Morgunblaðið - 27.07.1966, Qupperneq 13
Miðvikudagur 27. Júíf 1906
MORGU NBLAÐIÐ
13
Helma
MSnning
F. 7. maí 1925 — ». 19. júlí 1966.
ÞEIR sem guðirnir elska, deyja
ungir.
Á sólfögrum vordegi í Hólm-
inum bar fundum okkar fyrst
saman. Ég man alltaf hve star-
sýnt mér var á þig, það var svo
mikil birta og vorljómi í för með
þér og ég held að sá ljómi hafi
aldrei yfirgefið þig. Frá bví við
fyrst hittumst hélzt vinátta okk-
ar alltaf fersk og ný. Tryggð þín
var órjúfanleg. Ég man að sum-
arið var allt fram undan og vio
sumarið er svo margt bundið,
sem fegurst er í lífinu. Þá er
svo margt sem heiHar. Leiðirnar
skildi. Þú lagðir leið þína á
Suðurnesin. Mér fannst alltaf
eins og þú ættir þar aldrei
Iheima og ég man alltaf effir
gleðinni og glampanum i auga
þínu þegar þú á ný leizt Breiða-
fjörðinn í sínu fegursta skarti.
Þá varstu sannarlega komin
heim. Ég held að ást þín á eyj-
uni þinni, þar sem þú áttir svo
marga fagra og góða æskustund
hafi aldrei dvínað. Hún var
al'ltaf í þínum huga sú paradís
sem þú gast flúið til á erfiðum
stundum. Allt sem var hrjáð og
hrakið fann náð fyrir augum
þínum sem voru svo fundvís á
úrbætur. Nei, vissulega máttir
þú ekkert aumt sjá. Þú fannst
jafnvel til með litlu blómi sem
varð úti í vornæðingnum og
eins var með mannssálirnar sem
kaldur klaki hversdagslífsins
hafði snert. Þú áttir bros sem
gat allan ís brætt.
Og nú hefur leiðir skilið í
bili, já í bili, því trúin segir:
Helög höndin hnýtir aftur slit-
inn þráð. Það er víst og satt,
annars væri enginn tilgangur
með lífinu. Til hinztu stundar
varstu sterk og heil. Þú þekkir
ekki hvað var að æðrast. Þú
stóðst heldur ekki ein. Guð alls
hins góða bjó í hug þínum og
hjarta og trúin á hann er nú
þinn vegvísir að hans náðarstóli.
Trúrra þjóna laun bíða þín nú.
Því trúi ég hiklaust.
Jónsd.
Ég vil með þesum fáu línum
þakka þér alla tryggðina, vin-
semdina ,og brosin þin björtu.
Það allt skal geymt í safni minn
ingana. Börnum þinum og
manni sendi ég hlýjar samúðar-
kveðjur. Góður guð blessi þig
og launi þér.
Á. II.
t
HELMA dáin!
Mig setti hljóða þegar mér
barst fregnin um andlát þessarar
góðu konu sem ég hafði kynnzt
fyrir 9 árum í Keflavík.
Þótt ég hafi um langann tima
vitað að hverju stefndi, kom
mér þessi fregn á óvart eins og
alltaf þegar dauðann ber að
garði.
Það var oft margt um mann-
inn á heimili hennar enda var
hún sérstaklega gestrisin og
vildi öllum vel.
Manni sínum Georg Selby og
börnunum Richard 17 ára, Berg-
þóru 13 ára og Margrete 10 ára,
hafði hún búið gott heimili og
helgaði þeim alla sína krafta til
hinztu stundar.
Hér ég sit og hugur drúpir
húmjð fer um veg,
lífs í blóma er brostinn strengur
• blið og elskuleg
vina kær sem var mér styrkur
vönduð trygg og hlý,
er nú horfin hér úr veröld.
Hugann byrgja ský.
Spurning vaknar: Vegna hvers
er vegum þannig skipt?
Hversvegna er á æviþráðinn
svo oft í blóma klippt.
Tæpt er allt í timans straumi.
Trúin gefur svar:
þar við fáum lífs að líta
ljósið eilífðar.
Minningar á hugann herja
hjarta orna vel.
Handtak þitt og brosið bjarta
bugar ekki hel.
Þú varst sterk og heil í hildi
á hverju sem að gekk.
Hjá þér oft á yndisstúndum
afl og kjark ég fékk.
Þakka ég allt að leiðarlokum.
Ljóst er hvað er misst.
Trúi að síðar glaðar getum
guðs 4ranni hitzt.
Bros þitt s.kært og birta trúar
bugar ekkert hel.
Heil og sterk á himinleiðum.
Helma, farðu vel.
Manni þínum og börnum sendi
ég mínar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Guð blessi minningu þína,
kæra vinkona.
Kristrún Helgadóttir.
Hljótt er í heima ranni
horfin er góð móðir.
Skjótt skipast í lofti,
skúr eftir dag prúðan.
Manni er mein búið
máttugt. En dapur þáttur
dauðans, hann dag styttir
djarfur í leik, en bleikur.
Minningar munu lifa.
Mér voru ljúf kynni
Geymi ég hljóð í huga
harm á votum hvarmi.
Þökk fyrir liðnar leiðir
og lán, að ég fékk að kynnast
drenglund þinni og djörfung.
Dagana þakka lalla.
Þín vinkona
Kristín Jakobsdóttir.
the 'elegant’
DE L’JXE
leisure
Siii
%
Sólstólar
Margar gerðir nýkomnar.
- Ódýrir -
Ceysir
M.
í FERÐALAG ARSINS
Filmur — Sólgleraugu — Sólolía —
Rafhlöður í ferðatæki.
Ferðasælgæti í úrvali —
Hvergi meira úrval. — Ávextir í úrvali.
Verzlunin Þöll
Veltusundi 3.
(Gegnt Hótel íslands bifreiðastæðinu).
hvertsem þer farið/hvenærsem þertarið
hvemig sem þér ferðist iBSb ,.f) *
^ feröaslysatnfBiiing
OLIVETTI
14 slög á sekúndu
S síritandi lyklar
46 lykla leturborð
29 cm skriflína — tekur
víxileyðublað og tollskýrslu
2 Ieturgerðir fyrirliggjandi
Möguleiki á 4 að auki.
HIN NÝJA GLÆSILEGA RAFRITVÉL - SAMEINAR YFIRBURÐA-
GÆÐI, STYRKLEIKA OG STÍLFEGURÐ -
VERÐ AÐEINS KR. 13.860 m.s.sk. -
FULLKOMIN V ARAHLUT A OG VIÐGERÐARÞJÓNUSTA
G. Helgason 6l Melsted hf.
Rauðarárstíg 1. — Sími 11644.