Morgunblaðið - 14.06.1966, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 14. júní 1966
Kristinn Armannsson
fyrrum rektor látinn
Kristinn Ármannsson,
fyrrv. rektor Menntaskólans
í Reykjavík, andaðist í Lond
on síðdegis á sunnudag sL
Kristinn hafði verið á ferða-
lagi í Grikklandi með konu
sinni er hann veiktist skyndi
lega og var fluttur til Lond-
on þar sem hann gekk undir
uppskurð síðastlðinn föstu-
dag. Uppskurðurinn gekk vel,
en á sunnudagsmorgun hrak
aði honum og skömmu eftir
hádegi andaðist hann.
Banamein Kristins var
hjartabilun. Kristinn Ármans
son var sjötugur að aldri er
hann lézt. Hann var fæddur
á Saxahóli á Snaefellsnesi
28. sept. árið 1895. Foreldrar
Kristins voru hjónin Ármann
Jónsson skipasmiður og
Katrín Sveinsdóttir frá Þór-
ólfsstöðum í Miðdölum. Krist
inn lauk stúdentsprófi frá
Menntaskóla Reykjavíkur ár-
ið 1915. Stundaði síðan mál-
fræðinám latínu, grísku og
ensku við háskólann í Kaup-
xnannahöfn og lauk þaðan
magisterprófi árið 1923. Síðar
stundaði Kristinn nám í
Rómaborg, á Norðuröndum
og í Englandi. Hann hóf
kennslu við Menntaskólann í
Reykjavík árið 1923 og varð
yfirkennari árið 1939. Árið
1957 var Kristinn skipaður
rektor Menntaskólans og
hafði hann það starf með
höndum til ársins 1965. Enn-
fremur var Kristinn lektor í
grísku frá árinu 1925 og auka
kennari í latínu frá 1952.
Frá árinu 1934 hafði hann
Kristinn Armannsson
með höndum dönskukennslu
í Ríkisútarpinu og frá 1931-
40 var Kristinn stundakennari
í ensku við Verzlunarskól-
ann.
Kristinn ritaði og vann að
útgáfu fjölmargra fræðirita
og framlag hans til náms-
bókagerða bæði sjálfstætt og
með öðrum er of yíirgrips-
mikið til að það verði rakið
hér.
Kristinn lætur eftir sig
konu Þóru Árnadóttur og
uppkomin börn.
Með Kristni er genginn
einn merkasti menntaírömuð
ur íslands á þessari öld.
Fiskaflinn 12,1%
minni en í fvrra
HEILDARAFH landsmanna
tvo fyrstu rnánuði ársins var
113,866,5 tonn, en var á sama
tíma í fyrra 129,480.2. Er því
heidarafinn nú 15.613,7 tonnum
minni en í fyrra, eða 12,1%
Heildaaflinn skiptist þannig. Töl
ur frá sama tima í fyrra í svig-
um. Bolfiskur 32.342,1 tonn
(49.750.1) , síld 17.248 tonn
(48.765.2) loðna 63.971.1 tonn
(30.734.4) rækja 305.2 tonn
(230.4) .
Deilur um hval-
veiðiheimild
Tókíó 13. júní NTB.
JAPANSKA fiskimálastjórnin
lýsti því yfir í dag, að Japan
byðist til að lækka hvalveiði-
heimild sína fyrir næsta veiði-
tímabil, sem hefst í desember
nk. og lýkur í apríl 1967, úr 52%
niður í 48%. Gildir þetta um
hvali sem veiddir eru við S-
heimskautslandið.
Mál þetta verður tekið á lö.
alþjóðahval veiðiráðstefnunni, er
hefst í London 20. júní nk.
Heildarveiðiheimildin á fyrr-
nefndu svæði er nú 4500 bláhval-
ir. Hafa Japanir haft 52% af
þessari heimild, Norðmenn 28%
og Rússar 20, en Sovétríkin gera
nú kröfu til að heimildinni verði
skipt jafnt niður á milli þessara
3ja þjóða.
Helzta umræðuefnið á þessari
ráðstefnu verður hin mikla fækk
un á hvalstofninum, og munu
Japanir leggja fram tillögu um
að veiðiheimildin verði lækkuð
úr 4500 niður í 3500 hvali.
