Morgunblaðið - 14.06.1966, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 14.06.1966, Blaðsíða 4
4 MORCUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 14. júní 1966 BILALEICAN FERÐ Daggjald kr. 400. Kr. 3,50 per km. SÍMI 34406 SENDUM sfM' 3-fí-GO mwm Volkswagen 1965 og ’66. LITLA bílaleigan Ingólfsstræti 11. Volkswagen 1200 og 1300. [rf. ðM RAUDARÁRSTÍG 31 SÍMI 22 0 22 . bifreiðXleigan SIMI 33924 BIFREIBALEIG/VK VEGFERD Grettisgötu 10. Sími 14113. IVIAGIMUSAR SKIPHOLTI21 5ÍMAR 21190 eftir lokun simi 40381 Fjölvirkar skurðgröfur I l - v mm ÁVALT TIL REIÐU. Sími: 40450 PILTAR EF ÞlÐ EIGIP UNHUSTtlNA ÞÁ Á ÉC HRINOANA / 'fáartMdamimsofi /tojtafrar/ éf \ ‘ J BOSCH Þurrkumótorar 24 volt 12 volt 6 volt / Brœðurnir Ormsson Lágmúla 9. — Sími 38820. Leikvellir og börn Velferð barnanna er ætíð umræðuefni fólks. — Fyrir skömmu fékk ég bréf frá íbúa í gamla bænum, sem gerir að umtalsefni í alllöngu bréfi leik- vallarmálin. Hann telur að í hinum nýju hverfum sé þess ekki nógu vel gætt að hafa leik vellina nógu stóra, svo þeir geti rúmað hina ýmsu leiki barna á mismunandi aldursstígi. Nú er mest megnis miðað við leik barna innan við 5 ára aldur. Aðaluppistaðan í leiktækjum eru sandkassar og rólur, renni- brautir og klifurgrindur, — sem eru við hæfi litlu barn- anna. Bréfritari segir: !>að sem vantar, a.m.k. í gamla bænum, fyrir drengina, eru sparkvellir. Þeim er umsvifa- laust vikið út af leikvöllum, því þeir rúmi ekki fótbolta innan um ungbörn. Ég er hér í gamla Austur- bænum, og ég vil enda bréf mitt, segir bréfritari, á þvi að benda á sparkvöll fyrir dreng- ina austan Listasafns Einars Jónssonar, þar sem eitt sinn átti að rísa Kjarvalshús. Börn- in hafa það á tilfinningunni að þau megi hvergi vera og slíkt hugarfar gagnvart borgaryfir- völdum er skaðlegt. ★ Þjóðhátíð Nú förum við senn að heyra um dagskrá þjóðhátíðar- innar. Sannleikurinn er sá, að á undanförnum árum hefur ekki orðið nein ýkjamikil breyting á dagskránni. Sá háttur hefur verið hafður á, að borgarráð kýs nefnd manna til þess að stjórna þessari hátíð. Hefur nefndin að því er virð- ist, þá hverju sinni stuðst við dagskrá sem var árið á undan. Þetta útheimtir ekki mikil heilabrot fyrir nefndarmenn, það er líka öllum Ijóst fyrir lðngu. En nú vildi ég hreyfa því, ekki í sambandi við þá þjóðhá- tíð, sem fyrir höndum er að halda, heldur þá sem verður 1967: Hvernig væri að fela þeim sem skemmtikraftaskrif- stofur starfrækja að sjá um þjóðhátíðina 1967, svona til reynslu. Það heyrist oft sagt á þjóðhátíðadaginn: Dagurinn er orðinn pylsu- og blöðrudagur þjóðarinnar, — sennilega með nokkrum rétti. Það er þó hreint ekki hugmyndin. •+T Merking strætis- vagna Bréf frá íbúa í úthverfi, um strætisvagnana og merk- ingu þeirra: „Ég er þakklátur bréfritara, sem stakk niður penna sínum tii þín um daginn, um að setja stærri númer á strætisvagnana. Þar benti hann á mjög að- kallandi bót á þjónustu strætis- vagnanna. — Ég myndi telja að stafirnir þyrftu að vera um eitt til tvö fet á hæð. Með því að hafa vagnana merkta á þennan hátt, eins og bréfritari minnist á, má benda á þessi atriði: Ef maður kemur á við- komustað í þann miind og vagninn er að renna af stað, þá þarf maður ekki að hlaupa fram með honum og „taka af honum“ númerið. — Fari svo að maður sjái á eftir vagni, þá getur maður strax áttað sig