Morgunblaðið - 28.11.1965, Page 19
Sunnudagur 29. n<5v. 1965
MORGUNBLAÐIÐ
19
Bersöglisvísur
í minningu þeirra, sem féllu,
* vegna Uinna, sem áfram eiga að lifa.
Sorgþunga heiftin er bruni í barmi
— bótin, að einn getur kennt mér að rata.
Það er mér brotlegum huggun í harmi,
að hann er þó óblóðug gata.
Vei því, er magnar hið grimmlynda gaman,
er garpurinn fellur, en lifir hinn blauði!
Sízt vil ég hima og halda mér saman,
er heggurðu vægðarlaust, dauði!
Við skuldum þeim betra, sem banvænir hnigu,
en bamalegt skvaldur, er líður úr minni.
Mál er að hugsa og stemma við stigu,
svo stöðugu mannfalli linni,
Eigi skal þola! Þörf er að bannal
Þörf er að rígbinda óargadýrið.
Helreiðar þjóta að húsdyrum manna
— hamingjuleysið við stýrið,
Aldinn má deyða o.g ungum má sálga.
— Ófreskjan skimar um bekki og sætL
Vanmenning þessi er ganga að gálga
með glamrandi uppgerðarkæti.
Lífsgleðin kafnar i vínóravaðli
og valmenni breytast í ótínda rúta.
Er sælla að hanga í hengingarkaðli
en heilagri köllun að lúta?
Skilurðu, þjóð mín, hver skömm er að deyja
frá skyldunnar kalli til ættjarðarvanda?
Til hvens voru langfeðgar lífsstríð að heyja?
Þeir líta nú verk þín — í anda:
Ennþá er fsland, og áfram snýst jörðin.
Enn unnast hugástum maður og kona.
— Sárlega hryggir þeir horfa I skörðin:
„Hvers vegna fór þetta svona?“
Já, hversvegna elurðu óreglufjandann,
ástkæra þjóð mín, á saklausra blóði?
— Þú, sem vilt samtvinna efnið og andann,
svo arfurinn vaxi í sjóðL
Gættu að sverðinu, svefnþunga hetja.
Senn mun þín vitjað í ýtrustu nauðum.
Flýttu þér bitrasta brandinn að hvetja
— brandinn, sem lífgar frá dauðum.
Úlfur Ragnarsson.
Þórarinn Magnússon
trúboði minning
„I Drottni ef viltu deyja,
Drottni þá lifðu hér“ Þessi orð
Hallgríms Péturssonar komu mér
í hug, þegar hin mjög óvænta
fregn barst frá Grænlandi að
bróðir Þórarinn Magnússon væri
látinn.
Vinir hans hér heima vissu
ekki annað en hann væri vænt-
anlegur heim í þessum mánuði.
Hann hafði verið full 4 ár í
Narssaq á Grænlandi í þjónustu
Drottins. Komið þar upp trú-
boðsstöð, og haldið uppi reglu-
bundnu trúboðsstarfi. Oft reyndi
é trú og þolgæði, en sá Guð sem
kallað hafði Þórarinn til þessa
starfs reyndist ávalt trúfastur
og gaf sigur í öllu.
Hann ávann sér líka traust
hinna grænlensku íbúa, svo þeir
elskuðu hann og virtu, og mátu
mikils hina margvíslegu þjónustu
hans þeim til handa.
Nýlega hafði hann skrifað að
sænsk hjón væru væntanleg til
Narssaq í nóvember til að taka
við starfi hans þar, aetlaði hann
þá að koma heim og njóta hvíid-
ar. Þetta fór nokkuð á annan veg.
„Hann hafði barist góðu barátt-
unni, hafði fullnað skeiðið, varð
veitt trúna, og var nú geymdur
eveigur réttlætisins heima hjá
Drottni“ 2. Tím. 4:7. Guð veitti
honum hvíld og tók hann heim til
Sinnar eilífu dýrðar.
Ég hafði um miörg ár notið
Liðhlaupar í
Suður-Vietnam
þeirrar gleði að kynnast Þórarni
Magnússyni og árin sem hann
var á Grænlandi höfðum við
stöðugt bréfasamband. Fylgdist
ég því vel með öllu starfi hans
þar. í afmælisdagabók hjá mér
hafði bróðir Þórarinn skrifað eitt
sinn „Frelsaður af náð 28/3. 1943
í Svíþjóð.“ Þetta hafði orðið hon
um persónuleg lífsreynsla, og
frá þeim degi var þessi vitnis-
burður efstur í huga hans. Hann
hafði því verið í þjónustu Drott-
ins í rúm 22 ár. Ég er sannfærð-
ur um að Guð hefir gefið og
mun áfram gefa margfaldan á-
vöxt af starfi hans.
