Morgunblaðið - 26.11.1966, Side 7
I-augardagiir 26. nóv. 1966
MORGUNBLAÐIÐ
7
Ullarlár
: Hér birtist mynd af útskornum ullarlár og má þar einnig
; sjá ártalið 1690, sem er á gaflinum. — Ullarlárar, eða lyppu-
; lárar eins og þeir voru oft kallaðir, voru eingöngu notaðir til
• þess að geyma í þeim ull eða lopa, en einkum þó kembur
: spunakonunnar, því að þær máttu sízt verða fyrir hnjaski,
; en þá voru lárar þessir stundum kallaðir kembulárar og mun
j; það nafn einkum hafa fest við þá á síðari tímum, er tóvinnu-
• konur notuðu þessa þarflegu hirzlu undir kemburnar sínar.
£ — Það má víst fullyrða það, að nú á tímum sjást ekki lárar á
; íslenzkum heimilum, en minjasöfnin okkar hafa varðveitt
; marga þjóðlega muni og þar getum við fengið að skoða þá.
(Úr byggðasafni Skagfirðinga) L G.
Vísukorn
í tilefni af erindi Gísla Krist-
jánssonar í Búnaðarþætti nú fyr
ir skemmstu, varð þessi vísa til:
Bændur góðir, bezt er nú ,
að búa svo, ég meina,
hafa hvorki hest né kú
og helzt ei rollu neina.
Sveitakona úr Holtunum.
FRÉTTIR
Kvennadeld Skagfirðingafélags
ins í Reykjavík heldur skemmti-
fund í Lindarbæ uppi miðviku-
daginn 30. nóv. kl .8.30 Spilað
yerður Bingó Stjórnin.
Kvenfélag Hallgrímskirkju
hefur basar 10. desember í sam-
komusal kirkjunnar (norður-
álmu). Félagskonur og aðrir, er
Btyðja vilja málefni kirkjunnar,
eru beðnir að gefa og safna mun
um og hjálpa til við basarinn.
Gjöfum veita viðtöku: Frú Sig-
ríður Guðmundsdóttir Mímisvegi
6 (sími 12501) og frú Þóra Einars
dóttir Engihlíð 9 (sími 15969).
Kristniboðsvika
Á samkomu kristniboðsvikunn
ar í kvöld í KFUM og K húsinu
við Amtmannsstíg tala Ingunn
Gísladóttir hjúkrunarkona frá
Konsó og Ástráður Sigurstein-
dórsson skólastjóri. Æskulýðs-
kór K.F.U.M. og K. syngur.
Allir eru velkomnir. Sýningin á
gripunum frá Konsó er opin í
dag frá kl. 4—6 og frá 8 — 8.30
og eftir samkomuna.
Kristileg samkoma verður í
samkomusalnum Mjóuhlíð 16
eunnudagskvöldið 27. nóv. kl. 8.
Allt fólk hjartanlega velkomið.
Sunnudagaskóli kl. 10.30. Öll
börn velkomin.
Keflavík — Njarðvík. Slysa-
varnadeild kvenna heldur 35
ára afmælisfund í Aðalveri
þriðjudaginn 29. nóv kl. 8.30.
Góð skemmtiatriði. Nánar í götu
auglýsingum.
Æskulýðsstarf Neskirkju.
Fundur fyrir stúlkur 13 — 17
ára verður í Félagsheimilinu
mánudagskvöldið 28. nóv. kl.
8.30 Opið hús frá kl. 8. Frank
M. Halldórsson.
Langholtssöfnuður. Bræðrafé-
lag Langholtssafnaðar gengst
fyrir Aðventukvöldi í Safnaðar-
heimilinu sunnudagskvöldið kl.
8.30. Þar flytur erindi Eggert
Þorsteinsson ráðherra, Guðmund
ur Guðjónsson óperusöngvari
syngur. Upplestur, kórsöngur og
fleira
Jólabasar VINAHJÁLPAR er
á Hótel Sögu á sunnudag 27. nóv.
kl. 2.30.
