Morgunblaðið - 24.04.1966, Blaðsíða 23
Sunnudgaur 24. apríl 196f
MORGUNBLAÐIÐ
23*
SjÖtugur á morgun:
Ásgeir H. Jónsson
Valshamri
ÞEGAR ég fyrir 24 árum kom
fyrst til Stykikshóims og hóf
! starf á sýsluskrifstofunni, kynnt
ist ég í því starfi mörgum mönn-
um og mikil samskipti hafði ég
við hreppstjórana, svo sem starfi
mínu var samfara, Meðal þeirra
var Ásgeir á Valshamri. Það
j vakti fljótt athygii mína hversu
hann hafði fagra rithönd, sér-
stakan stíl og frágang á öllu
því, sem hann lét frá sér fara.
j Var sama hvort um bréf eða
skrár var að ræða, það var eng-
in hætta á að ekki skildist allt,
eem þar var um fjallað og gott
var að leita til hans, því bæði
! Sfwi
var það að svörin drógust ekki á
ianginn og hitt að þau voru
greinileg. Ég man líká vel eftir
vinnu og handbrögðum hans í
skattanefndarstarfi hans og þar
þurfti yfirskattanefnd jafnan
litlu við að bæta.
Ég skal ekki dóm á það leggja
hversu fljótvirkur hann var en
vandvirkni hans sáu allir. Þann-
ig er líka með búskap hans.
Snyrtimennskan hæst skrifuð og
því blessast allt svo vel. Og eitt
enn, ég held að Ásgeir taki aldrei
að sér það verk, sem hann ekki
er viss með að ljúka þannig að
sómi sé að.
Ásgeir Halldór Jónsson er
fæddur að Valshamri í Skógar-
strandarhreppi 25. apríl 1896. Þar
hefir hann alla tíð átt heima síð-
an og unað vel hag sínum. For-
eldrar hans bjuggu þar áður all-
an sinn búskap. Móðir hans var
Kristín Daníelsdóttir frá Langa-
dal, systir Daða manns Maríu
Andrésdóttur. Faðir hans var
Jón Jónsson og voru ættir hans
úr Dölum. Hann var lengi hrepp
stjóri þeirra Skógstrendinga.
— Ég hef ekki verið víðförull
um dagana, segir Ásgeir í stuttu
viðtali, ég hef haldið mér við
jörðina. Byrjaði búskap 1923 eft-
ir lát föður míns 1922 og hef
því búið nú í 43 ár. Faðir minn
bjó á Vaishamri í 35 ár, hóf bú-
skap 1887.
Ég giftist svo árið 1927 Ás-
laugu Guðmundsdóttur frá
Fagradal í Dalasýslu. Þar bjuggu
foreldrar hennar, Þórdís ívars-
dóttir og Guðmundur Hannesson
og áttu margt barna. Guðmund-
ur var lengi póstur.
Þegar ég byrjaði búskap voru
allar jarðir og kot í Skógarstrand
arhreppi í byggð og blómleg eyja
byggð, allar 6 eyjarnar í byggð,
aðeins ein, Geitareyjar, voru þá
í eyði. Hreppurinn því fjölmenn-
ur og góðmennur.
Skemmtanalífið var ósköp fá-
breytt hér á ströndinni. Menn
fóru á milli kunningjanna og svo
voru kirkjuferðirnar. Það voru
helztu mannfundirnir og menn
settu metnað sinn í að mæta við
kirkju. Því var kirkjusókn góð.
Fyrsti prestur, sem ég man eft-
ir, var séra Jósef Hjörleifsson. Ég
leit mjög upp til hans. Ágúst son
ur hans og ég vorum á líku reki
og ekki spillti það fyrir. Eftir
hann kom svo séra Lárus Hall-
dórsson. Báðir þessir menn voru
miklir embættismenn og á Breiða
bólsstað var messað annan hvern
sunnudag. Já, merin voru ekki að
setja það fyrir sig þótt þeir
þyrftu að fara fótgangandi
langa leið og jafnvel í misjöfnu
veðri til að komast til kirkju og
ekki man ég til að messa félli
niður. Við Breiðabólsstaðar-
kirkju var lengi forsöngvari
Jósef Eggertsson á Vörðufelli.
Var unun að heyra hann leiða
sönginn enda hafði hann blæ-
fagra og mikla rödd, sem ekki
gleymist þeim sem á hlýddu og
ekki efi á að söngur hans dró
fólk að og setti sinn svip á guðs-
þjónustuna. Eftir messu ræddu
menn saman eins og gerist og
gengur um áhugamálin og var
það oft uppörfandi og gagnlegt.
