Morgunblaðið - 05.07.1966, Blaðsíða 27
Þriðjudagur 5 júlí t96ð
MORGUNBLAÐ'D
27
„Gestaleikhúsið“. Sitjandi frá v.: Bríet Héðinsdóttir, Helga Val týsdóttir, Una Collins, Kristín
Anna Þórarinsdóttir og Sigríður Þorvaldsdóttir. Karlmenn talið frá v.: Kevin Palmer leiikstjóri,
Arnar Jónsson, Bjarni Steingrímsson, Karl Guðmundsson ogMatthías Karelsson. (Ljósm. Mbl.
Ól. K. Mag.).
Gestaleikhúsiö sýnir
„Bunbury" úti á landi
Á föstudag n.k. leggja leik-
listarmenn úr Iðnó og Þjóðieik-
húsinu af stað í ferðalag viða
um land og hyggjast sýna gam-
anleik Oscar’s Wilde „Bun-
bury“, sem einnig er nefndur
„The Importance of being Ern-
est“. Ferðaleikflokk sinn nefna
leiklistarmennirnir „Gestaleik-
hús“, og er það nýstofnað.
Leikstjóri „Bunbury“ er Kev-
in Palmer, sá hinn sami og svið-
setti leikrit Þjóðleikhússins „Oh,
what a lovely war“. Honum til
aðstoðar er Una Collins, sem
teiknaði leiktjöld og búninga
við fyrrgreint leikrit, en hún
hefur einnig teiknað kvenbún-
inga og leikmynidir við „Bun-
bury“.
A fundi fréttamanna i gær
sagði Arnar Jónsson leikari, að
„Gestaleikhúsinu** væri mikil á-
nægja, að hafa fengið þau Palm-
er og Collins til starfa fyrir það,
en þau hefðu sýnt frábæra hug-
kvæmni og atorkusemi við upp-
setningu „Bunbury“.
Þá lýsti Kevin Palmer leikn-
um í nokkrum orðum. Hann
væri háttvísisgamanleikur, sem
ætti sér stað og tíma á viktorí-
anska tímabilinu í lok 19. aldar.
Kvað Palmer þetta leikrit ein-
stætt snilldarverk í gamanleikja
bókmenntunum. Það nyti, ásamt
öðrum leiðritum Wild’es sívax-
andi vinsælda í Englandi. Sagði
Palmer, að uppistaða leiksins
væri misskilningur milli höfuð-
persónanna; slíkt er oft algengt
í gamanleikjum, en allt endar
hamingjusamlega að lokum.
Leikendur eru átta talsins, og
þar af fer einn, Karl Guðmunds-
son með tvö hlutverk. Aðrir
leikendur eru þessir: Helga Val-
týsdóttir, Kristín Anna Þórar-
insdóttir, Bríet Héðinsdóttir,
Sigríður Þorvaldsdóttir, Arnar
Jónsson, Bjarni Steingrímsson
og Matíhías Karelsson.
Arnar Jónsson, sem örð hafði
fyrir leikurum „Gestaleikhúss-
ins“, sagði að fyrsta sýningin
yrði á Hellissandi 8. júlí n.k. Þá
yrði farið um Vestur-, Norður-
og Austurland og væri sýnt á
hverju kvöldi. Yrði „Gestaleik-
húsið“ á stöðugu ferðalagi fram
í ágústmánuð, en sýnir „Bun-
bury“ í Reykjavík á hausti kom
anda. Óráðið er þó hvar og hve-
nær leikurinn verður sýndur
hér í borginm.
Arnar sagði, að kvartað hefði
verið um hversu léleg leikrit
hefðu verið sýnd af ferðaleik-
flokkum úti á landi fram að
þessu. Úr þessu vildi nú „Gesta-
leikhúsið“ bæta og sýna sígilt
leikhúsverk eftir heimskunnan
snilling leikhúsbókmenntanna.
Þá er þess að geta, að „Herra-
nótt Menntaskólans í Reykjavik
færði „Bunbury" upp á sviði
Iðnó í vetur við mjög góðar
undirtektir áhorfenda.
Hópurinn, sem saínaöist saman á Laufásvegi.
— Viefnam
Framhald af bls. 1
manns bandarísku herstjórnar-
innar í Saigon voru þar geymd-
ar 14000 lestir af olíu. Talsmað-
urinn skýrði einnig frá að
bandarískar sprengjuflugvélar
hefðu gert árás á og eyðilagt eld-
flugastöð 28 km frá Hanoi.
