Morgunblaðið - 29.12.1965, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 29.12.1965, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLADIÐ Miðvikudagur 29. des. 1965 Útgefandi: Framk væmdastj óri: Ritstjórar: Ritst j órnarf ulltrúi: Auglýsingar: Ritstjórn: Auglýsingar og afgreiðsla: Áskriftargjald kr. 95.00 I lausasölu kr. Hf. Árvakur, Reykjavík. Sigfús Jónsson. Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Þorbjörn Guðmundsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstrseti 6. Aðalstræti 6. Sími 22480. á mánuði innanlands. 5.00 eintakið. SKOLITIL AÐ KENNA FRIÐ Cuður í Belgíu hefur verið ^ stofnaður háskóli til þess að kenna frið. Friðarháskóli þessi fékk árið 1958 friðar- verðlaun Nóbels fyrir líknar- og mannúðarstarfsemi. For- stöðumenn stofnunar þessar- 9i hafa fengið 10 Nóbelsverð- launahafa til þess að standa að stofnuninni með sér, þar á meðal íslendinginn Halldór Laxness, skáld og rithöfund. Það mun almenn skoðun þeirra er til þekkja, að Frið- arháskóli þessi sé merk og ágæt stofnun, sem hafi miklu hlutverki að gegna. Engum dylst að sjaidan eða aldrei hefur verið jafn mikil þörf á því og einmitt nú að efla hvers konar friðarviðleitni í heiminum. Á fundi, sem haldinn var fyrir skömmu með aðstand- endum Friðarháskólans, flutti Halldór Laxness athyglis- verða ræðu, sem birt var hér í blaðinu í gær. Líkti hann þar styrjöldum við pestir og höfuðplágur, er yfir mann- kynið hafa gengið. Styrjöld- um væri í dag einkum stefnt gegn þeim, sem ekki taka þátt í bardögum og eiga þess engan kost að bera hönd fyr- ir höfuð sér, með öðrum orð- um börnum, konum og örvasa mönnum. Allar styrjaldir væru illar, af hvaða rótum, sem þær væru sprotnar. Þeg- ar búið væri að gaskæfa þá horuðu og hengja þá feitu, kæmi upp úr dúrnum að ekk- ert vandamál hefði verið leyst. „Því stríð hefur aldrei leyst neinn vanda og mun aldrei gera. Stríð er aðeins holdsveiki mannssálarinnar“, sagði Halldór Laxness. Vitanlega greinir menn æv- inlega á um-orsakir styrjalda. Um hitt getur menn ekki greint á, að þær hafa verið og eru mesti bölvaldur mann- kynsins. Ofbeldi og kúgun í einhverri mynd er oftast frumorsök styrjalda. Höfuð- takmark lýðræðis er hins veg ar að útrýma valdbeitingu, í senn innan einstakra þjóðfé- laga og í viðskiptum þjóða í milli. Grundvallarhugsjón Sameinuðu þjóðanna er að útrýma styrjöldum með því að koma í veg ^yrir að til vald beitingar sé gripið til þess að leysa ágreiningsmál á alþjóða vettvangi. Framkvæmd þess- arar hugsjónar á vafalaust langt í land. En Friðarháskól inn í Belgíu er merkilegt spor fram á við í baráttu þjóð- anna fyrir útrýmingu þeirrar grimmdar og þess siðleysis, sem allar styrjaldir bera svip FLATEY A BREIÐAFIRÐI T Flatey í Breiðafirði hefur gerzt mikil saga. Þar var um langt skeið miðstöð í at- hafna- og menningarlífi Breið firðinga. Þar bjuggu stór- brotnir athafnamenn og menn ingarfrömuðir. Þar var rekin verzlun við allan austurhluta Bandastrandarsýslu og við eyjabyggðirnar á vestanverð- um Breiðafirði. Þar var stofn að eitt fyrsta bókasafn á ís- landi, gefið út tímarit og margvíslegri annarri starf- semi haldið uppi. Á síðustu áratugum hefur byggð stöðugt verið að minnka í Flatey. Gerbreyttir þjóðlífshættir hafa valdið strjálbýli hinna fögru eyja- byggða á Breiðafirði ýmsum erfiðleikum eins og öðru strjálbýli á íslandi. En engum dylst að lífsskilyrði eru að mörgu leyti mjög góð í Flat- ey og öðrum vestureyjum Breiðafjarðar. En aðeins fjór- ar þeirra eru nú í byggð. Þar er stutt á fiskisæl mið og þar eru mikil hlunnindi af fugli og sel Það væri þess vegna tvímælalaust þjóðhagslegt tjón ef Breiðafjarðareyjar færu allar í eyði. Þess vegna er eðlilegt að hlúð sé að þess- um eyjabyggðum og aðstaða fólksins þar bætt eftir fremsta megni. Því fer víðs fjarri að það þurfi að kosta offjár. Mestu máli skiptir