Morgunblaðið - 27.07.1966, Page 16

Morgunblaðið - 27.07.1966, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 27. júlí 1968 Jón Matthiesen kaupm. 65 ára EINN þekktasti borgari Hafnar- fjarðar, Jón Mathiesen, kaupmað ur, er 65 ára í dag. Jón er sonur frú Arnfríðar Jósefsdóttur og Matthíasar Á. Mathiesen kaupmanns og sicó- smíðameistara, fyrst í Reykja- vík, en síðar í Hafnarfirði. Ekki verður ætt Jóns né uppruni nán ar rakið hér, enda þessi orð sem hér birtast aðeins hamingjuósk- ir Jóni til handa frá mér, konu minni og börnum. Jón Mathiesen er um margan hátt sérstæður persónuleiki. Stór og mikill að vallarsýn, hrókui fagnaðar ef því er að skipta, hrjúfur, en þó svo bljúgur og hlýr, að fáa þekki ég slíka, enda hjarta hans stórt í þess orðs beztu merkingu. Félagslyndur er J'ón Mathiesen og hefir víða komið við í félagslífi Hafnfirð- inga og einnig í margskonar landssamtökum og allsstaðar munað um starfskrafta han3 og fórnfýsi. Engar upptalningar skulu þó tilfærðar hér á marg- háttuðu félagsmálastarfi, enda er Jón svo þekktur af þessum erilsömu störfum, að þess gerist ekki þörf að tiunda slíkt. Lífsstarf sitt hefir Jón unnið við búðarborðið og þar stendur hann enn og deilir geði við við- skiptavini sína. Er verzlun hans nú rúmlega 40 ára gömul. Stofn sett 1922. Þeim er þetta ritar er Jón Mathiesen þó minnisstæðastur af heimilislífi sínu og hans mik- ilhæfu konu frú Jakobínu. Og þegar til heimilis þeirra Mathiesen hjóna er hugsað kem- ur í hugann þessi ljóðlína Ólaf- ar frá Hlöðum: „Mitt skip er í höfn þar sem skjólið er mest.“ Af nánum kynnum er ljúft og skylt að á það sé minnzt hversu samlíf þeirra hjóna og heimilis- dbragur allur er til fyrirmyndar. Jakobínu og Jóni fæddust tvær dætur, Soffía er giftist Davíð Sch. Thorsteinsson framkvæmda stjóra í Reykjavík og Guðfinna, gift Marthy Bevans, majór í ameríska hernum, búsett í V- Þýzkalandi um þessar mundir. Fyrir rúmlega þremur árum urðu þau hjón fyrir þeirri miklu sorg, að eldri dóttir þeirra, Soffía, lézt og gefur að skilja, að söknuður þeirra var sár og bitur. Kom þá vel í ljós hvern hug samborgarar og aðrir vinir þeirra hjóna, Jakobínu og Jóns báru til þeirra og er mér kunn- ugt um það, að samhúgur sá yljaði þeim á þeirra sáru rauna- stundum. Heimili þeirra Jakobínu frænku minnar og Jóns, er íburð arlaust en smekklegt og listrænt, en umfram allt hlýlegt, og nota- legt er þar að vera, hvort heldur er í fámennum fjölskylduhópi, eða í fjölmennari fagnaði, enda þau hjón bæði samhent um höíð ingsskap og rausn. Ekki verður svo skilizt við þennan þátt í lífi þeirra Mathie- sen-hjóna að þess sé ekki minnst, hve spor þeirra liggja viða um, til þeirra, sem á einhvern hát; þurfa liðsinnis við. En í því vei.t ula starfi sinu, eru þau, sem á öðrum sviðum svo samhent að til mikillar fyrirmyndar er, minnug þess, að sælla er að gefa en þiggja. Eitt er það sem einkennir allt líf Jóns Mathiesen öðru fremur og hefir svo verið alla tíð, það lengi ég man, sem litill snáði, en það er barngæði hans og hve létt honum er að laða að sér börn og unglinga, enda hrein un- un að sjá Jón í hópi barna, glað- an, veitulan og ætið „yngstan“ í hópnum. Augasteinar Jóns eru og dætra börnin hans 8, þrjú börn Soffíu heitinnar og Daviðs og fimm börn Guðfinnu og Marthy, sem sífellt gleðja afa sinn, hvort heldur er með návist sinni eða úr fjarlægu landi „með beztu kveðjum, elsku afi og amma á íslandi“. Að lokum sendi ég Jóni mín- ar og fjölskyldu minnar beztu afmælisóskir. Jón dvelur í dag utanbæjar. Jóhann Petersen. Fatðpressa A. Kúld Vesturgötu 23. Lokað frá og með 1.—22. ágúst. Viðskiptavinir eru beðnir að ná í fatnað fyrir 30. þessa mánaðar. Ibúð óskast 6—7 herb. einbýlishús óskast til leigu fyrir sendi- ráðsritara, helzt nálægt sjónum (Ægissíðu). — Upplýsingar í síma 19535 og 19536 fiá kl. 9—5,30. ALLT í ÚTILEGUNA TJÖLD POTTASETT SVEFNPOKAR Mikið úrval 2ja manna 3ja manna 4ra manna 5 manna 6 manna með eða án himins. Stálsúlur og hælar. Lítil og stór. GASPRÍMUSAR MATARSETT í töskum, fyrir 2 og 4. Teppapokar Dúnpokar Vindsængur VIKING — 2ja ára ábyrgð. Þéttiefni fyrir tjöld. Kaupið vöruna hjá þeim, sem reynslu hafa í notkun hennar. Snorrabraut 58 HOBART rafsuðutransarcu Háfum fyrirliggjandi hina vinsælu 180 amp. 1 fasa rafsuðutransara. Fylgihlutir: Rafsuðuhjálmur, rafsuðutöng, jarðkló, raf- suðukapall 20 fet, járð- kapall 15 fet og tengill. HOBART-gæði. Hagkvænit verð. R. GUDMUNDSSON 8 KUARAN H F. VÉLAR . VEI ÁRMÚLA 14, IKFÆRI . IDNADARVÖRUR REYKJAVÍK, SÍMI 35722 Crimplen-kjólar Ný sending. Verð aðeins kr. 1.495,00. Wdgn U toOöírt _ Laugavegi 31. — Sími 12815. Deildarstjóra PILT eða STÚLKU vantar okkur nú þegar. Einnig afgreiðslustúlku. XUliaimUi Aðalstræti. Húsasmíðameistarar 21 árs gamall maður óskar eftir að kom- ast að sem nemi í húsasmíði. — Upplýsingar í síma 33979, Smiðir eða laghentir menn óskast strax. Steinstúlpar h*. Súðavogi 5. — Sími 30848. INlotaðar Volvo bifreiðir til sölu: Amazon 4ra dyra, árgerð 1962. P-544 Favorit, árgerð 1963. P-210 sendi/stationbifreið, árgerð 1964. Bifreiðarnar eru til sýnis hjá oss. * unnai Sqbzehbbm h.f. Suðurlandsbraut 16 - Reykjavik - Símnefni: nVolver* - Slmi 35200

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.