Morgunblaðið - 24.10.1965, Page 5

Morgunblaðið - 24.10.1965, Page 5
Sunnuda^tr 24. október 1965 MOHGUN&IABID 5 Það hefur áður verið á það bent á -þessum stað, að biðstöðvum Strætisvagna Reykjavíkur er oft komið fyrir of nærri götuhornum, svo nærri, að til stórra vandræða horfir fyrir umferðina. Frægt er dæmið úr Lækjagötu við skólabrú, sem hér var minnzt á, á sinum tima, og nú hefur verið lagað. Þessi mynd sýnir eitt vandræðahornið í viðbót, á mótum Laugavegs og Nóatúns. Þar hefur forráða- tnönnum umferðarmála þóknast að láta Sundlaugavagninn nenia staðar á 15. mín. fresti, á bláhorninu svo að hann lokar alveg vinstri akreininni, fyrir þeim, sem niður ætla að beygja. Horn þetta er eitt- hvert mesta slysahom í Reykjavík, og ekki ábætandi mcð slíkum ráðstöfunum. Auk þess mætti benda á, að um 150 metrum neðar við Nóatún er önnur biðstöð með skýli. Nei, þið alvitru ráðamenn: Svona á ekki að leggja! Breytið þessu Lguðanna bænum, áður en slysin fara að reka á eftir ykkur! Kvennaskólastúlkur eldri og yngri. •— Nemendasamband Kvennaskólans heldur bazar í Góðtemplarahúsinu miðvikudaginn 17. nóvember nk. — Vinsamlegast sendið muni á eftirtalda staði: Regína Birkis, Barmahlíð 45; Margrét Sveinsdóttir, Hvassaleiti 101; Karla Kristjánsdóttir, Hjallavegi 60 og Ásta Björnsdóttir, Bræðraborgarstíg 22. F. F. U. K. K. F. U. M. Æ&kulýðsvika í kvöld kl. 8,30 hefst æskulýðsvika K.F.U.M. og K. i húsi félaganna við Ammtmannsstíg. Samkomur verða á sama tíma á hverju kvöldi til nk. sunnu- dags. Mikill og fjölbreyttur söngur og hljóðfæra- " sláttur. Efni vikunnar er: Austur á Síðu er bær, sem Keldugnúpur heitir. Dregur hann nafn af háum kletta- gnúpi þar framan í hei'ðar- brúninni. Er þar slétt bjarg en uppi í því miðju er hellir með víðum munna. Hann heit ir Gunnars hellir og kenndur við Gunnar Keldugnúpsfífl að því er sagnir herma. Til er þáttur af þessum Gunnari, sem á að hafa verið uppi á 10. öld, en þátturinn er ekki skráður fyr en á 14. öld. Segir þar frá því, að Þorbjörn hafi bóndi heitið, er bjó á Keldugnúpi. Hann átti tvo sonu, Helga og Gunnar, og var þeirra mikill munur, því að Helgi var skartsmaður mikill, en Gunnar var kol'bít- ur og lagðist í eldaskála. Unni faðir hans honum lítið og var eins óþokkasæll af almenn- ingi fyrir þetta uppátæki. En hér fór sem oftar, að kolbítur- inn reis upp úf öskunni og var þá hinn mesti afreksmað- ur. Segir síðan frá væringum nokkrum við nágrannana og vígaferlum. Eftir þáð fóru þeir bræður utan með skipi, sem lá í Skaftárósi. Komust þeir í mannraunir miklar er- lendis, en urðu að lokum hirð menn Hákonar Hlaðajarls. En er heim kom, höfðu þeir með sér marga góða gripi og ger- semar. En sú sögn, þótt þess sé ekki getið í þættinum, að Gunnar hafi falið gersemar sínar í helli þessum í keldu- gnúpi, þar á meðal hafi ver- ið gullkistur er hann kastaði í tjörn í hellinum. Hátt er upp í hellinn og illt að komast þangað vegna þess hve slétt FRETTIR Orðsending: frá