Morgunblaðið - 28.02.1967, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 1967.
5
Jóhann Hafstein, dómsmálaráðherra, á Alþingi í gœr:
Stór gæzlu- og björgunar-
þyrla kostar 40 milljónir
— Cetur leyst af hólmi Sif og minni varSskipin — Land-
helgisgœzlunni falin nákvœm athugun
JÓHANN Hafstein, dóms-
málaráðherra, gerði Efri deild
Alþingis í gær, ítarlega grein
fyrir framtíðarviðhorfum í
tækjakaupuin Landhelgis-
gæzlunnar og las m.a. skýrslu
sem honum hefur borizt frá
forstjóra Landhelgisgæzlunn-
ar, Pétri Sigurðssyni um
þessi mál.
í skýrslu þessari kemur
fram, að stór tveggja hreyfla
þyrla mundi geta annað þeim
verkefnum, sem flugvél land
helgisgæzlunnar hefur með
höndum svo og væntanlega
einnig verkefnum minni varð
skipanna.
Slík þyrla mundi kosta um
40 milljónir króna og af-
greiðslutími hennar 12—14
mánuðir.
Dómsmálaráðherra skýrði
frá því i ræðu sinni. að hann
hefði falið forstjóra Land-
helgisgæzlunnar að gera ná-
kvæma áætlun um reksturs-
kostnað slíkrar þyrlu, afla
ákveðinna upplýsinga um
stofnkostnað og jafnframt
rekstri hverra tækja Land-
helgisgæzlunnar. sem nú eru
i notkun, hægt er að hætta
við tilkomu slíkrar þyrlu. —
Hér fara á eftir kaflar úr
skýrslu þeirri, sem Jóhann
Hafstein las upp á Alþingi í
gær:
„í>egar Landhelgisgæzlan fyr-
ir tæpum 15 árum síðan hóf
fyrstu tilraunir sínar með reglu-
legt gæzluflug, kom fljótt í ljós,
að flugvélar mundu vera mjög
hagkvæm tæki til almennrar
fiskveiðigæzlu hér við land auk
þess, sem þær eru um leið til-
tækar til aðstoðar við björgunar-
störf o. fl. Af þessu leiddi, að
þáv. dómsmrh.. dr. Biarni Bene-
diktsson, heimilaði Landhelgis-
gæzlunni að kaupa Katalína-flug
bátinn, TF-Rán og útbúa hann
sérstaklega til þessara starfa.
Var Rán síðan notuð i þessu
skyni frá 1956 til ársins 1962, en
þá var komið að svo umfangs-
mikilli flokkun á flugbátnum, að
talið var hagkvæmara að leita
eftir kaupum á nýrri flugvél.
Um sama leyti hætti líka Flug-
félag íslands rekstri flugbáts
sömu tegundar, en milli þess fé-
lags og Landhelgisgæzlunnar hef
ur alla tíð verið mikil samvinna
í flugrekstri, t.d. lán á varahlut-
um eða flugmönnum, ef á hefði
þurft að halda. Var Landhelgis-
gæzlunni því heimilað að hætta
rekstri Ránar og kaupa nýja
flugvél af Skymastergerð, TF-
Cif í hennar stað og hefur hún
verið í stöðugri notkun siðan um
áramótin 1962—1963. Sem kunn
ugt er, hafa báðar þessar gæzlu
flugvélar verið mjög farsælar í
starfi sínu og orðið Landhelgis-
gæzlunni til ómetanlegs gagns.
Hafa á þessum árum frá 1956—
1966 verið flognar að meðaltali
rúmlega 372 klst. á ári við gæzlu
og björgunarstörf, 182 fiskiskip
staðin að ólöglegum veiðum, þar
af 20 erlendir togarar og það,
sem mest er um vert er, að með
þessari starfsemi hefur eflaust
verið komið í veg fyrir fjölda
annarra brota. En eins og með
Rán tekur Sif nú að eldast og
verða jafnt og þétt óhagstæðari
í rekstri eins og hinar yngri
fiugvélategundir auk þess, sera
nú styttist óðum í dýra flokkun
hennar. Um sl. áramót voru
rúmlega 1200 flugstundir eftir
eða um þriggja ára venjuleg
notkun Landhelgisgæzlunnar.
Hins vegar má gera ráð fyrir allt
að tveggja ára undirbúningi,
ef skipta ætti um flugvél.
Hagkvæmt að endurnýja
flugvélakost með þyrlu
Af þessum orsökum hóf Land-
helgisgæzlan því fyrir nokkru
síðan athuganir á hvern hátt
hagkvæmast yrði að endurnýja
Sif, þegar þar að kæmi og kom
þá fljótt í ljós, að ef þyrla eða
þyrlur gætu annað þeirri þjón-
ustu, sem Sif veitti nú, mundi
það verða Landhelgisgæzlunni
sem heild mjög hagkvæmt vegna
hæfni þyrlanna til þess að fram-
kvæma ýmis önnur aðkallandi
verk, sem hvorki Sif né nein
önnur svipuð tegund getur ekki
unnið í dag. Eins og kunnugt er
hefur Landhelgisgæzlan lengi
haft áhuga á notkun þyrla og
hefur hún reynt að fylgjast með
þróun þeirra eftir föngum. Arið
1960 varð t.d. varðskipið Óðinn
byggt með þyrluþilfari og um
svipað leyti var einn af flug-
mönnum Landhelgisgæzlunnar,
Björn Jónsson, sérþjálfaður til
þyrluflugs í Bandaríkjunum. —
Leiddi það síðan um nokkurra
ára bil til sérstakrar þyrlusam-
vinnu við varnarliðið á Keflavík
urflugvelli, þar sem Björn hélt
áfram þjálfun sinni á þyrlum
varnarliðsins, en þær æfðu aft-
ur lendingar og flugtök á Óðni.
