Morgunblaðið - 13.04.1966, Side 12

Morgunblaðið - 13.04.1966, Side 12
12 MORG U N B LAÐIÖ Miðvikudagur 13. apríl 1966 | ' ■ | i' ■ ! „Farþegar sýndu undraveröa stillingu" Rætt við nokkra Itali af norsku farþegaskipi, sem brann á karabiska hafinu Xhoresen skipstjóri MIKILL eldur kom upp í farþegaskipinu „Viking Prin- cess“ kl. 1,30 aðfaranótt föstu dagsins Ianga, þar sem það var statt miðja vegu milli Haiti og Kúbu. Skipið, sem er norskt og skráð í Osló er tæp 13000 brúttólestir og í eigu norska útgerðarmannsins Berge Sigval Bergesen. 498 manns, áhöfn og farþegar, voru um borð í skipinu. Eng- an sakaði í eldsvoðanum sjálf um, en tveir farþeganna, Fanny Lewen 57 ára að aldri og N. Peter Brooks 58 ára létust af hjártaslagi. Lézt Lewen um borð í einum lífbát anna, en Brooks á lífbáta- dekki. 2—3 af áhöfn skipsins hlutu lítilsháttar brunasár á höndum. Er eldurinn kom upp stóð yfir grímudansleikur í dans- sal skipsins. Eldurinn kom upp í vélarrúmi og urðu far- þegamir í danssalnum brátt varir við reykjastybbuna. Er ljóst var orðið hvemig komið var, tók skipstjórinn, Otto Thoresen, stjómina í sínar hendur og báru farþegar síðar lofsorð á hann fyrir röggsemi og snarræði. Gekk mjög greið- lega að koma farþegum um borð í lífbátana, en á meðan sendi loftskeytamaðurinn út neyðarmerki til naerstaddra skipa. Komu þegar á vettvang þýzkt skip „Cap Norte“, skip frá Líberíu „Navigator" og kínverskt skip (,Chuniking Victory". Tóku þessi skip far- þega og áhöfn og sigldu með fólkið til bandarísku herstöðv- arinnar í Guantanamo á Kúbu. ..Vikine Princess" var á leið frá Curacao til Miami, eftir sjö daga skcmmtiferð í karabíska hafinu. Frá Guantanamo fór fólkið flugleiðis til Miami, en þaðan héldu 106 ítalir af áhöfn skips ins til New York. Aðfaranótt páskadags komu italarnir sið an til Keflavíkurflugvallar með flugvél Loftleiða og höfðu skamma viðdvöl í Loft- leiðahótelinu, áður en þeir héldu til Genúa með Rolls Boyce flugvél Loftleiða „Guð- ríði Þorbjamardóttur“. Fréttamenn blaðsins voru staddir í biðsal hótelsins, er Alfredo Fuduli. ítalana bar að garði, kl. 5 að- faranótt páskadags. Virtust þeir fremur þreytulegir og skulfu af kulda í svölu nætur loftinu fyrir utan hótelið. — Margir þeirra höfðu dúðað sig í þykkum ullarteppum. merkt um Loftleiðum, nokkrir keyptu sér íslenzkar ullar- peysur í minjagripaverzlun hótelsins. Flestir voru ítalarn ir mjög léttklæddir, enda kom það síðar á daginn, að þeir höfðu misst öll sín föt í elds- voðanum og voru í gjafaflík- um Bandarikjahersins í Guant anamo. Fyrstan hittum við að máli lágvaxinn og hnellinn ítala, Tomasso Ecio að nafni, sem brosti breitt, er við lögðum fyrir hann fyrstu spurning- una: — Varstu hræddur, þegar þú vissir að eldur var laus í skipinu? (Ljósm.: Sv. Þ.) — Nei, alls ekki. Ég var sofandi þegar eldurinn kom upp og ég vissi varla hvað á gekk fyrr en ég var kominn í lífbátinn. Það var bezti vin- ur minn um borð, Alfredo Fuduli, sem vakti mig. Ég var þá nýlagstur til svefns og var mjög þreyttur, en ég var þjónn yfirmanna og hafði ótt erfiðan dag. Annars gekk allt mjög vel og ekkert alvarlegt skeði mér vitanlega, nema hvað ég missti allan minn far- angur og föt. Ég missti einnig marga minjagripi, sem ég hafði keypt víða um veiöld handa móður minni. Þeir voru mjög dýrir og slæmt að missa þá. — Ertu giftur, Tomasso? — Nei. ég er of ungur til þess. Bara tvítugur. Fuduli, bezti vinur Tomasso, var á svipuðum aldri en mun óstyrkari, enda trúði hann okkur fyrir því, að hann hefði verið að skemmta sér í New York daginn áður. — Ég fór í sarna lífbát og Tomasso, sagði Fuduli. — Það var næstsíðasti báturinn. Skip stjórinn var í síðasta bátnum. Hann er mjög góður maður, og það hefði vafalaust farið illa, hefði hans ekki notið við. Ég var staddur á lífbáta- dekkinu, þegar bandaríski maðurinn fékk hjartaslag. Serrvio bryti. Hann stóð hjá eiginkonu sinni lágvaxinni konu, þegar hann féll um koll. Hún komst í mikla geðshræringu og það varð að bera hana á brott. Við Tomassö fórum