Morgunblaðið - 24.10.1965, Qupperneq 31
.Sunnudagttr f*f. nfetóber 1965
MORGUNBLÁÐIÐ
31
— Eldey sekkur
Framhald af bls. 32.
síðar kallaði Eldey og svaraði ég
strax að við værum rétt hjá
þeim. Liðu ekki nema urn fimm
mínútur þar til við vor^um komn-
ir alveg áð Eldey. Er um hálf
klukkustund var liðin frá -því
Eidey fékk á sig sjóinn yfirgaf
skipshöfnin skipið og tókum við
þá um borð. Þarna hafði þá
drifið að 17—20 skip, sem lystu
Eldeyna upp og dælu olíu í sjó-
inn til að lægja öldur, en þarna
var þungur sjór og vindur um
3 stig. Skyggni var lélegt eða
um 2 mílur. Allir voru því reiðu-
búnir til aðstoðar eftir því sem
hægt var.
— Er skipshöfnin - á Eldey
hafði verið um borð hjá okkur
um 3 stundarfjórðunga virtist
sem skipið rétti nokkuð við, en
þá var öll nótin runnih út af
bátadekki, en hékk í hálsi. Sigld-
um við þá upp að skipinu og
þrír menn fóru um borð; skip-
stjóri; stýrimaður og vélstjóri.
Vél Eldeyjar var enn í gangi og
va hún sett á fulla ferð og reynt
að keyra skipið upp. Einnig var
dælt á milli tanka. Voru þeir
þremenningarn um borð í IVz
klst. og reyndu allt sem þeir
gátu til að bjarga skipinu en allt
reyndist árangurslaust.
— Þremenningarnir urðu að
yfirgefa skipið um kl. 2.20 og
sökk það skömmu síðar. Hinn
VINDUTJOLD
í öllum. stærðum
Framleiddar eftirwínáli.
Kristján Siggeirss. hf.
Laugavegi 13. Sími 13879.
Rafmótorar 3ja fasa 220/380 v
0,5—38 ha. — Hagstætt
verð.
HEÐINN =
vélaverzlun.
lokaði hvalbakur skipsins mun
hafa haldið því á floti svo lengi
sem raun bar vitni.
Síldarflutningaskipið Sildin
var á þessum slóðum og kom
á vettvang og var áætlað að
reyná að nota dælur þess : tfi
aðstoðar Eldeynni.
Morgunblaðið náði í gær tali
af skipstjóranum þar um borð,
Guðna Jónssyni. Hann sagði að
þeir hefðu komið á staðinn ki'.
10.30 og þá hefði Eldey hallast
mikið Og sjór gengið alveg yfir
það. Þá hefðu skip verið allt uni
kring. Enginn kostur hefðt
verið að koma neinum tækjum
um borð í Eldey og allt útlit
fyrir að ekkert þýddi að reyna
að bjarga skipinu, talsverðut
slampandi í sjónum og aðstaða
engin til björgunar.
Á Eldey var 12 manna áhöfn.
Skipið var úr stáli, byggt í Molde
í Noregi, 139 tonn, eig., Eldey
h.f. Keflavík, •
— Vegatollurinn
Framhald af bls. 32.
lega breyttar vegna bættrar
tækni við malbikun. og kom þá
sterklega til álita að velja mal-
bik, enda þótti óhætt að treysta,
að miðað við daglegt umferðar-
magn á Reykanesbraut væri slíkt
slitlag fullnægjandi og einnig
sýndu hagrænar athuganir, að
arðsemi dýrari kostsins, þ. e.
steinsteypta slitlag, var langt
undir því marki, sem rétt þykir
að setja um slíkar framkvæmdir.
Er á átti að herða, var það
sótt mjög fast af hálfu íbúa
byggðarlaganna á Suðurnesjum,
að steypt slitlag yrði einnig á
þessum hluta vegarins, enda þótt
þeim væri gert ljóst, að ef dýrari
kosturinn yrði tekinn, hlyti því
að fylgja, að umferðargjald, sem
ákveðið var að taka, yrði að
vera mun hærra en ella.
