Morgunblaðið - 27.07.1966, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 27.07.1966, Qupperneq 26
26 MORGU N BLAÐIÐ Sfiovlkuclagur 27. Júli 1961 Eusíbio faiin vegg fyrír, þar sem enska vörnín var — Bobby Charlton tryggði sigurinn ENGLENDINGAR sigruðu Portú gala i gær- kvöldi með 2-1 og tryggðu sér réttinn til að keppa við Þjóðverja um heimsmeistara titilinn. Það var Bobby Charlton sem skoraði bæði mörk' Eng lands. Þegar England og Þýzka- land mætast í úrslitum á laug ardaginn kemur verður það fyrsta sinn síðan 1954 að tvö Evrópulið berjast um heims meistaratitilinn. if Fyrsta mark á England Hin „pottþétta" vörn enska liðsins gerði að engu allar sig- urvonir Portúgala. Enska vörn in hratt öllum áhlaupum þar til er 7 mín voru til leiksloka, að vítaspyrna var dæmd á Eng- lendinga. Eusibio — svarta perl an — skoraði örugglega. Það var fyrsta markið sem skorað er hjá Englendingum í allri keppninni. if Lyft á hærra stig Leikurin var mjög vel leikinn af báðum liðum. Hann var eins og dagur hjá nótt miðað við marga fyrri leiki keppninnar. Hafði og sigið mjög á ógæfuhlið ina unz upp úr sauð í „8 liða úrslitunum“ er leikmenn fleiri eða færri voru reknir af ve’li í þremur leikjum af f jórum. Sama sagan endurtók sig í fyrri undan úrslitaleiknum í fyrrakvöld er rússneskum leikmanni var vikið af velli. Englendingar og Portúgalir lyftu mótinu aftur á hærra stig knattspyrnulega séð. 90 þús áhorfendur á Wembley — full- skipaðir bekkir — kunnu iíka vel að meta það og fögnuðu iið- unum ákaft og gleðin var ein.’æg yfir því að Englendingar skyldu nú í fyrsta sinn hafa unnið sig 6 leikja straíf fyrlr rossspork Aganefnd alþjóðasambands- ins hefur nú kveðið upp dóm sinn yfir leikmönnum Uruguay sem reknir voru af velli í leik gegn Þjóðverjum sl. laugardag. Þeir tvéir sem út af voru reknir í leiknum fengu þá refsingu að mega ekki leika í 3 næstu leikj- um lands síns. En einn þeirra Julio Silva halut helmingi þyngri refsingu — yfirsetu í 6 lands- leikjum. Brot hans var að hafa sparkað í óæðri enda dómar- ans eftir leikinn. Fær Eus'bio 1126 bús. auko? Á HM í knattspyrnu er sá 1 maður verðlaunaður með 1000 I pundum sem flest mörk skor i ar. Nú sem stendur er Eusi- I bio hinn marksækni leikmað- [ ur Portugala næstur þeim verð launum. Hefur hann skorað 8 | mörk, en næstir koma Bene Ungverjalandi, Beckenbauer ! Þýzkalandi, Haller Þýzkalandi og Porkujan Sovét með 4 mörk. upp í úrslitaleik um heimsmeist aratitil. Forystan England náði forystu á 31 mín með fyrra marki Bobby Charltons. Portúgalski mark- vörðurinní hljóp út til að stöðva sendingu sem ætluð var Hurst. En hann hélt ekki knettinum og Charlton fékk hann og var fljót ur að afgreiða í netið af 14 m færi. Englendingarnir gátu hvílzt ró legir í hléinu með 1-0 forystu. Forustan gat verið stærri því að Englendingar höfðu haft tals verða yfirburði fyrsta hálftím- ann. í upphafi lögðu Englendingar meiri áherzlu á vörn. Portúgalar sóttu og tókst að ná yfirráðum úti á vellinum. Portúgalir sköp- uðu mörg mjög góð færi — en enska vörnin barðist eins og deyjandi maður og tókst að bægja frá