um borð í þýzka skipið „Cap Norte“, og vorum báðir klæðalitlir. Ég missti allan minn farangur, sem var um 600 dollara virði. Við erum báðir frá Genúa og fórum þar á skipið fyrir 16 mánuðum. Okkur iþykir mjög leitt að svona fór, því skipið var gott og áhöfnin öll eins og einn maður. Schiaffino aðstoðarbarþjónn er einn af þessum dæmigerðu ítölum. Léttlyndur, kvikur og síbrosandi. Og meðan við ræddum við hann voru augun á sífelldu flökti um biðsal- inn og er hann sá fallega konu ljómaði andlitið um leið og hann hvíslaði að okkur „Mamma mía“. Hann sagðist Fagnaðarfundir í Miami hafa verið að loka barnum og á leið til klefa síns er hann fann að skipið stöðvaðist og ljósin slokknuðu. — Varstu ekki hræddur? — Nei. nei. Það var engin ástæða til þess. Eldurinn breiddist ekki það fljótt út, og öll stjórn yfirmanna var með afibrigðum góð. Skipstjór- inn gaf skipun um að allir skyldu fara að sínum björg- unarbátum og bíða þar átakta, meðan kannað væri hvort nauðsyn væri á að yfirgefa skipið. Farþegarnir voru allir mjög rólegir og hlýddu orða- laust skipunum yfirmanna. Síðan kom skipun um að sjó- setja bátana og gekk það mjög greiðlega. Við vorum svo í bátnum í 2 klst. en þá var okkur bjargað af þýzka skip- inu Cap Norte. — Var mikill eldur þá í skipinu? — Já, eldbjarminn lýsti alveg upp umhverfis staðinn, það var stórkostleg sjón, en líka leiðinleg. Ég var búin að vera á skipinu í eitt ár og þótti vænt um það. — Ertu giftur? — Ég giftur? Nei, takk. Til hvers setti ég að gifta mig. Og nú stóð hann upp og 'benti í kringum sig á allt kven- fólkið og gaf okkur fyllilega í skyn að honum fyndist frek- ari skýringar óþarfar. Sörriva yfirbryti skipsins virtist eitthvað miður sín og vildi sem minnst við okkur tala. Hann sagðist hafa verið að vinna þegar kallað var til hans að eldur -væri laus. Hann hefði iþegar farið til aðstoðar Tomasso Ecio við íarþegana, sem hefðu ver- ið einstaklega rólegir og æðru lausir. Hann sagði að ekkert hefði gerst sem orð væri á gerandi, nema þá ef vera skyldi frábær framganga norsku áhafnarinnar og að þeir væru áreiðanlega 'beztu sjómenn í heimi. Þegar Thoresen skipstjóri kom um borð í kinverska skipið vott- uðu fanþegarnir sem þar voru fyrir, honum virðingu með lófataki. Næst höfðum við tal af Luciano Signoarini, þrekvöxn um og greindarlegum ítala, sem segir okkur skilmerkilega frá eldsvoðanum: — Ég var staddur aftarlega á skipinu ásamt nokkrum far- þegum og tveimur öðrum ítölum úr þjónustuliði skips- ins, og við vorum að hlusta á bandarískan skemmtikraft frá Jaoksonville segja okkur gamansögur, þegar við heyrð- um tvær sprengingar, sem komu frá vélarrúmi skipsins. Við gerðum okkur fljótlega grein fyrir því. að eldur hafði komizt í rafala skipsins, og fundum brátt megna reykjar- stybbu leggja út um allt skip. Ahöfn skipsins var þjálf uð vikulega í björgunarstörf- um og kom sú þjálfun nú að góðu haldi. Ég hljóp fram í danssalinn og kallaði til fólks- ins, sem var orðið dálítið órótt, að eldur vœri laus í vélarrúmi, en hættan væri lítil enn sem komið væri, og bað það að gæta stillingar. Þá kom skipstjórinn niður og tók stjórnina í sínar hendur. Ég varð var við, að fólkið róaðist mjög við, að sjá Thoresen skipstjóra á meðal sín, ein- beittan og æðrulausan. Sagði hann því, að því væri óhætt að ná í farangur sinn undir þiljum, ef það færi með still- ingu og ró. Datt þá allt í dúna logn, og undraðist ég mjög stillinguna, sem farþegarnir sýndu. Þrjú eða fjögur börn á aldr- inum 5—9 ára voru meðal farþeganna, og höfðum við sérstakt eftirlit með þeim. Þeg ar allir farþegar og mikill hluti áhafnarinnar var kom- inn í lífibátana leituðum við vendilega í öllum klefum til að ganga úr skugga um, að enginn væri eftir. Ég fór ásamt skipstjóranum og nokkrum öðrum í síðasta bát- inn. Þá var eldurinn orðinn mjög magnaður og stóð eld- stólpi upp úr reykháf skips- ins, og nokkuð var farið að loga upp úr þiljum. Framhald á bls. 25. Sohiaffino. „Mamma mia!“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.