Aðalforsenda ákvörðunarinnar
um að nota hina almennu
heimild 95. gr. vegalaga, sem
samþykkt var einróma á Alþingi,
og taka umferðargjald á Reykja-
nesbraut, er sú, að eins og áður
er sagt hefur fé til framkvæmd-
anna að langmestu leyti verið
aflað með lánsfé og verður því
greiðslubyrði af lánum vegna
vegarins þung meðan verið er
að greiða lánin upp. Framlag til
hraðbrauta er aðeins 10 millj.
kr. árlega til 1968, samkvæmt
gildandi vegáætlun, þar af 6.8
millj. til Reykjanesbrautar og
ekki unnt að hækka það, nema
í sambandi við endurskoðun eða
samningu nýrrar vegáætlunar,
og yrði þá minna fé til annarra
framkvæmda, sem aðkallandi er
að sinna.
Önnur forsenda gjaldsins er
sú, að talið er að umferðinni
muni sparast mikið fé við til-
komu hins nýja vegar. Þegar
lagning hans var hafin, var dag-
leg umferð um Reykjanesbraut
Móðir mín
SIGRÍÐHR ERLENDSDÓTTIR
lézt 22. þ.m. á Elli- og hjúkrunarheimilinu Gruna.
Fyrir hönd okkar systkinanna.
Axel Sigurgeirsson.
. Faðir okkar, tengdafaðir og afi
VIGFÚS VIGFÚSSON
verður jarðsettur frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði þriðju-
daginn 26. þ.m. kl. 14. Blóm vinsamlegast afþökkuð,
en þeim sem vildu minnast hins látna er bent á líkn-
arstofnanir.
Börn, tengdabörn og bamabörn.
Jarðarför móður okkar
JÓNÍNU BJARGAR JÓHANNESDÓTTUR
Skúlagötu 66,
fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 26. þ.m.
kl. 1,30 e.h. — Blóm vinsamlega afþökkuð.
Börnin.
orðin það mikil, að mjög torvelt
var að halda veginum nægilega
vel við. Var oft bent á, að hið
slæma ástand vegarins ylli slysa-
hættu og mikilli aukningu á við-
haldskostnaði bifreiða þeirra, sem
um hann aka. Verður því vart í
mót mælt, að við tilkomu nýja
vegarins mun mikið sparast bæði
í viðhaldskostnaði og eldsneytis-
kostnaði þeirra bifreiða, sem
veginn nota. Reynsla Norðmanna
í þessum efnum leiðir í ljós, að
á malarslitiagi sé ökukostnáður
bifreiðar, sem nokkurn veginn
samsvarar bifreiðum, sem greiða
umferðargjald samkvæmt I. fl.
gjaldskrárinnar, kr. 3.67 pr. km,
en á malbiks- eða steypuslitlagi
kr. 2.82 pr. km. Hjá bifreiðum,
sambærilegum við þær, sem tald-
ar eru í III. fl. gjaldskrárinnar,
eru samsvarandi tölur kr. 6.67
og 4.43 pr. km.
Nýi vegurinn frá Engidal við
Hafnarfjörð til Keflavíkur er 2
km styttri en gamli vegurinn
(37.5 km móti 39.5 km).
Sparnaður ökutækja við að
aka hinn nýja veg samanborið
við hinn gamla myndi því hjá
léttum bifreiðum, sem greiða 20
kr. hvora leið, nema kr. 39.21
hvora leið en kr. 97.37 hvora
leið hjá þungum bifreiðum, sem
greiða 50 kr. hvora leið. Er þá
bæði reiknað með minnkuðum
reksturskostnaði og sparnaði
vegna skemmri tíma, bæði sakir
skemmri vegar og meiri meðal-
hraða.