Það var táknrænt að hann var
að leita að hinum tvístraða fén-
aði í fjallinu fyrir ofan Narssaq
þegar hann hné niður. Dó í
Drottni. Þannig hafði hann einn-
ig safnað fólkinu saman og boð
að því Guðsorð og bent því á
hinn góða hirði sem lagði líf
sitt í sölurnar fyrir sauðina Jóh.
10:1-18.
Öllum ástvinum hins látna
bróður votta ég mína innilegustu
samúð, og hluttekningu, og vil
um leið beina orðum heilagrar
Ritningar til þeirra sem eftir lifa.
„Verið minnugir leiðtoga yðar,
sem Guðsorð hafa til yðar talað,
virðið fyrir yður hvernig aefi
þeirra lauk, og líkið síðan eftir
trú þeirra“ Hebr. 13:7-8.
Sigfús B. Valdimarsson.
Saigon, 22. nóv. (AP)
LIÐHLAl'P úr her S-Vietnam
hefur stöðugt auki/.t upp á síð-
kastið. Vandamál þetta er niðr-
andi fyrir herstjórnina, en hún
hefur ekki fengizt til að láta í
té neinar tölur í þessu sambandi.
Aðrar heimildar staðhaefa að lið-
hlaupar fyrstu tíu mánuði ársins
1965 hafi verið 87 þúsund og 72
þúsund árið 1964. Sömu heimild-
ir herma að liðhlaup í október
hafi verið 17.9 af þúsundi saman
borið við 11.2 í október 1964.
Talið er að þetta aukna lið-
hlaup stafi af ákveð^um aðgerð-
um stjórnarinnar við fjölgun í
hernum. Um 60 prósent af lið-
hlaupunum eru nýliðar, sem
hlaupast á brott þegar þeir hafa
lokið við æfingatírmann, en áður
en þeir eru sendir á vígstöðvar.
Liðhlaup hefur ávallt verið
töluvert í her S-Vietnam og eru
megin ástæðurnar taidar vera
þær, að stjórnin hafi verið of
nízik á heimfararleyfi ti-1 handa
hermönnunum og að refsiaðgerð-
ir fyrir liðhlaup, hafi verið alltof
vægar.
Margir Vietnam hermenn, sem
sumir hverjir hafa staðið í bar-
diögium í 20 ár, taka sér frí í
nokkrar vikur til að heimsækja
fjölskyldur sínar, en koma síðan
aftur til starfa. Einnig vill því
bregða við, að hermenn þessir
skjóti upp kollinum í öðrum
deildium hersins en þeir hafa
verið settir í og þá einna helzit
í fy’lkisdeildum h^rsins, eða hin-
um almenna her, en svo er
heimavarnarliðið nefnt.
Liðhlaup er einna mest í
heimavarnarliðinu, sérstaklega á
iþeim svæðum, sem barizt hefur
verið á. í síðasta mánuði var
hlutfailið 29.1 af hverjum þús-
und. Þegar Viet-Cong hefur her-
tekið eitthvert þorp, hefur mikið
liðhlaup venjulega fylgt í kjöl-
farið.
Liðhllaupsvandamálið er ekki
einlhliða. Þó skæruliðum virðist
hafa fjölgað; mest vegna þótt-
töku hermanna frá N-Vietnam,
þá er greinilegt að töluvert lið-
hlaup hefur iþar einnig átt sér
stað.
Formælend'ur bandaríska her-
liðsins, hafa haldið því fram í
marga mánuði, að óvinirnir eigi
við alvarlegt siðferðilegt vanda-
mál að stríða, og er það vegna
þess að stjórn S-Vietnam haldi
stöðugt upp áróðri og hvetji
Skæruliðana til liðhlaups og að
iþeim, sem taki þá ákvörðun,
verði tekið „með opnum örmuni'
í S-Vietnam.
Herstyrkur S-Vietnam er sagð
ur vera 550 þúsund, 290 þúsiund
teljast reglulegir, 120 þúsund til-
heyra fylkisdeildunum og 140
þúsund tilheyra heimavarnanlið-
inu. Þegar ríkislögreglunni og
hersveitum unglinga er bætt við
þennan lista, náLgast talan 700
þúsund.
Flestar þessar deildir eru
samt sem áður töluvert stærri á
pappírnum en í raun og veru.
