Morgunblaðið - 09.07.1966, Síða 7
T,augarclagur 9. Jéíí 1966
MORGUNBLAÐIÐ
7
Fjjallagrös eru hoðl
Hér birtist mynd af fjalla-
grasi, það má vissulega full-
yrða það, að á hallærisárum
á íslandi, hafi þau verið líf-
grös þjóðarinnar og haldið
lífinu í mörgum íslendingum.
Þegar litið er til baka og
skyggnst inn í móðu liðinna
alda, verður manni á að hugsa
um allar þær miklu hörmung
ar, sem dunið hafa yfir ís-
lensku þjóðina. Oft hefur haf-
ísinn lagst að landinu, með
gífurlegum frosthörkum sem
honum er svo oft samfara og
lokað allar leiðir til bjargar.
Einnig hefur það borið við,
að ógurleg svaela úr gjósandi
eldfjölum hefur fyllt loftið
rykmekki, svo varla hefur
sézt til sólar, og græn tún
orðið að grýttu hrauni og góð
graslendi orðið að eyðisönd-
um. Auk alls þessa hafa jarð-
skjálftar farið um landið, með
braki og brestum svo allt hef
ir leikið á reiðiskjálfi og blóm
leg bændabýli hrunið til
grunna. Á þessu sézt, að kjör
landsmanna hafa stundum
verið harla þungbær. — Á
íslandi var svo mikið hallæri
á seinni hluta 18. aldarinnar,
að menn urðu fegnir að leggja
sér til munns steiktar skó-
bætur, og einnig hráar, þar
sem ekki var glóð til að
steikja þær við. — Þegar
hallærið kom og skepnurnar
hrundu niður, þá komu fá-
tæklingamir í hópum saman
að leyta á náðir þeirra sem
ríkari voru, en brjóstgæði
margra þeirra urðu þess valti-
andi, að margir þeinra urðu
sjálfir öreigar, af ágangi
þessa mikla straums föru-
manna, sem flæktust lands-
homa á milli, til að leyta sér
lífsviðurværis. Það kom fyrir
að nytin úr einni kýr, var
eina lífsvonin, og auk þess (
áttu hinir forsjálari ögn af ’
fjallagrösum, svo hjá þeim
var hægt að elda grasagraut
einu sinni á dag, því alit
þurfti að spara, sem mest. —
En kjarkur og óbilandi trú um
bættari lífsafkomu hefur að
líkindum fleytt mörgu af
þessu þjóðar fólki yfir blind-
sker hallærisáranna á íslandi.
Ingibjörg Guðjónsd.
FRETTIK
Hjálpræðisherinn: Á sam-
komunni laugardagskvöld kl.
8.30 syngja og vitna æskulýðs-
kór frá Færeyjum ásamt Garðari
-Ragnarssyni. Á sunnudag verða
eamkomur kl. 11 fyrir hádegi og
8:30 e.h. Stúlkur frá Noregi
syngja. Útisamkoma kl. 4. e.h. ef
veðux leyfir.
Kristileg samkoma verður í
samkomusalnum Mjóuhiíð 16
sunnudagskvöldið 10. júlí kl. 8.
Allt fólk hjartanlega velkomið.
Kristniboðsfélag karla í Reykja
vík. Fundur mánudagskvöld kl.
8.30 í Betaníu.
Kristileg samkoma á Bæna-
staðnum, Fálkagötu 10 sunnu-
dag 10. júlí kl. 4. Bænastund aila
virkadaga kl. 7 e.m. Allir vel-
komnir.
Vegaþjónusta Félags íslenzkra
bifreiðaeigenda helgina 9. og 10.
júlí 1966. FÍB 1. Staddur á Egils
stöðum við ljósastillingar. FÍB 2.
Hellisheiði, Ölfus, Þjórsárdalur.
FÍB 3. Þingvellir, Lyngdalsheiði,
Laugarvatn. FÍB 4. Hvalfjörður,
Borgarfjörður. FÍB 7. Sjúkrabif-
reið, Hvalfjörður, Borgarfjörð-
ur. Félag islenzkra bifreiðaeig-
enda. .
Séra Ólafur Skúlason, sóknar-
prestur í Bústaðaprestakali, verð
ur fjarverandi næstu vikur.
* Nessókn. Munið safnaðarferð-
ina sunnudaginn 10. júlí. Farmiða
saia í Neskirkju í kvöld kl. 8—11
sími 16783.
Félag Austfirzkra kvenna fer í
skemmtiferð austur að Kirkju-
bæjarklaustri miðvikudaginn 13.
júlL Upplýsingar í síma 32009 og
18772. Nefndin.
Langholtsprestakall. Verð fjar
verandi næstu vikur. Séra Sigurð
ur Haukur Guðjónsson.
Slysavarnadetltin Hraun-
prýði Hafnarfirði fer tveggja
daga skemmtiferð í Bjarkarlund
og víðar, 16. júlí. Nánari upp-
lýsingar í símum 50597, 50290,
60231 og 50452. Nefndin.
Óháði söfnuðurinn fer skemmti
ferð í Þjórsárdal sunnudaginn
10. júlí kl. 9. Komið við í Skál-
holti á heimleið. Farið verður
frá bílastæðinu við Sölfhólsgötu
inóti sænska frystihúsinu. Að-
göngumiðar hjá Andrési, Lauga-
veg 3.
Kvenfélag Lágafellssóknar,
Mosfellssveit, fer skemmtiferð
mánudaginn 11. júlí. Farið verð-
ur til Vatnsfjarðar. Gist í Bjark-
arlundi og Reykhólum. Einnig
stanzað í Búðardal i boði kven-
félagsins þar. Ferðin tekur 2 til
2*A dag. Þátttaka tilkynnist sem
fyrst til Ólafiu, Laugabóli, Krist-
ínar sími 13259, Ingerðar sími
36043, sem veita allar upplýs-
ingar.