Hjá öðrum tegundum bifreiða
mun sparnaðurinn vera hlutfalls-
lega sambærilegur þeim daemum
sem nefnd eru hér að framan,
miðað við umferðargald.
Samkvæmt þessu nemur um-
ferðargjaldið yfirleitt helmingi
sparnaðar í rekstri þeirra bif-
reiða, sem aka nýja vegnn, mið-
að við akstur um malarveginn.
Samgöngumálaráðuneytið
23. október 1965.
Reglugerð
um innheimtu umferðargjalds af
bifreiðum og öðrum ökutækjum,
sem aka um Reykjariesbraut.
1. gr.
Af hverju ökutæki, sem ekur
um Reykjanesbraut, fram hjá
gjaldstöð nálægt bænum
Straumi sunnan við Hafnarfjörð,
skal greíða umferðargjald, mið-
að við aðra leið, sem hér segir:
I. fl. Fólksbifreiðar undir
1100 kg. eigin þunga og sendibif-
reiðar undir 450 kg. að burðar-
magni 20 kr.
II. fl. Fólksbifreiðar yfir 1100
kg. eigin þunga, sendiferðabif-
reiðar yfir 450 kg. að burðar-
magni ög vörubifreiðir undir 1,5
tonn að burðarmagni 25,00 kr.
III. fl. Vörubifreiðar með burð
armagn 1,5-5 tonn, almennings-
bifreiðar fyrir 8-10 farþega.
50,00 kr.
IV. fl. Vörubifreiðar með yfir
5 tonna burðarmagn, kranabif-
reiðar og almenningsbifreiðar
fyrir fleiri en 20 farþega 100.00 kr
V. fl. Vörubifreiðar með yfir
5 tonna burðarmagni, með tengi-
vagn og dráttarbifreiðar með
festivagn 150,00 kr.
"Önnur ökutæki en bifreiðar
greiði:
Eigin þungi 1-3 tonn, samkv.
II. fl.
Eigin þungi 3-6 tonn, samkv.
III. fl.
Eigin þungi yfir 6vtonn, samkv.
IV. fl.
2. gr.
Umferðargjald samkv. 1. gr.
skal innheimt af Vegagerð ríkis-
ins í gjaldstöð nálægt bænum
Straumi sunnan við Hafnarfjörð.
Skal gjaldið innheimt þar tvö-
"falt af öllum ökutækjúm á suð-
urleið, en innheimtu gjaldsins
sleppt ef öllum ökutækjum á
norðurleið.
3. gr.
Undanþegnar greiðslu umferð-
argjalds eru eftirlitsbifreiðar lög
reglunnar, sjúkrabifreiðar og
slökkvibifreiðar.
Heimilt er að veita afslátt á
umferðargjaldi, samkvæmt nán-
ari ákvörðun ráðherra, ef keypt-
ir eru 50 gjaldseðlar eða fleiri í
einu.
4. gr.
Brot gegn reglugerð þessari
varða sektum allt að 100 þús. kr.,
nema þyngri hegning liggi við
að lögum.
5. gr.
Með brot gegn reglugerð þess-
ari skal farið að hætti opinberra
mála.
Reglugerð þessi er sett sam-
kvæmt 95. gr. vegalaga nr. 71.
31 desember 1963, til að öðlast
þegar gildi og birtist til eftir-
breytni öllum þeim, sem hlut
eiga að máli.
— Tannlæknar
Framhald af bls. 6
mun sterkari en drykkjarvatns
blanda eða 0.2% og má þess
vegna ekki kyngja henni.
Drykkjarvatnsblandan er hins
vegar 0.001 prom.ille og er það
eins og hver máður getur séð
afarlitið magn. Munnskolunin
kemur. þó engan veginn að
gagni þar eð það er mikilvæg
ast að fá fluorið inn í blóðið,
þar sem það á greiðari leið til
tannanna.
