskrif, gegn árás-
um talsmanna og málgagna
Pekingstjórnarinnar á stjórn
Sovétríkjanna undanfarið.
„Pravda“, sem er aðalmál-
gagn kommúnistaflokks Sov-
étríkjanna, minnist ekki á Al-
þýðulýðveldið í grein um
rússnesku byltinguna. Vantar
nafn Kína á lista þann, er
blaðið birtir yfir þjóðir, vin-
veittar Sovétríkjunum.
Hins vegar er nafn Kína með
á lista þeim, sem birtur er yfir
þær þjóðir, sem Sovétstjórnin
telur vinna gegn heimsvalda-
stefnu Bandaríkjanna.
Ummæli þau, sem höfð eru um
Kína í þessu sambandi ,eru þó
allt önnur, en verið hefur undan-
farin ár ,er minnzt hefur verið
byltingarinnar. Nú segir ekki um
Kína, að sambúð þess og Sovét-
ríkjanna einkennist af „eilífum,
órjúfandi vinarböndum."
Þessi ummæli hafa þó verið
Lífvörðum Wilson fiölgað
— er hann heimsækir Rhódesíu í dag, sunnudag
London, 22. okt. — (AP)
ÁKVEÐIÐ hefur verið að
fjölga lífvörðum Harold
Wilson, forsætisráðherra
Breta, er hann leggur af
stað í heimsókn til Salis-
bury, höfuðborgar Ród-
esíu, á mo:- sunnudag.
Lífverðú’ ns eru
tveir, en ,rða sex í
þessari fc .
Þá verða einnig sendir
fjórir aðrir leynilögreglu-
menn frá Scotland Yard til
Ródesíu, þannig, að lífverð-
ir forsætisráðherrans geti
haft vaktaskipti, en vakað
skal yfir lífi hans dag og
nótt, meðan á heimsókn-
inni stendur.
Einn leynilögreglumánna
Scotland Yard flaug til Salis-
bury í gær, föstudag, og mun
taka þátt í skipulagningu ör-
yggisráðstafana utan höfuð-
borgarinnar. Gert er ráð fyrir,
að Wilson og Bottmley, sam-
veldismálaráðherra, muni
ferðast víða um Kódesíu.
Umferð verður bönnuð um
þá staði, þar sem hægast
myndi að veita forsætisráð-
herranum fyrirsát. Hefur lög-
reglan í Ródesíu þegar gert
víðtækar ráðstafanir til að
tryggja öi-yggi ráðherranna
tveggja.
Tilgangur Wilsons með för-
inni er að reyna að finna
grundvöll fyrir lausn deilunn-
ar um sjálfstæði Ródesíu, en
stjórn landsins, undir forystu
Ian Smith, hefur lýst því yfir,
að landið muni brátt lýsa yfir
einhliða sjálfstæði.
Gert er nú ráð fyrir, að
Wilson dveljist í Ródesíu um
vikutima.
viðhöfð á hverju ári um langt
skeið, jafnvel 1961, er hugsjóna-
ágreiningur stórveldanna tveggja
náði nýju hámarki.
Fyrir viku sendu leiðtogar
Kína Sovétstjórninni svar, vegna
kveðja, sem sovézkir leiðtogar
sendu í tilefni þjóðhátíðardags
Kína. Orðið „vinátta“ kom
hvergi fram í kínverska svarinu.
Talið er nú víst, að aðalritari
sovézka kommúnistaflokksins,
Leonid Brezhnev, undirbúi nú
svarskrif gegn siauknum árásum
Pekingstjórnarinnar, og álita
margir, að þau verði birt, er
byltingarinnar rússnesku verður
opinberlsga minnzt, snemma í
næsta mánuði.
J 6 farost
i
flóðum
Madrid 22. október - NTB.
ÓTTAZT er, að 16 verkamenn
hafi týnt lífi í miklum flóð-
um, sem orðið hafa við
Torrejon-stífluna á V-Spáni.
Brotnaði stíflugarður, skammt
frá raforkuveri, sem nú er í
byggingu. Vatnavextir munu
hafa valdið.
Orðið hefur að flytja í
skyndi burt alla íbúa tveggja
þorpa í nágrenninu. Margra
manna er saknað og fullvíst
þykir, að a.m.k. 16 hafi
drukknað. Allmargir hafa slas
azt.
Torrejon-stíflan er í um 100
km fjarlægð frá landamær-
um Portúgal, og er hluti
mikils raforkuvers, sem verið
er að reisa við ána Tagus.
Houston, Texas, AP.
★ Tilkynnt var sl. laugardag,
16. okt., að ákveðið hafi verið
að hætta við þrjár tilraunir af
sjö fyrirhuguðum í Gemini geim-
ferðaáætluninni svokölluðu.
------------------------------
FuíHrúar á sveitarstjórnaxráðst efnu og flokksráðsfundi Sjálf stæðisflokksins sem hófust í gær.
Sýknudðmur yfir Ku
Klux Klan-manni
Heynesville, 22. okt. — NTB
EINN meðlima hermd^rverka
hreyfingarinnar Ku Klux
Klan, Collie Leroy Wilkins,
var í gærkvöld sýknaður af
ákæru um að hafa myrt frú
Viola Liuzzo, 25. marz sl. Frú
Liuzzo er ein margra hvítra
borgara, sem barizt hafa fyrir
auknum réttindum blökku-
manna í suðurríkjum Banda-
ríkjanna.
Er tilkynnt var um sýknunina,
greip mikíll fögnuður alla við-
stadda. Wilkins, sem er 21 árs,
kveikti sér í vindlingi og brosti
ánægjulega.
Tveir aðrir menn, sem sakaðir
hafa verið um að hafa verið við-
staddir, er Wilkins skaut á frú
Liuzzo, Eugene Thomas og
William Eaton, voru í réttarsaln-
um, er úrskurður var felldur í
gær. Þeir hafa verið látnir )aus-
ir gegn tryggingu, en eiga að
mæta fyrir réttinum innan
skamms.
í réttarhöldunum í gær bar eitt
vitna verjandans, að Wilkins hafi
verið staddur 160 km frá morð-
staðnum, er frú Liuzzo var skot-
in til bana.
Margvísleg sönnunargögn um
sekt Williams voru lögð fram,
meðan á réttarhöldunum stóð.