Morgunblaðið - 24.10.1965, Side 17

Morgunblaðið - 24.10.1965, Side 17
Sannudagur 94. október 1965 e. i MORCUNBLAÐIÐ 17 Hlín Johnson látin HLÍN Johnson var ein þeirra kvenna, sem þeir, er henni kynnt ust, muna. Hún var fyrrr og síðar óhrædd við að fara eigin leiðir. Henni þótti eigi meira til um að flytja sig heimsálfna á milli en flestum öðrum milli borgar- ihverfa í Reykjavík. Hún var ejálfstæð í skoðunum og lá ekki á þeim, enda orðheppin. Inn í þjóðarsöguna kemst hún vegna umhyggju sinnar og raunar for- sjár fyrir Einari skáldi Bene- diktssyni, eftir að heilsu hans fór verulega að hraka. Um einkamál tjáir yfirleitt ekki að tala á al- mennum vettvangi, en á engan er hallað, þótt sagt sé, það, sem satt er, að með þeirri umönnun sinni vann frú Hlín til alþjóðar- þakklætis. Sá, er þetta ritar, þekkti frá barnæsku frú Hlín. Einna minnisstæðust er hún hon- «m frá því, að hann bar fyrir- varalaust að garði í Herdísarvík nokkrum árum eftir að Einar dó, áður en búið var að leggja veg alla leið. Frú Hlín kom neðan frá sjó í sama bili og gestirnir gengu heim að skála þeirra Ein- ars, og var gamla konan ekki blíðleg, þegar hún sá gestakomu. úr þessum hraða hefur nokkuð verið drejsjð og ráðstafanir gerð- ar til þess, að féð nýttist betur en ella. Áltrif búvöruverðs Fjárhagsörðugleikar ríkisins eru bein afleiðing verðbólgu- meinsins, og spretta m.a. af því, að verðlagi hefur verið haldið niðri með miklum niðurgreiðsl- um úr ríkissjóði. Á sunnudaginn var blygðaðist Tíminn sín ekki fyrir að segja af tilefni hinnar nýju stjórnaryfirlýsingar: „Um sama leyti og Bjarni las tilkynninguna, birtust nýir út- reikningar um vísitöluna, sem sýndu, að dýrtíðin hafði tekið nýtt stökk og hafði rúmlega tvö- faldazt í sjö ára valdatíð núver- andi stjórnarflokka“. Hið „nýja stökk dýrtíðarinn- ar“, var vegna hækkunar á bú- vöruverði, sem Tíminn hefur und anfarnar vikur sagt alltof litlar. Hann heimtaði miklu meira „dýr tíðarstökk“, en þó varð. Þeir, sem þvílíka tvöfelldni hafa í frammi eiga ekki skilið að vera teknir alvarlega. Er því háðið, sem þeir hafa bakað sér með talinu um „hina leiðina“, sannarlega maklegt. í REYKJAVÍKURBRÉF Mjög létti henni þó þegar hún sá hverjir voru á ferðum, bauð þeim til stofu og allan þann beina, sem hún bezt mátti veita. Gaman var á hana að hlýða inn- an um bækur og gripi skáldsins. L.á henni þá ámóta hlýtt orð til hins látna skálds og öllum þeim, sem honum höfðu reynzt vel, og kalt til þeirra, sem létu fé sitt keppa um beit við sauðkindur hennar. Fór ekki á milli mála, Bð þá stundina taldi hún Grind- vikinga vera verstu menn í heimi. Vínlandskortið í>að ber ekki oft við, að Manchester Guardian birti sér- staka forustugrein um nýút- komna fræðibók, né heldur, að New York Times birti við hlið- ina á forustugreinum sínum frá- sögn eins síns elzta og helzta blaðamanns af sömu bók. Svo skeði þó nú fyrir nokkrum dög- um um hina nýju bók Yale-há- skóla um Vínlandskortið svokall- eða .Vafalaust er, að útkoma bók arinnar hefur vakið mun meiri athygli en venjulegt er, jafnvel um