Morgunblaðið - 22.07.1966, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 22.07.1966, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ Fftsturtagur 22. Jótí 196* Árbæ’arhverfi Höfum til sölu flestar stærðir og gerðir íbúða víð Hraunbæ. Seljast tilbúnar undir tréverk og máln- ingu. Sameign öll frágengin. Ennfremur fokhelda íbúð. Hagstæð verð og greiðsluskilmálar. FASTEIGNA SKRIFSTOFAN AUSTURSTRÆTI 17 (HtíS SILLA OG VALDA) SÍMI 17466 L AUGARDALS VOLLUR: I. DEILD í kvöld (föstudag) kl. 8.30 leika Valur - ÍBK Dómari: Baldur Þórðarson. Verður liðið, sem sigrar í kvöld Islands- meistari í ár ? Nú verður það fyrst spennandi! Mótanefnd. Reyðarvatn Veiðileyfi eru seld hjá Sófusi Bender, Hrísateigi 15, sími 35529 og hjá veiðiverði. Bátar verða leigðir út um helgina. 1 herbergi, ennfremur 2jn til 3jn herbergjn íbúð ósknst. Uppl. n skrifstofu vorri. FASTEIGNA SKRIFSTOFAN AUSTURSTRÆTI 17 (HllS SILLA OG VALDA) SlMI Tryggvi Ófeigsson iít- gerðarmaður, sjötugur HANN er fæddur 22. júlí 1896 að Brún í Svartárdal, A-Húna- vatnssýslu. Sonur hjónanna Ófeigs Ófeigssonar frá Fjalli á Skeiðum og Jóhönnu Frímanns- dóttur frá Hvammi í Langadal. Ófeigur, faðir Tryggva, var Ófeigsson Ófeigssonar ríka frá Fjalli á Skeiðum og Ingunnar Eiríksdóttur frá Reykjum á Skeiðum (Reykjaætt). Móðir Ingunnar var Guðrún Kolbeins- dóttir prests að Míðdal í Laugar- dal (Kolbeinsætt). Móðir Ófeigs, föður Tryggva, var Vilborg Ey- jólfsdóttir frá Auðsholti Guð- mfundssonar frá Brúsastöðum í Þingvallasveit. Aldamótaárið fluttu foreldrar Tryggva til Keflavíkur, síðar fluttu þau að Brunnastöðum á Vatnsleysuströnd og þaðan á Vesturkot á Hvaleyri við Hafn- arfjörð. Þaðan fluttu þau að Ráðagerði í Leiru og bjuggu þar í tvo áratugi. Systkinin voru tíu og var Tryggvi næstelztur. Af þeim komust 8 til fullorðins ára. Leiran er samfelldur gras- blettur, uppblástur ofan garðs, en sjórinn áð neðan. 200 manns voru þar á vetrarvertíð, þar af Vs hluti vermenn úr ýmsum sýsl- um landsins, þar eru nú 2 eða 3 býli í byggð, en nú engin fleyta, þar sem áður voru tveir tugir skipa, smárra og stórra, en helm- ingur túnanna er golfvöllur. Leiran var minnsta útgerðar- plássið á Suðurnesjum. En þar, eins og í öðrum verstöðvum, stóð verkmenning á háu stigi. 1912 var keyptur þangað mótorbátur- inn Ágúst, formaður var Stefán Sigurfinnsson frá Vatnsleysu. Á þeim báti var Tryggvi vetur, vor og sumar. Þetta var fyrsta ís- lenzka fleytan, sem hélt uppi landhelgisgæzlu. Nánar verður það ekki rætt hér, því það er áður skráð. Tryggvi byrjaði sjóróðra barn að aldri í Leirunni. Á Austfjörð- um á 15. ári og hafði 1 kr. í dag- kaup fyrsta sumarið, alltaf á ára- bátum. 14 ára byrjaði hann að róa á vetrarvertíð hjá Ólafi Bjarna- syni á Steinum í Leiru. Ölafur var þekktur formaður og þrek- menni. Vetrarvertiðina 1914 fór hann fyrst á togara á hollenzka botn- vörpunginn Ocean frá Hafnar- firði, þá 17 ára. Togararnir voru þá keppikefli allra dugandi manna. Vetrarvertíðina 1915 rerj- hann á áttæringi Stefáns Sigur- finnssonar frá Bakkakoti. Þetta var skóli þeirra tíma. í vetrar- vertíðarbyrjun 1916 fór hann á togarann Braga frá Reykjavík og var þar í góðu yfirlæti og góðum skóla, því að skipstjórinn var Jón Jóhannsson frá Njarðvík, yfir- vélstjóri Markús ívarsson, síðar eigandi Vélsmiðjunnar Héðins og valinn maður í hverju rúmi; var