Morgunblaðið - 14.12.1965, Blaðsíða 30
so
MORCU N B LAÐIÐ
Þriðjudagur 14. des. 1965
Sovétríkin fengu sigurinn færðan á silfurbakka
*
Islenzka liðið hafði forystu lengst af og
staðan var 14 : 11 er 12 mín. vom til leiks-
loka. — En mistök í leik kostuðu að Rússar
skomðu 5 síðustu mörkin og unnu 16 : 14
H A F I nokkurt landslið nokkru sinni tapað landsleik fyrir
handvömm og skyssur, þá henti slíkt^ íslenzka landsliðið í
síðari landsleiknum í handknattleik við Sovétríkin í gær-
kvöldi. Islenzka liðið náði mjög góðum leik í fyrri hálfleik,
komst á tíma 4 mörk yfir (10-6), en hafði tvö mörk yfir við
leikhlé, 10-8. Liðið hélt síðan vel í við Sovétríkjamenn fram
eftir síðari hálfleik, náði svo enn frumkvæðinu og staðan var
14-11 fyrir ísland og aðeins 12 mínútur til leiksloka. En þá
gripu örlaganornirnar í taumana. íslenzka liðið þoli ekki
spennuna. Sendingar urðu ónákvæmar, varnarleikurinn var
kák eitt miðað við fyrri hluta leiksins. Og Sovétmenn skor-_
uðu 5 síðustu mörkin í leiknum — flest seárgrætileg rnistök
íslenzku liðsmannanna — og fengu þennan sigur færðan á
silfurbakka af íslenzka liðinu.
• Skin og skúrir
Það skiptust sem sé á skin
og skúrir í þessum leik. „fs-
landssólin“ var hátt á lofti
lengst af og skein bjart á
stundum. ísl. liðsmennirnir
náðu á tímabilum yfirburða-
köflum yfir Sovétmenn. En
síðan upphófust mistökin í
leiknum. Það var svo sem ekki
eins og Rússarnir þyrftu að
hafa fyrir því að ná knettin
um sjálfir — í þremur tilfell
um komust þeir í handahófs-
legar og ónákvæmar sendingar
milli ísl. leikmannanna, brun
uðu upp völlinn og tryggðu
sinn sigur. Þetta var sannköll
uð leiftursókn, þegar öll sund
virtust vera að lokast til sig-
urs fyrir sovézka liðið.
• Góð byrjun
Nú fór ísl. lfðið vel af stað.
Karl Jóh. skoraði fyrsta mark
leiksins eftir 3 mín. en Sovét jafn
aði úr vítakasti 2 mín. síðar.
Skiptust liðin síðan á mörkum
og voru íslenzkir alltaf fyrri til
að skora en hinir jöfnuðu.
Eftir 11. mín. náði Hörður 4:2
forystu fyrir ísland og mín. sí'ð
ar eykur Ingólfur Óskarsson í
5:3 eftir fallegan línuleik. Á 14.
mín. skorar Gunnlaugur tvö
mörk með nokkurra sekúnda
millibili, hið síðara úr hraðhlaupi
upp völlinn, þar sem rússnesku
markverðirnir höfðu nýskipt um
stöðu. Helzt nú 2—3 marka for-
ysta íslands unz hún kemst í 4
mörk — eða 10:6 eftir 23 mín. Tvö
síðustu mörk hálfleiksins skor-
úðu Sovétmenn — bæði af lín-
uhni og var þá ísl. vörnin grátt
leikin.
Mikil barátta var allan fyrri
h’álfleikinn og í þeirri baráttu
veitti íslendingum betur. Leikur
þeirra var vel útfærður, reynt eft
ir megni línuspil en kanónurn
ar ógnandi fyrir utan varnarmúr
inn.
Er forustan komst í 10:6 höfðu
þeir leikið Rússana sundur og
saman og áttu Rússarnir ekkert
svar nema aukna hörku — og
var ekki laust við að þeir kæmu
ísl. leikmönnunum úr jafnvægi,
og skemmdi leik þeirra í stað
þess að ísl. iiðinu tækist að nota
sér yfirburðastöðuna til algjörs
sálarbrots yfir sovézku leikmönn
unum.