léttlesnar bækur eftir fræga rithöfunda. Hvorugt verður sagt um þetta rit. Höfundar þess eru að vísu sagðir kunnir í sínum hóp meðal fræðimanna, en sérfræð- ingar í miðaldasögu og kortagerð afla sér sjaldnast slíka frægð, að um verk þeirra sé rætt í for- ustugreinum heimsblaðanna. Og bókin um Vínlandskortið verður ekki með neinu móti talin auð- lesin, þó að röksemdafærsla hennar sé þaulhugsuð og fastrið- in. Eftir lestur bókarinnar virðist leikmanni það vera ákaflega fjar lægur möguleiki, að sjálft Vín- landskortið sé falsað, enda sýnist það hafa gengið í gegnum hina ströngustu könnun, sem við verð ur komið. Einmitt vegna þess, hversu kortið af Grænlandi er líkt því, sem nú mundi gert, Shefur ýtrustu tortryggni verið beitt við athugun kortsins. Enn hefur það staðizt hverja raun. > r Okkur Islending- um ekki jafn óvænt og öðrum Þangað til ný rök koma fram, verður þess vegna að gera ráð fyrir, að kortið sé ófalsað. Víst er, að á söguöld Okkar var lofts- Laugardagur 23. okt lag á norðurslóðum allt annað en síðar. Hiti var mun meiri og ísalög minni, bæði á sjó og landi. Þetta hefur skapað mögu- leika til nákvæmari könnunar stranda Grænlands, en verið hafa fram á okkar daga og jafn- vel enn að öðru óbreyttu. Þó er óneitanlega tortryggilegt að sjá, hversu líkara Grænland er sjálfu sér, en t.d. suðuroddi Skandinavíu og höfðu þó höf- undur eða höfundar kortsins miklu betra færi á að kynnast henni en Grænlandi, jafnvel þó aðgangur þangað væri þá greið- ari en nú. Úrskurður um þetta er einungis á færi fræðimanna. Það, sem okkur íslendingum hlýtur að koma ókunnuglega fyr- ir sjónir, er ekki það, að fundur kortsins þyki út af fyrir sig merkilegur, því það er hann vissulega, heldur, að kortið þyki svo mikilvægt sönnunargagn sem raun ber vitni. Greinilegt er, að takmarkaður trúnaður hefur ver- ið lagður á hinar fornu sagnir, sem geymzt hafa hér á landi um fund Vínlands. Þetta nýja sönn- unargagn þykir svo merkilegt vegna þess, að eftir tilkomu þess sé útilokað að véfengja sanngildi þessara sagna. Nú er þessi sönn- un einnig góð í okkar huga, en við teljum okkur ekki hafa þurft á henni að halda. Hér kemur enn í ljós, að þekking á fornbók- menntum okkar og mat á gildi þeirra, er mun fágætari og minna en við höfum talið okkur trú um. Raunverulegt gildi þeirra hagg- ast ekki við það, en þetta hlýtur að verða okkur hvatning til að halda hærra á lofti merki menn- ingar okkar en við höfum gert. Velmetinn mál- flutningur Það er aldrei ánægjuefni að þurfa að leggja skatta eða aðrar kvaðir á almenning. Auðvelt er að kitla eyru þeirra, sem ekki hirða um að gera sér grein fyrir hinu sanna samhengi, með því að heimta umbætur en láta vera að skýra frá kostnaðinum og erfiðleikunum við áð afla þeirra. Verkefni Magnúsar Jóns- sonar, fjármálaráðherra, að gera grein fyrir örðugum hag ríkis- sjóðs og nauðsyn á nýjum skött- um, var þess vegna engan veg- inn vænlegt til vinsælda. Því athyglisverðara er, hversu mönn um ber almennt saman um, að hans hóflega framsetning og hreinskilni í öllum málflutningi hafi aukið