Morgunblaðið - 27.07.1966, Síða 27
Miðvikudagur 27. júlí 1968
MORCUNBLAÐIÐ
27
Meistaramótið:
Setti íslandsmet í fyrsta
sinn er hún kastaði spjóti
— Jón Þ. Ófafsson stókk 2,06
metra i hástökki
40. MEISTARAMÓT fslands í
frjálsum iþróttum hófst á Laug
ardalsvellinum í fyrrakvöld. Að
þessu sinni voru óvenju margir
þátttakendur skráðir tii leiks,
eða 101 talsins. Að venju mættu
þó ekki nærri allir til leiks og
má t.d. um það nefna hástökkið,
en þar voru 9 keppendur skráð-
ír en aðeins þrír mættu. Góð
þátttaka var i nokkrum grein-
um sérstaklega í langstökki, en
þar voru keppendur 12 talsins
og í kuluvarpi voru 8 keppend-
ur.
Góður árangur náðist í nokkr-
um greinum, enda var veðrið
gott til keppni. Jón Þ. Ólafsson
setti nýtt vallarmet í hástökki og
stökk vel yfir 2,06 metra. Af-
rek Jóns er jafnframt meistara-
mótsmet og líkiega 5. bezti árang
ur sem náðzt hefur í hástökki á
Norðurlöndunum í ár. Þeir fjór
ir, er stokkið hafa hærra cn
hann eru allir Svíar. Jón átti
allgóðar tilraunir við 2,09 metra.
' Skemmtilegasta keppni fyrsta
dags mótsins var í 800 metra
hlaupi á milli þeirra Halldórs
Guðbjörnssonar og Þorsteins
Þorsteinssonar. Þorsteinn leiddi
fyrri hluta hlaupsins, en Halldór
fylgdi vel á eftir og fór fram úr
er um 300 metrar voru eftir i
mark. Á síðustu metrunum tókst
Þorsteini síðan að jafna bilið og
komu þeir nær jafnir í mark og
fengu sama tíma 1:55,2 mín., sem
er nýtt meistaramótsmet. Hlaut
Halldór nú til eignar bikar þann
er keppt var um í þessari grein
og gefin var af Pétri Einarssyni.
Eitt fslandsmet var sett, í
spjótkasti kvenna. Þar var að
verki ung stúlka úr Hafnarfirði,
Valgerður Guðmundsdóttir, og
keppti hún í fyrsta skipti í spjót
kasti. Kastaði hún 38.26 m. og
bætti því eldra íslandsmet í
greininni um tæpa tvo metra.
Annað lengsta kast hennar var
einnig lengra en fyrra íslands-
Jón Þ. stekkur 2,06.
metið. Er ekki vafi á, að Valgerð
ur mundi bæta metið enn að
mun, ef meiri æfing og aukin
tækni kæmi til. Þá voru einnig
sett tvö héraðsmet, bæði í 4x100
m boðhla.ipi. Sveit HSK hljóp
á 45,9 sek.. og skorti því aðeins
1/10 úr sek. að bæta landsmet
ungmennafélaga, sem UMSK á.
Sveit HSH hljóp á 46,0 sek., sem
er þeirra héraðsmet.
Eins og áður segir voru kepp-
endur í langstökkinu 12 og stóð
keppni í því yfir um tvær klukku
stundir. Ólafur Guðmundsson KR
sigraði örugglega með 6,99 m.
stökki, sem hann náði í síðustu
umferð. Meðal keppenda var
Tyrkinn Askin Tuna og varð
hann fjórði, stökk 6,55 m.
Valbjörn Þorláksson, KR, varð
íslandsmeistari , fjórum grein-
um í fyrrakvöld. Hann var i
sveit KR er sigraði í 4x100 m
boðhlaupinu, í spóótkasti, 400
m grindahlaupi og 200 m hlaupi,
en þar varð aðalkeppinautur
hans, Ragnar Guðmundsson, Á,
HELGINA 16,—-17. júlí n.k. verð- j
ur haldið skíðamót í Kerlingar-
fjöllum. Mótið er opið til þátt-
töku fyrir skíðamenn af öllu
landinu og þar sem nú er orðið
bílfært inneftir er búizt við
mikilli þátttöku allsstaðar að.
Skíðaskóli Valdimars Örnólfs-
sonar hefur þegar tekið til
starfa og er nú þegar orðin mikil
þátttaka fólks víðsvegar að af
landinu. Keppendur ungir og
gamlir, sem áhuga hafa á að
dvelja í Kerlingarfjöllum vikuna
fyrir mótið eru beðnir að hafa
samband við Valdimar hið allra
fyrsta, sem veitir nánari upplýs-
ingar. Fyrirhugað er að kepp-
endur og aðrir géti fengið far
með áætlunarbíl skíðaskólans i
fyrir því óhappi að togna í úr-
slitahlaupinu.
Það sem annars setti svip á
meistaramótið var mikil þátt-
taka utanbæjarmanna. Væri ósk-
andi að þeir sæu sér oftar fært
að keppa á mótum í höfuðborg-
inni, þar sem svo oft hefur verið
dauf þátttaka í keppnisgreinum.
Framkvæmd mótsins var eftir
atvikum góð, en nokkuð lang-
dregin.
Eftir fyrsta daginn skiptast
Valgerður: Met í fyrstu keppni.
sem fer frá Umferðamiðstöðinni
kl. 8 s.d. föstudaginn 15. júlí. En
Valdimar tekur sérstakelga fram
að farseðill sé sóttur daginn
áður, eða fimmtudaginn 14. júlí.