Aðventukvöld Grensássóknar
verður í samkomusal Breiðagerð
isskólans sunnudag 27. nóv. kL
8.30. Einsöngur, kórsöngur, er-
indi: Jóhann Hannesson prófess-
or, litmyndasýning frá Noregi.
Filadelfía, Reykjavík. Almenn
samkoma kl. 8 Ásmundur Eiríks
son talar. Fjölbreyttur söngur.
Kvenfélag Háteigssóknar held-
ur fund í Sjómannaskólanum
fimmtudaginn 1. desember kl.
8.30.
Heimatrúboðið. Sunnudaginn:
Sunnudagaskólinn kl. 10.30. Al-
menn samkoma kl. 8.30. Verið
velkomin.
Konur í Styrktarfélagi vangef
inna. Munið basarinn og kaffi-
söluna í Tjarnarbúð sunnudag-
inn 4. des. Komið basarmunum
sem fyrst í Lyngásheimilið.
Tekið á móti kaffibrauði í Tjarn
arbúð sunnudagsmorguninn 4.
des.
Hjálpræðisherinn. Sunnudag
kl. 11.00 og kl. 20.30 samkomur
Brigader Henny Driveklepp og
Kafteinn Sövly Aasoldsen stjórna
og tala. Sunnudagaskólinn kl.
14.00.
Kvenskátafélagið
Basar kvenskátafélagsins verð-
ur haldinn í Skátaheimilinu
sunnudaginn 27. nóv. kL 20,30.
Keflvíkingar. Sunnud. 27. nóv.
kl. 4 e. h. hefst í Tjarnarlundi
’basar og kaffisala til styrktar
sfcarfinu í Kongó. — Leggjum&t
á eitt um að styðja gott málefni.
Kristniboðsfélagið í Keflavík.
Kristniboðsfélagið í Keflavík
'boðar til almennrar samkomu í
Tjarnarlundi, sunnud. 27. nóv.
kl. 3 e. h. Gunnar Sigurjónsson,
oand theol., prédikar. Allir vel-
komnir.
Aðventukvöld Dómkirkjunnar
er á sunnudagskvöld 27. nóv. kl.
8.30. Hljóðfæraleikur, einsöngur,
tvísöngur, kórsöngur, ræða, org-
elleikur. Allir velkomnir.
Styrktarfélag Keflavíkurkirkju
Fundur verður í Æskulýðsheim-
ilinu þriðjudaginn 29. nóv. kl.
8.30. Seld verða JólakorL Takið
með ykkur handavinnu. Athugið,
að síðasti saumafundur félagsins
verður í Gagnfræðaskólanum
mánudaginn 28. nóv. Vinsamlega
skilið basarmnunum. Stjórnin.
Borgfirðingafélagið í Reykjav.
býður öllum eldri Borgfirðingum
til kaffidrykkju í Tjarnarbúð
sunnudaginn 27. nóv. frá kl. 14
til 18. Verið öll velkomin. Stjórn
in.
Hjálpræðisherinn: Föstudag
20.30 Hjálparflokkur. Sunnudag
stjórna og tala brig. Henny
Driveklepp og kafteinn Sölvy
Aasoldsen samkomur kl. 11,00 og
kl. 20,30.
Frá Guðspekifélaginu. Jóla-
basar félagsins verður haldinn
sunnudaginn 11. des. Félagar og
velunnarar eru vinsamlegast
beðnir að koma gjöfum sínum
fyrir laugard. 10. des. í Guð-
spekifélagshúsið, Ingólfstræti 22
eða Hannyrðaverzlun Þuríðar
Sigurjónsdóttar, Aðalstræti 12,
Helgu Kaaber, Reynimel 41,
Ingibjargar Tryggvadóttur,
Nökkvavog 26.
Bænastaðurinn Fálkagötu 10
Sunnudaginn 27. nóv.: sunnudaga
skóli kl. 11. Almenn samkoma kl.
4. Bænastund alla virka daga kl.
7 Allir velkomnir.
Skaftfellingafélagið: Slkemmti-
fundur verður í Skátaheimilinu
laugardaginn 26. nóv. kl. 9 stund
víslega.