honum traust og virð- ingu meðal tilheyrenda. Allir vilja fá sem örastar framfarir, einkum þær, er þeir sjálfir njóta. Enginn sér eftir peningunum, sem í þessu skyni er varið, ein- ungis ef þeir eiga ekki að koma frá honum sjálfum. Magnús Jónsson varaði alvarlega við þessum hugsunarhætti. Hann skýrði ástæðurnar fyrir fjárþörf ríkissjóðs og hversu fráleitt er allt tal um það, að þörfin á aukn um sköttum spretti af því, að sjálfur stjórnarkostnaðurinn sé nú hlutfallslega meiri en áður. Hinu sanna er þveröfugt varið. Nýir tímar og breyttir þjóðfélags hættir krefjast nýrra útgjalda. Eysteinn í herkví Það dregur ekki úr ágæti Magn úsar Jónssonar eða réttmætu lofi um hans prýðilega málflutning, þó að sagt sé, að hvort tveggja varð enn berara vegna þess, ihversu Eysteinn Jónsson lék sjálfan sig illa og króaðist inni í herkví fyrir eigin tilverknað. Greinilegt er, að hinum yngri mönnum í öllum flokkum þykir mun minna til Eysteins Jónsson- ar koma en vert er. Hann er maður skarpgreindur, töluglögg- ur og vinnusamur. Hann hefur að baki lengstan þingmannsferil allra þeirra, sem nú eiga sæti á Alþingi, hefur verið lengur í ríkisstjórn en nokkur annar ís- lendingur, þekkir því þingstörf og stjórnarhætti út og inn og er þaulvanur að sækja mál sitt og verja .Þegar allt þetta er at- hugað, er furðulegt, að hann skyldi láta leika sig svo grátt, eða réttara sagt, leika sjálfan sig svo grátt sem raun varð á í umræð- unum sl. mánudagskvöld. Áður fyrri mundi Eysteinn Jónsson, eftir að hafa heyrt upplestur sinna eigin orða af munni Birgis Finnssonar, hafa reynt að fitja upp á einhverju öðru en því, sem hann hafði haft skrifað með sér heiman að. í þess stað gekk hann beint í þá gildru, sem Birgir hafði búið honum, og beið þar maklegr ar hirtingar Magnúsar Jónsson- ar. Þrátt fyrir þetta ættu menn ekki að taka hart á Eysteini, það er málstaðurinn, sem hefur bilað, miklu fremur en maðurinn. Hvar endar „hin leitin?“ Hinn hæpni málstaður Fram- sóknarflokksins lýsir sér bezt í því heiti, sem sjálfur flokksfor- maðurinn hefur valið honum: „Hin leiðin“. Leiðarvísirinn er sem sagt sá, að Framsóknar- menn mega aldrei fara þá leið, sem meirihluti kjósenda og Al- þingis markar á meðan Fram- sókn er utan stjórnar .Þeir eiga að vera á móti öllu, alltaf að fara „hina leiðina“. Ekki er kyn þó að Kankvís Alþýðublaðsins yrki í Framsóknarmanns stað: „Illan hnekki íhald beið, ólánsþvæ’t í vaðnum. Eysteinn minn fer aðra leið og endar á hinum staðnum". Vonandi á þó svo merkur mað- ur ekki eftir að una sér til lengd- ar á svo ömurlegum stað. En til að sleppa þaðan, verður hann að svara af meiri hreinskilni spurn- ingunum, sem hann á dögunum sagðist mundu leggja fyrir sjálf- an sig. Og hætt er við, að hann eigi langt upp í hinn þráða valda stól að nýju, ef vegarnestið á að vera það að koma á nýjum fjár- festingarhömlum og afturgengnu fjárhagsráði. Þetta virðist samt vera eina bjargráðið sem í grillir á enda „hinnar leiðarinnar“. Meiri framkvæmd- ir en fyrr Framsóknarmenn og kommún- istar eiga sammerkt um það þessa dagana, að