í NTB frétt frá Hong Kong í
dag segir, að Nhan Dhan, hið
opinbera. málgagn N-Vietnam-
stjórnar hafi í gær lýst því yfir
að ekki verði hægt að koma á
friði í Vietnam fyrr en Banda-
ríkjamenn hafi lýst sig sigraða
og flutt hersveitir sínar burt úr
landinu. Blaðið heldur því fram,
að sprengjuárásirnar í síðustu
viku beri -ljósan vott um ein-
lægnina í friðarlali Bandaríkja-
manna.
Kínverska stjórnin mótmælti á
sunnudag sprengjuárásum Banda
ríkjamanna á olíustöðvar við
Hanoi og Haiphong. Segir í mót-
mælayfirlýsingunni, að Kínverj-
ar séu nú reiðubúnir til baráttu,
ef styrjöldin færist út. Banda-
ríkjamenn séu ábyrgir gagnvart
afleiðingunum ,sem þessar árás-
ir kunni að leiða af sér.
Franska ríkisstjórnin gagn-
rýndi á sunnudag sprengjuárás-
ir Bandarikjanna. Var tilkynn-
ing þess efnis gefin út að lokn-
um ríkisstjórnarfundi, sem de
Gaulle forseti stýrði. Segir í til-
kynningunni að franska ríkis-
stjórnin fordæmi þessar sprengja.
árásir, sem hafi það eitt í för
með sér að stríðið dragist enn
meira á langinn.
— Agreiningur
Framhald af bls. 1.
alvarlegir.
Álitið er að aðal umræðuefni
fundarins verði sambúðin milli
Austurs og Vesturs. Ekki er bú-
izt við neinum sérstökum við-
burðum á ráðstefnunni, en að
henni ljúki innan 3—4 daga með
ýmsum sameiginlegum yfirlýs-
ingum fundaaðila.
Cornelíus Manscu utanríkis-
ráðherra Rúmeníu sagði í gær
á fundi með fréttamönnum að
ágreiningnum milli Sovétmanna
og Rúmena mætti líkja við
hjónaerjur, og ekki þyrfti að
búast við æsiiréttum frá ráð-
stefnunnL
4ra herb. íbúð
á 3. hæð við Hraunbæ
Selst tilbúin undir
tréverk. Afhent eftir áramót.
fasteignasalah
HÚS&EIGNIR
BANK AST8ÆTI é
Símar 16637 og 18828.
Vinnuvélar
Eftirtaldar vinnuvélar eru til sölu:
Kranabíll, dráttabíll og vagn. — Gaffallyftari með
skóflu. — Staurabor á bíl og margt fleira.
Sími 34333 og 34033.
Skrifstofustúlka
óskast sem fyrst. — Vélritunarkunnátta nauðsyn-
leg. — Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir 8. þ.m.,
merkt: „Framtíð •— 9553“.
IÐIMSVNIIMGIIM 1966
Þeir þátttakendur í iðnsýningunni 1966,
sem enn hafa ekki skilað gögnum í Iðn-
sýningarskrána (umsögnum og auglýs-
ingum) fá lokafrest til kl. 23.00 í kvöld.
Gögnum sé skilað til Auglýsingastofunn-
ar, Lindarbæ við Lindargötu, sími 1-15-17.
Rröfuspjaldahopur við
bandaríska sendiráðið
UM hádegisbilið í gær safnaðist
lítill hópur manna, flestir þekkt-
ir kommúnistar, fyrir utan
bandaríska sendiráðið við Lauf-
ásveg.
Báru menn kröfuspjöld um að
Bandaríkin viðurkenni upp-
reisnarhreyfingu Víet Cong í
Suður-Víetnam og láti af loftár-
ásum á Norður-Víetnam, en sem
kunnugt er hafa kommúnistar
þar gert innrás í Suður-Víetnam.
Kröfuspjaldahópurinn, sem
taldi milli 40 og 50 manns, stóð
um hríð fyrir utan sendiráðið,
en hélt svo á brott.
1 gær var þjóðhátíðardagur
Bandaríkjamanna og efndu þá
kommúnistar víða um heim til
mótmæla við sendiráð þeirra og
vildu með því lýsa stuðningi við
skoðanabræður sína í Norður-
Víetnam.
Dregið 15. fúli
DRÆTTI í happdrætti Fram
hefur verið frestað um 10 daga,
eða til 15. júlí, þar sem full skil
hafa ekki enn borizt. Vinnings-
númerin munu birtast í dag-
blöðunum þann 16. júlí.
( Frá Fram).
Iðnsyningarskráin
verður prentuð í 15—20 þúsund eintök-
um. Þeir aðilar, sem hafa áhuga á að aug-
lýsa í Iðnsýningarskránni, geta pantað
auglýsingarými í dag og á morgun. — *
Auglýsingarými fyrir aðra en þátttak-
endur í sýningunni er mjög takmarkað.
Auglýsingastofan, Lindarbæ
við Lindargötu, sími 1-15-17.