Alþýðublaðið - 19.07.1920, Qupperneq 4
4
ALÞYÐUBLAÐIÐ
c?f!oSSrir nt&nit
geta fengið atvinnu frá i. næsta mánaðar í síldarolíuverksmiðjum
Hinna sameinuðu íslenzku verzlana, Siglufirði. Semjið sem fyrst við
'ffiésfíiffafálag ié.
ALÖalstræti 8. Sími 701 og 801-
Þórður Kristinsson,
Hverfisgötu 76 B,
selur í smásölu og heildsölu ýmsar góðar vörur, sem
: : allir þurfa með. — Verðið er mjög lágt. : :
Dren
siðprúðan og skilvísan, vantar til að bera Alþýðu-
: : : blaðið til kaupenda í Vesturbæinn. : : :
leli konungnr.
Eftir Upton Sinclair.
Þriðja bók:
Pjónar Kola konungs.
(Frh.).
Því næst lyfti hann henni upp
í vagninn, kvaddi hin með handa-
bandi og horfði á eftir þeim er
þau lögðu af stað. Þegar þau voru
farin, fann hann, að hann hataði
þessa æskuvini sína, enda þótt
hann viðurkendi, að þeir gætu
engu áorkað, og höfðu enga á-
stæðu til þess að dvelja. En það
eitt, að hann sá þau aka á braut
í skrautvagni til þess að koma
nógu snemma á dansleikinn, með-
an hann snéri afturs til þess að
reyna að útvega frú Zamboni
leyfi til þess, að safna saman jarð-
neskum leyfum manns hennar,
æsti hann upp.
Fjórða bók:
Erfðaskrá Kola konungs.
I.
Náma dauðans var tekin að
segja frá leyndarmálum sínum.
Qg sögurnar, sem gengu mann
Irá manni í héraðinu, sögðu frá
ótrúlegum þjáningum ©g ótrúleg-
um hetjumóði. Menn, sem verið
höfðu í fjóra daga matar og vatns-
lausir, vildu ekki láta fara með
sig upp, fyr en þeir höfðu hjálp-
að til við björgun félaga sinnal
Menn höfðu legið hver hjá öðrum
í myrkrinu og þögninni og haldið
lífinu við á vatninu sem seitlaði
úr berginu. Þeir höfðu skifst á
um það, að liggja upp í loft, þar
sem lak niður, eða þeir höfðu
vætt tusku úr fötum sínum og
sogið rakann úr þeim. Björgunar-
mennirnir sögðu frá því, að þeir
hefðu barið í veggina, og heyrt
hin veiku svör þeirra innibyrgðu.
Þeir sögðu frá þvf, hve mjög þeir
hefðu hamast við það að rífa sig
1 gegnum veggina, og að gleði-
ópin hefðu kveðið við í móti
þeim, er þeir loksins höfðu búið
til ofurlítið gat, og þeir sáu
glampa i augu vesalinganna inni
i myrkrinu, meðan þeir aðfram-
komnir biðu eftir því, að gatið
yrði nógu stórt til þess, að hægt
væri að . koma vatni og mat í
gegnum það inn til þeirra!
Sumstaðar urðu þeir að berjast
við eldinn. Langar slöngur höfðu
verið fluttar niður, og þeir fikuðu
sig áfram fet fyrir fet, eftir því
sem loftdælan saug reykinn og
gufuna út, fram undan þeim.
Vinnan var afarhættuleg, en eng-
inn hikaði, enginn hugsaði sig um;
altaf gat verið von um að finna
innilukta menn innar í námunni.
Hallur hitti Cotton við dyrnar
á vogarskýlinu, sem nú hafði verið
breytt í bráðabirgðasjúkrahús.
Það var í fyrsta sinn, sem þeir
hittust, eftir að Joe Smith hafði
kastað blæjunni f eimlest Percy
Harrigans, og námueftirlitsmaður-
inn heilsaði honum og brosti
beisklega. „Jæja, herra Warner,
þér unnuð víst sigur", sagði hann.
Hallur gengdi engu, en fór að
mæla með konunum, sem hópuð-
ust utan um hann. Mundi eftirlits-
maðurinn ekki geta leyft nokkr-
um þeirra að koma inn, svo þaer
gætu fengið vitneskju um hvernig
ástatt var með ástvini þeirra?
Kartöflur og laukur ódýrast í
Kaupfélagi Reykjavíkur (Gamla
bankanum).
Fyrirspurnir.
(Aðsent.)
Mér kemur til hugar að spyrja
hiutaðeigendur að því, hvort það
eigi að vera vottur um siðmenn-
ingu Reykvíkinga í kristinni trú,
að guðshúsið dómkirkjan sé ómál-
að er hans hátignkemur? Eg trúi
þó ekki öðru en að málarar fengj-
ust til að gera það; að minsta
kosti á sunnudögum. •
Sagax judcx..
Eftir hvers fyrirlagi var það,
að slegið var á sunnudegi á blett-
inum fyrir neðan aðal mentastofra-
un landsins.
Verzlunin *Hlíf“ á Hverfisgötu
56 A, sfmi 503 selur: Ágætar
kartöflur f sekkjum og lausri vigt,
dósamjólk á i,oo, steikarafeitina
ágætu og leðurskæði. niðurrist.
Alþbl. kostar I kr. á mánuði.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Ólafur Friðriksson
Prentsmiöjan Gutenberg,