VETRARHJÁLPIN. Laufás
veg 41, (Farfuglaheimilinu),
sími 10785, opið kl. 9-12 og
1-5. Styðjið og styrkið Vetrar
hjálpina.
Kristniboðsfélagið í Keflavík
heldur basar og kaffisölu í Tjarn
arlundi sunnudaginn 27. nóv.
Komið og styrkið gott málefni.
Kvennadeild Slysavarnafélags-
ins í Reykjavík heldur sína ár-
legu hlutaveltu sunnudaginn 27.
nóv. í Listamannaskálanum kl.
2. Félagskonur komi vinsamleg-
ast með muni í Listamannaskál-
ann á laugardag.
Kvenfélag Njarðvíkur heldur
sinn árlega basar í Stapa sunnu-
daginn 27. nóv. kL 4. Félagskon
ur vinsamlegast skilið munum í
síðasta lagi á hádegi á laugardag
til Guðrúnar Árnadóttur, Hrauns
veg 10, Guðrúnar Haraldsdóttur,
Hraunsvegi 11, Maríu Frímans-
dóttur, Holtsgötu 19, Jóhönnu
Einarsdóttur, Reykj anesbraut 1
og Sigríðar Sigurðardóttur,
Kirkjubraut 2, Karla Albertsson
Hraunsveg 19.
Kvenfélag Garðahrepps. Basar
og kaffisala verður sunnudaginn
27. nóv. kl. 3 í samkomuhúsinu á
Garðaholti. Allur ágóði rennur
í barnaleikvallasjóð. Kvenfélags
konur vinsamlegast skili basar-
munum strax og tekið er á móti
kökum milli 10-2 basardaginn í
samkomuhúsinu. Basarnefndin.
Kvenfélag Bústaðasóknar held-
ur sinn árlega basar í Rétar-
holtsskóla laugardaginn 3. des.
kl. 3. Félagskonur og aðrir vel
unnarar félagsins styðjið okkur
í starfi með því að gefa og safna
munum til basarsins.
Upplýsingar hjá Sigurjónu
Jóhannsdótur, sími 21908 og Ár-
óru Helgadóttur, sími 37877.
Kvenfélagið Fjóla, Vatnsleysu
strönd heldur sinn árlega basar
í barnaskólanum sunnudaginn
27. nóv. kl. 5 síðdegis. Margir
góðir munir til jólagjafa.
Kvenfélag Ásprestakalls heldur
basar 1. desember í Langholts-
skóla. Treystum konum í Ás-
prestakalli að vera basarnefnd-
inni hjálplegar við öflun muna.
Gjöfum veitt móttaka hjá Þór-
dísi Kristjánsdóttur, Sporða-
grunni 5, Margréti Ragnarsdóttur’
Laugarásvegi 43, Guðrúnu Á. Sig-
urðardóttur, Dyngjuvegi 3 Sigríði
Pálmadóttur, Efstasundi 7 og Guð
rúnu S. Jónsdóttur, Hjalavegi 35.
Frá kvenfélagssambandi ís-
lands. Leiðbeiningarstöð hús-
mæðra Laufásvegi 2 sími 10205
er opin alla virka daga frá kl.
3—5 nema laugardaga.
Munið bazar Sjálfsbjargar 4.
des. Vinsamlegast, þeir, sem
ætla að gefa pakka, skila þeim
á skrifstofuna, Bræðraborgarstíg
9 eða Mávahlíð 45.
>f Gengið >f
14. nóvember 1966
Kaup Sala
1 Sterlingspund 119,88 120,18
1 Bandar. dollar 42,95 . 43,06
1 Kanadadollar 39,80 39,91
100 Danskar krónur 622,30 623,90
100 Norskar krónur 601,32 602,86
100 Sænskar krónur 830,45 832,60
100 Finsk mörk 1.335,30 1.338,72
100 Fr. frankar 868,95 871,19
100 Bejg. frankar 85,93 86,15
100 Svissn. frankar 994,10 996,65
100 Gyílini.... 1.186,44 1.186,50
100 Tékkn. kr. 596.40 598,00
1()0 V.-i>ýzk mörk 1.080,15 1.082,91
100 Austurr. sch. 166,18 166,66
100 Pesetar 71,60 71,80
Kópavogsbúar
Fannhvítt frá Fönn.
