Morgunblaðið - 28.02.1967, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 1967.
BILALEICAN
FERÐ
SÍMI 34406
Daggjöld kr. 300,00
og kr. 2,50 á ekinn km.
SENDU M
MAGIMÚSAR
SKIPHOLTI21 SÍMAR 21190
eftír lokun'slmi 40381 ”
^ tiMi 1.44.44
Hveríisgötu 103.
Sími eftir lokun 31160.
LITLA
bílaleigon
Ingólfsstræti 11.
Hagstætt leigugjald.
Bensín innifalið í leigugjaldi.
Sími 14970
BILALEIGAN
VAKUR
Sundlaugaveg 12. Sími 35135.
Eftir lokun 34936 og 36217.
f r lí/SA M
i5£\/L@7/3&'
RAUOARÁRSTÍG 31 SÍMI 22022
BÍLALEIGAN
EKILL sf.
Kópavogi.
Sími 40145
ÞR0STUR'
22-1-75
Ökukennsla
Upplýsingar í sima
14996
Bezt að auglýsa
í Morgunblainu
Smitberandi
kennslutæki.
Lesandi skrifar:
„Skátasamtökin hafa látið
margt gott af sér leiða. T.d.
hlutast til um kennslu í lífgun
úr dauðadái. Við þessa
kennslu eru notuð ýms tæki,
eitt þeiirra úr gúmmídúkka,
sem raunar að því er virðist
æði gagnslítið kennslutæki
hins vegar varhugavert. Við
að hinda um beinbrot er
dúkka þessi gjöjsamlega
gagnslaus, því hvergi örlar
fyrir beinum. Við kennslu í
blástursaðferð getur hún blátt
áfram verið smitberi. Börnin
eru látin blása 1 vit þessarar
dúkku, að vísu er ný lérefts-
tuska eða grisja lögð yfir
munninn á dúkkunni og þurrk-
að af með klút eftir hvert
barn, en hér er engan veg-
inn um öryggi að ræða og að-
ferðin óeðlileg.
Mér er kunnugt um að til er
kennslutæki (líkan) svo úr
garði gert að hægt er að losa
munnstýkkið frá andlitinu,
þannig að hægt er að skipta
um munn á „dúkkunni“ eftir
hverja notkun og talið er örugg
ast að sjóða þessi munnstykki
í 15 mín. eftir hverja notkun
og einnig mun vera hægt að
skipta um „lungu“ í þessu sama
kennslutæki, sem hlýtur einnig
að vera mikilvægt, en hvorugt
þetta er hægt í dúkk-
unni.
Nú er mér spurn hvers
vegna leyfir skólalæknir eða
landlæknir notkun kennslu-
tækja, sem geta verið smitber-
ar t.d. berkla eins og Umrædd
gúmmídúkka hlýtur að geta
verið? Jafnvel þótt líkurnar
séu e.t.v. ein á móti þúsund.
Skátamóðir."
★ Gefið blóð, eða . . . .
Lesandi skrifar:
„Mig langar til að skrifa
þér nokkrar línur í þeirri von
að þau megi birtast. Svo er mál
með vexti að ég og 3 aðrir
kunningjar mínir ætluðum í
Blóðbankann á laugardaginn
var 11. febr. ’67 til þess að
gefa blóð. En eins og öllum
er kunnugt er alltaf verið að
hvetja fólk til að gefa blóð,
og ætluðum við að verða við
þeirri beiðni.
Jæja, Blóðbankanum er víst
lokað kl. 11 f.h. á laugardög-
um, en á laugardaginn kom-
um við alveg um ellefúleytið
og verið að loka.
Ég sá eina hjúkrunarkonuna
þegar hún lokaði.
Úr því að klukkan var ekki
nema eina til tvær mínútur
yfir ellefu þá ákvað ég að
drepa á dyr, og það gerði ég.
Hjúkrunarkona kom til dyra
og sagði ég henni að ég væri
kominn til að gefa blóð, en því
miður sagði hún það er búið
að loka, og ekki hægt að taka
á móti meira blóði í dag, —
undarlegt, því klukkan var
ekki komin nema eina til tvær
mínútur yfir lokunartíma. Eða
vantar ekki tilfinnanlega mik-
ið blóð?
Fyrir skömmu birtist mynd
í einu dagblaðanna af þeim
blóðbirgðum sem blóðbankinn
á, þær voru sáralitlar taldar.
Rauðl kross íslands hefur sett
þessi orð sem kjörorð: „Gefið
blóð — bjargið lífi.“ Sem sagt
við ætluðum að reyna að
bjarga lífi, en þá er lokað á
okkur.
Ég ætla ekki að hafa þessi
orð lengri, en það er ósk mín
og von, að aðrir fái ekki svip-
aðar móttökur.
Þökk fyrir birtinguna.
B. 0.“
Holl lesning
Móðir skrifar:
„Kæri Velvakandi!
