Morgunblaðið - 27.07.1966, Page 8

Morgunblaðið - 27.07.1966, Page 8
8 MORCUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 27. júlí 1966 l)ng blómarós frá Skaga- sfrönd 9Blómadrottning6 1 ' Hveragerðt, 25. júli: — HINN ÁHLEGI blómadansleik- ur Kvenfélags Hveragerðis fór fram sL laugardag að Hótel Hveragerði, fessir blómadans- leikir hafa verið haldnir mörg undanfarin ár og rennur allur ágóði af þeim fil styrktar starf- semi kvenfélagsins. Mikill mann fjöldi var á þessum dansleik, og skemmtu menn sér hið bezta. ISTIITTU MUI t ) Gromyko í Tók íó. t Tókíó, 25. júlí — (NTB) — / Andrei Gromyko, utanrik- J isráðherra Sovétríkjanna, er 1 kominn í sjö daga heimsókn i til Japan. Ræddi hann í dag í við Etsusaburo Shiina, utan- ; ríkisráðherra, og urðu þeir \ ásáttir um að efla efnahags- \ samvinnu ríkjanna. Ekki náð l ist neitt samkomulag varð- ’ andi kröfur Japana um að \ fá aftur fjórar eyjar, sem Sov étrikin lögðu undir sig í lok síðari heimsstyrjaldarinnar árið 1945. Gengi pundsins. London, 25. júlí — (AP) — Sterlingspundið hækkaði nokkuð á gjaldeyrismarkaðn um í London árdegis á mánu- dag, og komst gengið upp í 2,79 5/32 dollara. En það er 1/16 úr bandarísku centi hærra en fyrir helgi. Ekki tókst þó að halda þessari kækkun nema stutta stund. NATO-fundur. París, 25. júlí — (AP) Varnarmálaráðherrar At- lantshafsbandalagsins sitja nú ráðstefnu í París og ræða skipulagsmál samtakanna og áætlanir fyrir næstu fimm ____________ BOGOTÁ, Kolombíu — Tvær öflugar sprengingar ur*ðu í Bo- gotá í gær og urðu af mikil spjöll, en engan mann sakaði. Varð önn- ur sprengingin í bandarísku ræðis mannsskrifstofunni í borginni, en hin í herskála einum. KALKÚTTA, Indlandi — Tígrisdýr hafa banað 46 manns það sem af er þessu ári í óshólm- u*m Ganges, að því er skýrt var frá í Kalkútta í dag. Fjöldi veiði- manna leitar dýranna en hefur akki haf.t erindi sem erfiði. Að venju fór fram kosning um blómadrottningu 1966, og sýndu gestir kosningunum mikinn á- huga. Stúikurnar, sem þátt tóku í keppninni voru alls fimm tals ins, þær Jóna Hallbjörnsdóttir, Rósa Helgadóttir, Hafdís J. Lauf dal, Auður Guðmundsdóttir og Hrefna Þorbjörnsdóttir frá Skaga strönd og varð hin síðastnefnda hlutskörpust. Krýndi blóma- drottningin frá því í fyrra, Ásrún Auðbergsdóttir, hina nýju blóma drottningu. Húsið var fagurlega skreytt blómum, eins og vanalega á þess um dansleikjum. Gáfu garðyrkju menn blómin, en kvenfélagskon ur sáu úm skreytingar á sviði og sal. — Georg. — Vantraust Framh. af bls. 1 efnahagsaðgerðir stjórnarinnar og sagði að úrræðaleysi væri hin raunverulega orsök efnahags vandræðanna., Ekki er lengra síðan en í gær, að 50 þingmenn Verkamanna- flokksins risu gegn Wilson og komu með aðra tillögu um lausn á efnahagsmálunum. Þingmenn þessir teljast til róttækari arms Verkamannaflokksins og hafa þeir eindregið lagzt gegn bind- ingu launa og verðlags. Telja þeir að hætta sé á að tala at- vinnulausra manna í Bretlandi muni við þessar aðgerðir hækka upp í 250 þúsund, eða jafnvel upp í hálfa milljón. í varnarræðu sagði Callaghan efnahagsmálaráðherra, að síð- ustu aðgerðir stjómarinnar myndu koma jafnvægi á utanrík- isviðskipti Bretlands og leiða til hagstæðs greiðslujafnaðar árið 1967. Hann