— Er eitthvað, sem þér
viljfð leggja áherzlu á í lok-
in?
— J>á, í fyrsta lagi það, að
drykkjarvatn, sem innihldur
einn milljónasta skammt af
fluor hefur reynzt koma í veg
fyrir tannskemmdir og há-
marksárangur fæst, hafi við-
komandi neytt slíks vatns allt
lífið. I öðru lagi hefur ekkert
komið fram, sem bent gæti til
þess að slík fluor-blanda hafi
áhrif á heilsu manna og að í
þriðja lagi er það vel fram-
kvæmanlegt að blanda því í
drykkjarvatn.
— Þá vil ég í lokin lýsa
ánægju minni með hina ís-
lenzku tanntæknadeild, sem að
vísu er lítil, en nýtur virðing-
ar. v '
4 Á morgun heldur kvenna
I landsliðið í handknattleik ut4
'an, en eins og kunnugt er
mun það leika við Dani 28.
og 30. október. Fari þær með
sigur af hólmi, munu þær
taka þátt í heimsmeistara-
keppni kvennalandsliða, sem
hefst í Þýzkalandi 7. nóv.
Myndina tók Bjarnleifur
Bjarnleifsson af stúíkunum
fyrir skömmu á æfingu.
Fremri röð frá vinstri: Jón-
ína Jónsdóttir, Margrét
Hjálmarsdóttir, og Rut Guð-
mundsdóttir. Aftari röð: Pét-
ur Bjarnason (þjálfari), Silv-
lía Hallsteinsdóttir, Edda
’jónsdóttir, Sigríður Kjartans
dóttir, Ása Jörgensdóttir, Vig
dís Pálsdóttir, Sigrún Ingólfs
dóttir, Jóna Þorláksdóttir, EI
ín Guðmundsdóttir, Sigrún
Guðmundsdóttir, Svava Jörg
ensdóttir, og Sigurður Bjarna
son þjálfari.
Fundur um far-
miðaskattinn
KLUKKAN 3 í gær hófst fund-
ur, er skipa- og flugfélög geng-
ust fyrir í Oddfellow-húsinu.
Fundarefni var hinn fyrirhug-
aði 1500 kr. farmiðaskattur.
Þrír nýir lieið-
ursfélagar Sjó-
mannafélagsins
HÁLFRAR aldar afmælis Sjó-
mannafélags Reykjavikur var
minnzt með veglegu hófi að
Hótel Sögu síðastliðið föstudags-
kvöld.
Afmælisdagskráin var mjög
vnduð og m.a. flutti Geir Hall-
grímsson, borgarstjóri, þakkar-
ávarp til sjómanna fyrir hönd
borgarstjórnar. Jón Sigurðsson
formaður Sjómannafélagsins
rakti sögu félagsins frá stofnun
þess og heiðraði eldri félaga.
Heiðursfélagar að þessu sinni,
voru gerðir þeir Hilaríus Guð-
mundsson, Garðar Jónsson og
Jónas Jónsson frá Hriflu. Fjöldi
útgerðarmanna og forystumanna
verkalýðsfélaganna fluttu ávörp
og árnaðaróskir til handa félag-
inu. Bessi Bjarnason og Gunnar
Eyjólfsson fluttu skemmtiþátt og
var vel fagnað. Hófið setti Guð-
mundur Hallvarðsson og var
hann jafnframt kynnir kvöldsins.
Fór afmælishófið vel fram og var
aðstandendum sínum til sóma.
Ofsahvasst í
Hvalfirði
Akranesi 23. okt.
Ofsahvasst var í Hvalfirði 1
gærkvöidi. I kvöldferð lang-
ferðabíls Þ.Þ.Þ. sem fór úr
Reykjavík kl. 18.30 og kom kl.
21.00 var uppstreymi svo mikið
innarlega á Kjalarnesveginum
að bílstjórinn átti fullt í fangi
með að halda bílnum á veg-
i irium.