Morgunblaðið - 28.11.1965, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 28.11.1965, Blaðsíða 12
12 MORCUNB LAÐIO Sunnudagur 28. nóv. 1965 Benni og klukkan ER KOMIN AFTUR TIL BÓKSALA UM LAND ALLT. Dönsk fjölskylda óskar eítir stúlku til barnagæzlu og heimilisstarfa. Fernt í heimili. Gott kaup og vinnutimi. Gjörið svo vel að skrifa (á íslenzku eða dönsku) til: LAURS DJ0RUP p.t. Hotei Stockholm, Rpmersgade 7, Kpbenhafn K. Hildur Björnsdóttir Á MORGUN, mánudaginn 29. nóv. fer fram frá Kapellunni í Fossvogi jarðarför Hildar Björns dóttur, frá Ásg-eirsbrekku í Skagafirði, ekkju Jósefs Björns- sonar er lengi var kennari og skólastjóri á Hólum í Hjaltadal. Hildur andaðist 19. nóv. í sjúkra búsinu Sólvangi við Hafnarfjörð, 84 ára gömul. Við andlát frú Hildar Björns- dóttur finnst okkur öldruðum Sikagfirðingum sem lokið sé miklum þætti í sögu Hólastaðar og Skagfirðinga, en það tvennt staðurinn og fólkið í friðinum hefir löngum verið svo samofið, að saga Hóla er um leið saga Skagfirðinga. Með Hildi er horf- in sú kona er síðust hafði hús- móður forráð á Hólum í Hjalta- dal á liðinni öld, og um alda- mótin síðustu, meðan búskapur á því sagnfræga stórbýli og Bændaskóli voru ein órafa heild. Hildur var fædd í Viðvík, Við- víkursveit 1. júlí 1881, en ólst upp hjá föður sínum Birni Pálmasyni (frá Brimnesi) bónda í Ásgeirsbrekku. Móðir Hildar var Þuríður Kristj ánsdóttir, þing eysk að ætt. Aðeins 15 ára að aldri hleypti Hildur heimdragan um, fór til Reykjavíkur og dvaldi tþar við nám í tvö ár. Hún stund- aði húsmæðranám og naut með- al annars tilsagnar Þóru Mel- sted þess mikla kvennafræðara. Einnig naut hún nokkurrar til- sagnar í orgeileik og söng. Voru það hugðarefni hennar þá og æ síðan. Árið 1898 giftist Hildur Jósef Björnssyni skóiastjóra á Hólum, þá aðeins 17 ára gömul. — Hér var mikið lagt á ungar herðar. - Stillið á lit og saumið - Það er þessi einfalda nýjung, sem kölluð er „Colormatic", sem á skömm- um tírna hefur aukið vinsældir HUSQVARNA 2000 til stórra muna. Beinn saumur, hnappagöt, blindfáldur og úrval mynztursauma er hægt að velja með einu hand- taki, Þar sem það er sýnt á greinilegan hátt, í litum, á „saumveljara". HUSQVARNA heimilistæki, saumavélar o. fL eru þekkt hér á landi í yfir 60 ár. Hafa nafninu hér sem annarstaðar stöðugt vaxið vinsældir. ■Á íslenzkur Iciðarvísir fylgir hverri sáumavél. ■Á Kennsla er innifalin í verðinu. •Á Afsláttur veittur gegn staðgreiðslu. 