Morgunblaðið - 05.07.1966, Síða 5
Þriðjudagur 5. Jölí 1968
MORGUNBLAÐIÐ
5
Pálína Jónmundsdóttir, fegurðardrottning Lsands 1964 óskar
Kolbrúnu til hamingju eftir krýninguna.
SEINN'I hluti fegurðarsam-
keppninnar fór fram í Lídó
s.l. laugardagskvöld. Kepptu
þá stúlkurnar fimm til úr-
slita um titilinn fegurðar-
drottning íslands 1966, og
varð hlutskörpust Kolbrún
Einansdóttir, 17 ára. Önnur í
röðinni varð Guðfinna Jóns-
dóttir, sem einnig er 17 ára
og hlaut hún titilinn „ungfrú
Reykjavík" 1966. Þriðja varð
Erla Traustadóttir, 22 ára,
söngkona á Hótel Loftleiðum,
fjórða Svanhvít Árnadóttir,
19 ára og fimmta Auður Harð
ardóttir, 22 ára.
á ísafirði og Reykjavík. Por-
eldrar mínir eru Guðríður
Guðmundsdóttir og Einar
Gunnar Einarsson, fulltrúi
bæjarfógeta á ísafirði".
„Hver eru helztu áhuga-
mál þín?“
„Áhugamál mín beinast
fyrst og fremst að teikningu.
Innan skamms fer ég til Eng-
lands, þar sem ég ætla að
leggja stund á auglýsingateikn
ingu sem mig langar til að
gera að framtíðarstarfi ef
alilt gengur vel, sem ég vona
að verði“.
„Hefurðu lagt stund á
það. En maður leggur ekki
út í þetta nema búast við því
ólíklegasta. Við höfum verið
svo heppnar að vera undir
handleiðslu Sigríðar Gunnars
dóttur nokkurn tíma fyrir
keppnina, og það hefur hjálp-
að okkur mjög mikið.
Ég er auðvitað mjög ánægð
með úrslitin, og ég sé sannar-
lega ekki eftir að hafa tekið
þátt í þessu. Það getur verið
lærdómsríkt og þroskandi í
senn. En ég hef heyrt að það
geti farið illa með sumar stúlk
ur. En það er auðvitað undir
persónunni sjálfri komið“.
Að sögn frú Sigríðar Gunn-
arsdóttur, stjórnanda keppn-
innar munu allar stúlkurnar
fara utan til keppni. Annars
eru báðar stúlkurnar í efstu
sætunum undir lágmarks-
aldri, þannig að ekki er nein
vissa fyrir hvort nokkur fer
Kolbrún Einarsdóttir, fegurðardrottning íslands 1966.
á Langasand í ár. Hinsvegar
kemur mjög til greina að
„Ungfrú ísland“ keppi um
titilinn „Miss World“ í Lond-
on í sumar. Sigriður annaðist
þjálfun stúlknanna fyrir
keppnina, og sagði að þeim
hefði farið mikið fram þennan
stutta tima, og verið áhuga-
samar um að laga allt, sem
laga þurfti í fari þeirra.
Mjög margt fólk lagði leið
sína í Lídó þetta kvöld til
þess að fylgjast með úrslit-
unum, og var stúlkunum vel
fagnað, þegar þær birtust,
fyrst í kjólum síðan í sund-
bolum, og fagnaðarlætin náðu
hámarki, þegar úrslitin voru
tilkynnt og stúlkumar gengu
með bros á vör fram salinn.
Kynnir keppninnar var Ólaf-
ur Gaukur, og átti hann og
hljómsveit hans stóran þátt í
að gera keppnina sem
skemmtilegasta.
Stúlkurnar fimm, eftir að úrslitin voru tilkynnt.
ÚR
ÖLLUM
ÁTTUM
Fór krýningin fram með
viðhöfn kl. 12 á miðnætti og
framkvæmdi hana fegurðar-
drottning íslands 1964, Pálína
Jónmundsdóttir. Állar fengu
stúlkurnar blómvendi og við-
urkenningarskjal fyrir þátt-
töku sína í keppninni.
Hyggst Ieggja stund á aug-
lýsingateikningu.
Eftir krýninguna fengum
við að ræða stutta stimd við
hina nýkjörnu fegurðardrottn
ingu, og spurðum hana fyrst
hvaðan hún væri og hverjir
væru foreldrar hennar.
„Ég er fædd 24. júní 1949
í Reykjavík og alin upp bæði
teikningu hér heima?“
„Já, ég hef verið í Handíða-
og myndlistarskólanum í vet-
ur“.
„Hefurðu ekki áhuga á
leiklist , eins og títt er um
f egurðar drottningar ? “
„Nei, alls engan“.
„Ef þér yrði boðið hlutverk
í kvikmynd, myndirðu hafna
því?“
„Já, tvímælalaust. Áhuginn
beinist fyrst og fremst að
auglýsingateikningu, og ég
vona að ekkert komi í veg
fyrir að ég geti lært hana“.
„Að lokum Kolbrún, komu
úrslitin þér ekki á óvart?“
„Jú, vissulega gerðu þau
j Dökká brún og brá
: Kolbfún Einarsdóttir kjörin fegurðardrottning íslands 1966
K.R.R.
KINIATTSPYRIMUKAPPLEIKURIININ
K.S.I.
REYKJAVIK
F.B.U
(Reykjavíkurúrval) (Fyns Boldspil-Unions)
fer fram á Laugardalsvellinum miðvikudaginn 6. júlí kl. 8,30 e.h.
Dómari: CARL BERGMANN.
Verð aðgöngumiða:
x /Y/f Forsala aðgöngumiða við Útvegsbankann. Stúka kr. 100,00 Stæði kr. 75,00 Börn kr. 25,00
Kaupið miða tímanlega.
Knattspyrnuráð Reykjavíkur.