Morgunblaðið - 28.11.1965, Blaðsíða 20
20
MOHCUNBLAÐIÐ
Sumvudagur 28. nóv. 1965
BIFREIÐIR
FRA checker MOTORS CORPORATION U.S.A.
*
IMú fyrst á Islandi, en hafa 44 ára reynslu í Bandaríkjunum
A — 12 W. 4ra-dyra Station bifreið.
A — 11. Leigubifreið.
Meira magn af þessari heimsfrægu leigubifreið
fæst nú til útflutnings. Checker leigubifreiðin
er byggð með þægindi, endingu og hagsýni fyrir
augum. Hún hefur reynzt vel við örðugustu
akstursskilyrði og fullnægir kröfum bifreiða-
stöðvanna árið um kring. Þetta er leigubifreið
í orðsins fyllstu merkingu, sérstaklega rúmgóð
allt að 30% meira rými en í venjuiegum fólks-
bifreiðum.
A — 12. Fólksbifreið,
Sérstaklega þægileg 4-dyra bifreið. 3 metrar
milli hjóla. Engar útlitsbreytingar árlega.
6-cyl. vél, 140 h.ö. Ágætis atvinnu og einka-
bifreið.
Tvöfold grind
í öllum Checker
hifreiðum, sem
eykur öryggi
og stöðugleika
A — 12E. Custom Limousine.
Þetta er nýja stóra gerðin af Checker og er
framleiðsla hennar mjög takmörkuð, þessi bif-
reið er byggð fyrir þá sem hafa ánægju af því
sem óvenjulegt er, þurfa rúmgóða bifreið og
kunna gott að meta. Uppslegnum stólum er sér-
staklega haganlega fyrir komið, gólfin eru flöt
og afturhurðirnar eru jaínvel breiðari en á
Marathon A — 12. Bifreiðin er örugg í akstri,
íburðarmikil, þægileg, heniug og endingargóð.
Vagn þessi er sterkbyggður og endingargóður.
Hann er byggður með Checker leigubifreiðinni,
sem heimsfræg er orðin. Afturhjólin skerða
ekki rýmið og engin ójafna er í gólfi. Hurðin á
geymslurými er sérstaklega breið. Ekkert er um
prjál á bifreiðinni. Hún er örugg, sterkbyggð
og af klassískri gerð. Bifreiðin tryggir eigand-
anum aukna endingu og aukinn kílómetraf jölda.
A — 12 W 6.
9 til 12 farþega flugvalla og hópferðabifreið. Hin heimsfræga flug-
vallabiireið frá Checker Motors er sérstaklega sterkbyggð og end-
ingargóð enda algjör nýjung. Hún er þægileg og ódýr í rekstri og
hentug fyrir fyrirtæki, stofnanir og jafnvel stórar fjölskyldur. Fram-
leiðsla þessarar bifreiðar var hafin vegna mikillar eftirspurnar eftir
ökutæki sem sameinar kosti ódýrra leigubifreiða, þægindi einka-
bifreiða og styrkleika langferðabifreiða. Er þetta eina bifreiðin, sem
gerð hefur verið til að flytja 9 — 12 farþega styttri og lengri leiðir á
þægilegan, öruggan og ódýran hátt.
Upplýsingar veittar alla daga milli kl. 3—7. — Sími 1-85-84.
KR. STEINDÓRSSON