• Öruggt forskot
Fyrstu 10 mín. var forysta
ísl. liðsins 1 og 2 mörk. Rússum
hafði tekizt að ná jafnvægi í
leikinn aftur. Spennan varð gífur
leg í leiknum og heyra hefði mátt
saumnál detta í 2700 mánna á-
horfendahóp.
Um miðbik hálfleiksins er víti
Gunnlaugs varið. En litlu
síðar launaði hann það með
og Pólverjar
með kvikmynd
DANIR og Pólverjar léku
fyrri landsleik sinn í hand-
knattleik — en þau lönd eru
ásamt Islandi saman í riðli í
undankeppni heimsmeistara-
keppninnar í handknattleik.
Komast 2 af 3 til Lokakeppn-
innar.
Leikurinn fór fram í Dan-
mörku á laugardag og sigruðu
Danir 22-16. Karl Benedikts-
son þjálfari ísl. landsliðsins
brá sér ufcan til að kynna sér
leikaðferðir liðanna sem ísl.
liðið á síðar í vetur að mæta.
Karl sagði að munur á
danska og pólska liðinu hefði
ekki verið slíkur sem marka-
tvlan gefur til kynna. Hefði
mestur munur legið í getu
markvarðanna. Sá danski
varði frábærlega vel. Sagðist
Karl búast við að Pólverjar
gætu sigrað Dani, hefðu þeir
markvörð Dana sin megin.
Karl fékk í lið með sér ísl.
námsmenn í Höfn til að taka
kvikmynd af leiknum og
kemur hún hingað um jóla-
leytið framkölluð. Munu þá
ísl. leikmennirnir kynna sér
leikaðferðir liðanna og Karl
leggja á ráð sem vontandi duga
til sigurs íslendinga yfir
þessum keppinautum.
Karl taldi möguleika ísl.
liðsins mikla í þessurn leikjum
og sennilega yrðu það smá-
atriði í leikjunum sem myndu
ráða úrslitum þeirra með litl-
um markamun.
Bir gir hefur verið leikinn frir á lin u og skorar
þrumuskoti í þláhornið uppi. Og
aftur tekst íslandi að ná knett-
inum og er 18 mín. eru af leik
skorar Ingólfur laglega með
gólfi. Staðan er 14:11 og leikur-
inn virðist vart geta tapazt.
• Stympingar
Rússar herða leik sinn og
það er stympazt mjög. Birgi
Björnssyni er vísað út af í 2
mín. fyrir brot á varnarlínu. Á
me'ðan hann er fjarri fær ísl.
liðið á sig tvö mörk. Bæði eftir
að Rússar náðu knettinum í óná-
kvæmum og kæruleysislegum
sendingum ísl. liðsmannanna.
14:13 fyrir íslands og 10 mín.
til leiksloka.
var leikur íslendinga þvingað-
ur af mótlætinu og eins og
hálffrosinn. Rússarnir fóru
Á næstu mínútu opnast vörnin
illa hjá Guðjóni og rússneskur
línumaður er óvaldaður og jafnar
leikinn.
Þrátt fyrir tilraunir tókst
ísl. leikmönnunum ekki að
endurheimta frumkvæði leiks
ins. Nú var rússneski mark-
vörðurinn tekinn að verja
hvert skot. Á 25. mín. bilar
vörnin enn — (að þessu sinni
Ágúst) og ísl. markið opnast
Rússum.
Og enn var reynt að nota
möguleikana til að jafna en nú
sér hægt í sókninni og tókust
engin skot. Tveim mín. fyrir
leikslok er IsL í sókn og mögu
leikinn tii jafnteflis virðist
enn fyrir hendi. En aftur skeð
ur það að Rússar komast í ó-
nákvæma sendingu — hruna
upp og tryggja sinn sigur,
16:14.
• Harka
Þessi leikur var miklu harð-
ar leikinn en hinn fyrri. Rigndi
nú áminningum og 2 leikmenn
hvors liðs urðu að þola brott-
rek^tur í 2 mín. Dómarinn hafðl
nú ekki sömu tök og fyrr. Varð-
andi áminningar og útafrekstur
var jafnræði há dómaranum en
ekki í vítaköstunum. Voru Rúss-
ar sízt linhentari í sinni vörn en
fslendingar — en kunna e.t.v.
betur fagið að mati dómarans.