Mig langar til að vekja at-
hygli á bók, sem 10 ára syni
mínum var gefin fyrir skömmu.
Bókin heitir Aimée „Á leið til
Agra“, og er eftir Sommerfelt,
þýdd á ágæta íslenzku af Sig-
urlaugu Björnsdóttur.
Sagan gerist á Indlandi og
segir frá tveimur systkinum,
13 ára dreng og 7 ára telpu,
sem leggja af stað fótgangandi
í 300 mílna ferðalag — til Agra
í því skyni að leita telpunni
lækningar við augnveiki, þar
eð hún átti á hættu að verða
blind, ef ekkert yrði að gert.
Ástæðan til þess, að drengur-
inn leggur á sig þessa löngu
og erfiðu ferð, þar sem marg-
víslegar hættur 6teðjuðu að
þeim systkinunum, var þó
ekki eingöngu sú, að hann
vildi forða systur sinni frá því
að missa sjónina. Henni hafði
sem sé verið heitið því, að hún
skyldi fá sæti í skóla næsta
vetur, og drengurinn sem hafði
sjálfur aldrei fengið að fara í
skóla, hafði einsett sér að
nema af systur sinni allt það,
sem henni yrði kennt. Sagan
greinir svo frá því, hvernig
þeim systkinunum reiddi af á
ferðalaginu.
Mér virðist sem þessi bók
hafi flesta kosti góðrar barna-
bókar. Hún lýsir lífinu í landi,
sem er íslenzkum börnum
mjög framandi og vekur það
vafalaust til umhugsunar um
margt, sem þau hafa aldrei
hugsað um áður. Hún flytur
hinum ungu lesendum fagran
boðskap hjálpsemi og samúðar
með þeim, sem eiga bágt, og
auk þess er hún spennandi og
skemmtileg aflestrar, því að
vitanlega lenda börnin í mörg
um ævintýrum og hættum á
ferðalagi sínu.
Bókin hefur vakið verðskuld
aða athygli erlendis, því að
hún hefur verið þýdd og gefin
út í 17 löndum, auk íslands,
og hlotið 10 mismunandi verð-
laun frá ýmsum menningar-
stofnunum í þessum löndum.
En því vildi ég vekja athygli
á henni hér, að ég hef hvergi
séð á hana minnzt, enda þótt
ég sé þess fullviss, að þessi
litla fallega bók sé óvenju hollt
og skemmtilegt lestrarefni 9—-
13 ára drengjum, og vafalaust
munu talsvert eldri telpur
hafa ánægju af að lesa hanau
Með þökk fyrir birtinguna.
Móðir.“
'A Verðhækkun?
Lesandi skrifar:
„Kæri Velvakandi!
Má ég, samkv. beiðni hátt-
virtra yfirvalda, benda á að
ekki er hlaupið að því að hafa
hemil á verðhækkunum þrátt
fyrir lögin. Lýsi er eitt af því,
sem mikið er notað á mínu
heimili og mun verða, þrátt
fyrir nýja og verulega verð-
hækkun. Nú er farið að selja
lýsi í þunnum glerflöskum,
sem ekki eru teknar aftur, mér
er spurn hvers vegna ekki?, og
þegar mælt er lýsismagnið í
þessum flöskum, kemur í ljós
að rétt um 30% minna magn
er í þeim heldur en var í plast-
flöskunum. Þetta er dálagleg
vérðhækkun og með öllu ó-
skiljanleg þar sem ég veit ekki
til þess að sjómenn fái 30%
meir fyrir lifrina né munu
starfsmenn Lýsi hf. fá 30%
hærri laun nú en fyrir verð-
stöðvun. Sama verð er á þess-
um flöskum og plastflöskunum.
Má biðja forsvarsmenn Lýsi hf.
um skýringu.
Flatabúi“
Allt á sama stað
TIL SÖLU
Morris 1100 ’65
Volkswagen ’62.
Hillmann Huasky ’64.
Commer Cob. ’66.
Hillmann Super Minx Station ’66.
Útvarp, tvöfaldur dekkjagangur.
Ford Fairlane ’58.
Hillmann IMP. ’66.
Singer Vogue ’65.
Opel Caravan ’64.
Willy’s jeep ’46.
Willy’s jeep með Egilsstálhúsi ’66.
EGILL VILHJÁLMSSOIM HF
SÍMI 22240.
ALLTAF FJÖLGAR VOLKSWAGEN
Enginn vatnskassi Ekkert vatn,
sem getur soðið @ Engar lekar
vatnshosur ^ Ekkert ryð @ Engin
vatnsdæla © Enginn frostlögur
Engar sprungnar blokkir
Sími
11687
21240
V.W. 1300 — 50 ha. vél — Kr. 153.000,-
V.W. 1500 — 53 ha. vél — Kr. 162.000,-
Laugavegi
170-172