Morgunblaðið - 27.07.1966, Page 15

Morgunblaðið - 27.07.1966, Page 15
UHðvikadagur 27. júlí 1966 MORGUNBLAÐIÐ 15 Sérfræðingar segja að svo sé, en eigandinn þverneitar Rafael? Að manni sínum látnum, á- kvað frúin að láta sérfræðing þaulrannsaka málverkið og fékk til þess verks Jac. A. Bulters. Við rannsóknir sínar hefur Bulters mjög stuðzt við bók danska prófessorsins Vilhelms Wanschers „Raphaello Santi da Urbino — líf hans og list“ sem út kom árið 1919. í bók þess- ari greinir frá málverkinu og segir þar m.a.: „Lítið málverk af Hieronymusi að gjöra yfir- bót var um 1530 í eign læknis nokkurs í Padova" (Padúa). Málverkið umdeilda ber upp- hafsstafina „R.S.“ (en fullt nafn listamannsins var Rapha- ello Santis eins og áður sagði) og málverk það sem segir frá í bók prófessorsins hefur verið glatað síðan 1530. Hin nákvæma rannsókn Bulters á þessu litla málverki sýnir á skemmtilegan hátt hvernig starf listfræðings get- ur stundum líkst starfi leyni- lögreglumannsins, sem þræðir mjóan veg sanninda og líkinda í leit að lausn gátunnar sem hann fæst við hverju sinni. For- sendur fyrir niðurstöðum Bulters eru sagðar mjög senni- legar og honum hefur tekizt að Norrœnt tónlistarmót œskufólks í Lundi ísraelskur myndhöggvari, Habbad að nafni, búsett- ? ur í Bagdad, hefur til þessa verið kunnastur af stórgerðum höggmyndum, hrjúfum listaverkum unn- um úr málmi. En honum er fleira til lista lagt og meðal annars sem vakti athygli manna og nokkra skemmtan á sýningu er Habbad hélt í París nýverið, voru þessir fjórir silfurgafflar ,sem listamaðurinn i hefur farið um höndum á heldur óvenjulegan máta. i Málverkið góða af heilögum Hieronymusi. sannfæra sérfræðinga um að hér sé raunverulega um að ræða mynd eftir Rafael. Þess er ekki kostur, að rekja hér lið fyrir lið greinargerð Bulters varðandi rannsóknir hans á málverkinu af Hieronymusi, en þar bendir hann m a. á litasamsetningu myndarinnar og uppbyggingu og leiðir að því sterkar líkur að myndin sé gerð i byrjun 16. aldar. Nú er myndin góða metin á 30 til 60 milijónir ísl. króna og listaverksalar gera í hana til- boð hver um annan þveran — en hin aldna frú Lundeby sit- ur við sinn keip og kveðst viss um að hér sé aðeins um eftir- mynd að ræða. LISTFRÆÐINGUR nokkur í Noregi hefur í eitt og hálft ár rannsakað málverk, sem er í eigu norskrar ekkju, og komizt að þeirri niðurstöðu, að hér sé um að ræða mál- verk eftir Rafael frá árinu 1530. Svo undarlega bregður þó við, að eigandi málverks- ins neitar að trúa niðurstöðu listfræðingsins. Listfræðingurinn, sem er hollenzkættaður, Jac. A. Bult- ers að nafni, hefur lagt niður- stöður rannsókna sinna fyrir Rafael-sérfræðinga Vatikans- safnsins, prófessorana di Campo og di Fredrici, og málverkið með, og telja þeir þær réttar. Þrátt fyrir þessar ákveðnu skoðanir sérfræðinganna, sagði eigandi myndarinnar, frú Ruth Lundeby. sem býr í Lillehamm- er, að hún teldi enn, að hér væri um eftirmynd að ræða. Gamla konan, sem er ekkja listmálar- ans Alf Lundeby, er lézt árið 1961, á 91. aldursári, sagði eft- ir að hafa kynnt sér þessar nið urstöður sérfræðinganna, að sér fyndist ástæðulaust, að slá (því þannig opinberlega föstu, að hún ætti mynd eftir Rafael. Aðspurð, hvort hún ætlaði að selja málverkið, svaraði hún hlæjandi: „Björninn er ekki unninn enn, og því nokkuð snemmt að selja af honum feldinn.