hann á því skipi þar til það var selt til Frakklands ásamt 9 öðrum togurum haustið 1917. Einkennilegt atvik kom fyrir seinni hluta vetrarvertíðar 1916, þá brauzt út sjómannaverkfall. Þetta þótti honum einkennilegt, því að þá hafð ihann haft fyrir mánuðina marz og apríl fjórfalt kaup á við það sem tíðkaðist á áraskipum þá. Það voru mikil viðbrigði að komast á togara af opnum .bát- um, fæðið veizlumatur og allir strangir reglumenn þeir, sem þar komust að. Vökur voru miklar, en það tíðkáðist á flestum fleyt- um, þar sem sjósókn var stund- uð af kappi. Haustið 1917 fór Tryggvi í sjómannaskólann og lauk þaðan prófi 1919 með hæstu einkunn, sem þá var gefin við skólann. Undirstöðumenntun var ekki önnur en almenn barnafræðsla, en það get ég borið um, að þá munh onum hafa komið vel sú fræðsla, er hann naut í æsku hjá föður sínum, þv íað Ófeigur var maður stór vel að sér og mörg- um lærðum mönnum lærðari. 1918 var Tryggvi á Snorra goða, eign Kveldúlfs. skipstjóri var Páll Matthíassön. 1918—1920 var hann á togaranum Vínland og á togaranum Ara. Á vetrar- vertíðinni 1921 gerði D. H. Book les í Hafnarfirði út 5 togara, framkvæmdastjóri var Þórarinn Egilsson. Tryggva var þá falin skipstjórn á öðru bezta skipinu, J. M. Reed frá Aberdeen. Gekk þetta allvel á þessu skipi, en að vertíðinni lokinni fóru togararn- ir aftur til Skotlands. Fór hann þá um haustið bátsmaður til Sig- urðar á bv. Geir og var hjá þeim ágæta manni í eitt ár. Um sum- arið hafði hann verið á bát á síldveiðum fyrir Norðurlandi, einnig var það honum happa- sumar, afli í bezta lagi. Tvö ár var hann svo stýrimað- ur hjá Jóni Otta á bv. Walpole sem honum þótti bæði ágætur maður og góður skipstjóri. Sum- arið 1924, me'ðan togararnir voru bundnir í höfn, fór hann skipstjóri á togarann Helga magra fyrir Ásgeir Pétursson á síldveiðar og gekk það sæmi- lega. Haustið 1924 keypti Einar Þorgilsson í Hafnarfirði bv. Sur- prise. Tryggvi sigldi honum til Islands og var með hann í 2 túra. Samvera þeirra gat ekki orðið lengri vegna þess að Tryggvi var þá ráðinn hjá Hellyer. Einar var rausnarmaður, hann rétti að Tryggva kr. 1000, þegar hann fór, framyfir umsamið kaup. Það var þriggja mánaða hásetakaup á þeim tíma. I vertíðarbyrjun 1924 höfðu Hellyer Brothers komi'ð til Hafn- arfjarðar með 5 eða 6 togara, sem lögðu upp afla sinn í Hafnar- firði. Þeir þurftu að fá íslenzka skipstjóra á skipin. Þá réði Geir G. Zoega. Réði hann Tryggva á togarann Kings Gray, sem átti að koma til Hafnarfjarðar næstu vetrarvertíð, en þeir áttu í smíð- um nýjan togara, sem var stærsti og langbezt útbúni togari Bret- lands á þeim tíma. Engum þótti trúlegt að Tryggva yrði falin stjórn þess skips og sízt honum sjálfum, en svo fór að honum var fengið skipið og stjórnaði hann því í 5 ár. Kom hann á skipið svo til eignalaus ma’ður, en fór af því tilbúinn til að festa kaup á parti í togara. Þetta var hinn þekkti togari Imperialist ig voru aflabrögðin meðan Tryggvi stjórnaði honum í samræmi við skipið. Auk þess að hafa hjá Hellyer-bræðrum mjög góð kjör, þá hlaut hann þar staðgóðan lær- dóm í öllu sem viðkom togaraút- gerð, sem reyndist honum mjög verðmætt veganesi. Hann telur sig standa í mikilli þakkarskuld við þá bræður. Sumarið 1926 byrjuðu Hellyer- bræ'ður lúðuveiðar við Vestur- Grænlan. Létu þeir Tryggva flytja sig frá Bretlandi og til