Morgunblaðið - 14.06.1966, Page 10

Morgunblaðið - 14.06.1966, Page 10
10 MORGUNBLADIÐ ÞriSjudagur 14. júní 1966 Fjölbreytt starfsemi Upp- lýsingaþjónustu Bandaríkj- anna á Islandi Rætt við Orton H. Hicks, nýjan blaðafulltrúa USIS ORTON H. Hicks, jr., nefnist nýr blaðafulltrúi hjú Upplýs- ingaþjónustu Bandaríkjanna (USIS) í Reykjavík. Hann kemur hingað frá Þýzkalandi, þar sem hann hefur veitt svo- kölluðu „America House“ í Köln forstöðu síðastliðin sex ár, en næstu þrjú ár á undan, 1957—1960, starfaði hann við Upplýsingaþjónustu Banda- ríkjanna í Noregi. v Orton H. Hicks, sem er 39 ára gamall, er ættaður frá New York-ríki. Að háskólaprófum loknum starfaði hann fyrst að markaðsrannsóknum, en síðan við rannsóknir í landafræði o.fl. við Dartmouth College. Á árun- um 1954—1956 var hann einn af framkvæmdastjórnum fyrirtækis ins „Encyclopaedia Britannica Films“ og sá um dreifingu kvik mynda fyrirtækisins erlendis. Síðan 1957 hefur hann starfað hjá Upplýsingaþjónustu Banda- ríkjanna. Hann nam við Kaup- mannahafnarhátkóla veturinn 1951—1952 og hefur skrifað tals- vert um norræn málefni, eink- um efnahagsmál. Þá hefur hann ritað um þýzka minnihlutann í Norður-Slesvík. Mr. Hicks tal- ar dönsku, norsku og iþýzku, auk móðurmá:ls sins. Hann er kvænt ur og á þrjú börn. * ★ i Blaðamaður Mbl. hitti Mr. Hicks sem snöggvast að máli fyrir nokkru o gspurði hann m. a. um starf hans í Köln. — Svonefnd „American House“ eru starfrækt í 10—20 .helztu borgum Vestur-Þýzka- lands. Þau eru miðstöðvar Upp lýsingaþjónustu Bandaríkjanna á hverjum stað. í Köln var t.d. bókasafn, þar eru sýndar og leigðar kvikmyndir, haldnar list sýningar og aðrar sýningar, þar er ljósmyndasafn, lestrarher- bergi með bókum, blöðum og tímaritum o.s.frv. Stofnunin sér einnig um nemendaskipti milli landanna, veitir hvers konar upp lýsingar um Bandaríkin, og í stuttu máli sagt er starfsemin þar með svipuðu sniði og hjá okkur hér. Stofnun upplýsinga þjónustunnar hér er e.k. „Ame- rican House“. Slíkar stofnanir eru til í Kaupmannahöfn og Osló, og auk þess er bóka- og kvikmyndasafn norður í Tromsö, eins og slíkt safn er hér norður á Akureyri. — Mér líkaði vel að búa I Noregi. Þar hafði ég tekið þátt í skemmtilegri tilraun árið 1950, sem er liður í svokölluðu „Exp- eriment for International Liv- ing“ gera tilraun með allþjóðlegt sambýli. Við vörum tíu Banda- ríkjamenn, sem tókum þátt í þessari tilraun í Noregi. Fjóra mánuði bjuggum við á heimil- um á víð og dreif í Buskeruds- fylki, ýmist í litlum þorpum eða á sveitabæjum. — Hvernig er svo starfi upp- lýsingaþjónustunnar hagað hér á íslandi? — Það er með svipuðu sniði og í öðrum löndum og mjög margvíslegt. Yfirmaður hennar hér er Don R. Torrey. Fyrst og frémst eigum við að kynna land okkar og þjóð, menningu okkar og þjóðlíf. í öðru lagi eigum við að geta veitt öllum, sem þess Orton H. Hicks. óska, hvers konar upplýsingar um Bandaríkin, og nota sér það margir, bæði einstaklingar, fé- lög og menntastofnanir. Ef við teljum upp ýmsa af einstökum liðum starfseminnar, er sjálfsagt að byrja á bókasafninu, sem er til húsa í Bændahölilnni á Mel- unum, eins og allt starf okkar. Þar er bæði lestrarsalur og út- lán. í safninu eru nú um 6.700 bækur og 900 hljómplötur, en auk þess eru þar blöð og tíma- rit, nó,tur og segulbandsspólur með hljómlist og upplestri. Safn- ið veitir einnig ýmiss konar þjón ustu, útvegar alls konar heimilis föng vetra, ákveðnar bækur o.s.frv. Daglega koma 70—80 manns í safnið. Safnið er vel notað, a.m.k. miðað við Osló. Þá lánum við kvikmyndir, og geta þeir, sem vilja, fengið fjöl- breytta kvikmyndaskrá. Upplýs- ingaþjónustan gengst fyrir hljóm leikum, sýningum alls konar, ekki sízt á verkum listamanna, og fyrirlestrum. í sambandi við þá langar mig til að geta þess, að ég hefði hug á að flytja fyrir- lestra norður í Lapplandi, þegar anda, en ég hélt marga fyrir- lestra norður í Lapplandi, þegar ég var í Noregi, svo sem um sögu, landafræði og Abraham Lincoln. Fyrir nokkrum dögum hélt Don R. Torrey fyrirlestur um Bandaríkin fyrir fólk, sem fer bráðlega til náms vestra, svo sem á vegum American Field Service (AFS), kirkjulegrar starf semi, eða á eigin spýtur. 