Morgunblaðið - 27.07.1966, Side 2
2
MORGUNBLAÐID
Miðvikudagur 27 júlí 1966
Jafnað niður 35,3
millj. í Keflavík
Skipsfjórar hæstu einstaklingar
KEFLAVXK, 26. júlí. — Útsvars-
og skattskrá Keflavíkur var lögð
fram í dag. Jafnað var niður í
útsvörum 33.745.100,00 kr. á 1429
einstaklinga og 1.603.000,00 kr. á
42 fyrirtæki eða samt. 35.348.00,-
kr.
Jafnað var niður eftir lögboðn-
um útsvarsstiga og öll útsvör síð-
an læ'kkuð um 10%. Veittur var
fuliur sjómannafrádráttur og
undanþegnar álagningu voru all-
ar bætur Tryggingarstofnunar
ríkisins og hálft tekjuútsvar lagt
á gjaldendur 65—70 ára, en ekk-
ert tekjuútsvar á gjaldendur 70
ára og eldri. Aðstöðugjöld námu
samtals 4.968.000,00 á 76 fyrir-
tæki og 233 einstaklinga.
H æ s t u útsvör einstaklinga
greiða: örn Erlingsson, skiþstjóri
237.700,00, Halldór Brynjólfsson
skipstjóri 196.600,00, Sævar
Brynjólfsson skipstjóri 183.700,00,
Keflavík hf 181.000,00 og Óskar
K. Þórhallsson skipstjóri 106.600,
00.
Hæstu aðstöðugjöld greiða:
Kaupfélag Suðurnesja 491.000,00,
Keflavík hf 247.200,00, Jökull hf
182.400,00.
í fyrra var útsvarsupphæðin
samanlögð 23.706.300,00. Hækkun
þessi stafar bæði af fjölgun
gjaldenda og hærri meðaltekjum
en verið hefur. — hsj.
Norbíirbingur kem■
ur til Norðfjarðar
Raflýsingu vantar á flugvolliinn
Bodson, þingforseti (t.v.) og Hamer ráðuneytisstjóri á fundi með blaðamönnum.
(Ljósm. Ól. K. M.),
Ráðamenn trá Luxem-
bourg í boði Loftleiða
NESKAUPSTAÐ, 26. júlí. — í
dag kom hingað nýjasta flugvél
Flugsýnar, sem hlotið hefur
nafnið Norðfirðingur. í tilefni af
komu flugvélarinnar bauð stjórn
Flugsýnar bæjarstjórn Neskaup-
staðar, stjórn Síldarvinnslunnar,
fréttariturum blaða og nokkrum
öðrum gestum til kaffidrykkju
í Egilsbúð.
Umboðsmaður Flugsýnar hér,
Örn Scheving, bauð gesti vel-
komna. Bæjarstjóri, Bjarni I>órð
arson, þakkaði boðið og bauð
flugvélina og áhöfn hennar vel-
komin til Neskaupstaðar. Síðar
tók Jón Magnússon, formaður
stjórnar flugfélagsins til máls.
Kvað hann þetta vera fjórðu flug
vélina, sem keypt væri til Norð-
fjarðarflugs, síðan Flugsýn hóf
áætlunarfer'ðir til Norðfjarðar.
Síðastur talaði svo Reynir Zoega
bæjarfulltrúi. Mesta vandamál,
sem nú þarf- að glíma við í sam-
bandi við fiug til Norðfjarðar,
sögðu ræðumenn, er að fá flug-
völlinn raflýstan og fá á hann
Askita fer til
Hjalteyrar
RAUFARHÖFN, 26. júlí — í
Jag var sjóréttur hér vegna að-
stoðar, sem síldarbátarnir Há-
varður og Ólafur Friðbertsson
telja sig hafa veitt síldarflutn-
ingaskipinu Askita í storminum
um daginn. Sjópróf vegna manns
ins, sem féll fyrir borð, verða
aftur á móti í Eyjafirði.
Askita er farin til Hjalteyrar
neð síldina, sem á að losa þar.
Einar.
radar og önnur öryggistæki. Einn
ig þarf að reisa á honum flug-
skýli.
í>að er ekki nema eðlilegt að
Norðifrðingum finnist ganga
seint með raflýsingu á völlinn.
Margoft hefur raflýsing átt að
koma, en er því mi'ður ókomin
enn. En úr þessu verður að
bæta. Hingað er flogið hvern dag
vikunnar og á haustin og vet-
urna er flugið næstum eina tæk
ið sem tengir okkur við um-
heiminn, svo mikið er í húfi fyrir
Norðfirðinga að vel sé um flug-
völlinn búið og allt gert til að
tryggja öryggi flugáhafna og
farþega, sem fljúga á Norðfjörð.
