Morgunblaðið - 09.07.1966, Side 12

Morgunblaðið - 09.07.1966, Side 12
MORCUNBLAÐIÐ taugardagur 9. jálf 1996 1* fÍ0rj0MJtM&frí$r Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Ritstjórnarfulltrúi: Þorbjörn Guðmundsson. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðaistræti 6. Sími 22480. Áskriftargjald kr. 105.00 á mánuði innanlands. 1 lausasölu kr. 5.00 eintakið. HÆKKUN HITA VEITUGJALDA k fundi borgarstjórnar Reykjavíkur síðastl. fimmtudag var lögð fram til- laga um hækkun á gjaldskrá Hitaveitunnar, sem hefur í för með sér 30% hækkun á vatnsverði Hitaveitunnar, og ennfremur nokkra hækkun á mælaleigu og heimæðagjöld- um. Jafnframt er ráðgert að gjaldskrá Hitaveitunnar hækki eða lækki í samræmi við/ byggingarvísitölu fram- vegis. Þessi hækkun á gjaldskrá Hitaveitunnar er nauðsynleg til þess, að hún geti haldið áfram hinum umfangsmiklu framkvæmdum, sem staðið hafa sl. fjögur til fimm ár, og hafa leitt til þess, að um 90% borgarbúa búa nú á hita veitusvæði, en í árslok munu um 95% íbúa Reykjavíkur njóta hita frá Hitaveitunni. í ræðu, sem Geir Hall- grímsson, borgarstjóri, hélt á borgarstjórnarfundinum benti hann á, að vatnsverð Hita- veitunnar hefur hækkað um 23%, á sama tíma sem bygg- ingarvísitala hefur hækkað um 89%, og vinnulaun í lægsta flokki Dagsbrúnar- samninga um 103%. Það ligg- ur Ijóst fyrir, að þegar Hita- veitan stendur í svo umfangs miklum framkvæmdum, sem verið hafa nú síðustu fjögur til fimm árin, er ekki unnt að halda þeim áfram með því móti, að vatnsgjaldið hækki ekki nokkurn veginn í hlut- falíi við þróun verðlagsins í landinu samanber byggingar- vísitöluna. Borgarstjóri sagði, að ýms- ir bentu á þann möguleika að afla frekari lána til hitaveitu- framkvæmda í stað þess að hækka gjaldskrána, en hann sagði, að það væri tæpast unnt nema að mjög takmörk- uðu leyti, og einnig væri á það að líta, að vaxta- og af- borganabyrði Hitaveitunnar þyngist nú sífellt vegna þeirra lána, sem tekin voru í upphafi framkvæmdatíma- bilsins. „Við stöndum því nú frammi fyrir þeirri stað- reynd“, sagði Geir Hallgríms- son, „að annað tveggja verð- um við að gera, að hækka verð á þessari þjónustu til þess að geta haldið áfram framkvæmdum* Hitaveitunn- ar og ná því takmarki, að ný hús verði tengd hitaveitu jafnóðum og þau verði byggð, eða að láta hér staðar numið og hætta öllum framkvæmd- um og halda óbreyttu verð- lagi á hitaveitugjöldum. Þá er aðstaðan sú, að þeir borg- arbúar, sem tengdir eru hita- veitusvæðunum núna greiða helming þess verðs til hitun- ar húsa sinna, sem þeir borg- arar munu þurfa að greiða, sem reisa hús sín í nýjum hverfum. Fulltrúar minnihlutaflokk- anna í borgarstjórn voru þrí- skiptir í afstöðu sinni til hækkunar á gjaldskrá Hita- veitunnar. Fulltrúi Framsókn arflokksins lagði til, að hún hækkaði um 15%, fulltrúi Al- þýðubandalagsins kvaðst mót fallinn öllum hækkunum á gjaldskrá Hitaveitunnar, en fulltrúi Alþýðuflokksins í borgarráði hefur lýst yfir því, að hann mundi fylgja 20% hækkun á gjaldskrá Hitaveit- unnar. í tilefni af þessari af- stöðu fulltrúa minnihluta- flokkanna í borgarstjórn beindi Geir Hallgrímsson, borgarstjóri þeirri fyrirspurn til þeirra, hvort þeir væru reiðubúnir til þess að taka af- leiðingum af afstöðu sinni til þessa máls. „Eru fulltrúar minnihlutaflokkanna reiðu- búnir að sleppa því að leggja hitaveitu í Árbæjarhverfi eða Breiðholtshverfi eða Foss- vogshverfið? Það mundi ein- mitt verða afleiðing þeirrar afstöðu, sem þeir hafa tekið gagnvart þessum tillögum um hækkun á gjaldskrá Hita- veitunnar,“ sagði borgarstjóri. Hitaveita