Verkakvennafélag- fnu Framsókn: Basar félagsins verð- ur 11. nóvember n.k. Félagskonur vin samlegast komið gjöfum á basarinn eem fyrst, á skrifstofu félagsins, sem er opin alla virka daga frá kl. 2—6 e.h. nema laugardaga. Stjórn og basarnefnd. Basar kvenfélags Háteigssóknar verð ur mánudaginn 8. nóvember 1 Góð- templarahúsinu. Allar gjafir frá vel- unnurum Háteigskirkju eru velþegn- ar á basarinn og veita þeim mótöku: Sólveig Jónsdóttir, Stórholti 17, Maria Hálfdánardóttir, Barmahlíð 36, Vil- helmiía Vilhelmsdóttir, Stigahlíð 4 og Lára Böðvarsdóttir, Barmahlíð 54. Kristileg samkoma verður sunnu- dagskvöldið 24. okt. í samkomusaln- um í Mjóuhlíð 16 kl. 8. Allt fólk hjart anlega velikomið. Bræðrafélag Bústaðasóknar. Aðal- fundur félagsins verður á mánudags- kvöld 25. okt. kl. 8:30 í Réttarholts- ckóla. Séra Árelíus Níelsson talar um starf og hlutverk bræðrafélaga. Stjórn in. Landsmálafélagið FRAM Hafnarfirði heldur fund á mánudagskvöld 25. okt. 1 Sjálfstæðishúsinu kl. 8:30. A fundinum mun alþingismennirnir Matthias Á Mathiesen og Sverrir Júliusson ræða landsmál. Ennfremur fara fram kosningar i fulltrúaráðið. Stjórnin. Langholtssöfnuður. Kynnis- og spilakvö-ld verður í Safnaðarheimilinu bergið er. Þó freistaði gulli’ð margra röskra manna, en þeir sem fyrstir komust upp í hell irinn gripu þar í tómt, þar var hvorki tjörn né gullkistur. Síðan hafa nokkrir ungir menn kifið upp í hellinn til að sýna frækleik sinn, og svo var vorið 1948. En þeir, sem þó komust upp, fundu stórt krossmark markið í hellinn og hafði enginn vitað um það áður. Þó er þetta krossmark svo gloggt að sjá má það þeg ar ekið er eftir veginum þar fyrir neðan. — Hér er mynd af Keldugnúpi og hellinum í miðju bjargi. ÞEKKIRÐU LAIMDIÐ ÞITT? sunnudagskvöldið 24. okt. kl. 8. Þess er óskað að safnaðar meðlimir, yngri en 14 ára mæti ekki á spilakvöldunum Sumarstarfsnefnd. Kvcnfélag Hallgrímskirkju heldur íynsta vetrarfund sinn mánuóags- kvöldið 25. okt. kl. 8:30 í Iðnskólan- um. Gengið inn frá Vitastíg. Unnur Halldórsdóttir diakonissa flytur er- indi um diakonissusstarf. Frú Rósa Blöndal, les upp og dr. treol. séra Jakop Jónsson flytur vetrarhugleið- ingu. Kaffiveitingar. Stjórnin. Ásprestakall: Fótsnyrting fyrir aldr að fólk í Ásprestakalli (65 ára pg eldra) er hvern mánudag kl. 9—12 fyrir hádegi í læknastofunni Holts- apóteki, Langholtsvegi 84. Kvenfélag- ið. Kvennadeild Skagfirðingafélagsins: Reykjavík heldur aðal- og skemmti- fund í Oddfellowhúsinu uppi miðviku daginn 27. okt. n.k. kl. 8:30. