Morgunblaðið - 05.07.1966, Side 10

Morgunblaðið - 05.07.1966, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 5. júlí 1966 Nær 900 þátttakendur - Færri komust með en vildu LANDSMÁLAFÉLAGIÐ Vörður efndi til glæsilegrar sumarferðar að Skógafossi sl. sunnudag. í ferðinni tóku þátt um 900 manns, en mikill fjöldi fólks, sem þess óskaði, komst ekki með í ferðina vegna þess, að ekki tókst að fá nægilega marga langferða- bfla til ferðarinnar, og var bílalestin þó 25 stórir lang- ferðabílar. Ferðaveður var eins og bezt var á kosið, og var Varðarferðin að þessu sinni eins og jafnan áður þátt- takendum til mikillar ánægju og þeim, sem að undirbúningi stóðu til sóma, en undirbún- ing að ferðinni annaðist sér- stök undirbúningsnefnd, og var Baldur Jónsson, vallar- stjóri, formaður hennar, en aðrir í nefndinni voru Sveinn Björnsson, Valdemar Ólafs- son, Ágúst Hafberg, Halldór Malmberg og Magnús Georgs- son. — Komið að Kambabrún Lagt var af stað frá Austur- velli kl. rúmlega 8 á sunnudags- morgun, ög ekið sem leið liggur að Kambabrún, en þar var stað- næmst nokkra stund. Sveinn GuðmundssOn, formaður Varðar, ávarpaði ferða-menn og skýrði frá tilhögun ferðarinnar. Hann sagði að ferðanefnd Varðar hefði að þessu sinni orðið áþreifanlega vör við vinsældir sumarferðar Varðar þar sem stöðva varð sölu aðgöngumiða í ferðina síðari hluta föstudags, iþar eð bílafjöld- inn nefði verið takmarkaður við 900 þátttakendur. Á Kambabrún tóku á móti ferðalöngum forustumenn Sjálf- stæðisflokksins í Hveragerði, sem unnu glæsilegan sigur í nýaf- stöðnum sveitarstjórnarkosning- um þar og hlutu hreinan meiri- hluta í hreppsnefnd. Ólafur Steinsson, oddviti Hveragerðis flutti nokkur ávarpsorð og lýsti umhverfi Hveragerðis. Þá tók til máls Árni óla, ritstjóri, sem var leiðsögumaður í þessari Varðar- ferð eins og að undanförnu. Lýsti hann staðháttum á leið þeirri, sem farin var og samdi sérstaka ferðalýsingu, sem allir þátttak- endur í' ferðinni fengu afihenta. Árni óla sagði m. a. á Kamiba- brún, að fæstum væri kunnugt um það, að í kaþólskum sið hefði fólk streymt þangað, ekki glað- vært ferðafólk, heldur sjúkling- ar til þess að horfa á Kaldaðar- nes, þar sem kross var. Þeir trúðu því að með því að horfa á þannan kross 3. maí og 14. september mundu þeir fá bót sinna meina. Þá sagði Árni Óla nökkuð frá sögu vegagerðar um Kamba, og lýsti landsiháttuní, Haldið í Rangárþing Að loknu spjalli Árna óla var haldið sem leið liggur austur Suðurlandsundirlendið, en þegar komið var í Rangáiþing tók Ing- ólfur Jónsson, landbúnaðarráð- herra og 1. þingmaður Suður- landskjördæmis á móti hópnum og bauð hann velkominn. Fiutti Ingóifur Jónsson snjalla ræðu, þar sem hann lýsti landsháttum í Rangárþingi og sagði m. a. að þessi landshluti gæti framleitt landbúnaðarvörur fyrir þjóðina alla. Þar væri mikill varasjóður fyrir framtíðina, þegar fóikinu i landinu fjölgaði. Hann ræddi um Rangárþing — sögubyggðina, Njálssögu og Heklu, fjalladrottn- inguna, sem verið hefur ógnvald- ur þessarar sveitar um aldir. Rangárvellir hafa orðið illa úti á umliðnum öldum, en nú eru sandarnir að gróa upp og víð- femar graslendur breiða sig nú yfir það, sem áður voru auðir sandar. Ingólfur Jónsson sagði, að við þyrftum'að þekkja starfs- hætti og kjör allra stétta. Erfið- leikar geta komið fram í land- búnaði eins og öðrum atvinnu- vegum, sagði hann, en þá er Fararstjórn: Sveinn Guðmunasson, tormaður Varðar, Sveinn Björnsson, Baldur Jónsson, formaður undirbúningsncfndar, Magnús Georgsson, Valdimar Ólafsson og Halldór Malmberg.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.