Skáli Ferðafélags íslands mun
verða til umráða fyrir skíða-
skólann þessa helgi og er fyrir-
hugað að keppendur skíðamóts-
ins haldi til þar. Þeir skíðamenn
sem hafa tjöld og viðleguútbún-
að eru vinsamlegast beðnir að
hafa það með sér. Keppt verður
á laugardag eftir hádegi og á
sunnudag fyrir hádegi, svo að
keppendur geta verið tilbúnir
til heimferðar síðdegis á sunnu-
dag. Mótsstjóri er Valdimar Örn-
ólfsson og aðrir í mótsstjórn eru:
Árni Kjartansson, Ármanni og
Halldór (t.b.) og Þorsteinn
meistarastigin þannig milli
félaga: Karlagreinar: Knatt-
spyrnufélag Reykjavíkur 8 meist
aratitla, íþróttafélag Reykjavík-
ur 1. Kvennagreinar: Héraðs-
sambandið Skarphéðinn 4 meist
aratitla, Fimleikafélag Hafnar-
fjarðr 1.
St. L.
Úrslit urðu sem hér segir:
400 m grindahlaup:
1. Valbjörn Þorláksson,KR, 57.1
2. Helgi Hólm, ÍR, 57,6
3. Kristján Mikaelsson, Á, 59,6
Kúluvarp:
1. Guðm. Hermannss., KR, 15,39
Sigurjón Þórðarson Í.R. Kepp-
endur frá Reykjavíkurfélögun-
um eru beðnir að tilkynna þátt-
töku sína til Leifs Gíslasonar,
K.R., Sigurðar Einarssonar, Í.R.
og Arnórs Guðbjartssonar, Ár-
manni, fyrir fimmtudaginn 15.
júlí. Síðustu fiéttir frá skíða-
skólanum herma að nú sé skíða-
færi mjög gott þar efra og mikil
ánægja ríkir hjá skíðamönnum
þar.
Urslit i einstökum greinum
urðu þessi:
Kvennaflokkur:
Jóna E. Jónsdóttir, ísafirði 72,7
Hrafhildur Helgad., Árm. 72.7
Guðrún Björnsd., Árm. 92.1
Þórunn Jónsdóttir, Árm., 95.9
Drengjaflokkur:
Tómas Jónsson, Árm. 62.0
Eyþór Haraldsson, 1R 62.5
Haraldur Haraldsson, ÍR 68.4
Björn Haraldsson, Húsavík 69.1
Karlaflokkur:
Kristinn Benedikts., ísaf. 75.0
Björn Ólsen, Sigluf. 75.9
Guðni Sigfússon, ÍR 76.3
Haraldur Pálsson, ÍR 84.5
koma að marki í 800 m. hl.
2. Jón Pétursson, KR, 14,44
3. Erl. Valdimarss., ÍR, 14,0
Langstökk:
1. Ólafur Guðmundss., KR, 6,99
2. Gestur Þorsteinss., UMSS 6,80
3. Guðm. Jónsson, HSK, 6,63
200 m. hlaup:
Valbjörn Þorláiksson KR 22,7
Þórarinn Ragnarsson KR 23,2
Sigurður Jónsson HSK 23,9
800 m. hlaup:
Halldór Guðbjörnss. KR 1:55,2
Þorsteinn Þorsteinsson KR 1:55,2
Þórarinn Arnórsson ÍR 2:04,8
Hástökk:
Jón Þ. Ólafsson, ÍR 2,06
Kjartan Guðjónsson, ÍR 1,86
Donald Rader, UMSK 1,70
Spjótkast:
Valbjörn Þorláksson, KR 60,37
Björgvin Hólm, ÍR 58,24
Kjartan Guðjónsson, ÍR 51,80
5000 m. hlaup:
Agnar J. Levý, KR 16:06,4
Halldór Jóhannesson HSÞ 16:15,3
Framhald á bls. 21
Þag ðir
HINAR sigruðu „knattstjörn-
ur“ Brasilíu komu heim til
sín í gær. Búizt var við mikl-
um óeirðum og alls kyns var-
úðarráðstafanir gerðar. Allt
lögreglulið var til staðar og
300 óeinkennisklæddir lög-
reglumenn sem fylgja áttu
leikmönnum heim og vera við
heimili þeirra ef að þeim yrði
ráðizt.
En þegar liðið lenti má segja
að ósigur þess hafi fullkomn-
ast. Það mætti enginn til að
gera uppþot, ekkert skammar-
yrði heyrðist og enginn tóm-
atur flaug. Viðstaddir voru
aðeins skyldmenni farþega.
Þeir voru „þagðir í hel“.
Gylmar markv. og Garr-
incha voru gripnir í útvarpið
í Sao Paulo. Þeir skelltu skuld
inni á forystumenn knatt-
spyrnumálanna og þá er velja
liðið er leikur hverju sinni.
Segja þeir að þeir hafi valið
góða einstaklinga en ekki tek-
ið tillit til heildarleiksins.
Einn kom ekki heim með
flugvélinni. Það var Feola
þjálfari liðsins. Æstur múgur
hafði áður gert aðsúg að heim-
ili hans og hótað eiginkonu
hans lífláti. Þar er nú lög-
regluvörður — en enginn eig-
inmaður ennþá.
Keppendur í kvennaflokki.
Sumarmót skíöafólks
í Kerlingarfjöllum