Morgunblaðið - 24.10.1965, Blaðsíða 32
ÍBEBEEBIS
UST ERHARfliÆST
ÍíaSS13SISaaE]G]E]E]G|E]E]GIE|EIElG]g]G;t^' ^GjggJEjl
243. tbl. — Sunmidagur 24. október 1965
W
TVÖFALT ú EINANGRUNARGLER 20ára reynsla herlendis
Skipsbrotsmenn af m.b. Eldey írá ICeflavík. Skipstjórinn Guðmundur Sæmundsson er 2. frá
vinstri og stýrimaðurinn Henry Kristjánsson 3. frá vinstri og heldur hann á neyðarsenditæki
gúmmíbjörgunarbátsins. Hinir skipsmennirnir eru: Valdimar Valdimarsson, Trausti Óskarsson,
Örn Bergsteinsson, Guðmundur Pálsson, Jóhannes Jóhannsson, Baldur Konráðsson, Sigur-
bjöm Björnsson, Jóhann Toftum, Markús Hjaltested og Guðbrandur Sörensen.
Skáru nótina frá
[
EINS og frá er skýrt í blað-
inu í dag fékk síldveiðiskipið
Pétur Sigurðsson á sig sjó á
síldarmiffunum á sömu slóðum
og Eídey. Fréítaritari blaðsíns á
Seyðisfirði náffi tali af skipstjór
anum Guðmuhdi Guðmundssyni
þar sem skipið lá í höfn á Seyð
isfirði í gærdag. Skipstjóri sagði
svo frá:
— Við vorum með sæmilegt
kast og vorum að háfa. Þá feng-
um við brot á okkur og lagð-
ist skipið á hliðina. Við skárum
þá frá okkur nótina og tókst
fljótlega að rétta skipið við. Við
vorum með 4—500 mál af síld í
lestum.
Skömmu eftir að þessu var
lokið kom upp eldur í eldhúsi
Eldey frá Keflavík sökk í fyrrinótt
Skipverjar reyndu í hálfan |i riðfa fíma að hjarga skipirtu
EINS og frá var skýrt í frétt
blaösins í gær hlekktist tveim
ur sildveiðiskipum á á mið-
unum SA af A frá Dalatanga.
Skipið Pétur Sigurðsson náði
að skera frá sér nótina og
rétta sig af, en Eldey, sem
einnig fékk á sig sjó tók að
ballast mjög, og fórst kl. tæp-
lega 2.30 í nótt. — Skipshöfn-
in hafði öll yfirgefið skipið
fyrir miðnætti en þrír menn
fóru síðar aftur um borð í
skipið og reyndu í 2V2 klst.
að bjarga því, en tókst ekki.
i»eim tókst að yfirgefa skip-
ið áður en það sökk. Vélskip-
ið Brimir frá Keflavík bjarg-
aði áhöfni.nni og kom með
hana til Neskaupstaðar laust
fyrir hádegið í gær.
Fréttaritari blaðsins á Norð-
firði náði í gær í skipstjórann
á Eldey, Pétur Sæmundsson, og
gat talað við hann í örfáar mín-
útur. Skipstjórinn sagði að um
kl. 21 í fyrrakvöld hefðu þeir
verið að háfa ailgott kast en
þá fengið sjó á stjórnborðshlið
yfir nótina og inn á þilfar og
yfir lestar. Myndi sjór hafa farið
ofan í lestar og sennilega eitt-
hvað niður í káetu. Um leið og
þetta skeði setti skipstjóri á
fulla ferð áfram og tókst að rífa
nótina og losna þannig við
þyngslin úr henni. Reyndi hann
síðan að keyra skipið upp, sem
kallað er, en tókst ekki. Kallaði
hann þá út og bað um aðstoð.
Er hér var komið samtali
fréttaritarans og skipstjóra
Þurfti hinn síðarnefndi að fara,
en flugvél beið skipshafnar hans
á flugvellinum á Norðfirði.
Fréttaritarinn hélt þá um borð
í Brimi og átit þar tal við skip-
stjóránn Jónas Fransson. Hann
sagði svo frá:
— Rétt um kl 21 sáum við
að skip nálægt okkur var tekið
að hallast allmikið og fórum
við þegar að fylgjast með
hvernig því reiddi af. Skömmu
Framh. á bls. 31
Vélskipið Eldey frá Keflavík, sem íórst í íyrrinótt.
Innbrotsþjófar kveikja
í bókbandsstofu
í FYR.RINÓTT var kveikt í Bók-
bandsstofunni Arnarfelii í Ein-
holti 2 í Reykjavík. Hafði verið
brotizt þar inn og kveikt í. Sem
betur fer logaði illa og vegfarandi
gerði aðvart, svo skemmdir urðu
ekki miklar.
Töldu sijj; lóða á
sílcl í Hvalfirði
ENGAR fréttir hafa enn borizt
af síldveiði í Hvalfirði, en eins
og kunnugt er, lóðuðu nokkrir
bátar á það, sem þeir töldu að
væri sild á Galtavíkurdýpi á
föstudag. A laugardagsmorgun
voru bátar inni sökum veðurs,
en voru að undirbúa sig undir
það að fara út ef veður batnaði.
Ekki er enn vitað, hvort um
kræðu eða stórsíld er að ræða í
Hvalfirði.