að unnið sé að nauðsynlegum framkvæmdum með skipu- lögðum hætti og í engu rasað fyrir ráð fram. Milliþinganefnd, undir for- ustu Gísla Jónssonar, fyrrver- andi alþingismanns hefur ný- lega lokið störfum og gert til- lögu um margvíslegar fram- kvæmdir og ráðstafanir til eflingar byggð í Flatey. Er þar meðal annars lagt til að Flateyjarhreppur eignist allt land í eynni og hafa þing- menn Vestfirðinga á Alþingi þegar flutt frumvarp um þá ráðstöfun. Brýna nauðsyn ber einnig til þess að halda uppi sem beztum samgöngum við eyjabyggðirnar og tryggja þeim gott fjarskiptasamband. Tveir nýir flóabátar munu á næstunni annast samgöngur við Breiðafjörð, Stykkishólms bátur, sem er stórt og vand- að skip, er hefur ferðir snemma á næsta ári og Flat- eyjarbátur, sem keyptur var á síðastliðnu ári til þess að halda uppi ferðum um norð- anverðan Breiðafjörð. Tal- Indland - stjórnar- skrárlegt einveldi Neyðarlógum beitt gegn almenningi í landinu. Nýju Delhí, 26. des. — AP EF indverskur maður býður meira en 100 manns til brúð- kaupsveizlu, er hægt að varpa honum í fangelsi samkvæmt lögum, sem á sínum tíma voru sett til þess að hjálpa Indverjum í átökum við kín- verska kommúnista. Og ef indverskur maður er að því staðinn, að hlusta opinberlega á Pakistanútvarpið, er hon- \ um einnig varpað í tugthúsið, og crvn samkvæmt þessum „Varnarlögum Indlands", DIR. Þessi lög, sem sett voru til þess að mæta neyðarástandi, hafa gert Indland að „stjórnar skrárlegu einræðisriki“ að áliti M.C. Setalvad, sem var saksóknari ríkisins á stjórnar dögum Nehrus, hins látna for sætisráðherra Indlands. Set- alvad sakar Kongressflokkinn, sem er við völd í Indlandi, um að brjóta grundvallar stjórnarskrárréttindi borgara landsins. „Varnarlög Indlands" (DIR) voru sett 26. október 1962. Sarvepalli Radhakrishnan, for seti landsins, tilkynnti þá þjóðinni að alvarlegt neyðar- ástand ríkti í landinu, þingið sæti ekki, og að hann hefði samkvæmt stjómarskránni vald til þess að gera þær ráð stafanir, sem nauðsynlegar væru „til að tryggja öryggi almennings og velferð“. Indverska þingið samþykkti síðar forsetaúrskurð þennan, Og varð hann þannig form- lega að lögum. Enda þótt landamærastyrjöldin við Kín- verja stæði aðeins 1 einn mánuð, er lögum þessum enn beitt. Þau voru ómælt notuð í styrjöldinni við Pakistan í september s.l. Allmargir menn hafa verið handteknir fyrir að hlusta á mmumk wsm SHASTRI, forsætisráðherra — bannað að hlusta á útvarp fréttasendingar í Pakistanút- varpinu, og einn maður hefur verið dæmdur í fangelsi í eitt ár. í haust var 30 manna hóp- ur, sem hafði í frammi áróð- ur fyrir sjálfstæðu Kasmír, fangelsaður samkvæmt DIR- lögunum. Vegna núverandi matvæla- skorts hefur indverska stjórn- in bannað, að fleiri en 100 gestum sé boðið til sömu veizlunnar. Fjöldi manna hef- ur verið handtekinn fyrir að brjóta gegn þessum fyrir- mælum. Hópur í'búa eins úthverfis Nýju Delhí var á dögunum handtekinn, því þeir höfðu handa á milli 38 sementspok- um meira en leyft er. Samkvæmt DIR-lögunum er hægt að halda leynileg réttar- höld, enda þótt dómsupp- kvaðning „skuli fara fram fyrir opnum tjöldum. Hægt er að láta réttarhöld fara fram fyrir sérstökum dóm- stólum, og er ekki hægt að áfrýja úrskurði þeirra. Há- marksrefsing er líflát. Setalvad, sem einnig er fyrrverandi meðlimur sendi- nefndar Indlands hjá Samein- uðu þjóðunum, styður DIR- lögin að því marki, að þeim sé beitt í neyðartilfellum. „En hinsvegar" sagði hann við blaðamenn, „er þeim nú beitt gagnvart venjulegum af brotum. Þau eru notuð á víð- tækan hátt í venjulegri stjórn landsins, eins og til að koma í veg fyrir að verzlunarmenn „hamstri.“, og til að koma í veg fyrir yfirvofandi verk- föll.