Morgunblaðið - 29.07.1966, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 29.07.1966, Blaðsíða 22
22 MORCUNBLAÐIÐ Fösludagur 29. júlí 1966 Hjartanlega þakka ég öllum þeim ættingjum og vin- um, fjær og nær, sem glöddu mig og auðsýndu mér vináttu með heimsóknum, heillaskeytum og gjöfum á 100 ára afmæli mínu, 20. þ. m. Guð blessi ykkur ölL Steinunn Thordarson. Verzlun — Iðnaður Atvinnuhúsnæði við mikla umferðagötu í úthverfi til leigu, ca. 40 ferm. — Næg bílastæði — hitaveita. Heppilegt fyrir hverskonar smárekstur. Tilboð, sem tilgreini fyrirhugaðan rekstur o. fl. sendist afgr. Mbl. fyrir nk. miðvikudag, merkt: „Atvinnuhúsnæði — 4727“. Stúlka óskast í eldhús stofnunarinnar. — Upplýsingar gefur matráðskona. Elli og hjúkrunarhcimilið Grund. í ferðalaglð Nýkomið: Danskir ANORAKAR barna, unglinga- og fullorðnisstærðir. Laugavegi 31. — Sími 12815. Föðursystir okkar, SIGURLAUG GUNNARSDÓTTIR frá Lóni, andaðist fimmtudaginn 28. júlí. Nanna Ólafsdóttir, Ólafur Skaftason. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við fráfall og útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, JÓHÖNNU ÁSTU HANNESDÓTTUR frá Auðsholtshjáleigu. Hjörtur Sigurðsson, börn, tengdabörn og bamabörn. Innilegustu þakkir eru færðar öllum þeim, sem sýndu samúð og hlýhug við jarðarför konu minnar, móður, tengdamóður og ömmu, INGIBJARGAR MAGNÚSDÓTTUR Njálsgötu 50. Guðmundur Þorstcinsson, Sigurður Guðmundsson, Ragna Jörgensdóttir, og barnaböm. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför litla drengsins okkar og bróður, ÓLAFS ARNARSSONAR Sólvöllum, Bergi, Keflavík. Hólmfríður Ármannsdóttir, Árni Ólafsson, Ármann Árnason, Guðný Árnadóttir. Hjartans þakkir færum við öllum þeim. sem auðsýndu samúð, hjálp og vinarhug við andlát og minningar- athöfn HANNESAR FRÍMANNS JÓNASSONAR . Ástríður Torfadóttir, Sigurður Hannesson, Svala ívarsdóttir og börn, Birgir Hannesson, Jón Hannesson. — Aíeð jbv/ crð Framhald af bls. 17. vísu þarf ég að skifta um lest þrisvar sinnum, en ferðalög reynast mér ekkert erfið leng ur. Ég fer allra minna ferða upp á eigin spýtur, nota bara staf, margir nota hund, unn- usta mín notar líka bara staf. I>að er tekið tillit til þess, þegar maður er með hvítan staf, fólk er manni hjálplegt, þó oft sé maður ekki eins hjálparþurfi og haldið er. Ég hef járnhæla á skónum og heyri því hvort hljóðið end- urkastast frá einhverjuin hlut, eða fær enga mótstöðu, t.d. get ég labbað á milli bíla án þess að snerta þá, — ég get líka heyrt þig ganga fram hjá ljósastaur. Skynjun- arfærin verða næmari hjá okkur, bæði með lykt, bragð og heyrn. — Ég heyri t.d. ekkert með öðru eyranu, en mér finnst ég heyra tvöfalt betur með hinu. Nú og svo get ég heyrt hvort fólk er lítið eða stórt, þegar það stendur fyrir framan mig og talar. Stúlkan segist hafa verið í þessum sama blindraskóla í mörg ár, en haldið' svo áfram skólagöngu sinni, farið í menntaskóla og er nú við nám í sögu við háskóla í New York. Einnig hefur hún kennt á blindraskólanum, þar sem þau Leifur kynntust. Að spurð segir hún að það sé að vísu erfiðara að stunda nám við verijulegan skóla, þar sem kennslubækur í há- skólum séu svo stórar, að ekki sé unnt að færa þær yfir á . blindraletur. „Pess vegna fáum við fólk til að lesa fyrir okkur inn á segul- band og svo lærum við eftir þvL í prófunum eru spurn- ingarnar lesnar upp fyrir mig en svörin skrifa ég á ritvél. í blindraskóla er allt lesmál á blindraletrL það auðveldar okkur auðvitað námið. Hún segist hafa verið blind frá fæðingu. — Ég og tvíbura systir mín fæddust þrem mánuðum fyrir tímann, og vorum við látnar í súrefnis- kassa. Þetta var á þeim tím- um, eða fyrir 26 árum, þegar súrefniskassar voru alger nýj ung. Var okkur gefið of mik ið súrefni, sem orsakaði blindu. Um það leyti voru tilfellin 48, ári síðar voru þau 300. — Hvernig kantu við þig á íslandi? — Vel, segir hún. Hérna hefur fólk það gott. Við höf um ferðast mikið um landið, komið á ísafjörð, og verið við Mývatn og á Hólum. Við fór um með fólki sem sagði okk- ur mikið, útskýrði fyrir okk- ur alla hluti, — það er nú aðalatriðið. — Við böðuðum okkur i heitri laug við Mývatn. Það fannst mér sérstaklega gam- an. Enginn þurfti að útskýra fyrir okkur heita vatnið, það gátum við sjálf fundið. Eins var það í kirkjunni á Hólum, þar gátum við komið við ýmsa forna hluti. Við fáum meira út úr því, en þegar oks ur er sagt frá hlutunum. Lífið er yndislegt, segir Leifur að lokum. Það er ynd islegt og hefur gefið mér svo ótal margt. Ég er búinn að sætta mig við þeita, og myndi ekki láta skera mig upp, þó það væri hægt. Ég er ánægður. — s. ól. Volkswagen 1965 og ’66. Þórsmörk Ferðir í Þórsmörk um verzlunarmannahelgina frá Bifreiðastöð íslands, Umferðarmiðstóðinni. Fimmtudag kl. 9,30 og 20.00. Föstudag kl. 20.00. Laugardag kl. 13,30. Til baka sunnudag og mánudag. Ennfremur munum við ferja farþega úr smærri bílum frá Jökulsá yfir í Húsadal sömu daga. Upplýsingar og farmiðasala hjá Bifreiðastöð íslands sími 22-300. Auslurleið hf. ARBÆJARHVERFI 2ja herb. íbúðir á 530 þúsund. 3ja herb. íbúðir á 640—660 þúsund. 4ra herb. íbúðir á 710—735 þúsund- 5 herb. íbúðir á 850 þúsund. Seljast tilbúnar undir tréverk og málningu með frágenginni sameign. Ennfremur fokhelda 4ra herb. íbúð. FASTEIGNA SKRIFSTOFAN i AUSTURSTRÆTI 17 (HllS SILLA OG VALÐA) SlMI 17466 Ung í anda, ung i (íffifi Haldið hörundi yðar ungu með Secret of the sea og Satura kremi frá DOROTHY GRAY ''fiB* Ingölfs apótek Til sölu BENZ Lítið keyrður 190 Argerð 1963. — Nýlegur. — Afar vel út- lítandi. — Fallegur litur. Bllasala Maffhíasar Höfðatúni 2. Sími 24540.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.