Borgarráð auglýsir til
leigu 67 íbúðir í háhýsi
Ætlaðar fyrir aldrað fólk, öryrkja og
einstæðar mæður
BORGARRÁÐ Reykjavíkur hef-
ur ákveðið að auglýsa til leigu
67 íbúðir í háhýsi að Austurbrún
6. Ibúðir þessar eru 1 herbergi
með svefnkrók, eldhús og bað og
eru sérstaklega ætlaðar öldruðu
fólki, öryrkjum og einstæðum
maeðrum. Væntanlega verða
íbúðir þessar fullgerðar í júlí-
mánuði n.k.
Ákveðið hefur verið, að eftir-
taldar meginreglur gildi um út-
hlutun:
1. Við úthlutun á íbúðum til
aldraðra, koma þeir einir
til greina, sem náð hafa
ellilífeyrisaldri.
2. Úthlutun íbúða til öryrkja
er því skilyrði háð, að um
sé að ræða minnst 75% ör-
Dauðadómur í Kína
— fyrir tilræði við tvo útlendinga
Peking, 13. júní — AP, NTB.
DAUÐADÓMUR var í dag kveð-
inn upp yfir 19 ára gömlum kín-
verskum pilti er lagt hafði hnífi
tvo útlendinga, konu, sem starf-
a’ði við sendiráð A-Þýzkalands í
Peking, og blaðamann frá Mali.
Sár þeirra voru þó ekki stórvægi
leg og eru bæði komin heim til
sín af sjúkrahúsinu sagði í opin-
berri tilkynningu um málið, en
sjálfur var pilturinn dæmdur til
dauða og leiddur fyrir aftöku-
sveitina skömmu eftir dómsupp-
kvaðningu.
Tilkynningin um dauðadóminn
var lesin upp á stærsta íþrótta-
leikvangi Peking, innan dyra, og
var þar fyrir 13.000 manna á-
horfendahópur og fagnaði dóm-
inum mjög. Miðar blöktu þar úr
þakinu niður og stóð þar á, að
öllum andbyltingarsinnum skyldi
útrýmt úr landinu. Pilturinn,
sem hnífnum brá, var þar við-
staddur og sá enginn honum
bregða. Var honum gefið það
helzt að sök að með tilræðum
þessum hefði hann viljað sverta
nafn Kína og flækja það inn í
argvítugar deilur um alþjóðlegt
moi'ðmál. „Sumir hafa látið í
veðri vaka að líkamsárásir þess-
ar bæru vott sjúklegu útlendinga
hatri Kínverja" sagði „dómsfor-
setinn", en andbyltingarlegur
svipur þess er augljós". Loks seg
ir í dómsúrskurðinum að hinn
seki hafi alla tíð haft horn í síðu
kínverska kommúnistaflokksins
fyrir morð byltingarmanna á föð
ur hans, áður en kommúnistar
komu til skjalanna og heíði hon-
um verið sýnd linkind í svipuðu
máli áður, en nú væri nóg komið.
orku að mati trygginga-
læknis.
3. Búseta í Reykjavík sl. 7 ár
er skilyrði.
4. fbúðir þessar eru að hluta
ætlaðar til útrýmingar
heilsuspillandi húsnæðis og
munu þeir að öðru jöfnu
ganga fyrir, sem búa í
óíbúðarhæfu húsnæði.
5. Eigendur íbúða koma eigi
til greina.
Að öðru leyti mun borgarráð
setja nánari reglur um úthlutun
leiguíbúða þessara.
Umsóknareyðublöð liggja
frammi í skrifstofu félags- og
framfærslumála, Pósthússtræti
9, Reykjavík og skulu umsóknir
hafa borist eigi síðar en 28. þ.m.
til húsnæðisfulltrúa.
Af bolfisktegundum veidd-
ist mest af þorski eða 19.338.6
tonn (27.562), ýsu 6.028 tonn
(9.072), ufsa 2.010.2 tonn (6.808.
4), löngu 1.288.4 tonn (1.836.8)
og karfa 1.320..7 tonn (1.968,4).
Aflinn skiptist þannig eftir
verkunaraðferðum, a<5 af þorsk-
aflanum fóru 14.779 tonn í fryst
ingu (20.729.1) og 6.054 tonn í
söltun (13.619.2). Til herzlu fóru
2.849.1 tonn (4.940.6 tonn). Til
niðursuðu 1500 tOnn (16.720),
til mjölvinnslu 295,9 (297.7)
og til innlendrar neyzlu 1.654.3
tonn (2.078.7). Af síldar og loðnu
afla fóru 1.451.8 tonn í söltun
(3.137), til frystingar 2.849.9 tonn
(10.660.8) til niðursuðu 14.8
tonn og til mjölinnslu 75.965.9
tonn (65.155.8).