Fönn þvær skyrturnar.
Afch. Rykþéttar plastum-
búðir. Sækjum — sendum.
Fannhvítt frá Fönn.
Fjólugöfcu 19 B. Sími 17220.
Glæsilegur Volkswagen
’59, til sölu. Sanngjarnt
verð, ef samið er strax.
Upplýsingar í sima 50756.
Voivo Amazon
Til sölu Volvo Amazon,
árgerð 1962. Upplýsingar í
síma 33908.
íbúð
Barnlaus hjón óska eftir
2ja—3ja herb. íbúð á svæð-
inu Snorrabraut-Grensás-
vegur í 4—5 mánuði. UppL
í síma 15800.
Enskunám í Englandi
Lærið ensku hjá úrvals-
kennurum í Englandi og
dveljizt á góðu hóteli við
ströndina. Uppl. veitir
Ferðaskrifstofan Útsýn,
Austurstræti 17.
Matsveinar
Matsvein vantar um næstu
áramót á einn nýjasta og
stærsta síldveiðibátinn. —
Reglusemi áskilin. Svar
óskast sent í P. H. 1332,
Reykjavík.
ATHUGIÐ!
Bezt að auglýsa
i. Morgunb) aðinu
Málaravinna
Önnumst alla málaravinnu.
Jón ög Róbert,
sími 15667 og 21893.
Trésmíðaverkstæði
Getum bætt við okkur
verkefnum. Innréttingar og
breytingar. Upplýsingar í
síma 51914.
Keflavík — Njarðvík
3ja herb. einbýlishús eða
íbúð óskast til leigu í marz.
Donald B. David,
KeflavíkurflugvellL
Sími 4118.
Klínikstúlka óskast
nú þegar. Reglusöm og dug
leg stúlka óskast. Þarf að
hafa landspróf eða hlið-
stæða menntun. Uppl. milli
kl. 5—7.Guðrún Gísladóttir
tannlæknir, Ægisgötu 10.
Atvinna í Bretlandi
Ráðningarskrifstofa í Lond
on getur útvegað ísl. stúlk-
um dvöl á góðum enskum
heimilum. Uppl. veitir
Ferðaskrifstofan Útsýn,
Austurstræti 17.
Til leigu
fjögurra herb. einbýlishús
í Kópavogi til 14. maí ’67.
Bílskúr getur fylgt. Tilboð
sendist afgr. Mbl. f. mánu-
dagskvöld merkt „Einbýlis
hús 8431“.
Húsmæður, stofnanir!
Vélhreingerning, ódýr og
vönduð vinna. Vanir menn.
Ræsting sf. Sími 14096.
Blaðburðarfólk
vantar í eftirtalin hverfi:
Hluti af Blesugróf
Meðalholt
Lambastaðahverfi
Skerjaf. - sunnan fl.
Breðagerði
Hraunteigur
Seltjarnarnes
Skólabraut
60 ára er í dag Kristinn Einars
son, Hraunteigi 28, Reykjavík.
Hann verður að heiman í dag.
I dag gefur séra Arngrímur
Jónsson saman í hjónaband í
Árbæjarkirkju Guðrúnu Erlu
Björgvinsdóttur, forstöðukom
dagheimilisins í Kópavogi og Jói
Bóðvarsson, menntaskólakennarí
Heimili þeirra er að Mávahlíi
46.
í dag verða gefin saman
hjónaband af séra Þorsteín
Björnssyni, ungfrú Guðrún Ólö
Svavarsdóttir, Skipasundi 62 oj
Viðar Bjarnason frá Stykkis
hólmL
.tfl"
~~ Valsmenn ekki af baki dcitnir!-