>að verður því að vera krafa
okkar áð úr þessu verði bætt
LOKIÐ er álagningu útsvara í
Kópavogi og álagningarskrá
liggur frammi í bæjarskrifstof-
unum í Kópavogi á venjulegum
skrifstofutima. Lögð voru á 2379
einstakiinga tekju og eignaút-
svör 48.791.500 — og aðstöðu-
gjöld kr. 1.281.000 á 266 ein-
staklinga. Útsvör voru lögð á
73 félög, samtals kr. 2.483.600 —
og aðstöðugjöld kr. 2.829.900.-
Lagt var á hreinar tekjur að
frádregnum lögboðnum persónu
frádrætti til útsvars og greiddu
útsvari fyrra árs fyrir áramót.
Þá voru nokkur frávik gerð.
A SUNNUDAGSKVÖLDIÐ fóru
af landi brott tveir málsmetandi
borgarar frá Luxembourg, þeir
Victor Bodson, þingforseti og
Pierre Hamer ráðuneytisstjóri.
I>eir félagar voru hér í viku
heimsókn í boði Loftleiða, ferð-
uðust um landið, flugu til Græn-
lands, ræddu við íslenzka ráða-
menn o. fl.
í>eir félagar ræddu við blaða-
menn á föstudaginn var að Hótel
Loftleiðum og kynntu þar land
sitt og þjóð.
Hr. V. Bodson kvað Luxem-
bourg vera aðeins fertugasta
hluta íslands, en þar byggi hins
vegar stór þjóð í samanburði við
íslenzka, 325 þúsund manns.
Aukningu fólksfjölda kvað hann
vera um 2% á ári og væri þar
Undanþegnar voru bætur sam-
kvæmt almannatryggingarlögun
um og tekjur barna þar sem
þær námu hærri fjárhæð en fjöl
skyldufrádrætti vegna barns-
ins. Tekið var ‘tillit til ástæða,
svo sem sjúkrakostnaður, slysa,
eignartjóns o.fl., svo og upp-
eldis og menningarkostnaðar
barna eldri en 16 ára. Felld
voru niður útsvör gjaldenda 70
ára og eldri allt að 15000 kr.
Og varasjóðstillög og töp fyrra
árs voru leyfð til frádráttar hjá
atvinnurekendum að % hluta.
Hæstu aðstöðugjöld og útsvör
SKRIFSTOFA borgarstjórans
í Reykjavík vekur athygli al-
mennings og þeirra, sem fást við
sölu og kaup fasteigna, á eftir-
farandi samþykkt, sem gerð var
í borgarstjórn Reykjavíkur 16.
júní sl.
„Með því að borgarstjórninni
er Ijós nauðsyn þess að hindra
svo sem unnt er sölubrask með
leigulóðir borgarinnar og byrjuð
eða hálfgerð mannvirki á þeim,
ályktar hún að borgarráði sé
heimilt að afturkalla lóðarút-
hlutun á hvaða byggingarstigi
sem er gegn greiðslu fyrir mann-
um töluverðan innflutning er-
lends vinnukrafts að ræða.
Luxembourgarar eru að stofni
til bændastéttar, en á síðari tím-
um hefur iðnaður þróazt þar
mjög og er nú svo komið að hann
er nú orðinn aðalatvinnuvegur
landsmanna. Fyrrum voru býli
smá og mörg, en stefnan síðustu
ár hefur verið sú að bændur
hafa leitað í þéttbýlið, býlin hafa
stækkað um leið og þeim hefur
fækkað. Nú er fjöldi bænda í
Luxembourg um 12% af íbúatölu
landsins. Stálframleiðsla lands-
manna, sem er mikilvægasta iðn-
aðargreinin er um 4 milljónir
tonna á ári.
Luxembourg hefur frá alda
öðli verið landfræðileg eind.
Þegar á kortum frá 15. og 16. öld
fyrirtækja greiða Byggingarr
vöruverzlun Kópavogs 308.300
og 549.500, Málning hf. 259.300-
og 566.600, Rörsteypan 59.20-
og 339.200, Ora Kjöt og Rengi
hf. 191.900- og 99.400,- og Blikk-
smiðjan Vogur hf. 95.800,- og
166.200.