í
• Liðin
Sovézka liðið reyndi nú mun
meir línuspil en fyrr. Langskot
sáust varla nema fyrst. Þeim
tókst líka að finna veilur í ísl.
vörninni einkum hægra megin i
vörn íslands.
Ingólfur féll vel inn í liðið I
fyrstu, en síðan fundu Rússarn-
ir ráð til að stöðva ,.innbrot“
hans á línuna. Allt Ifðið náði góð
um leik lengst af ekki sízt Þor-
steinn í markinu, en ennþá á
liðið ólært að nota sér unnið for-
skots. Þessi galli kom í veg fyrir
sigur í þessum leik og hefur áð-
ur reynzt liðinu erfiður. - A. St.
Fyrri landsleikurinn á sunnudag:
ísl. liðii velgdi Sovétmönit-
um undir uggum
Sovét vann 18:17
FYRSTl landsieikur fslendinga og Sovétmanna í íþróttum var háður
á sunnudaginn í íþróttahöllinni í Laugardal. Handknattleikslið þjóð-
anna mættust og varð um mikinn baráttuleik og skemmtilegan að
ræða. Svo fóru leikar að Rússar sigruðu með eins marks mun, skor-
uðu 18 mörk gegn 17. í hálfleik var staðan 8-8 og um mínútu skeið
í síðari hálfleik hafði íslenzka liðið forystu, 11-10. En Rússar reynd-
ust bæði í upphafi leiks og eins undir lokin sterkari og unnu verð-
skuldaðan sigur. Gangur leiksins var hins vegar slíkur að sigurinn
hefði eins getað orðið íslendinga. fslenzka liðið misnotaði tvö víta-
köst og í upphafi leiksins átti íslenzka liðið slæman leikkafla, með
lélegum skotum, sem sum hver lentu utan marksúlna og misstu tví-
vegis knöttinn fyrir handvömm í samleik.
* JÖFN KEPPNI
MISSTÓRRA ÞJÓÐA
Margir eru hissa á hve
leikurinn var jafn. En í hand-
knattleik eiga íslendingar lið
sem er vel fært á alþjóðaleg-
an mælikvarða. Það er eina
grein íþrótta sem við gætum
keppt í við beztu lið anniarra
þjóða með skikkanlegum ár-
angri — og það m. a. við
Sovétríkin, sem eru þúsund
sinnum mannfleiri en fsland.
Á" Slæm byrjun
Að afloknum skemmtilegum
leik Lúðrasveitar Rvíkur, sem
„tónvígði“Laugardalshöllina m.a.
með þjóðsöngvum landanna hófst
fyrsti landsleikurinn á staðnum.
Rússar áttu fyrsta markskotið
í stöng og sekúndum síðar eiga
þeir hraðhlaup upp völlinn og
Zdorenko skorar.
ísl. liðið átti heldur fálmandi
byrjun. Heldur lin skot Ragnars,
Gunnlaugs og Birgis voru varin
og síðar átti Guðjón skot. Og
áfram héldu íslenzku liðsmenn-
irnir að skjóta framhjá , meðal
annarra Hörður. Þar við bætt-
ist að ísl. liðið missti knött-
inn í tveim upphlaupum. Byrj-
unin var því heldur slök og gætti
taugaóstyrks í leiknum.
Á 8. mín skora Rússar annað
mark. Var þar Tsertsvadge lang-
skytta að verki.
Á Mark eftir níu mínútur
Fyrst eftir 9 mín lei'k kemur
fyrsta ísl. markið. Nýliðinn
Ágúst ögmundsson skoraði af
línu eftir fallega sendingu þang-
að inn. Sekúndum síðar varði
Þorsteinn fallega skot Rússa af
línu — og nú virtust leikmenn
komnir af stað og farnir að átta
sig.
Hélzt nú 1—2 marka munur
þar til á 18 mín. að Birgi tekst
að jafna með skoti af línu. Aftur
ná Rússar frumkvæðinu og kom-
ast í 2 marka forskot 6—8 eftir
27 mín. En á 3. mín til hlés jafna
Framhald á bls. 31