Vegatolhtrinn ákveðin
20 kr. fyrir minnstu bíla og allt upp í
150 kr, fyrir stærstu flulningatæki
SAMKVÆMT fréttatilkynn-
sem blaðinu barst í gær frá
samgöngumálaráðuneytinu, hef
ur vegaskatturinn á Keflavík-
urveginum nýja nú verið ákveð
inn. Verður hann 20 krónur fyr
ir minnstu bifreiðar aðra leið-
ina og allt upp í 150 kr. fyrir
stærstu flutningatækin. Fer til-
kynning ráöuneytisins hér á eft-
ir:
FRAMKVÆMDIR við lagningu
hinnar nýju Reykjanesbrautar
hófust 22. október 1Ö-60.
Nú er lagningu vegarins lokið,
að undanskildum stuttum kafia
við Setbergsiæk ofan við Hafnar-
fjörð, og er nú ákveðið að opna
hinn nýja veg til almennrar um-
ferðar n.k. þriðjudag 26. þ.m.,
kl. 10.00 f.h.
Kostnaðarverð Reykjanesbraut-
ar allrar, að meðtöldum þeim
kafla, sem frestað hefur verið
við Setbergslæk, mun verða nær
270 milljónir króna. Yfir 90%
með lánsfé.
Steinsteypa er endingarbetri
en malbik, en miklum
mun dýrari. Þannig kostar hver
kílómetri með steyptu siitlagi
á Reykjanesbraut meira en tvö-
falt samanborið við malbikað
slitlag.
Þegar lagning vegarins hófst,
var að því horfið að hafa slit-
lag hans úr steinsteypu. Sú
ákvörðun var m. a. á því byggð,
að hagkvæmt væri að nýta um-
framframleiðslu Samentsverk-
smiðju ríkisins og spara jafn-
framt erlendan gjaldeyri með
notkun innlendra hráefna.
Þegar taka skyldi ákvörðun
um gerð slitlags á kafla.num frá
Kúagerði til Keflavíkur, snemma
á þessu ári, voru aðstæður veru-
Framhald á bls. 31.
Ingólfur Þorsteinsson, yfirvarð
stjóri hjá rannsóknarlögreglunni,
hefur málið í rannsókn. Sagði
hann að þetta væri alveg sams-
konar og innbrotið og íkveikjan
í ísafold í ágústmánuði sl. Hafði
verið brotizt inn og leit gerð að
peningum, sem engir voru þarna.
Var gerð tilraun til að kveikja í
á 3-4 stöðum m.a. í bókastöflum,
en það hafði ekki tekizt alls stað
ar. Var kveikt með eldspýtu i
rusli. Gluggar voru lokaðir og
logaði því illa, pappír sviðnaði
og stofan fylltist af reyk.
Vegfarandi eá að reyk lagði úr
bókbandsstofunni og gerði
slökkviliðinu aðvart kl. 2.55 um
nóttina. Gísli Guðlaugsson í Arn
arfelli sagði blaðinu að talsvert
væri af bókum í vinnslu í bók-
bandsstofunni, svo þetta hefði
getað orðið slæmt, en sern betur
fer hefði tjónið orðið óverulegt.
sioar
skipsins, en olía hafði runnið út
af eidavélinni þegar báturinn iá
á hliðinni. Fljótlega tókst að
slö-kkva eldinn og urðu skemmd
ir af eldi.ekki stórvægiiegar, en
mikiil óþrifnaður af olíu og sóti
í eldhúsi.
Fyrsti fyrirlest-
nr Náttúru-
fræðifélagsins
FRÆÐSLUSTARFSEMI félags-
ins veturinn 1965-1936 er n-ú í
þann veginn að hefjast og verð-
ur með svipuðu sniði og undan-
farna vetur.
Það verða samkomur í 1.
kennslustofu Háskólans síðasta
mánudag hvers mánaðar, nema í
desember, og hefjast þær kl.
20.20. A hverri samkomu verður
fiutt erindi náttúrufræðilegs eðl
is, venjulega með skuggamynd-
um ,og frjálsar umræður um efni
þess á eftir. Öllum er heimiil
aðgangur að samkomum félags-
ins meðan húsrúm leyfir.
Fyrsta samkoma vetrarins
verður mánudaginn 25. október
ki. 20.30 í 1. kennslustofu Há-
skólans. Þá flytur Haraldur Sig-
urðsson B. Sc. erindi með lit-
skuggamyndum.
Háskóla-
hátíðin
í gær
HÁSKÓLA1IÁTÍÐ1N 1965 var
í gær, fyrsta vetrardag, kl.
2 e.h. í Háskólabíói. Hátíðin
hófst með leik strengja-
hljómsveitar, er Björn Ólafs-
son stjórnaði, en að því loknu
söng Gúðmundur Jónsson,
óperusöngvari einsöng við
undirleik Ólafs Vignis Al-
bertssonar. í>á hófst ræða
rektors, Ármanns Snævars
og að henni iokinni söng Stú-
dentakórinn nokkur lög undir
stjórn Jóns Þórarinssonar. Að
lokum ávapaði rektor nýstúd-
enta og afhenti þeim háskóla-
borgarabréf sín. Sagt verður
nánar frá hátíðinni síðar í
blaðinu. — Myndin er frá há-
skólahátíðinni í gær. Ármann
Snævarr rektor setur skólann.