Á haustin komu oft fjárkaup-
menn úr Hólminum bæði frá
Tangsverzlun og Sæmundarverzl
un. Var lagt mikið upp úr því
að selja féð á fæti, því þá höfðu
bændur engin eftirkaup. Tóku
kaupmenn þá við fénu á staðn-
um og fengu menn til að reka
út í Hólm. Stundum var líka
slátrað á Dröngum og afurðirn-
ar fluttar á bátum í kaupstað-
inn. Samgöngurnar voru ekki
eins greiðfærar og í dag. Það var
meiri kyrrð og friður yfir öllu
en í dag og þessi hraði sem nú
ber efst var ekki til. íhugunar-
stundir voru því fleiri.
^ Þetta er í stuttu máli það, sem
Ásgeir sagði mér, er ég lagði leið
til hans um daginn í tilefni af-
mælisins. Hann talaði eingöngu
um björtu hliðarnar og sólar-
geislana, enda held ég að Ásgeir
hafi manna bezt kunnað að haga
lífsgöngu sinni þannig að dökku
blettirnir eru algerlega útilokað-
ir, í það minnsta í minnihluta.
Ánægjan og hið góða skap sér
fyrir því. Hann hefir ekki held-
ur staðið einn í straumi lífsins.
Víst er um það. Ásgeir hefir
gegnt hreppstjórastarfi frá 1930,
verið safnaðarfulltrúi og í sókn-
arnefnd frá 1922. í fræðslunefnd
hefir hann setið og verið for-
maður hennar og í stjórn Búnað-
arfélags sveitarinnar frá 1926.
Þau hjón eiga 4 börn og eru
þrjú þeirra búsett í Reykjavík,
en Jón sonur hans býr með föður
sínum á Valshamri.
Á þessum affnælisdegi munu
samferðamenn Ásgeirs senda
honurti og heimili hans innilegar
árnaðaróskir um leið og þeir
þakka vinsemd hans fyrr og
síðar. Á. H.
Atvinna
Viljum ráða duglegan mann til starfa nú
þegar. — Upplýsingar hjá verkstjóra.
Afurðasala SÍS
Vélritun
Innflutningsfyrirtæki í Reykjavík vill ráða góða
vé/iritunarstúlku fyrir íslenzkar og enskar bréfa-
skriftir. — Góð vinnuskilyrði og kaup eftir sam-
komulagi.
Umsóknir sendist afgr. Mbl. merkt: „Vélritun —
9741“, fyrir 1. maí n.k.
Rósir
Nýkomnar pottarósir frá Danmörku. •— Takmarkað-
ar birgðir. — Mjög gott úrval af allskonar potta-
blómum, grænum og blómstrandi.
Vorlaukar, Daklíur, Bóndarósir, Anemonur,
Gladiolus, Begoniur o. fL
Blómaskáli PAUL MICKELSEN.
HveragerðL
REYKMÍKUR
Stofnaður 1966.
Fyrsta skemmtun hins nýstofnaða Hjóna-klúbbs
Reykjavíkur, verður haldin í Lídó laugardaginn
30. apríl nk. og hefst með sameiginlegu borðhaldi
kl. 19,30. — Húsið verður opnað kl. 19.
TIL SKEMMTUNAR m.a.:
1. Einsöngur: Guðrún Á. Símonar,
óperusöngkona.
2. Frumfluttur nýr skemmtiþáttur af
leikurunum Róbert Arnfinnssyni og
Rúrik Haraldssyni.
3. Flutt minni eiginkvenna — og karla.
Ný hljómsveit: Sextett Ólafs Gauks. Söngvarar:
Svanhildur Jakobsdóttir og Björn Einarsson.
Veizlustjóri verður Sveinn Ásgeirsson, hagfr.
— Samkvæmisklæðnaður —
Verði aðgöngumiða er mjög i hóf stillt og kosta að-
eins kr. 750,00 (fyrir parið) og er maturinn inni-
falinn. — Sala aðgöngumiða hefst í veitingahúsinu
Lídó nk. þriðjudag kl. 16—19. — Athygli þeirra,
sem ekki hafa sótt skírteini sín, skal vakin á því að
verði þeirra ekki vitjað þá, verða þau afhent öðrum.
HJÓIKLÚRBUR REYKJAVÍKUR
II
sí
•v.
**•*»•«» »«r»«*.»•»*-»»
wm
með DIXAN, þvottaduftið
fyrir allar tegundir þvottavéla:
því DIXAN er lágtreyðandi
og sérstaklega framleitt fyrir
þvottavé/ina yðar.
Með DIXAN táið þér alltat
bextan árangur!