þeir tala eins og bygging nokkurra verzlunar- húsa í Reykjavík hafi orðið til þess að draga úr skólabygging- unum um land allt. Sannleikur- inn er sá, að skólabyggingar eru nú meiri en nokkru sinni áður í sögu þjóðarinnar. Sízt hefur ver- ið úr þeim dregið. Jafnvel þær þjóðir, þar sem fjölgun unglinga er mun minni en hér á landi, eiga í ekki minni vandræðum vegna skorts á skólahúsnæði en við. Islendingar geta kinnroða- laust borið gerðir sínar í þessum efnum saman við hvern sem er. Úr hraðaaukningu skólabygg- inga, eins og annarra opinberra framkvæmda, hefur nokkuð verið dregið á þessu ári, eins og .ráðgert er á því næsta, vegna fjár nagserfiðleika ríkissjóðs. Sömu mennirnir, sem eru á móti nýrri tekjuöflun handa ríkinu og vildu á þessu ári gera hag ríkissjóðs 800 til 1000 milljónum króna verri, en hann þó er, hafa sízt ástæðu til þess að fjargviðrast yfir að „Vaxið með eðli- legum liætti44 Þótt Framsókn og kommúnist- ar tali um óhæfilegar byggingar heildasala í Reykjavík, þá eiga bæði SÍS og einstök kommafyr- irtæki sinn hlut í byggingu hinna nýju verzlunarhúsa hér. Látum það vera. Engan ætti að undra, þó að hér rísi upp nokkur starf- hýsi eftir að fjárfestingarhöml- ur höfðu hindrað eðlilegan vöxt þvílíkra bygginga áratugum sam an. Berum og saman þessar bygg ingar í Reykjavík og kaupfélags hallirnar á verzlunarstöðum víðsvegar um landið. í þessum efnum hefir Framsókn dyggilega látið SÍS og kaupfélög þess njóta forréttinda. Allt tal um, að níðst hafi verið á þessum aðilum eftir að núverandi stjórn tók við er út í bláinn. Þegar Tíminn fær- ir sem dæmi um slíka vald- níðslu „lánsfjárhöft - og hina frægu frystingu á innlánsdeild- arfé samvinnufélaga“, þá er þar um það eitt að ræða að þessir aðilar njóti sama réttar og aðrir, hafi ekki forréttindi um fram þá, enda segir Tíminn hinn 14. október sl. : „Verzlun og viðskipti sam- vinnufélaganna hafa vaxið með eðlilegum hætti sem áður“. Hvernig gæti þetta átt sér stað, ef níðzt hefði verið á þessum félögum, ef þau hefðu verið sett til hliðar, eins og Framsókn á sínum tíma hældi sér af að hafa gert um helming þjóðarinnar? Nú njóta allir jafnréttis, og ættu Framsóknarbroddarnir því að hætta kveini sínu og kvört- unum, Ætla Sovétstjórn- in standi nú við loforð Lúðvíks? Þjóðviljinn hefur undanfarið látið sér hægt um að tala um efndir á loforðum Breshnev-yf- irlýsingarinnar frá því í fyrra. Á grundvelli túlkunar Lúðvíks Jós- efssonar og félaga hans á henni var sagt í Þjóðviljanum, að Sov étstjórnin mundi fús til að kaupa hér niðursoðna og niðurlagða síld fyrir allt að tvöhundruð milljónum króna. í fjárlagaum- ræðunum á dögunum var eins og Lúðvík Jósefsson væri ýfið borubrattari um þetta en áð- ur. Skýringin á því er sögð sú, að kommúnistar hafi nú komið svo rækilega áleiðis kvörtunum yfir því hörmulega ástandi, sem brigð á loforðum þeirra hafi sett þá í hér, að víst sé talið, að Sovétstjórnin sjái á þeim aumur, og verði eitthvað fúsari til kaupa á þessari vöru, en í sum- ar reyndist.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.