baka aftur og var Tryggvi eini íslendingurinn um borð, en á þeim árum þótti ekki fýsilegt að fara til Grænlands. Með engum. þeim fullkomnu siglingatækjum, sem nú þekkjast. Þetta gekk allt vel, engu síður en hjá hinum skipunum, sem höfðu linuskipa- skipstjóra til að færa skipin það sumar. Sumarið 1927 var aftur haldið til Grænlands og hafði Tryggvi þá íslenzka skipshöfn og nokkra opna mótorbáta til að fiska á lúðuna. Þetta gekk slysa- laust og eftirtekjan var góð hjá öllum. Þessi útgerð Hellyers við Grænland var stórkostleg, rekin með mörgum skipum og tugum af smáum, opnum mótorbátum, sem voru allir mannaðir Norð- mpönnum nema þeir, sem fylgdu Imperialist, á þeim voru eingöngu Islendingar. í flotanum voru m.a. tvö mjög stór stöðvarskip. Fyrlr- hyggju Hellyer-bræðra má m.a. marka á því, að aldrei slcorti neitt til veiðanna og engarbik n- ir urðu, sern ekki var ráðið við. Tryggvi hefur alla tíð verið hneigður til útgerðar, frá því hann var á Bakkafirði, 17 ára að aldri, með _ tveim félögum úr Leirunni á líkum aldri. Þeir gerðu út árabát og farnaðist vel. í árslok 1929 fór Tryggvi á tog- arann Júpíter. Félag með saria nafni var stofnað þá um sumarið. Hluthafar voru Tryggvi, krónur 112.500, Þórarinn Olgeirsson a. fl„ kr. 75.000, Joe Little, kr. 75,- 000, Loftur Bjarnason og bræður hans, kr. 37.500, samtals krónur 300.000. Þetta var mikið fé á þei.n tíma. Tryggvi var ráðinn sem skipstjóri til 5 ára og fram- kvæmdastjóri Loftur Bjarnason. Afli á skipið var mjög mikill og hagnaður flest árin og var einn'g ágæt samvinna milli allra eig- enda. Þórarinn Olgeirsson cg Tryggvi höfðu verið samstarf;- menn á sjó um árabil og telur hann Þórarinn Olgeirsson ha"a verið glöggasta mann á fiski- fræði og fiksimið, sem hann hef- ur þekkt. 1936 var togarafélagið hf. Venus stofnað. Aðaleigendur voru: Loftur Bjarnason fr.im- kvæmdastjóri, Þórarinn Olgeirs- son og hinn annálaði aflamaðuc Vilhjálmur Árnason skipstjóri. Báðum félögunum gekk vel g skiluðu góðum hagnaði. Tryggvi var einn af eigendum. 1939 kaupir Ólafur Ófeigsson togarann Hafstein. Með hönum urðu áðalhluthafar Loftur Bjarna son, Vilhjálmur Árnason, Þórar- inn Olgeirsson og Tryggvi Ófeigí son. Þetta var hlutafélagið Marz. Ólafur var skistjóri á skipinu, enda viðurkenndur aflamaður. Ólafur var skipstjóri á togaran- um Hafstein, þegar hann fór ein- skipa vestur í Grænlandsísinn að bjarga 53 þýzkum sjómönnum f sökkvandi stórskipinu Bahia Blancka. Þá var þessi vísá keðin: Þin og Leifs er líðum kunn list í Ránar mani. Bjargvættur við Ishafs urm Ægis trölla bani. * Fyrir nokkru mætti Ólafu manni á götu, sem heilsaði hon- um og þakkaði honum fyrir síð- ast. Ólafur bar ekki kennsl á manninn. „Mannstu ekki eftir því“, sagði maðurinn, „þegar þú bjargaðir okkur skipshöfninni af sökkvandi Hansínu VE á Sel- vogsbanka í vonzku veðri?“ Ýms um fleiri hefur Ólafur bjargað úr sjávarháska, þó það verði ekki talið hér. f ágústmánu'ði 1940 hætti Tryggvi skipstjórn og fór í land. Á miðju ári 1935 hafði komið stýrimaður á Júpíter, sem þá hóf starf, sem mikið skyldi verða. Hann tók við skipstjórn á Júpiter af Tryggva og hafði þá sam- fleytt verið stýrimaður í 5 ár. Þessi maður var Bjarni Ingi- marsson. Hann var óslitið skip- stióri með Júpiter til ársins 1947. Framhald á bls. 19

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.