Moskvu, 7. júní — NTB —
1 DAG hófst í Ulan Bator,
höfuðborg Mongólíu, 15. flokks-
þing kommúnistaflkks landsins.
Mongólía er eitt dyggasta fylgi-
land Sovétríkj anna í deilunni
við Kínverja.
750 fulltrúar sitja þingið og
auk þess fulltrúar frá kommún-
istaflökkum í 39 löndum, að því
er fréttastofan Tass skýrir frá.
i\lý í stað þearrar
er eyðilagðist
í FYRRAKVÖLD um 11 leytið
lenti flugvélin SIF á vegum
Landgræðslu ríkisins á flugvell-
inum í Reykjavík. Vélin kom frá
New York og hafði um borð
nýja áburðar- og grassáninga-
flugvél fyrir Landgræðslu ríkis-
ins. Flugstjóri á SIF var Þor-
steinn Jónsson. Hin nýja vél
Landgræðslunnar er Piper-Pony
vél og kemur beint úr verksmiðj
unni. Vélin kemur í stað áburð
arvélarinnar, sem eyðilagðist I
maí sl. Þetta er þriðja vélin, sem
Landgræðsla ríkisins hefur til
áburðardreifingar frá því að
byrjað var að dreifa áburði úr
lofti árið 1958.
Páll Sveinsson landgyæðslu-
stjóri tjáði Mbl. í gær að vél
þessi væri mjög fullkomin á-
burðarvél og rúmaði meira en
hinar fyrri vélar og veitti þar
að auki meira öryggi. Páll Hall-
dórsson, flugmaður, mun í vik-
unni taka þessa nýju vél í notk-
un og verður fyrst borið á við
Gunnarsholt. í sumar verður
dreift áburði, alls 600 tonn. Enn
fremur gat Páll þess að vélinni
hefði verið valið nafn og heitir
hún „TÚN“ eftir uppástungu
Karls Eiríkssonar. „TÚN“ er
fyrsta áburðarvél landsins, sem
hlýtur íslenzkt nafn.
Óðinn með 60 skóloböin og 30
mnnnn bói í skemmtiiöi
um Vestfiiði
ÁKAFLEGA erfitt hefur verið
urn samgöngur á milli fjarða á
Vestfjörðum að undanförnu, eins
og áður hefur komið fram, þar
sem vegir eru þar enn ófærir af
ýmsum orsökum. Það hefur m.a.
bitnað mjög á skólabörnum, sem
hafa viljað fara þangað í skóla-
ferðalög að loknum prófum, og
eins á öðrum skemmtiferðamönn
um.
En menn hafa þó ekki dáið
ráðalausir. Um helgina var leit-
að til Landhelgisgæzlunnar varð
degi gekk á með skúrum
norðan lands og vestan, en
létti til síðdegis og gerði
bezta veður. Var hitinn 14
varð enn hlýrra á sunnudag,
því að þá komst hitinn upp í
21 stig á Akureyri, Staðar-
hóli og á Vopnafirði.
andi það, að hún sæi um að
flytja um 30 skólabörn frá Stykk
ishólmi á Vestfirði í skólaferða
lag. Var varðskipið Óðinn feng-
ið til þess að sjá um þessa flutn
inga. Flutti varðskipið hópinn
fyrst til Patreksfjarðar, en þar
slógust þá með í förina um 30
manna söngflokkur frá Patreks-
firði. Sigldi varðskiþið síðan með
allan hópinn til ísafjarðar.
Þegar þangað kom var varð-
skipið fengið til þess að flytja
annan 30 manna hóp skólabarna
frá Súgandafirði til Skagastrand
ar, þar sem langferðabifreiðir
biðu eftir börnunum. Hafa þvi
varðskipsmenn á Óðni flutt ná
lega 100 manns, sem hafa verið
á skemmtiför um Vestfirði, um
helgina.
Urðu úti
LÍK TVEGGJA brezkra heim-
skautsfara fundust á Stoning-
eyju í Suðurskautslandi í síðustu
viku. Er álitið að ofsalegur heim
skautsstormur hafi orðið þeim
að bana. Vindhraðinn fór í 225
km á klst.
Líkin voru fullklædd, en
hvorki sást tangur né tetur af
útbúnaði þeirra félaga. Er álit-
ið að stormurinn hafi'feykt sleð
um þeirra og tjaldlbúðum út í
buskann. Bretarnir voru 26 og
24 ára gamlir.