Morgunblaðið - 13.04.1966, Qupperneq 21
Miðvíkudagur 13. apríl 1966
MORCU tSBLAÐIÐ
21
Giftudrjúgt starf unnið
á vegum hreinsunardeildar
Rætt við Guðjón Þorsteinsson, deildarstjóra
HJÁ hreinsunardeild
Reykjavíkurborgar hefur á
undanförnum árum verið unn
ið mikið og giftudrjúgt starf
í hreinlætismálum borgarinn-
ar. Hreinsunardeildin hefur
yfir að ráða góðum vélakosti,
tveimur véLsópum, þremur
þar af 4, af nýjustu og full-
komnustu gerð, sem taka þre-
falt magn á við gömlu bíl-
ana. Bættust tveir sorpbílar
af þessar gerð við bifreiða-
kost deildarinnar eftir ára-
mót.
— Deildin hefur yfir að
deildinni hefur með henni
kerfisbundið eftirlit auk þess,
sem nokkrir menn annast
hreinsun skolpræsa fyrir hús-
eigendur í borginni, og skal
nánar vikið að því síðar.
Vonir standa nú til
að útisalerni hverfi algjör
Með þessum bílskrokkum verður Elliðavogurinn fyUtur upp.
sjálfvirkum saltdreifurum og
hátt á annan tug sorpbíla,
en tveir nýir sorpbílar af full-
komnustu gerð bættust við
á þessu ári.
Fyrir fáeinum árum var
l>yggð afkastamikil sorpeyð-
ingarstöð á vegum borgarinn-
ar sem tekur við miklum
hluta þess magns, sem ekið
er úr sorpílátum borgarl'ía
dag hvern, þótt enn þurfi
að aka nokkru á sorphaug-
ana.
Hreinsunardeildin veitir að
jafnaði hátt á annað hundr-
að manns atvinnu, en yfir
sumarmánuðina starfa á henn
ar vegum fjölmargir ungling-
ar á skólaskyldualdri, sem að
öðrum kosti ættu lítinn eða
engan kost á stöðugri atvinnu.
Morgunblaðið hefur snúið
sér til Guðjóns Þorsteinsson-
ar deildarstjóra hreinsunar-
deildar og beðið hann, að
lýsa í höfuðdráttum viðfangs-
efnum deildarinnar undanfar-
ið og á komandi árum. Guð-
jóni fórust orð á þessa ieið:
Vélakostur aukist stórlega.
— Hjá hreinsunardeild borg
arinnar vinna nú sem stendur
um 165 manns og þar af
starfa um 40 manns við gatna
hreinsunina. Við þetta starfs-
lið bætast unglingarnir, sem
koma til okkar svo að segja
beint úr skólastofunum, en
eru að jafnaði um 50-60 tals-
ins. Eru störf þeirra aðallega
fólgin í hreinsunum á opnum
stöðum og í f jörum.
— En þrátt fyrir öra stækk-
un borgarinnar hefur starfs-
liði hreinsunardeildar fækkað
nokkuð og stafar það fyrst
og fremst af hinum stóraukna
vólakosti en einnig af því
að færri fást til þessa starfs
en áður. Við sorphreinsun
vinna nú um 100 manns og
við sorpeyðingarstöðina 12
manns.Við sorptökuna hefur
hreinsunardeildin 18 bifreiðir,
ráð tveimur vélsópum, sem
hreinsa 100 km að jafnaði á
viku, miðað við gjötukanta.
Mun nýr vélsópur bætast í
hópinn á þessu ári. Við höfum
einnig þrjá sjálfvirka salt-
dreifara í sambandi við hálku
á götum að vetrarlagi, og
skal þá tekið fram, að saltið
er blandið ryðvarnarefni, sem
nefnist Banox, og minnkar
ryðmyndun um 80-90%. Þess
má geta í þessu sambandi, að
á síðastliðnu ári voru 15.000
tonnum af rykbindiefni dælt
á götur borgarinnar.
Miklar hreinsanir á sl. ári.