sagði að orsök efnahags vandræðanna væri að finna í hækkuðu verði á innfluttum vör- um og minni framleiðslu í Bret- landi, sem mætti rekja til þess að fyrsta skrefið hefur nú ver- ið stigið í áttina að 40 stunda vinnuviku. Stjórnmálafréttaritarar í Bret landi telja að brezka verkalýðs- sambandið (TUC) muni styðja aðgerðir Wilsons um bindingu launa og verðlags í 6 mánuði. Átti efnahagsnefnd TUC að taka ákvörðun um málið í kvöld og var búizt við að hún yrði stjórn inni í vil. — Dáinn i 80 min. Framhald af bls. 1 Lífgunartilraunirnar virtust setla að verða algerlega ár- angurslausar, og dauðamerki tóku að sjást á manninum, sjáöldrin víkkuðu og augun stirðnuðu. Þegar lífgunartil- raununum hafði verið haldið áfram í 45 mínútur, án árang- urs, ákváðu læknarnir að gefa sjúklingnum raflost. En einn- ig það reyndist árangurslaust. Loks 75 mínútum eftir að hjarta mannsins hætti að slá, var ákveðið að gera síðustu tilraun með því að nota gang- ráð-raftæki, sem gefur hjart- anu taktbundin slög) og eftir u.þ.b. fimm mínútur tók hjartað viðbragð. Það sló afar hægt í fyrstu en æ hraðar unz eðlilegum hjartaslætti var náð. Maðurinn, sem farið hafði inn í eilífðina fyrir 80 mínútum, var úr helju heimt- ur, — hresstist von rbáðar og er nú löngu útskrifaður af sjúkrahúsinu og tekinn til við sína atvinnu. Hann sér fyrir konu sinni og börnum eins og áður og kennir sér einskis meins utan óþægilegrar andar teppu öðru hverju, sem lækn arnir segja þó að hann losni við áður en langt um líður. Sjálfur hefur þessi maður ekki hugmynd um að hann hafi verið dáinn í 80 mínútur af æfi sinni. Hrifinn af þróunar- baráttu islendinga Framkvæmdastjóri FAO á blaðamaitnafundi í Khöfn Kaupmannahöfn, 25. júlí. Einkaskeyti frá Rytgaard. Dr. Zen, a’ðalframkvæmda- stjóri Matvæla- og landbúnaðar- — Indonesia Framhald af bls. 1 skapi vinnuhæfari og fram- kvæmdasamari Hin nýja stjóm mun vinna embættiseiða sína að morgni fimmtudags n.k. í forsetahöll- inni. Stjórnmálafréttaritarar í Djakarta segja að hin nýja ríkisstjórn verði að hraða eftir megni að binda enda á hinar þriggja ára gömlu deilur við Malasyu. Fjárihagur Indónesa sé mjög slæmur og ekki hægt að búast við að erlendir aðilar hefji fjárfestingu í landinu íyrr en deilurnar hafi verið útkljáðar. stofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO) kom síðdegis í dag til Kaupmannahafnar úr nokk- urra daga heimsókn til íslands. Fer hann á morgun áleiðis til Grænlands, þar sem hann kynn- ir sér ýms vandamál fiskiðnaðar- ins. Framkvæmdastjórinn ræ<}di í dag við fréttamenn í upplýsinga- skrifstofu SÞ, en forstöðumaður hennar er íslendingurinn ívar Guðmundsson. Lýsti dr. Zen þar aðdáun sinni á íslandi, þar sem hann sagði að smáþjóð hafi bar- izt hetjulegri sigurríkri þróunar- baráttu gegn náttúruöflunum. Dr. Zen sagði að íþróunin í matvælaframleiðslu landbúnað- AÐALFUNDUR Samb. Yest- firzkra kvenna var haldinn á i tsafirði dagana 23. og 24. júlí. | í sambandinu eru 14 kven- ! félög á Yestfjörðum og sóttu '■ fundinn 30 fulltrúar frá þeim. | Voru rædd ýmis hagsmunamái | kvenna. 