öllum hættum. Og smám saman breyttu Englending ar vörn í sókn. Á 12. mín var Hurst einn frammi fyrir markverði Portú- gala, sem tókst að bjarga mjög naumlega. Og um tíma varð það svo að Eusibio, hvers hlutverk var að skora mörk, hafði nóg að gera í vörninni — svo þung var enska sóknin. Og svo kom markið — og hvílíkur fögnuður á áhorfendabekkjunum. f lok fyrri hálfleiks voru Portú galar ágengir við enska mark- ið og á siðustu mín. skapaði Eusibio færi sem með örlítilli heppni hefði átt að jafna leik- inn — en gæfan var með Eng- lendingum. •ár Brotizt úr fangabúðurn á ný Allan fyrri hluta síðari hálf- leiks sóttu Portugalir fast og „áttu“ vallarmiðjuna, því Eng- lendingar hugsuðu meir um vörn en sókn. En að skora tókst Portúgölum ekki og smátt og smátt tókst Englendingum að brjótast út úr „fangabúðunum“ við mark sitt og Bobby Charlton tókst að skapa ró yfir leik sóknarmanna. 10 mín fyrir leikslok lék Hurst upp hægri kant allt að enda- línu, gaf fyrir og Charlton var á staðnum — og skoraði viðstöðu- laust með þrumuskoti af 8-10 m færi. Vé Lokasókn Þremur mínútum síðar varð bróðir hans Jackie viljandi að brjóta af sér til vítaspyrnu — því ella hefði knötturinn legið í enska markinu. Eusibio skoraði af öryggi. Og þetta mark Portúgala hleypti fítonsanda í þá. Þeir eygðu möguleikann og börðust eins og ljón til að jafna. Enska Framhald á bls. 21. Pestin skýrð eltir þjúlfaranum VART hefur orðið nýrrar teg- undar og óþekktrar af influensu í Brasilíu. Vita menn ekki hvern ig á að nafngreina pestina en meðan ekkert annað betra nafn finnst hafa menn nefnt hana „Feola“-pestina — eftir óvinsæl- asta manni landsins, landsliðs- þjálfara Brasilíu í knattspyrnu. Gordon Hurst horfir hér á eftir skallabolta sínum í mark Arg- entínu. Þ tta mark tryggði Englandi framhald í keppninni og í gærkvöldi mættu þeir Portúgölum í undanúrslitum; leik, sem skar úr um hvorir mæta Þjóðve rjum í úrslitaleik. Þjóöver jarnir fóru án sigurs KR vann slðasta leikiníi 4-1 ÞÝZKA knattspyrnuliðið Sport- ekki talin vera upp á marga fisk club 07 hefir sannarlega ekki ana- sótt gull í greipar íslenzkra knattspyrnumanna. Þjóðverjarn ir hafa tapað öllum sínum leikj um þrátt fyrir það, að knatt- spyrna okkar manna í dag, er Klofnar alþjóðaknatt- vegna atburðanna á laugardaginn Sagt er að þýzki dómarinn Rudolf Kreitlein, sem dæmdi hinn sögulega leik Argentínu og Englands á laugardag, hafi var- ið mestum hluta nætur við að skrifa kærur á leikmenn. Aganefnd FIFA tók kærurnar fyrir strax og úrslitin eru: Argentínska sambandið er dæmt í 232 dala sekt (1000 svissn. frankar) og jafnframt er þeirn tilmælum beint til forráðamanna næstu HM keppni í Mexico að Argentína fái ekki að vera með nema tryggt sé að svona atbuið- ir endurtaki sig ekki. Jafnframt var fyrirliða Argen tínu refsað með því að vera bannað að taka þátt í 4 næstu landsleikjum Argentínu og tveim öðrum bannað að taka þátt í 3 næstu landsleikjum. Bræðurnir Jackie og Boby Charlton fengu áminningu Þetta mál og dómurinn veld- ur miklum deilum. Öll S-Ame- ríkuríkin innan FIFA hafa boð- að til fundar til að mótmæla