“ Á skömmum tíma hefur at- hygli allra beinzt að gcknlu konunni og málverkinu hennar en hún berst gegn því af al- efli, að þetta komi umróti á vanabundið líf sitt. - Málverkið sýnir heilagan (Hieronymus, þar sem hann krýpur á kné inni í helli fyrir framan opna Biblíu og Krists- mynd, í forgrunni liggur ljón Eigandi málverksins, frú Lundeby, sem harðneitar að það sé eftir Rafael sjálfan og segir það aðeins eftirmynd. Rómuð frammistaða íslenzks fiðluleikara en í bakgrunni ber kirkju við himinn. Myndin er máluð á kopar og stærð hennar er að- eins 25,5 x 19 cm. Árið 1896, er Alf Lundeby og kona hans voru yngri að árum, sóttu þau Rómaborg heim. Þar fundu þau m.a. annars á skran markaði einum málverkið góða og Alf Lundeby keypti það handa konu sinni fyrir 72 krón ur ísl. Frá þeim tíma hefur málverkið hangið í íbúð list- málarans í Lillehammer, og glatt augu allra, sem sáu það, en enginn gerði sér grein fyrir þvi, að þarna væri ómetanlegt listaverk eftir sjálfan Rafaei. Um miðjan júnímánuð sl. kom saman í háskólabæn- um Lundi í Svíþjóð hópur ungra tónlistariðkenda frá Norðurlöndum. Tilefnið var árlegt tónleikahald „Nord- iska ungdomsorkestern“ eða norrænu æskulýðshljóm- sveitarinnar, sem sett hefur svip sinn á þennan forn- fræga háskólabæ Svía í sex tán sumur. Töluvert hefur verið skrifað um norrænu æskulýðshljóm- sveitina í sænsk blöð, enda að vonum og þykir frammi- staða þátttakenda betri í ár en nokkru sinni fyrri Sex íslendingar tóku þátt í þessari tónlistarhátíð í Lundi þenn- an mánuð sem hún stóð yfir. Meðal þeirra Var Rut Ingólfs- dóttir, íslenzkur fiðluleikari sem stundaði nám í Malmö sl. vetur og átti því stutt að sækja til Lundar. Rut lék einleik á nokkrum tónleikum hljómsv. og þótti takast frábærlega vel. Eftir síðustu tónleikana, sem haldnir voru sunnudaginn 10. júlí fóru fram styrkveitingar til þátttakenda í verðlauna- skyni og hlaut Rut einn styrkj anna, en fé til þeirra lögðu fram Norræna-félagið í Lundi og Lionsklúbburinn þar. Eins og áður sagði, lék Rut Ingólfsdóttir einleik á fiðlu á nokkrum tónleikanna og voru blaðadómar um leik hennar mjög lofsamlegir. Meðal annars lék hún „Introduction“ og „Rondo capriccioso“ eftir Camille Saint-Saéns af ná- kvæmri tilfinningu og jafn- Rut Ingólfsdóttir. vægi. Maður hlaut að hrífast af túlkun hennar og valdi á við- fangsefninu", sagði einn gagn- rýnandinn. Á öðrum tdnleikum lék hún verk eftir Eugeune Ys- aye, sónötu nr. 3 fyrir einlks- fiðlu og um hana sagði Walde- mar Welander í gagnrýni sinni á tónleikunum að þar hefði hann heyyt bezt leikið á fiðlu á öllum tónleikum norrænu æskulýðshljómsveitarinnar til þessa, leikur hennar hefði ver ið kunnáttusamlegur og músi- kalskur og einkum ehfði það verið áfcerandi. hversu fullkom ið vald hún hefði á öllum tví- gripum. Af öðrum íslendingum sem þátt tóku í starfi norrænu æskulýðshljómsveitarinnar í Stuölar - strik - strengir Lundi í ár má nefna yngri systur Rutar, Unni Maríu, 15 ára gamla, sem líka hefur kjör ið sér fiðluna og fékk góða dóma fyrir frammistöðu sína og Hafstein Guðmundsson sem lék á fagott og þótti einn- ig vel takast. Af öðrum íslend- ingum er þarna voru höfum við ekki fregnir úr blöðum þaðan, en þar voru auk ofan- greindra, Sigurður Jónsson, Unnur Sveinbjarnardóttir og Þórunn Stefánsdóttir og léku öll á fiðlú. Þátttakendur í norrænu æskulýðshljómsveitinni hafa ærinn starfa þennan mánuð sem þau dveljast í Lundi því æfingar standa yfir mest- an hluta dags og svo eru sjálfir tónleikarnir tvisvar í viku og jafnvel oftar. Stund- um er líka tilsögn eða kennsla milli æfinga og fátt frístunda. En það sýtir enginn, því það er ekki á hverjum degi sem kornungir tónlistariðkendur — yngsti þátttakandinn er að- eins fjórtán ára, sænsk stúlka og leikur á fiðlu og tók einnig þátt í norrænu æskulýðshljóm sveitinni í fyrra — fá tæki- Framhald á bls. 21 Vel mælt Guð metur ekki bænir manna eftir því hvaða trú- flokki þeir tilhe.yra. Dr. Wolfgang Trillhaas, guðfræðiprófessor við háskól- ann í Göttingen. Hinn raunsæi maður leitar í sífellu þó leynt fari ævintýr- anna sem áður voru og alls þess sem ber svip af þeim. Eugene Ionescu, rúmenskur leikritahöfundur, búsettur í París. Er málverkið eftir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.