Hæstu útsvör einstaklinga:
Halldór Laxdal 214.600.-, Birg-
ir Erlendsson 194.200.-, Páll
Jónsson 189.600.-, Jón Pálsson
157.400.-, og Kristján Isaksson
145.700, - Hæstu aðstöðugjöld ein
staklinga hafa Friðþjófur Þor-
steinsson 114.700.-, Kristinn Bene
diktsson 45.800.-, Páll Jónsson
40.000.-, Geir Gunnlaugsson
35.700. -, Sigurður Sigurbjörns-
virki samkvæmt mati. >á verði
lóðarhöfum jafnframt gert það
ljóst, að þeir megi búast við því
að hafa fyrirgert rétti sínum til
lóðarúthlutunar hjá borginni í
framtíðinni, ef þeir selja lóðar-
réttindin eða bjóða þau til kaups.
Borgarstjórn varar jafnframt
borgarbúa við því að kaupa slík-
ar lóðir á almennum markaði,
þar sem þeir megi við þvi búast,
að úthlutun verði afturkölluð,
og þeir þannig orðið fyrir tjóoni.
Borgarstjóm felur lóðanefnd
að fylgjast með því, hvort lóðir
séu boðnar til kaups eða seldar“.
(Frá skrifstofu borgarstjóra).
má sjá það milli Frakklands og
Belgíu. Landið fær sjálfstæði ár-
ið 1815 eftir Jena-samningana að
öðru leyti en því, að þeir urðu
að hafa sameiginlegar varnir
með Frökkum. Árið 1867 slitnaði
það samband og landið tók upp
hlutleysisstefnu, sem Þjóðverjar
síðan brutu árið 1914, er stríðið
brauzt út. Sjálfstæðið endur-
heimtu þeir síðan er stríðinu
lauk, en í síðara stríðinu flýði
ríkisstjórnin og sat í útlegð fyrst
í Frakklandi og síðan í Englandi
öll stríðsárin.
Efnahagur landsins stendur á
traustum grunni. Verðbólga má
heita þar óþekkt, er aðeins 2%
á ári eða mjög eðlileg. Verkföll
hafa ekki verið háð í Luxem-
bourg síðan árið 192ll utan einu
sinni er Þjóðverjarnir ætluðu að
neyða íbúana til herþjónustu.
Bodson gat um það hve ánægju
leg sarriskipti íslands og Luxem-
bourgar hefðu verið á undan-
förnum árum. Árið 1952 hafi
Agnar Koefod-Hansen komið til
Luxembourg og þeir gert samn-
ing um loftferðaviðskipti þjóð-
anna. Hann kvað flugvöllinn í
heimalandi sínu vera með beztu
flugvöllum Evrópu. Væri hanrv
á háum fjallstindi og að meðál-
tali væri hann lokaður flugum-
ferð 3—4 sólarhringa á ári í
nóvember vegna þoku. Kvaðst
hann vona að áframhaldandi
samstarf yrði milli landanna í
framtíðinni báðum þjóðum til
góðs.
>á gat Sigurður Magnússon,
fulltrúi hjá Loftleiðum þess í
fundarlok að Loftleiðir ætluðu
nú að bjóða farþegum sínum
sólarhringsdvöl í Luxembourg
fyrir 16 dollara gjald. Hefur fé-
lagið að þessu tilefni gefið út
auglýsingapésa um þetta.
Horf ði á sólarlag-
ið o" týndi poka
ÚTLBNDUR maður hjólaði í
gærkvöldi vestur á Seltjarnar-
nes að horfa á sólarlagið. Fór
hann vestur fyrir Bakkatjörn.
Þegar hann var á leið í bæinn
aftur tók hann eftir að hann
hafði tapað pæka, sem hann var
með. Hann er svartur og dreginn
saman í opið með streng. í hon
um var Voigtlander myndavél,
handklæði og regnslag og dós
með viðgerðardóti fyrir reiðhjól
ið. Sneri maðurinn við, en fann
ekki pokann. Biður lögreglan þá
sem kynnu að hafa fundið pok-
ann, um að skila honum á lög-
reglustöðina.
allt land. Fór að rigna Hitinn i New York var 20-
snemma dags á Vesturlandi, 25 stig og þar var varla ský á
en annars staðar var bjart himni í morgunsárið.
og norðan áttin að fullu geng
sem fyrst.
Ásgeir.
Álögö útsvör í Kópavogi 51,3 millj.
Gjaldendur 2379 og 73 félog
son 32.000.-
Lóðahaiar varaðir við
að selja lóðarétt sinn