Morgunblaðið - 05.07.1966, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 05.07.1966, Blaðsíða 17
Þriðjudagur 5. júlí 195B MORGU NBLAÐIO 17 Megrunarnudd Höfum opnað aftur. Erum með megr- unar- og afslöppunarnudd, hjólhitakassa, ljós og ýmiskonar nuddtæki. Helena Rubinstein vörur nýkomnar í miklu úrvali HYGEA! Austurstræti 16 (Reykjavikur apóteki). Sími 19866. Nuddstofan Laugavegi 13. — Sími 14656. Finnbogi J. Arndnl Minningnrorð Fæddur 30. ágúst 1877. Dáinn 38. júní 1966. ÞAÐ var margt sem Finnboga J. Arndal var gefið fram yfir aðra menn og þó held ég að það sem ihann hafi þakkað guði mest, var að hann skyldi ávallt geta fylgzt með, þrátt fyrir háan aldur Allt , frá fyrstu persónulegum kynnum mínum af Finnboga hef- ur hann ávaiit sýnt óbilandi áhuga á öllum íþróttum og fé- lagsmótum Fimleikafélags Hafn- arfjarðar og þá sérstaklega hand- knattleiknum. Aldrei þreyttist hann á að hlusta á og spyrja um drengina og félagsstarfið. Það voru hans mestu gleðistundir síðari árin, er hann bjó á Sól- vangi. að hann skyldi hafa tæki- færi þaðan, áð horfa á hafnfirzka íþróttamenn að æfingu eða leik, þar sem Hörðuvellir blöstu við honum frá Sólvangi. Það var líka ein af mörgum tilviljunum þessa lífs að svo skyldi hittast á, að hann eyddi síðustu útiverustundum sínum einmitt við að horfa á hafn- firzka íþróttamenn að leik. Það var á síðastliðnum 17. júní að ég sá Finnboga gamla, þar sem hann sat í bíl á Tjarnarbraut- inni við Hörðuvelli. Talið barst fljótlega að Kristjönu, dóttur hans, ásamt eiginmanni og 'barnabörnum, sem von var á innan tíðar frá ísrael eftir langa útivist og var það greinilegt að mikil eftirvænting bjó í Finn- boga, að fá að sjá þau öll aftur, þó að örlögin höguðu því svo til að ekki gat orðið úr því. En ég minnist enniþá síðustu orða hans áður en við kvödd- ums't, en þá spurði hann mig al'lt í einu: „Veiztu eftir hverju ég er að bíða“? og heldur síðan áfram án þess að bíða svars ,,Ég er að bíða eftir að sjá drengina leika handknattleik. Heldur þú að ég sjái nokkuð héðan“? Mér finnst þessi orð lýsa betur en nokkuð annað þeim mikla i áhuga sem í honum bjó og er eftirsjá fyrir íþróttalífið í hverj- um slíkum manni. Þegar F.H. varð 25 ára var ég einn af þeim er fór fram á það við Finnboga að við fengjum að notfæra okkur áhuga hans og skáldskapargáfu og báðum hann um að semja kvæði, tileinkað F.H. Kvæði þetta hefur og mun ávallt fylgja F.H. bæði utan- lands og innan og var það dæmi- gert fyrir Finnboga að lagið sem hann samdi við, var ,Táp og fjör og frískir menn“. Einnig sendi hann okkur kvæði á þrítugsafmæli félagsins og man ég það að síðast í haust, er Finn- bogi var 88 ára gamall, sendi hann sigurkvæði til mfl. í F.H. Þessi fáu orð eru lítil kveðja til þess manns, sem ég og félag- ar í F.H. eigum svo margt að þakka, en finnst lítið hafa getað gert á móti. Og um leið og við sendum að- standendum hans okkar innileg- ustu samúðarkveðjur, leyfi ég mér að enda þessar kvéðjur með ljóðlínu úr kvæði Finnboga til F.H. Minnast skulum margs í dag margs er var með gleðibrag. K.M. Ræstingakona óskast til ræstinga á skrifstofum í Skerjafirði. — Upplýsingar í síma 11425. 'Clíufélagið Skel,'ungur hf. 8ö Telpna sundbolír Verð frá kr. 298,00. dömu sundboiir Verð frá kr. 482,00. tBddy Laugavegi 31. — Sími 12815. Aðalstræti 9. — Sími 18860. VERZIUNARSIARF Viljum ráða ungan og áhugasaman sölumann í skóbúð. Starfsmannahald SIS STARFSMANNAHALD F" U '• H "’'U FRAMBYG6ÐIR MEÐ FULLKOMNU VELTIHÚSI Fóanlegir fyrir burðarmagn á grmd fra 1 til 9 smólestir - 3 gerðir dieselvéla fjögurra og sex strokka - Vökvastýri - Vélhemill - Einfalt eða tvöfalt drif - Fjögurra eða fimm gíra gírkassar - Tvöfalt vökva-lofthemlakerfi. Komið og kynnist fullkomnum vörubíium á hagstœðu verði. KR.KR ST ANSSON H. SUDURLANDSBRAUT 2 • SIMI 3 53 00 IVIatráðskona óskast við mötuneyti félagsins í Skerjafirði. — Upplýsingar í síma 11425. Olíofélagið Skeljongor h.f. /

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.