í dag verða gefin saman í
hjónaband í Keflavíkurkirkju af
séra Birni Jónssyni, ungfrú
Margrét Lilja Valdimarsdóttir,
Mánabraut lOa og Karl Sigmar
Hermannsson, rafvirkji Sóltúni
1.
í dag verða gefin saman i
Keflavik af séra Birni Jónssyni
ungfrú Auður Stefánsdóttir og
Karl Ottó Karlsson. Heimili
þeirra verður að Grettisgötu 57
Rvík.
f dag verða gefin saonan í
hjónaband í Langholtskirkju af
séra Árelíusi Nielssyni ungfrú
Sigrún Jóhannsdóttir, Álfheim-
um 58 og Ingólfur Pálsson frá
Öxl í Breiðavíkurhreppi í Snæ-
fellsnessýslu. Heimili þeirra
verður að Álfheimum 58.
í gær opinberuðu trúlofun
sína ungfrú Ólöf Pétursdóttir,
Vesturhrún 18 og Friðrik Pálsson
Ytra-Bjargi, V-Hún.
30. júní voru gefin saman í
hjónaband af Séra Eggerti Ólafs
syni á Kvennabrekku, ungfrú
Melkorka Benediktsdóttir, Saur-
um, Laxárdal og Sigurbjörn Sig
urðsson, Vígholtsstöðum, Lax-
árdal, Dalasýslu. Heimili þeirra
verður að Vígholtsstöðum.
Systrabrúðkaup: Gefin verða
saman í hjónaband í Dómkirkj-
unni í dag, laugardag, af séra
Jóni Auðuns, ungfrú Guðbjörg
Kristín Jónsdóttir og stud. odont
Gunnar Olaf Engilbertsson.
Heimili þeirra verður að Grettis
götu 83. Og ungfrú Anna Jóns-
dóttir og Friðrik Georgsson, raf-
vélavirki. Heimili þeirra verður
að Suðurg. 40, Keflavík. Brúð-
irnar eru systur.
Laugardaginn 2ö. júní voru
gefin saman í hjónaband í Dóm-
kirkjunni af Dr. Jakobi Jónssyni
ungfrú Hrafnhildur Bergdís Egils
dóttir, Eskihlíð 13 og Garðar
Briem, Tjarnargötu 28. (Vigfús
Sigurgeirsson, ljósmyndastofa
Miklubraut 64 — Rvík).
SÖFN
Minjasafn Reykjavikurborg
ar, Skúlatúni 2, opið daglega
írá kl. 2—4 e.h. nema mánu
daga.
Færeyingar í Fíladelfíu
Þetta er kirkja Filadelfiusafnaðarins í Reykjavík. (Ljósm. Jó-
hanna Björnsdóttir).
Fíladelfía, Reykjavik: AlmennFæreyjum syngur í síðasta sinn
samkoma sunnudagskvöld kl. 8. hér að þessu sinni. Fórn tekin
Ræðumenn: Jóhann. Pálsson og vegna kirkjubyggihgarinnar. Úti
Garðar Ragnarsson. Fjölbreytt- samkoma verður á sunnudag í
ur söngur. Æskulýðskórinn fráLaugardal kl. 4, ef veður leyfir.
Garðeigendur athugið Tökum að okkur að slá bletti með vél og orfi. — Sirni 37110. Afgreiðslustúlka Afgreiðslustúlka óskast í söluturn til að leysa af á kvöldin og um helgar. — Uppl. í síma 38673.
Rýmingarsala Allt selst með 30—40% af- slættL Kjólapoplin, ullar- efni, rúskinnsveski, úrval eyrnalokka, festar, nælur o. fl. Verzluiftin hættir. — Verzl. Lilja, Laugav. 130. íbúð óskast Þriggja herbergja íbúð ósk ast til leigu. Þrennt full- orðið í heimili, góð um- gengni og reglusemi. Fyrir- framgr. möguleg. Uppl. í síma 21358 frá kl. 5—8 laugardag.
HERBERGI TIL LEIGU Gott herbergi til leigu. — Upplýsingar í síma 38673. A T H U G I Ð Þegar miðað er við útbreiðslu, ei langtum ódýrara að auglýsa j Morgunblaðinu en öðrum blöðum.
SKIPSTJÓRAR
Útgerðar- og fiskvinnslufyrirtæki óskar eftir vön-
um skipstjóra á góðan 70 tonna bát. — Ðuglegur
og traustur maður gæti orðið meðeigandi í fyrir-
tækinu. — Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir 14. júli,
merkt: „Traustur — 4517“.
SÖLIJMAÐIIR - VÉLAR
Ungur, reglusamur maður óskast til sölustarfa hjá
vélaheildverzlun við sölu á krönum og vélskóflum,
gaffallyftitækjum. — Haldgóð starfsreynsla geski-
leg, en þó ekki skilyrði. — Umsóknir með mynd, er
tilgreini fyrri störf, kaupkröfur o.. s. frv. verður
farið með sem trúnaðarmál, sendist afgr. Mbl. fyrir
miðvikudagskvöld, merkt: „Röskur — 4519“.
Breiöfirðingabúð
DAIMSLEIKLR
í KVÖLD K L . 9.
Það er margsannað að Búðin er vinsælasti
* skemmtistaður unga fólksins og í kvold
eru það hinar vinsælu Beat hljómsveitir
StrengSr
og
Ffarkar
sem sja um
Mætið tímanlega, síðast seldist upp á 30
mínútum. — Miðasala frá kl. 8.