og ítalir og Frakkar styðja þá. Telja þeir dómarann óhæfan til staría. Talið er ólíklegt að Argentínu sambandið framfylgi keppnis- banni leikmanna sinna. í blöðum í S-Ameríku eru þungar ásakanir á Englendinga og alþjóðasambandið. Segir þar að dómararnir hafi haft mik/1 áhrif á gang mála og Argentína og Brasilía svikin á svívirði- legasta hátt. Svo heitt er í kolunum, að tal- ið er hugsanlegt að hótanir ber- ist um að S-Amerikuríkin segi sig úr alþjóðasambaniinu. Er þetta þvzka lið þá svona lélegt? Nei, liðið hefir góða knattmeðferð og leikur skemmti lega á köflum, en það skortir hinsvegar banr baráttuvilja, sem íslenzku liðin hafa sýnt í leikj- um sínurr. gegr. því. Leikur KR-inga á Njarðvíkur- vellinum á mánudagskvöldið var einmitt á þessa leið. KR-liðið, skipað mörgum varamönnum, sigraði á dugnaði og hraða fram herjanna, sem lireinlega skildu hina þuneu þýzku vörn eftir, þrátt fyrir að knattmeðferð Þjóð verjanna og samleikur á miðju vallarins væri af öðrum gæða- flokki. KR-ingar léku undan sól og smá golu í fytri hálfleik. Fyrsta marktækifærið kom á 4. min., er Baldvin, seir lék hægri út- herja, tókst að knmast inn í send ingu markvarðar til bakvarðar, en skaut í hliðarnetið. Skömmu síðar stöðvar Guðmundur Péturs son markvörður KR hættulega sókn SC 07 með góðu úthlaupi. Þjóðverjar áttu nokkur skot að marki KR. en aðallega af löngu færi og lenti knöttur- inn ýmist í öruggum höndum Guðmundji' markvarðar eða fór víðs fjarri markinu Mikil hætta skapaðist við þýzka matkið á 16. mín. er Þjóð verjar vöiðu þrívegis á mark- línu og tveim mín síðar skoraði Gunnar Felixson fyrir KR. Fékk Gunnar knöttinn við miðlínu, hljóp af sér varnarmenn SC-07 og skoraði með rólegu skoti fram hjá úthlaupandi markmanni. Fleiri urðu mörkin ekki í fyrri hálfleik, þrátt fyrir gott skot Jóns Sigurðssonar, sem mark- vörðu: arði í norn og skot Bald vins af stuttu færi. sem Steinseif er varði glæsilega. Síðari hálfleikur var viðburð- arríkur, en ekki jafn skemmti- lega leikinti. Á 12. mín. tók Theo dór hornspyrnu, t>g Baldvin skall aði óverjandi í netið. Skömmu siðar varð varnar- manni KR það á, að handleika knöttinn á vítateig og dómar- inn, Hannes Þ. Sigurðsson dæmdi réttilega vítaspyrnu. — Graf framvörður tók vítaspyrn una, en markvörður KR, piltur úr 2. fl. rem lék í síðari hálf- leik, varði skotið. Hannes flaut- aði og fyrirskjpaði að spyrnan skyldi endurtekinn. þar sem hann hefði ekki verið búinn að gefa merki, er spyrnan var fram kvæmd. Knebel vinstri innherji fram- kvæmdi síðari spyrnuna og nú lá knötturinn í netinu, við mik- inn fögnuð áhorfenda. Við matkið færðist mikill fít onskraftur í Þióðvei jana. Sóttu þeir nú ýkaft og áttu skömmu síðar 5 skot í röð á mark KR, en knötturinn hrökk jafnan út aftur af varnarmönnum, þar til að síðustu að markmanni tókst að klófestn kr.öttinn og spyrna fram völlinn. KR-ingar voru fljótir að snúa vörn í sókn og innan mírtútu lá knötturinn í neti Þjóðverja eftir gott skot Jóns Sigurðssonar miðherja. Færðist nú harka í leikinn og Framhald á bls. 21.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.