Morgunblaðið - 27.07.1966, Side 1

Morgunblaðið - 27.07.1966, Side 1
28 síður U Thant ræðir vii - Sovétleiitoga Moskvu, 26. júlí. NTB—AP U THANT aðalritari Sameinuðu þjóðanna, sem nú er í fjögurra daga heimsókn í Sovétríkjunum í boði stjórnarinnar þar ræddi í dag við Kosygin forsætisráð- herra í 3 klst. Voru helztu um- ræðuefnin styrjöldin í Vietnam, afvopnunarmálin og vandamál Skipuð ný stjórn í Indónesíu undir forsæti Suhartos Adam Malik og Buwono soldán áfram í stjórn IMyndin sýnir líkan af kirkj- ■ unni, sem fékk 1. verðlaun ; í samkeppninni um Laugarás | kirkju. Teikningin er eftir ■ arkitektana Skarphéðinn Jó- Z |j hannesson og Guðmund Kr. ■ !* Guðmundsson. Hlutu þeir 75 : ■ þúsund krónur í verðlaun. ■ Fékk ekki að þvo upp Harstad 26. júlí. — NTB. HOLLENZKUR stúdent var s.l. sunnudag handtekinn af lögregl unni í Narvík er hann ætlaði að fá að greiða fyrir máltíð, sem hann hafði neytt á veitingahúsi þar í borg, með því að þvo upp í eldhúsinu. Hollendingurinn hafði komið inn á virðulegt veitingahús í Narvík og snætt þar dýrindis mál tíð án þess að hafa eyri í vasan- um til að greiða fyrir sig. Hann var fur'ðu lostinn er honum var tilkynnt að slíkt athæfi væri bannað með lögum í Noregi. Skýrði hann lögreglunni frá því, að hann hefði ferðast þannig á „puttunum“ um alla V-Evrópu og ætíð fengið að þvo upp eftir vild. Honum verður haldið í Narvík þar til hann hefur fengið senda peninga að heiman til að greiða beinann með. London, 26. júlí — NTB-AP VIÐ umræður í Neðri málstofu brezka þingsins í dag um van- trauststiilögu íhaldsmanna á stjórn Verkamannaflokksins, réðst Edward Heath foringi stjórnarandstöðunnar harkalega á Wilson, forsætisráðherra, og stjórn hans og sagði hana eiga sök á hinum miklu efnahagsvand Djakarta 26. júlí, NTB-AP. SUHARTO hershöfðingi og helztur ráðamaður í Indónes íu undanfarið tilkynnti í gær á fundi með fréttamönnum að hann myndi veita for- stöðu hinni nýju ríkisstjóm landsins. Hann kvaðst einn- ig myndu fara með embætti vamarmálaráðherra og hafa á hendi yfirstjórn alls her- afla landsins. Fund þennan hélt Suharto tveimur klukkustundum áður en Sukarno Indónesíuforseti, sem áfram verður í orði kveðnu æðstur manna að virðingu í landinu, staðfesti skipun hans og annarra ráðherra í útvarps- ávarpi til þjóðarinnar Suharto verður einnig formað ur fimm manna framkvæmda- ræðum Breta undanfarið. Við upphaf umræðnanna sagði Heath að orsök vandræðanna væri miklu fremur skortur á trausti til stjórnarinnar heldur en að um grundvallar veikleika væri að ræða í efnahagsmálum þjóðarinnar. Gagnrýndi Heath harðlega Framhald á bls. 8 ráðs hinnar nýju ríkisstjórnar, sem telur 29 menn (ríkisstjórn sú er áður sat og laut í flestu boði og banni Sukarnos var skip uð 100 mönnum). Þar af eru fimmtán til kvaddir úr hópi al- mennra borgara en aðra ráð- herra leggur herinn til. Auk Suhartos eiga einungis sæti í hinu nýskipaða fram- kvæmdaráði tveir menn aðrir sem áður sátu í fyrra fram- dul að Sukarno forseti yrði ekki kvæmdaráði Adam Malik utan- ríkisráðherra og Hamengku Buwono soldán. Johannes Leim- ena aðstoðar forsætisráðiherra og ráðherra sá er tók með mál ýmissa stjórnmálasamtaka og stofnana, Rustand Abdulgani, hafa báðir misst sæti sitt í ráð- inu og er kennt um gagnrýni þeirri, sem á þeim hefur bitnað vegna náins samstarfs þeirra við Sukarno. í þeirra stað taka sæti í ráðinu Idham Chali, sem verð- ur félagsmálaráðherra og San- usi Hardjatinata, iðnaðar- og þróunarmálaráðherra. Hann hefur áður gegnt embætti inn- anríkismálaráðherra og er einn framámanna í þjóðernisflokkn- um indónesiska. • Adam Malik utanríkisráðherra fer einnig með innanríkismál, dóms- og upplýsingamál en soldáninn Buwono fer með efna- hagsmál og fjármál ríkisins. Suharto hershöfðingi kvað Sukarno forseta hafa afsalað sér forsætisráðherratitlinum, en sagði að hann yrði áfram æðst- ur fultrúi framkvæmdavaldsins í landinu þó svo hann færi ekki með það nema að litlu einu sjálfur. Sulharto varð einnig tíð- rætt um umboð það er þingið veitti honum og felur honum mikil völd og dró á það enga annað en málamynda-leiðtogi úr því sem komið væri. Mestur munur á hinni nýju ríkisstjórn og þeirri er áður sat er mannfæðin og gera menn sér vonir um að hún verði að sama London, 26. júlí — AP. ARTHUR Bottomley