'Á' Kf þér komizt ekki til okkar til að kynna yður . vélina, munum vér senda sölumann til yðar eftir lokun, ef þér búið í Reykjavík eða nágrenni. ■Jr Umboðsmenn víða um landið. mmi ÆétUwn h.f. Suðurlandsbraut 16 - Revkjavik - Símnefni: »Volyer<t - Sími 35200 Það var ærinn vandi að setjast þá í húsmóðursæti á Hólum, eftir Hólmfríði Björnsdóttur miðkonu Jósofs skólastjóra, lézt 1894 frá 6 börnum, sem þá eru á aldrinum 2- 9 ára. En Hólmfríður var eldri systir Hildar. Heimili skólastjórans, Jósefs Björnssonar, var um þessar rnundir heimili harðrar reynslu. í harðærinu 1882 gerist Jóseif skólastjóri Bændaskólans á Hól- um, er Skagfirðingar efr.du til af ótrúlegri bjartsýni, en við litla og harða kosti. Hinn ungi skóla- stjóri missir fyrstu konu sína Kristrúnu Friðbjarnardóttur eft- ir eins árs samlbúð, og á fyrsta starfsári sínu á Hólum, og hið eina barn þeirra hjóna fylgir móður sinni í gröfina. Aðra konu sína Hólmfríði Björnsdóttur missir Jósef eftir 10 ára sambúð, er hún þá aðeins 84 ára, og sem sagt frá 6 börnum, 2-9 ára göml- um. Þeir sem nú aka veginn frá Sauðárkróki ,heim að Hólum“ á tæpum hálftíma eiga erfitt með að átta sig á því hver þraut og vandi það var að búa á Hólum sem bóndi og skólastjóri, fyrir aldamót og halda þar reisn sinni og staðarins, við þær aðstæður sem þá voru fyrir hendi, og í því harðæri sem þá var löngum. Mikill var vandi skólastjórans, sem hóf skólahaldið í gömlum torfbæ, en ætli vandi og hlutur húsfreyjunnar ungu, er tók við eins og ástatt var 1898 'hafi verið minni? En hér fór aRt vel. Dætur Jó- sefs og Hólmfríðar tvær, Krist- rún og Ingibjörg höfðu verið teknar í fóstur að Brimnesi og í Kolkuósi, og hlutu þar á miklum myndarheimilum hið bezta upp- eldi sem þá var völ á í Skaga- firði, eru þær báðar á lófi, bú- settar í Reykjavík. Þriðju dótt- urinni Sigríði or sonunum þrem- ur gekk Hildur í móður stað heima á Hólum. Sigríður dó ung en uppkomin. Synirnir voru: Björn, lengi læknir í Húsavík, dá inn, Hólmjárn (H. J. Hólmjárn) búfræðikandidat og bændakenn- ari við Hólaskóla, og bóndi á Vatnsleysu, og Einar Reynis skrif stofustjóri í Reykjavík. Hildur reyndist stjúpbörnum sínum öllum góð móðir og mik- ill vinur. Hún var ek'ki nema 3- 4 árum eldri heldur en sá stjúpsonanna sem elztur var. Var samfoand þeirra við frá Hildi al'la tíð hið innilegasta. Get ég hér trútt um talað, svo að segja frá upphafi, því að synir Jósefs voru leikbræður mínir á aldamótaár- unum, þó nokkur væri aldurs- munur, er ég fyrst man eftir mér og umhverfi mínu. Naut ég þá með þeim mikils góðs hjá frú Hildi, svo að eigi er úr minni liðið. Já, hér fór allt vel, frú ,Sagan hans Hjalta litla‘ komin 1 nýrri útgáfu „SAGAN hans Hjaita litla“ eftir Stefán Jónsson, rithöfund, er komin út í nýrri útgáfu hjá ísa- foldarprentsmiðj u. Haustið 1947 las Stafán Jóns- son sögu þessa sem framhalds- sögu í barnatímum Ríkisútvarps- ins. Hlaut hún þá miklar vin- sældir meðal ungra hlustenda útvarpsins og einnig hinna eldri þar sem sagan minnti marga hverja á löngu liðin æskuár. - ísafold gaf söguna fyrst út í april 1948 og seldist hún þá upp á fáum dögum. Sagan hefur ver- ið þýdd í Noregi og nú nýiega í Sovétrikjunttm og mun hafa hlotið mjög góðar viðtöikur í báðum löndunum. Bókin er 2l2ll bis. að stærð, prýdd