1 Kvenfélögin á ísafirði, Htíf t og Ósk, stóðu fyrir aðalfund- £ inum og móttöku fulltrúanna. /j Þeir bjuggu í húsmæðraskól- 1 anum og þar voru fundir V haldnir. Er þessi mynd tekin £ af konunum á tröppum Hús- í mæðraskólans. í fremstu röð 1 eru m. a. þrjár konur úr I stjórn. Formaður er Ingibjörg k! Guðmundsdóttir frá Hnifsdal. j arins, sem í Danmörku hafi tekið 90 ár, hafi orðið örari á fslandi. Þar hafi á ýmsan hátt verið hlaupið yfir „járnibrauta- aldurinn", og farið beint af hest- baki yfir í flugvélarnar. Vanþróuðu löndin eiga eftir þetta þróunartímabil. En þau geta notfært sér þá reynslu, sem fengizt hefur á löngum tíma i Danmörku, og á styttri tima á íslandi, svo framfarirnar verði enn örari. En dr. Zen varaði þó við því að of ör þróun gæti leitt til margvíslegra erfiðleika. Norrænu lélögin halda mót í Færeyjum Mæsta takmark er Grænland Tun Abdul Razak, varaíorsæt isráðherra Malasyu sagði í Kuaia Lumpur í gær, að hann vænti þess að Indónesar staðfesti hið bráðasta Bankoksamkomuiagið, sem Indónesar og Malasíumenn gerðu með sér fyrir skömmu. Hingað til hefur Súkarnó Ind- ónesíuforseti beitt sér gegn stað festingunni. Auk þessa máls fær hin nýja stjóm mörg vandamál við að stríða innanlands. Fátækt er mikil í landinu en auður hefur safnast á tiltölulega lítil svæði. Einnig mun stjórnin halda áfram baráttunni gegn kommúnistum og stuðningsmönnum þeirra. DAGANA 4.-7. júlí héldu sam tök norrænu félaganna fyrsta mót sitt í Færeyjum, en norrænu félagið þar hlaut í fyrra upp- töku í samtök félaganna. Við setningu mótsins tóku til máls af hálfu norræna félagsins í Dan- mörku ritari mótsins, frú Stella Kornerup, Birkeröd, og aðalrit- ari samtakanna Franz Wendt. í ræðu sinni lýsti frú Kornerup því yfir, að næsta takmark sam- takanna væri stofnun norræns félags í Grænlandi, þegar Græn lendingar æsktu þess sjálfir. Á dagskránni voru m.a. fyrir- lestrar, skemmtiferðir guðsþjón ustur og opinberar samkomur, þá voru í lok mótsins haldnir stjórnarfundir og vinarbæjar- mót, en Birkeröd er vinarbær Þórshafnar í Danmörku. Mót þetta fór sérstaklega vel fram og voru gestir kvaddir í hófi miklu, sem haldið var í hátíðasal menntaskólans. Veizlan hófst með borðhaldi og er sú stærsta sinnar tegundar, sem haldin hefur verið í Færeyjum til þessa. Sátu hana alls 450 manns. Þar var skipst á ræð- um og margs kyns skemmtiat- riðum. Með móti þessu hafa Færeyingar sýnt, að þeir eru góðir og gildir meðlimir samtaka norrænu félaganna. Vörullutniibgabifreiðir fara illa með vegi ÞVÍ hefur oft verið haldið fram hér, að hinar stóru vöru- flutningabifreiðar, sem flytja vörur landshornanna á milli, fari mjög illa með vegi, sérstaklega þegar votviðarsöm tíð er. Mbl. sneri sér í gær til Sigurð- ar Jóhannssonar, Vegamálastjóra varðandi þetta mál, og fékk þau svör, að það væri staðreynd að þessar bifreiðar færu hörmulega með vegina. Sigurður sagði að bifeiðir þessar væru venjulega ofhlaðnar, og með meiri öxul- þunga, en þekktist annars staðar. Þær gætu ennfremur hæglega valdið stórslysum, þar sem þær væru það þungar, að þær gætu mölvað veikbyggðustu brýrnar, án þess þó að þær hryndu. En á himn bóginn gætu þær hrunið, er næsta bifreið færi yfir þær, og það gæti haft hinar alvarleg- »stu afleiðingar A T H U G I Ð ei langtum ódýrara að auglýsa í Morgunblaðinu en öðrum Þegar miðað er við útbreiðslu, blöðum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.