Sumar deildir eru fá 20 til 50
prósent fámennari en opinberar
tölur gefa til kynna, og er það
bæði vegna liðhlaups og mann-
falls.
Aðgerðir stjórnarinnar til að
auka styrk og höfðatölu hers-
ins, hafa m.a. verið fólgnar í
kauphækkunum. Nguyen Cao
Ky forsætisráðherra, sem einnig
er yfirmaður flughersins, hefur
barizt fyrir meiri og betri húsa-
kynnum hernum til handa. Að-
gerðir þessar hafa vakið ánægju
og þótt tímabærar, en enn sem
kornið er hefur ekki tékist að
stemma stigu við liðhlaupunum,
sem eins og áður er getið hafa
aukist mjög seinustu mánuðina.
Aðoliundur
Vurðbergs
É
AÐALFUNDUR Varðbergs á
Akranesi var haldinn sunnudag-
inn 14. nóvember s.l. í félags-
heimilinu Löst. Fundurinn var
vel sóttur. Fráfarandi formaður,
Bent Jónsson, lögreglumaður, gaf
skýrslu um starfsemina á liðnu
starfstímabili, en að því- loknu
fór fram stjórnarkjör. Styrmir
Gunnarsson lögfræðingur, flutti
því næst erindi um framtíð At-
lantshafsbandalagsins. Þá var
gert kaffihlé en að því loknu
sagði Lárus Arnason, málara-
meistari, frá nýafstaðinní kynnis
ferð Varðbergs og Samtaka um
Vestræna samvinnu til Noregs
og sýndi litskuggamyndir úr för
inni, sem einkum var farin til
þess að kynnast utamákis- og
varnarmálum landsins. Að lok-
um var sýnd kvikmyndin „End-
urreisn Evrópu“, þar sem rakin
er þróunin í álfunni frá lokum
síðarf heimsstyrjaldarinnar.
í stjórn Varðbergs fyrir næsta
starfsár voru kjörnir: Form.:
Hallgrimur Árnason, framkv.stj.;
1. varaform.: Snorri Hjartarson,
rafvirki; 2. varaform.: Halldór
Jóhannsson, skrifstofumaður; rit
ari: Ólafur Þórðarson, skrifstofu
maður; gjaldkeri: Svanur Geir-
dal, lögregluþjónn; og meðstjórn
andi: Helgi Daníelsson, lögreglu
þjónn. — Varastjórn: Guðjón
Finnbogason, skrifstofumaður;
Hróðmar Hjartarson, rafvirki og
Björn H. BjÖrnsson, varðstjórL
combi star
Þrjár unglinp;a-
bækur frá
Leiftri
PRENTSMIÐJAN Leiftur hefur
gefið út þrjár unglingabækur:
Zorro og svikararnir, Maðurinn
með gulltennumar og Fjársjóð-
urinn í Silfurvatni (fyrri bók,
Bardaginn á gresjunni). Allt eru
þetta að sjálfsögðu spennandi
strákasögur og höfundar þeirra
gefið út fjölda slíkra bóka og
þær komið út í íslenzkri þýð-
ingu.
Hver bókanna er um og yfir
100 blaðsíður að stærð.
IVfétmælc)
vegatolli
HREPPSNEFND Grindvikur-
hrepps hefur samþykfct eftirfar-
andi ályktun:
„Hreppsnefnd Grindavílkur-
hrepps mótmælir eindregið vega-
tolii á Reykjanesbraut, en krefst
þess til vara, að hann verði læfcfc
aður a.m.k. um helming, enda
verði þess þá ekfci langt að bíða,
að vegurinn til Grindavíkur
verði gerður úr varanlegu eifni.
Á meðan það er efcki orðið, verð
ur að teljast ósanngjarnt, að
Grindvíkingar greiði fullan vega-
toll.“
Patent nr. 140 454
COIVIBI
Nýtizkulegi hvildarstóllinn
með eiginleika ruggujtólsinl
Stillanlegur meS einu handtaki
.1 þú ttöSu er ySur henfar bext
Er framleiddur eingöngu of okkur
meS einkaleyfi fró Stokke Fabrikker Ai Noregl
Ath.: Að gefnu tilefni leyfum við okkur að vara
viðskiptamenn vora við eftirlíkingu. Sönnun þess
að þér hafið fengið réttan stól með réttu „systemi“
er að framleiðslumiði frá okkur fylgi stólnum.
Húsgagnaverzlunin
Laugavegi 36
KARL J. SÖRHELLER
Sími 1-3131.