teikningum efl.ir HalMór Pétursson. Hildur á Hólum varð hugþekkt nafn meðal Skagfirðinga. Og fljótt var önn Hildar hús- freyju á Hólum stærri og meírL Þau Jósef eignuðust 6 börn og tóku þar að auki tvö í fóstur. Af börnum þeirra eru þrjú á Mfi. Margrét, gift Ragnari Jóhann- essyni, skrifstofumanni hjá SÍS. Hólmfríður, gift í New York og Haukur, deildarstjóri hjá SÍS. Dáin eru: Guðmundur, lærði gullsmíði, fór til Ameriku og dó þar. Róar dó ungur, þá nemandi í Gagn- fræðaskólanum á AkureyrL Sig- ríður, dó árs gömul. Fósturdæturnar eru: Hildur Halldórsdóttir, dóttur- dóttir Jósefs og Sigríður Tómas dóttir úr Kolkuósi fór uppkomin til Ameríku til foreldra sinna er þangað voru komin. Árið 1902 verður mikil breyt- ing á Hólaskóla. Sig-urður Sig- urðsson frá Ðraflastöðum tekur við stjórn skólans. Jósep Björns- son gerist þá fyrst kennari skól- ans og er það til 1934. Jafnframt setur Jósef saman bú að Vatns- leysu í Viðvíkursveit og býr þar nær óslitið til 1941. Þá bregða þau hjónin foúi og flytja til Reykjavíkur. Á milli Hóla og Vatnsleysu er lengri leið en svo að farið verði daglega á milli, enda vegleysa á þeim árum. Hildur varð því löng um auk húsfreyjustarfsins á Vatnsleysu að hafa þar nokkra forsjá utan húss, og því fremur er Jósef sat á Alþingi sem þing- maður Skagfirðinga á árunum 1908-1916. Jósef Björnsson lézt 7. okt. 1946. Hildtur bjó þá um sinn með Hildi fósturdóttur sinni, en er Hildur yngri giftist Runólfi Þórð arsyni efnaverkfræðingi, flytur frú Hildur til Akureyrar og dvelst þar hjá Margréti dóttur sinni og Ragnari manni hennar, unz þau hjónin fluttu til Reykja víkur árið 1955. í Reykjavík dvelst frú Hildur svo á heimili þeirra til dauðadags. Frú Hildur Björnsdóttir fór ekki varhluta af reynslu lifsins, sumir munu ef til viU segja raun um þess, missi eiginmanns, barna og stjúpbarna. En slíkt beygði hana ekki, þessi grannvaxna kona, fyrirferðariítil að vallar- sýn, átti þá bjarsýni, Kfstrú og gleði er bar yfir þegar mest á reyndi. Frú Hildur lifði mikið þroska- skeið og mikil siðaskipti í Skaga- firði og á landi hér, og stóð um lan.gt skeið mitt í þeim vanda er slíkir timar færa vökulum kon- um og mönnum. Nú kveður hana mikil'l ættbogi þeirra hjóna — skólastjórahjónanna á Hólu.m — og fjöldi vina að fornu pg nýju, Nafn frú Hildar ber hátt í hug- um okkar Hólamanna. Huigtakið frú Hildur á Hólum er góð minn- ing og mikil, um starf — og stríð — og sigur. Sú minning er að sönnu að miklu leyti um liðna öld, en um leið þá öld er sáði til þeirrar uppskeru sem nú er heimt í hlöðu á iandi hér. Aska Hildar sálugu mun verða fluitt norður að Hóiom og jarð- sett þar. Þar kemur frú Hildur til að hvíla hjá manni sínum, Hólamanninum miikla Jósef Björnssyni, og syni þeirra, RóarL Vertu sæl frú Hildur, — góða ferð „Heim að Hólum.“ Árni G. Eyláöds.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.