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Félagsvist. Kaffiveitingar. Félagskonur fjölmenn- ið og takið með ykkur gesti. Stjórnin. K.F.U.M. og K. í Hafnarfirði. Almenn samkoma kl. 8:30 í kvöld. Séra Magn- ús Guðmundsson talar. Allir velkomn- ir. Fíldadelfia í Reykjavík. Barnasam- koma í dag kl. 2. Almenn samkoma í kvöld kl. 8.30 Guðmundur Markússon og Kristín Sæmunds. tala. Spakmœli dagsins Það er mannlegt að hefna sín, en guðdómlegt að íyrirgefa. — Spánskt. a’ð nú væri blessaður veturinn genginn í gar'ð með öllum sínum saumakjútobum og kvenfél-ags- fundum, og mega nú konurnar taka á honum stóra sínum að sauma, prjóna og hekla á basar- ana sína og ekki síður hinar, sem baka fyrir kaffisölurnar, en allt þjónar þetta „brambolt“ góðum tilgangi, allir peningar, sem inn koma renna til góðra málefna, í það minnsta er okkur sagt það, sem ætlast er til að kaupum framleiðsluna. Alit er nú þetta gott og bless- að, svo langt sem það nær, veit- ir sjálfsagt konum frið í sál sína og ekki veitir nú af á þeim víg- stöðvunum. Rétt hjá nýja kvennalheimil- inu, Hallveigarstöfðum, hitti hann roann, sem sat þar á steini, hafði lagt hönd undir kinn og hugs- aði. Storkurinn: Mér þykir þú hugsa stífan, manni minn. Maðurinn með hönd undir kinn: Það er nú varla nema von, því að me'ð vetrarkomu breytist svo margt, bæði til hins betra og hins verra. Þá breyt ist útvarpsdagsdagskráin, og sýn- ist sitt hverjum um þá breyt- ingu. Þá taka öll félög fjör kipp, þótt mest beri á þeim kippn um hjá kvenfélögunum, og nú kemur það, sem veldur mér mestum heilabrotunum. Ég hef heyrt mikið talað um bræðra- félög upp á sfðkastið, svo að nú má búast - við að karlmenn- irnir komist líka í kippinn eins og konurnar og byrji að „bar- dúsa“ í félagsstörfum og sauma- skap öll kvöld. Það verður þokka legt heimilislíf að tarna, þegar bæ'ði hjónin standa í þessu stússi flest kvöld vikunnar? Hvers eiga blessuð börnin að gjalda? Félagslíf er gott og góðra gjalda vert, en það er eins með það og a'ðrar guðsgjafir, allt er bezt í hófi. Sannast sagna finnst mér, að karlmennirnir hefðu getað látið vera að láta að teyma sig í Bræðraféiög. Þáð var nóg af alls konar klúbbum fyrir, þörfum og óþörfum, og hana nú. Storkurinn var manninum að mestu leyti sammiála, og með það flaug hann upp á turninn á Kwstskirkju í Landakoti og var mest að hugsa um að biðja prest ana þar áð syngja sálumessu fyrir heimilislífinu, því að það er sjáanlega að fara fyrir „bí“, ef svona heldur áfram, það væri þó helzt að sjónvarpið gæti eitt- hvað lagáð það. Hvers vegna Kristur? Ræðumaður kvöldsins: Bjarni Eyjólfsson, ritstjóri. Allir velkomnir. NEFNDIN. HAFNFIRÐINGAR! Við skruppum til LONDON yfir þessa helgi, og fengum þess vegna aðra hljóm- sveit til þess að leika fyrir ykkur í kvöld í Alþýðuhúsinu frá kl. 9—1. GÓÐA SKEMMTUN SJÁUMST UM NÆSTU HELGI EINS OG VENJULEGA! KÆRAR KVEÐJUR. TÓNAR H * A IVIORGIIM ' / " • . - . Efni meðal annars: 'k Fróðlegt og skemmtilegt viðtal við lista manninn og náttúruskoðarann Jó- hannes Sigfinnsson á Grímsstöðum við Mývatn. ic í sviðsíjósinu, úrslit skoðanakönnun- arinnar. 'k Hugmyndaríkir húsasmiðir. — Myndir af frumlegum húsum úr gerviefnum. ★ Sigurður A. Magnússon skrifar um íhald og afturhald. Hversu margir svelta? Grein og myndir varðandi hungursneyðina í heiminum. FÁLKIMM FLVGIJR IJT o.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.