Morgunblaðið - 27.07.1966, Page 28
Helmingi útbreiddara.
en nokkurt annað
íslenzkt blað
Langstærsta og
fjölbreyttasta
blað landsins
Smyglað áfengi og sígar-
ettur tekið í Kópavogi
— Var ekið frá skipshtið
í Þorlákshöfn
f GÆR tóku tollverðir og
lögregla fjóra stóra kassa
með smygluðu áfengi og
sígarettum við bílskúr í
Holtagerði í Kópavogi. Var
þetta smyglvarningur úr
Skógafossi, og hafði honum
verið ekið til Reykjavíkur frá
Þorlákshöfn.
Skógafoss var að koma frá
Evrópuhöfnum, Haim!bor.g og
Gautaborg. Kom skipið fyrst að
Au-sturlandi og var tollafgreitt á
Seyðisfirði. Á leiðinni til Reykja
víkur var komið við í Þorláks-
höfn, til að setja á land vélar
til Búrfellsvirkjunar. Hefur köss
unum þá verið komið í land um
leið og þeim síðan ekið á bílum
í Kópavog, þar sem tollverðir úr
I síld við
Jan Mayen
í GÆRKVÖLDI símaði frétta
ritari blaðsins á Raufarhöfn að
síldar hefði orðið vart 90 mílur
suður af Jan Mayen. Var vitað
um tvö skip, sem voru lögð af
stað með söltunarsíld til Raufar-
hafnar, Faxi og Helga Guðmunds
dóttir og voru þau með allt að
fullfermi. Einnig hafði heyrzt
um að fleiri bátar væru að fá
síld þarna. T.d. hafði Ólafur
Magnússon fengið 600 tunnu
kast. Síldar flutningaskipið Dag-
stjarnan er á miðunum við Jan
Mayen og tekur vafalaust síld
af einhverjum bátunum. Gotí
veður var á þessum slóðum og
bátarnir stefndu þangað.
í fyrrinótt tilkynntu aðeins 4
skip um afla, 289 lestir, en það
var afli frá því fyrir storminn.
Reykjavík og lögreglu'þjónar úr
Kópavogi voru mættir í gær og
tóku vaminginn.
Kassamir voru fjórir á þess-
um stað, gríðarstórir og því vafa
laust allmikið magn af áfengi og
sígarettum í þeim. Starfsmenn
tolls og lögreglu vörðust allra
frétta í gærkvöldi, sögðu málið
í rannsókn. En tveir menn voru
í yfirheyrslum hjá rannsóknar-
lögreglunni og munu þeir hafa
játað að vera við málið riðnir.
lÍEtdirskíriStaskjöl í
Möðruvallaprestakalii
Votta kosnum presti traust
AKUREYRI, 26. júlí. — Undan-
farið hafa undirskriftaskjöl geng-
ið um allar fjórar sóknir Möðru-
vallaklaustursprestakalls. Er sam
eiginlegur texti þeirra svohljóð-
andi:
„Við undirrituð, fullveðja með-
limir þjóðkirkjunnar í Bakka-,
Bægisár-, Glæsibæjar- eða
Möðruvallasókn vottum hérmeð
herra vígslubiskupi, séra Sigurði
Stefánssyni á Möðruvöllum, okik-
ar fyllsta traust og virðingu og
þökkum honum ágæt störf í þágu
kirkjunnar.
Sömuleiðis vottum við séra
Ágústi Sigurðssyni á Möðruvöll-
um traust okkar og óskum eftir
að fá að njóta starfskrafta hans
áfram. Ennfremur s'korum við
á kirkjustjórnina að veita honum
tafarlaust formlega prestsembætt
ið í Möðruvallaklausturspresta-
kalli, samkvæmt úrslitum prests-
kosninganna 8. maí síðastliðinn.
Að gefnu tilefni lýsum við
hryggð okkar og undrun yfir
iþeim ofsóknum, sem séra Ágúst
og fjölskylda hans hafa orðið
fyrir af hendi nokkurra manna
í prestakallinu.
1 júlímánuði 1966“.
Undir þennan texta hafa ritað
nöfn sín 207 fullveðja sóknar-
börn. — Sv. P.
Þennan svartbak varð að aflífa í gær þar sem einhverjir níð-
ingar höfðu bundið á hann fuglshræ, og sleppt honum svo. Var
hræið bundið með snæri við lappir fugisins. Sigurjón Pálsson,
lögregluþjónn, fór upp að Rauðavatni og skaut fuglinn og sést
hann hérna með hann.
Hrakningar í sandbyl á örœfum:
Tjöld fuku hjá læknum við Veiðivötn
96 manns /e/fuöu skjóls i Jökulheimum - 10 menn
himdu á bilþaki i Tungnaá
FERÐAMENN, sem lögðu leið
sína inn á Landmannaafrétti um
sl. helgi, lentu margir í hrakn-
ingum vegna óveðursins mikla,
sem gekk yfir síðdegis á laugar-
dag og fram á sunnudag. Var
ofsarok á þessum slóðum og
sandfokið slíkt, að ekki sá út úr
augum og skóf af bilunum. Tjöld
féllu og jafnvel rifnuðu ofan af
40 manna hópi, mest læknum og
fjölskyldum þeirra, við Veiðivötn
og flúði hópurinn á sunnudags-
morgun niður að Skarði á Landi.
Ungs manns saknað síðan
á sunnudag
Viðtæk leit fer tram á Barðaströnd
SAKNAÐ er 19 ára gamals járn-
smiðanema úr Reykjavík, Sig-
urðar Theodórssonar, Réttarholts
vegi 55, en síðast er vitað um
hann kl. 2 aðfaranótt sunnudags,
er dansleik var að ljúka í félags-
heimilinu Birkimel á Barða-
strönd. Var í gær og fyrradag
umfangsmikil leit að honum þar
um slóðir, en hann var ófundinn
er blaðið fór í prentun í gær-
kvöldi.