15. júni n.k. flyt ég erindi fyrir sama fólk um menntun og skóla i Bandaríkjunum, skólamenn og aðra, sér um fréttasendingar til bíaða og útvarps hér, t.d. í sam- bandi við lendinguna á tunglinu um daginn, og gengst fyrir menn ingarkvöldum. Síðustu fjóra mán uðina höfum við haldið margar slíkar „kvöldvökur“. Nefna má kynningu af hljómplötum, þar sem ljóðskáld, leikritahöfundar og skáldsagnahöfundar lásu úr evrkum sínum, kynningu Ralph L. Curry á bandarískri kímni, fyrirlestur um þróun borga (með litskuggamyndum), kynningu á geimrannsóknum, fyrirlestur, sem Frank R. Ponzi hélt um nú- tímalist í Bandaríkjunum, hljóm listarkvöld og fyrirlestur, sem Teal prófessor frá Alaska hélt um sauðnaut (með kvikmynd). — Tónlistarstarfsemin hefur ver- ið umfangsmikil, t.d. voru sex hljómleikar heldnir á vegum okk ar í maímánuði. Við erum ánægð ir með menningarstarfsemi upp- lýsingaþjónustunnar, þar sem greinilega hefur komið í Ijós, að íslendingar kunna að meta hana. — Hvernig varð yður við, þeg- ar þér voruð beðinn um að fara til íslands? —Mér þótti það ágætt, en hins vegar var mér ekki sagt frá því, fyrr en mánuði áður en ég kom, svo að stuttur tími var til stefnu til að kynna sér máiefni lands Og þjóðar. Allars vissi ég töluvert um ísland vegna dvalar minnar náms og starfs í Danmörku og Noregi. Margir Bandaríkjamenn vita eitthvað um Ísland og gera sér, eins og fleiri útlendingar, slæmar hugmyndir um loftslagið vegna nafnsins, sem er vægas-t sagt fremur kuldalegt. Ég hafði hin vegar heyrt einhvern tíma, að nöfnin á Grænlandi og ís- landi hlyti að hafa víxlazt í forn öld. Mér hafði einnig verið sagt, að nafngift Eiríks rauða á Græn landi væri „The Greatest Real Estate Fraud in History“. — Eruð þér nokkuð farinn að ferðcist um landið? — AUtof lítið enn, enda höfum við verið að koma okkur fyrir, og vegirnir út úr bænum hafa ekki 'beinlínis verið freistandi, en við hjónin erum ákveðin í að ferðast um landið, um leið og vegirnir batna í vor Og sumar. Annars iðkum við bæði fjal'l- göngur, eins og margir Banda- ríkjamenn, sem dveljast á ís- landi. Kona mín var t.d. ekki bú- in að vera fulla fimm daga hér, þegar hún hafði gengið á Esju. Dóttir okkar, sem er níu ára gömul, var með í fjallgöngunni, og þegar niður kom, uppgötvaði hún að hún hefði gleymt tann- spöng uppi á fjallinu. Valdimar Johnson, Vestur-íslendingurinn í bandariska sendiráðinu hér, brá skjótt við og skundaði einn upp á Esju aftur, og ekki leið á löngu unz hann var kominn aftur niður með spöngina. Við höfum klihð fjöll hér í nágrenninu um hverja helgi, og um hvítasunnuna fór- um við til Þingvalla og lentum í rammíslenzkum snjóbyl á Ár- mannsfelli. Mbl. býður Orton H. Hicks og fjölskyldu hans velkomna til ís- lands og óskar honum velfarn- aðar í starfi hans hér. IMorðurlönd munu hafa nána samvinnu á þingi UIMESCO DAGANA 10. og 11. júní sl var haldinn fundur UNESCO- nefnda allra Norðurlandanna hér í Reykjavík og sóttu hann for- menn nefndanna ásamt nokkr- um fleiri fultrúum frá herju landi um sig. Dr Gýlfi Þ. Gísla- son menntamálaráðherra var í forsæti fundarins. Aðalviðfangsefni fundarins var að athuga og ræða um þá tillögu til starfs- og fjárhagsá- ætlunar fyrir árið 1967-’68, sem aðalframkvæmdastjóri UNSSCO hefur lagt fram, og að marka sameiginlega afstöðu Norður- landanna til hennar. Fjárhags- áætlun sú, sem hér um ræðir gerir ráð fyrir því, að Mennta- og vísindastofnun Sameinuðu þjóðanna hafi samtals 63 millj- ónir dollara til umráða fyrir starfsemi sína árið 1967 og 