Reykjavíkur hef- ur reynzt borgarbúum hag- kvæmt fyrirtæki. Hitaveitu- gjöldin hafa alls ekki hækk- að í samræmi við launahækk- anir og aðra verðlagsþróun í landinu, eins og glöggt mátti sjá af línuriti því, sem Morg- unblaðið birti í gær. Með nú- verandi gjaldskrá er meðal- hitunarkostnaður með hita- veitu tæpur helmingur hitun- ar með gasolíukyndingu, en ef tillögur um hækkun á gjaldskrá Hitaveitunnar ná fram að ganga, verður hitun- arkostnaður með hitaveitu % af kostnaðinum við olíu- hitun. Ef nú yrði látið staðar numið um frekari fram- kvæmdir Hitaveitunnar í t.d. fimm til sex ár, mundi að þeim tíma liðnum, e.t.v. um 20 þúsund af íbúum borgar- innar búa utan hitaveitu- svæða, árleg útgjöld þessara íbúa til hitunar húsa sinna yrðu að óbreyttu verðlagi um eða tæplega 40 milljónum kr. hærri en jafnmargra íbúa á hitaveitusvæðum. Það er því ljóst, að það er borgarbúum mikið hagsmunamál að hald- ið verði áfram þeim umfangs- miklu framkvæmdum við Hitaveituna, sem staðið hafa undanfarin ár, þannig að náð verði því marki að öll ný hús Sérhver borgari getur krafizt þess að sjá opinber skjol og gögn Washington. „ENGINN á að hafa aðstöðu til þess að byggja þagnarmúr um ákvarðanir, sem hægt er að gera opinberar án þess að það skaði hina opinberu hags- muni“, sagði Johnson Banda- rikjaforseti sl. mánudag, er hann undirritaði á þjóðhátíð- ardegi Bandaríkjanna ný lög, sem tryggja eiga rétt fólksins til uppiýsinga. Hin nýju lög hafa verið í undirbúningi í nær áratug, og á þeim tíma hefur tekizt a'ð leysa þann vanda, eða a.m.k. að skilgreina nánar en áður var það vandamál, að tryggja rétt borgaranna til þess að fylgjast með stjórn landsins án þess að þjóðaröryggi væri jafn framt stefnt í voða. Lögin gera ráð fyrir því, að sérhver bandarískur rikisborg ari geti krafizt þess að fá að sjá opinber skjöl og gögn. Neiti yfirvöldin að láta um- beðnar upplýsingar í té, er; hægt að leggja kröfuna fyrir alríkisdómstól. Og það er ekki borgarinn, sem upplýsinganna krefst, sem gera skal grein fyrir því, hvers vegna hann geri það, heldur er þa'ð hið opinbera, sem verður að sanna að upplýsingarnar falli utan þess ramma, sem lögin hafa sett. Undantekningarnar taka ekki aðeins til mála, sem varða þjóðaröryggi og sam- bandið við önnur lönd, held- ur og til viðskiptaupplýsinga, sem ríkisstjórnin hefur fengið frá sérstökum heimildum, inn byrðis bréfaskrifta milli ráðu- neyta og upplýsinga, sem brjóta friðhelgi einkalífsins. Lyndon B. Johnson Um þessar undantekningar sag'ði Johnson forseti, að nauð synlegt væri með tilliti til bæði velferðar þjóðarinnar og einstaklinga að halda vissum upplýsingum leyndum. Þann- ig verða hernaðarleyndarmál fyrir hendi jafnlengi og heims friðnum er ógnað, og á sama hátt verða borgararnir að geta snúið sér til yfirvald- anna —- líkt og blaðanna — án þess að þurfa að óttast að heimildir verði gefnar upp. Forsetinn var ekki sammála þeim, sem talið hafa a'ð hin nýju lög verði allri stjórn landsins Þrándur í Götu. „Ég hef ávallt litið svo á, að rétturinn til upplýsinga | væri svo mikilsverður, að í því sambandi mætti ekki taka tillit til óska embættismanna eða einstakra borgara, heldur yrði hliðsjónin af þjóðarörygg inu að vera það eina, sem rétt- , læti að útaf væri brugðið", sagði forsetinn. Eftir að hafa undirritað lög- í in bætti hann við að hann j hefði undirritað þau „stoltur af því, að Bandaríkin eru opið og frjálst þjóðfélag manna, þar sem réttur borgaranna til þess að vita er verndaður." ] Forsetinn hefði allt að einu getað minnst á það í þess^ sambandi, að