Aætlað er að 210.000 ten-
ingsmetrum af húsa- og iðn-
aðarsorpi hafi verið ekið úr
og á sorphauga árið 1965. Eru
borginni í sorpeyðingarstöð
nú í borginni um 25.000 sorp-
ílát, sem Ihreinsa þarf reglu-
lega. Að því magni meðtöldu,
sem fyrirtæki og verzlanir
létu aka upp á eigin spýtur
í sorpeyðingarstöðina, munu
um 57.000 bílhlöss hafa farið
samanlagt í stöðina og á sorp-
hauga, en það er nálægt 52.000
tonn. Starfsliðið við þessar
hreinsanir var frá 105-110
manns að meðaltali.
— f>ess skal getið sérstak-
lega, að sorpeyðingastöðin
getur ekki unnið áburð úr
öllu þessu magni, og hefur
því þurft að aka nokkru á
sorphaugana. Þess er eins og
kunnugt er vendilega gætt,
að sorpinu sé brennt jafn-
óðum, en eigi að síður, eru
þeir óviðunandi til frambúðar.
Verður á þessu ári gripið til
sérstakra ráðstafana í sam-
bandi við þá, en í framtíð-
aráætlun borgarinnar er ráð
fyrir því gert, að Grafarvog-
urinn, þar sem haugamir em,
verði fylltur upp og þar gert
hafnarstæði.
— Viðvíkjandi holræsa-
hreinsun er þess að geta, að
vinnuflokkur frá hreinsunar-
lega úr borginni. Úti-
salerni eru r<ú við 44 heimili
og vinnustaði á víð og dreif
um borgina og eru að sjálf-
Guðjón Þorsteinsson
deildarstjóri.
sögðu að þeim vanþrif og lýti.
Verður stefnt að því, að út-
rýma þeim að fullu og öllu
nú á þessu ári.
— A vegum deildarinnar
voru á síðasta ári hreinsaðar
730 einkalóðir í borginni,
flestar á kostnað eigendanna.
Á síðasta ári voru einnig rifn-
ir 330 skúrkumbalar hingað
og þangað um borgina, sem
bæði voru inni í lóðum og á
opnum svæðum. Verður bví
starfi haldið áfram eftir því
sem tilefni gefst til. Viðvíkj-
andi holræsahreinsun við og
í heimahúsum hefur deildin
fjóra menn á tveimur bif-
reiðum, sem annast þann
starfa fyrir húseigendur, og
hafa þeir vel kunnað að meta
þá þjónustu.
Við meindýraeyðingu starfa
þrír meindýraeyðar að stað-
aldri og eitra þeir kerfisbund-
ið í holræsakerfi borgarinn-
ar yfir vor- og sumarmánuð-
ina.
Almenningssalerni eru nú
6 að tölu í borginni og starfa
við þau að jafnaði 12 manns.
Var á fyrra ári opnað eitt
almenningssalemi í Tjarnar-
götu. Má búast við því að
þeim fjölgi á næstu árum,
eftir því sem borgin stækkar.
Stórhuga framkvæmdir á döf-
inni.
— Þess var áður getið, að
í framtíðaráætlunum Reykja-
víkurborgar er ráð gert fyrir
því, að Grafarvogurinn verði
fylltur upp og þar gert hafn-
arstæði. Er nú unnið að því,
á vegum hreinsunardeildarinn
ar og í samráði við lögreglu
og borgaryfirvöld, að flytja
bílskrokkana úr „bílakirkju-
garðinum" á ÁrtúnShöfða og
fylla upp með þeim Elliða-
voginn.
— Um 400 bílskrokkar eru
á Artúnshiöfðanum og er svæð
ið með þeim fremur óhrjá-
egt á að líta. Með þeim fæst
hins vegar góð uppfylling í
voginn og er einkar hentugt
af láta þá hverfa á þann hátt.
Við brottflutninginn er unn-
ið með góðu starfsliði og stór-
virkum tækjum, enda hefur
verkinu miðað vel áfram.
Er hugmyndin með þessari
uppfyllingu Elliðavogs, að
rækta þar upp land, sem
seinna gæti orðið fagur garð-
ur fyrir almenning, eins og
þekkist í borgum víðast hvar
erlendis. Verkið tekur að
sjálfsögðu mörg ár, en reynt
verður að hraða því eftir
megni.
Er hér enn sem áður unnið
af stórhug og framsýni.
Sorpeyðingarstöðin við Grafarvog.
Annar hinna nýju og fullkomnu sorpbíla, sem komu eftir áramótin. Ljósm Ól.