“ Setalvad hóf árásir sínar á beitingu laga þessara í tíma- ritinu „Advocate“ sem er mál gagn Lögmannafélags Ind- lands, og hefur síðan haldið margar ræður um málið. Bar- átta hans gegn beitingu laga þessara hefur stuðning lög- fræðinga og fleiri. — Mutter Courage Framhald af bls 8. hvergi Ijós meginstefna eða klár lína. Þar við bættist svo æfingar- leysi. Að öllu þessu sögðu er sjálf- sagt að geta þess sem vel var gert, því það gerði sýninguna þrátt fyrir allt nokkurn veginn þolanlega. Helga Valtýsdóttir gerði hlutverki Mutter Courage góð skil þegar á allt er litið og náði mjög góðum tökum á því eftir hlé. Framan af virtist mér túlkun hennar ekki ævinlega fyllilega örugg, og kom þetta ör- yggisleysi m. a. fram í dálítið ýktum leiktilburðum og há- stemmdri framsögn. Að mínu viti hefði lágstemmdari túlkun átt betur við þessa dugmiklu, slungnu og mjög svo flóknu konu, og ég er þeirrar sannfær- ingar að með réttri leikstjórn og nægum æfingum hefði Helga hér skilað einu sínu eftirminnilegasta hlutverki. stöðvasamband við eyjarnar er nú mjög léiegt, en gert er ráð fyrir því að það verði bætt á næsta ári. Aðalatriðið er að tekið verði á málum eyjabyggð- anna á Breiðafirði af skiln- ingi og raunsæi. Þar býr dug- mikið og þróttmikið fólk, sem vissulega verðskuldar stuðn- ing samfélags síns, ekki síður en aðrir landsmenn. Jón Sigurbjörnsson tók her- prestinn skemmtilegum tökum og komst, að mér virtist, einna næst því að ná leikstíl Brechts. Með- ferð hans á söngtextanum var af- bragðsgóð eins og vænta mátti. Bríet Héðinsdóttir lék Katrínu, hina dumbu dóttur Mutter Cour- age; og túlkaði hana af nærfærni og góðum skilningi, en klæðnað- ur hennar og útgangur var mikils til of snyrtilegur og hreinlegur, og hefði góður natúralisti átt að skilja það! Leikendur sem fram koma í verkinu eru alls 25 talsins, og verða nöfn þeirra ekki rakin hér nema að litlu leyti. Aldrei þessu vant brást Róbert Arnfinnsson vonum mínum í hlutverki kokks- ins. Hann var eitthvað tvíátta um túlkunina. Gunnar Eyjólfsson lék Schweizerost og málaði sannferð- uga mynd af hinum heiðarlega Og barnalega yngra syni, en það vantaði einibverja fyllingu í myndina. Bessi Bjarnason lék Ei- líf, eldri soninn, og var ekki í ess- inu sínu. Önnur nöfn er óþarft að rekja, nema hvað rétt er að geta þess að Lárus Pálsson brá upp hnyttilegri smámynd af háöldr- uðum höfuðsmanni og hafði greinilega módelsýningu Brechts til hliðsjónar. Umgerð sýningarinnar var engu skárri en vinnsla hennar. Leikmynd Firners fannst mér kauðaleg og víða beinlínis ótæk (11. mynd), en vagninn var góð- ur og ýmislegt smádót á sviðinu. Lýsingin var flöt og alltaf dreifð, og heíði verið miklu nær að bei'ta punktaljósum til að undirstrika meginatriði. Magnarakerfi sviðs- ins var eitthvað bágborið: sumir söngvar heyrðust óskýrt og einn týndist með öllu og eyðilagði heila mynd (10. mynd). Skot- hvellir voru oftast óeðlilegir, en í 11. mynd var það raunabót að leikhúsgestir fengu þennan líka fína púðunþef yfir sig! Þýðing Ólafs Stefánssonar er lipur og áheyrileg, en helzti bragðdauf með köflum. Útstrik- anir Firners eru mér hinsvegar óskiljanlegar, því hann hefur strikað út margar mergjuðustu og myndrænustu setningar text- ans og falsað hann með ýmsu öðru mótL Söngtextana hefur Ólafi ekki gengið eins vel að flytja yfir á íslenzku, enda ekk- ert áhlaupaverk. Sumir þeirra eru dágóðir, t. d. söngur her- prestsins í fjórðu mynd, en yfir- leitt eru þeir heldur klunnalegir, og ekki hafa breytingar leikstjór- ans eða hjálparkokka hans bætt þar um. Hitt er vert að ítreka, að þýðing þessara söngtexta er afar- vandasöm og vart ætlandi öðrum en sniliinguim. Mæbti ég svo að endingu fara þees á leiit fyrir hönd leiikihús- gesta, að gerðar verði ráðstafanir til að hita upp húsakynnin áður en fólík sezt í salinn. Menn urðu margir hverjir að klæðast yfir- höfmiim í hléinu til að firra sig otfkælingu. Sigurður A. Magnússon.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.