Bandaríkin eru eitt örfárra landa, þar sem I prentfrelsi og blaðafrelsi er t tryggt með sjálfri stjórnar- skránni. Maður sá, sem öðrum frem- ur hefur unnið að hinum nýju lögum, er John E. Moss, þing- 1 máður í fulltrúadeildinni. — i Hann er formaður þingnefnd- ar, sem fengið hefur það verk efni að hafa eftirlit með skrif- stofubákninu og tilhneiging- um þess til pukurs. Fram til síðasta dags bjugg 1 ust ýmsir við því, að Johnson forseti myndi beita neitunar- valdi sínu, og neita að undir- rita lögin, svo sem ýmsir kviðnir embættismenn munu hafa ráðlagt honum að gera. , En eftir að forsetinn hafði undirritað lögin, sagði Moss, , að hann hefði í starfi sínu og samvinnu við Hvíta húsið kynnzt því, að forsetinn „bæri mikla virðingu fyrir rétti fólksins til þess að vita.“ verði tengd hitaveitu jafn óðum og í þáu er flutt. Það er einnig sanngirnis- og rétt- lætismál, að allir íbúar borg- arinnar njóti þeirrar kjara- bótar, sem leiðir af lækkuð- um hitakostnaði vegna hita- veitunnar, og þess vegna er enginn efi á því, að borgar- búar munu allir sammála um að halda beri áfram fram- kvæmdum Hitaveitunnar, jafnvel þótt ekki verði hjá því komizt að hækka gjald- skrá hennar nokkuð nú. — Meirihluti borgarstjórnar Reykjavíkur hefur í þessu máli tekið þá afstöðu, sem farsælust mun verða íbúum borgarinnar, þegar fram líða stundir, þótt engum sé það ánægjuefni að hækka gjöld þjcmustufyrirtækja Hitaveit- unnar. Ef hins vegar væri farið að tillögum minnihluta- flokkanna í borgarstjórn mundi ýmist verða að stöðva algjörlega framkvæmdir Hita veitunnar eða draga mjög úr þeim, og er þá fyrirsjáanlegt, að mikill hluti borgarbúa mundi á næstu árum verða að greiða miklu hærri hit- unarkostnað en ell? NÝJAR RÁÐSTAF- ANIR TIL AÐ- STOÐAR TOG- ARAÚTGERÐ fundi borgarstjórnar Reykjavíkur síðastl. fimmtud. var samþykkt með samhljóða atkvæðum ályktun um vandamál togaraútgerðar- innar, þar sem bent er á, að nauðsynlegt sé að gripið verði til nýrra ráðstafana til að- stoðar togaraútgerðinni, eigi togaraútgerð í landinu ekki að leggjast niður með öllu. Jafnframt var borgarráði fal- ið að óska sérstakra viðræðna við ríkisstjórnina í því sam- bandi. Það kom greinilega fram í ræðu borgarstjóra Geirs Hall- grímssonar, hversu alvarlegs eðlis erfiðleikar togaraútgerð arinnar eru, en hann vakti at- hygli á því, að auk ríkis- styrksins til togaranna, sem nemur frá 20—25% af afla- verðmæti þeirra, leggur borg- arsjóður til viðbótar til tog- ara Bæjarútgerðarinnar 15% til 45% af aflaverðmæti þeirra. Þetta þýðir að ofan á það fiskverð, sem togararnir fá, bæta ríki og borgarsjóður frá 35% og allt upp í 65% af aflaverðmæti skipanna. Það liggur auðvitað ljóst fyrir að slíkar aðgerðir getá ekki staðið nema í takmark- aðan tíma, og óeðlilegt að eitt sveitarfélag taki á sig slíkar byrðar. En þessar upplýsingar und- irstrika enn frekar það al- varlega vandamál, sem við er að eiga í togaraútgerð nú, og að á því vandamáli er eng- in einföld lausn. Flestir þeir, sem að undanförnu hafa rætt þessi mál opinberlega, hafa lagt áherzlu á, að togararnir verið að fá ný veiðisvæði, breyta þurfi vinnutilhögun á þeim og fækka fjölda áhafn- ar, svo og lagfæra ýmis önn- ur atriði, sem nú eru togara- útgerðinni þung í skauti. Er þess að vænta, að þær miklu umræður, sem að undanförnu hafa farið fram um vandamál togaraútgerðarinnar verði til þess að hraðað verði að finna varanlega lausn á þeim erfið- leikum, svo að togaraútgerð leggist ekki niður með öllu og einhæfni í fiskveiðum okk- ar aukist.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.