samveldis- málaráðherra Breta skýrffi frá því í Neðri málstofunni í dag að bið yrði á því að brezka stjórnin tæki aftur upp samningaviðræð- ur þær, sem hafnar voru við stjórn Ians Smith í Ródesíu. Sagði Bottomley að brezka stjórnin heí’ði enn ekki yfirveg- að allar hliðar málsins og skil- yrði fyrir endanlegu samkomu- lagi við Ródesíustjórn og kvafjst ætla að nokkur bið yrði á því að samningaviðræður hæfust að nýju. Samveldismálaráðherrann gat þess einnig að Wilson forsætis- ráðherra myndi gefa Neðri mál- stofunni skýrslu um alla mála- vöxtu og árangur af viðræðum áður en þingmenn halda í sumar leyfi Sitt 9. ágúst n.k. og sagði að ekki yrði gengið framhjá þing inu um málalyktir. Aðspurður Evrópu. Að sögn talsmanns S.þ. voru viðræðurnar mjög vinsam- legar. U Thant kom til Moskvu á mánudag, og er þetta í fyrsta skipti sem hann hittir núverandi sovézka valdamenn að máli. Talsmaður S.iþ. neitaði að gefa nánari upplýsingar um viðræð- urnar, og vildi heldur ekki láta neitt uppi um hvort komið hefði fram ný tillaga um friðar- viðræ'ður í Vietnam. U Thant ræddi síðar í dag við , Vasili Kuznetsov varautanríkis- ráðherra Sovétríkjanna um af- stöðu Sovétríkjanna gagnvart S.þ. Sagði Tass fréttastofan að viðræður þeirra hefðu verið mjög einlægar og vinsamlegar. Vestrænir stjórnmálafréttaritar ar í Moskvu eru ekki þeirrar skoðunar að U Thant muni ræða um bandarísku flugmennina sem eru fangar í N-Vietnam, þar sem Ho Chi Minh hefur nú lýst því yfir að þeir verði ekki dregnir fyrir rétt sem stríðsglæpamenn. Álíta fréttamennirnir a'ð U Thant muni ræða fjárhagsvand- ræði S. þ., og einnig er búizt við að Kosygin muni tilkynna U Thant að Sovétstjórnin muni styðja hann til endurkjörs sem aðalritara S.þ. næsta kjörtíma- sagði Bottomley ákveðinn að vísf myndu viðræður aftur upp teknar með stjórnum Bretlands og Ródesíu, á því léki enginn vafi, en hins vegar kæmi ekki til mála að semja vi'ð ólögmæta stjórn Ródesíu og því væru við- ræðurnar enn aðeins óformlegar. „Formlegt samkomulag verður /alíki fyrr en lögmæt stjórn situr að völdum í Ródesíu“, sagði Bottomley. Brezku sjómenn- irnir í hnldi AKUREYRI, 26. júlí — Rann- sókn í máli togaramanna á St. Antronicus er ekki lokið enn. Hafa réttarhöld staðið yfir bæði í gær og í dag. Tveir lögreglu- menn eru á verði við togarann, þar sem hann liggu við bryggju. Fær enginn skipverji að fara í land né neinn óviðkomandi að fara um borð. Fjórir menn af skipshöfninni eru í haldi á lögreglustöðinni þangað til málsrannsókn er lok- ið — Sv. P. IHontgomery Clift látinn New York 26. júlí AP. BANDARÍSKI kvikmynda- leikarinn Montgomery Clift lézt í New York sl. laugardag. Var banamein hans hjarta- bilun. Hann varð 45 ára. mínútur Heimtur úr helju eftir 80 „Lancet44 skýrir frá afreki brezkra lækna • t síðasta hefti hins kunna brezka læknatímarits Lancet er svo frá skýrt, að læknum í Konunglega sjúkrahúsinu í Dundee hafi tekizt að vekja til lifsins mann, er verið hafði látinn í 80 mínútur. Nokkur tí.ni er um liðinn frá því þetta gerðist, og er maður- inn, sem er 39 ára að aldri, nú nær fullfrískur, gegnir sínu starfi og lifir eðlilegu lífi með fjölskyldu sinni. Hið eina, sem hrjáir hann, er dálítil andarteppa öðru hverju, en læknarnir segjast sannfærðir um að hún hverfi. Ekki er skýrt frá nafni mannsins í Lancet og tekið fram, að honum sé sjálfum alls ókunnugt um að hann hafði verið látinn í rúma klukkustund. Hins vegar er upplýst, að hann hafði verið fluttur í sjúkrahúsið með sárs auka fyrir brjósti og nokkrum mínútum eftir að hann var lagður inn, hætti hjarta hans að slá. Læknar hófu þá þegar lífgunartilraunir ýmiss konar og tókst loks að koma honum til lífs aftur með því að nota tæki er nefnist gangráður (pacemaker). Dr. Peter Roberfcsson, fyrsti aðstoðarlæknir sjúkrahússins og einn af fjórum læknum, sem stunduðu manninn, segir svo frá: Við höfðum gefið upp alla von um að bjarga mann inum og kom okkur því mjög á óvart, þegar hjartað tók að slá á ný. Þegar er hjarta sjúk- lingsins hætti að slá, fyrir- skipaði læknirinn, sem var á vakt, að reynt skyldi að koma þvi af stað á ný með hjarta- hnoði. Jafnframt því var dælt súrefni ofan í lungu hans. Framhald á bls. 8 Vantrauststil- laga á Wilson Bið á saitmingavið- ræðum við Ródesíu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.