Sigurður hafði verið í sumar-
leyfi hjá fólki á Tálknafirði.
Hafði hann upphaflega ætlað
suður á laugardag, en frestaði
ferðinni til þriðjudags. Fór hann
með tveimur öðrum piltum á
dansleik í Birkimel á laugar-
dagskvöldið. Sást hann rétt um
það leyti, sem fól'k var að fara
af dansleiknum, en kom ekki til
félaga sinna, sem að lokum fóru
án hans heim. Lögreglan, sem
var við gæzlu á dansleiknum, leit
í alla bíla á leið suður, til að
athuga hvort bílstjórar væru ekki
allsgáðir, og telur ek'ki að piltur-
inn hafi verið í neinum þeirra.
Þar sem hann var ekki kominn
fram í fyrradag var hafin leit.
Fréttaritari blaðsins á Patreks-
firði símaði í gærkvöld: Leitað
var í gær. Þá leituðu um 70
manns í nánd við samkomuhúsið.
I dag var svo aftur leitað og tóku
þátt í þeirri leit um 150 manns
frá Patreksfirði, Barðaströnd,
Bíldudal, Tál'knafirði og Rauða-
sandhreppi. Leitað var um Móru-
dal og Arnarbýludal, sem eru
kjarri vaxnir og erfiðir yfirferð-
ar. Ennfremur var leitað með
ám og með vaðli, sem sjór feUur
upp í. Flugvél kom frá Slysa-
varnafélaginu og leitaði aðallega
með ströndinni. í kvöld voru svo
leitarflokkar sendir til að leita í
skurðum meðfram vegi beggja
megin samkomuhússins á Barða-
strönd.
í dag á svo að leita í fjöllum
með þyrlu frá varnarliðinu, sem
vegna óhagstæðra skilyrða gat
ekíki leitað í gær.
Nær 100 manns leituðu skjóls í
skálum Jöklarannsóknarfélagsins
í Tungnaárbotnum, þar á meðal
50 Akureyringar. Og á sunnudag
sátu 10 karlmenn á þaki á föstum
bíl sínum á miðri Tungnaá á
Hófsvaði, þar til bíll kom og
bjargaði þeim úr ánni.
Fastar áætlunarfirðir eru um
helgar í Veiðivötn með Jónasi
Guðmundssyni á Hellu og er far-
ið úr Reykjavík kl. 9 á föstu-
dagsmorgnum. Sl. föstudag var
í ferðinni hópur lækna og sumir
með fjölskyldur sínar, þar á með-
al voru 4 börn innan við 10 ára
og lenti hópurinn í hrakningum.
Tjöldin fuku
Mbl. hringdi til Valtýs Bjarna-
sonar, læknis, sem var í förinni.
Hann sagði, að á laugardags-
kvöldið hefði skollið á ofsarok
með sandbyl. Var veðrið svo mik
ið að súlur í tjöldunum bognuðu
og brotnuðu, og stög rifnuðu.
Féllu eða voru felld 21 tjald.
Lágu margir í niðurföllnum
tijútvarpið eitt má
reisa endurvarpsstöðvar
Samhljóda ályktun útvarpsráðs i gær
Á FUNDI útvarpsráðs í gær var
samþykkt eftirfarandi ályktun
með samhljóða atkvæðum:
Að gefnu tilefni minnir út-
varpsráð á, að samkvæmt ísl.
lögum hefur enginn aðili annar
en Ríkisútvarpið í umboði og
ríkisstjórnar og Alþingis heim-
ild til að láta reisa endurvarps-
stöðvar í landinu.
Útvarpsráð treystir því að
þessum lögum verði framfylgt,
enda mundi leiða til stöðugra
og vaxandi erfiðleika ef aðrir
aðiljar fengju að endurvarpa
innlendu eða erlendu efni.
tjöldunum eða voru I bílnum, en
aðrir höfðust við í hálfbyggðum
eftirlitsmannskofa, sem enn er
gluggalaus. Það var eklkert að
fólkinu, sagði Valtýr, nema hvað
sandrokið var óþægilegt. Vitin
fylltust af sandi og allt dótið var
þakið sandi. Auk þess þýddi ekk-
ert að hugsa um mat.
Undir morgun lægði og kl. 7.30
drifu menn sig af stað til byggða.
En veðrið herti aftur og var taf-
samt í sandrokinu að komast leið
Framhald á bls. 21
Erfiðleikur
hjd filmfólki
ÞÆR fréttir berast norðan úr
Þingeyjarsýslu að kvikmynda
gerðarfólkið, sem er að taka
myndina Signý og Hagbarður
nálægt Hljóðaklettum, eigi nú
í mestu erfiðleikum vegna ó-
færðar á slóðinni upp með
Jökulsá. Hafa trukkar þeirra
rist svo sundur moldarslóðina,
ein.kum eftir að hún blotnaði
að ófært er milli kvikmynda
tökustaðarins og Skúlagarðs,
þar sem fólkið býr. Hafa
trukkarnir verið spilaðir á-
fram með vírum yfir þennan
kafla. Og eru Danirnir nú að
tala um að rcyna að fá leigða
þyrlu til að flyí, • fólkið á
milli.
Eins munu einhverjir erfið
leikar hafa orðið vegna mik-
illar vinrtu hjá kokkum og
þj'Jnustuliði í Skúlagarði, þar
sem kvikmyndafólkið þarf að
fá mat á öllum tí / .1 sólar-
hringsins.