1963 og er þá um að ræða aukningu, er nemi hér um bil 30% miðað við þá starfs- og fjárhagsáætl- un, sem stofnunin hefur unnið eftir árin 1965 og ‘66. Fundurinn áleit, að UNESCO skipi nú svo mikilvægan sess, og hafi svo áríðandi erkefniun að gegna á sviði alþjóðlegrar samvinnu, að slík aukning sé réttlætanleg svo fremi að stofn- unin hafi yfir nægilegri starfs- getu að ráða til að koma slíkri áætlun í framkvæmd. Að einstökum þáttum þeirrar starfsáætlunar, sem fundurinn fjallaði um, má baráttan gegn ólæsi í heiminum tvímælalaust teljast þýðingarmestur. í þessu sambandi hefur UNESCO gert starfsáætlun, sem nær til ársins 1970 og leit fundurinn einróma svo á að hana bæri að styðja. Annar mikilvægur þáttur, sem tekinn hefur verið upp í starfs- áætlun UNESCO, að frumkvæði Norðurlandanna er kennsla barna, sem eiga við einhvers kon ar andlega eða líkamlega van- heilsu að búa. Allt frá því að Mennta- og vísindastofnun Sameinuðu þjóð- anna var stofnuð hafa Norður- lönd átt fulltrúa í stjórn stofn- unarinnar. Fyrst átti Noregur þar sæti, þá Danmörk og síðan Svíþjóð. Fundurinn samþykkti einróma að styðja framboð full- trúa Finnlands við næsta stjórn arkjör, sem fer fram á UNESCO þingi, sem haldið verður í París í nóvembermánuði n.k. Á þingi UNESCO í haust munu Norður- löndin hafa með sér nána sam- vinnu um þau mál, sem þar koma til umræðu og afgreiðslu. A T H U G I Ð Þegar miðað er við útbreiðslu, ei langtum ódýrara að auglýsa í Morgunblaðinu en öðrum blöðum. Dr Finnbogi Guðmundsson og dr Harald L. Teterás í Lands- ------------—bókasafninu í gær. Samkeppnin er frændþjóð- unum holl Spjallað við dr. Harald Tveferás yfirbókavörð frá Osló BLABAMABOR Mbl. hitti í gær dr. Harald L. Tveterás yfir- bókavörð Háskólabókasafnsins í Osló sem snöggast að máli á skrifstofu landsbókavarðar. Tveterás hefur sem kunnugt er setið hér norræna UNESCO- fund, er lauk á laugardaginn, en langaði áður en hann færi heim að líta inn á Landsbóka- safnið. Háskólabókasafnið í Oslo gegn ir margs konar hlutverki, er í senn landsbókasafn Noregs, bókasafn Oslóarháskóla og vís- indabókasafn fyrir allt landið, ef því er að skipta. í aðalsafn- inu eru um 1.6 milljónir binda, en sé bókakóstur ýmissa stofn- anna, sem £ tengslum eru við það talinn með, ræður það yfir 2.2 milljónum binda. Dr. Tveterás taldi, að menn hefðu í Noregi snemma skilið þörf og gildi vísinda og vísinda- iðkana og reynt að hlynna að þeim, en listamenn og iðkun skapandi lista hefðu lengi átt erfiðara updráttar. Skáldin hefðu fyrrum mátt svelta, en síð an verið stofnuð prófessorem- bætti handa sérfræðingum í verkum þessara sömu skálda. Hann kvaðst lengi hafa barizt fyrir því í Noregi að styrkja aðstöðu skapandi listamanna og kom þeim á framfæri við þá, er njóta ættu verka þeirra og sagðist hann hafa heyrt, að ís- lendingar hefðu gert tilraun í þessa átt og væri það vel. Hann sagði ennfremur, að Norðmenn hugsuðu mikið um það, hvað mætti helzt og bezt verða til varnar norskri menn- ingu. Verja þyrfti t.d. málið fyrir sterkum utanaðkomandi áhrifum og þótt Norðmenn deildu um sitt eigið mál inn- byrðis fyndu þeir, að þeir yrðu að snúa bökum saman í þessarr sameiginlegu baráttu. Hann fagnaði því, að Islend- ingar hefðu nú gengið í UNES- CO. Þátttaka þeirra styrkti enn aðstöðu Norðurandaþjóðanna í þeim voldugu samtökum og yrði að efla samvinnu þeirra innbyrðis. Samvinna væri holl en samkeppnin engu síður Frændþjóðirnar á Norðurlönd- um þyrftu að keppa sín á miLli í sem allra flestum greinum. Dr. Teterás kað það lengi hafa erið draum sinn að koma til íslands og nú hefði hann rætzt. Sér hefði verið mikiL ánægja að flytja í boði Háskóla íslands fyrirlestur um Björnsson og Norðurlönd. Hann taldi starf UNESCO-fundarins hafa gengið að óskum og rómaði mjög allar viðtökur íslendinga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.