á því hvort var það minn vagn sem var að fara eða einhver annar? Fleiri dæmi um það mikla hagræði, serrí af þessu væri, mætti telja. Ég vænti þess að forstjóri strætisvagnanna, taki málið upp í sumar, og að þetta verði komið í lag með haustinu. Strætisvagna-f arþegi“. ■Jt Viðeyjarkirkja Þá barst Velvakanda hraðbréf frá gömlum Reykvík- ingi, þar sem hann gerir að umtalsefni Viðeyjarstofuna og kirkju, og myndatexta með mynd af henni í sunnudags- blaði Mbl. Ég er einn af þeim sem les allt sem ég sé í blöðunum um Viðeyjarstofuna, og hið hörmu- lega ástand hennar. Það er ekki rétt hjá blaðamanninum, að segja að Viðeyjarkirkja sé nú í sömu niðurníðslu og stof- an. Biskup landsins, sem tekið hefur kirkjuna undir sinn verndarvæng, hefur látið lag- færa hana og mála. Segja má að hún sé nú til eins mikils sóma þar, eins og Viðeyjar- stofan er til lítils sóma. Hafi biskup þakkir fyrir. En úr því ég er farinn að tala um Viðeyjarstofuna, lang- ar mig að segja þetta: Mig minnir það hafi verið klúbbfélagar í Kivanisklúbb hér í borginni, sem í fyrra gerðu strandhögg í Engey og máluðu þar öll hús á einum degi. Ég skora á Kivanismenn að gera nú strandhögg í Viðey, vopnaða málningarrúllum og málningu, og gera þar „sams- konar hervirki" og í Engey, sem allir eru þeim þakklátir fyrir. — Að vísu er mér kunn- ugt um að Viðeyjarstofan er í einkaeign og það geti verið vafasamt lögfræðilega séð, að siga hóp manna á eignir ann- arra, en niðurníðsla Viðeyjar- stofu er slík þjóðarskömm, að ekki verður við svo búið unað, og slík framtakssemi Kivanis- manna því réttlætanleg. — Gangið á land í Viðey Kivanis- menn! Gamall Reykvikingur“. 'Á' Gönguferðir og heilsan Það var vissulega fróð- legt að heyra í fréttaauka út- varpsins fyrir nokkrum kvöld- um frá Ameríku-fréttaritara þess um heilsufarið. Ég hjó þar eftir því, að hinir banda- risku sérfræðingar höfðu sagt, ao það sé þreyttum fulltíða manni hollara að hvíla sig á því'að fá sér hæfilega göngu- för, en að fyllast vorkunsemi yfir sjálfum sér og fleygja sér á legubekk og sofna. Undir þessi orð tekur vinur minn sem mikið gengur. Hann var búinn. að segja mér það áður en ég heyrði fréttaaukann, að hans bezta hvíld eftir langan vinnu- dag sé að ganga á stokknum inn í Sogamýri (hitaveitu- stokknum) eða vestur í Sels- vör og vestur með sjó út á Sel- tjarnarnes. En hann segir, að það sé viðburður að hann mæti manni á þessum gönguferðum. Það ætti einhver snjall ná- ungi eða félagsskapur að taka sig til og gera kort yfir göngu- leiðir í og við Reykjavík, —■ fyrir þá sem hafa áhuga á að stunda þessa hollu íþrótt, sem virðist að dómi sérfræðinga, vera undirstaða góðrar heilsu mannfólksins. — Hver veit nema að til væru samtök, sem myndu vilja leggja fram fé i þessu skyni. Geirskurðarhriífar Nýkomin DR0NNINGH0LM ávaxtasulta — sem er sultud ÁN SUÐU og heldur því nœringargildi sínu og bragði ÓSKERTU — sem er aðeins framleidd úr ALBEZTU ÁVÖXTUM á réttu þroskastigi — sem er seld í afar fall- egum umbúðum, og má þvi setja hana BEINT Á BORÐIÐ — sem húsmóðirin ber Á BORÐ, ef hún vill vanda sig verulega við borðhaldið fáein stykki. JLaugavegi 15. Sími 1-33-33. 8 TEG. JARÐARBERJASULTA SULTUÐ JARÐARBER HINDBERJA — — SÓLBER APPELSÍNU — — TÝTUBER APRÍKÓSU — — KIRSUBER DRONNINGHOLM ER LÚXUSSULTA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.