Lauk því með vel heppnuðum
sameiginlegum björgunarleið-
angri til Grænlands til þess að
sækja sjúkling árið 1962.
Reynslan af XF-EIR
í framhaldi af þessu heimilaði
svo Jóhann Hafstein dómsmrh.
Landhelgisgæzlunni árið 1964 að
kaupa til reynslu litla þyrlu, TF-
Eir af gerðinni Bell-47 J2A í
samvinnu við Slysavarnafélag ís
lands, og hefur hún verið í stöð-
ugri notkun síðan í ársbyrjun
1965. Á þessum tíma hefur Eir
verið notuð við framkvæmd
hinna fjölbreyttustu verka víða
um land, bæði um borð í þeim
varðskipum, sem hafa þyrluþil-
far eða ein sér í landi. Hafa
samtals verið flognar rúml. 22
þús. sjómílur á 438 flugstundum
og fluttir 431 farþ. stundum við
hin erfiðustu skilyrði, bæði
sjúklingar, leitarmenn, vísinda-
menn svo og verkfræðingar í
sambandi við framkvæmdir og
margt fleira auk þess, sem þyrl-
an hefur oft tekið þátt í leit að
týndu fólki og jafnvel eftirleitar-
fé fyrir bændur. Til Landhelgis-
gæzlu hefur Eir hingað til verið
lílt notuð nema rétt með strönd-
um fram við Suðvesturland, sem
stafar einvörðungu af smæð
hennar og þeim takmörkunum,
sem af því leiða eins og t. d. ein-
um hreyfli og litlu flugþoli, því
að reynslan af slíkri notkun
hennar hefur verið með afbrigð-
um góð svo langt, sem hún nær.
Hafa starfsmenn Land'helgisgæzl-
unnar þannig á undanförnum ár-
um öðlazt álit allra þeirra, sem
unnið hafa með þyrlum, að þær
geti orðið Landhelgisgæzlunni
hið mesta þarfaþing.
Kostir þyrlunnar
Fyrir öll gæzlu- og björgunar-
störf hafa þyrlurnar nefnilega þá
miklu kosti umfram venjulegar
flugvélar að geta lent eða hafið
sig til flugs hvar sem er, hvort
heldur á sjó eða landi, svo og
verið kyrrar í loftinu yfir þeim
stað, sem verið er að athuga.
Enn fremur hefur reynslan sýnt,
að þær eru bæði mjög góðar til
sjónflugs í slæmu skyggni og
sérstaklega stöðugar í órólegu
veðri, sem er afar mikilvægt við
flug í veðrasömu fjallalendi eins
og hér. Hins vegar ber því ekki
að nei'.a, að þyrlur hafa til
skamms tíma haft mun minna
flugþol en venjulegar vélar svip-
aðrar stærðar. en á móti þvl
vegur, að þar sem þyrlurnar eru
óháðar flugvöllum, eiga þær auð-
veldara með að auka á eldsneyt-
isforða sinn frá nærtækri lands-
stöð eða varðskipi. Er þetta
miklu þýðingarmeira atriði en
virðist í fljótu bragði, því að
þegar flugskilyrði eru erfið hér
á landi, hafa venjulegar, stórar
flugvélar hingað til átt margra
kosta völ um örugga lendingar-
staði. Gæzluflugvélar hafa þvi
yfirleitt farið af stað búnar til
langflugs, svo að þær gætu lent
á erlendum flugvöllum í neyðar-
tilfellum. Þetta atriði þyrfti
gæzluþyrla hins vegar ekki að
taka tillit til og má því skipu-
leggja flug hennar á mun
óbundnari og hagkvæmari hátt
en hinna. Við leit að týndum
bátum langt undan landi eða við
eftirför erlendra fiskiskipa, er þó
ekki alltaf hægt að skreppa frá
til áfyllingar eldsneytis og getur
þá mikið flugþol verið nauðsyn-
legt nema önnur flugvél sé til-
tæk til þess að leysa hina af.
Slík tilfelli hafa þó ætíð verið
fá og voru leyst þannig, að á
fyrstu árum gæzluflugsins, að
leigð var heppileg farþegaflug-
vél til slíkra ígripa og látin halda
áfram leitinni eða eftirförinni
undir stjórn yfirmanna Land-
helgisgæzlunnar. Siðan Sif var
tekin í no*kun, hefur það þó ekki
þurft vegna þess mikla flugþols
hennar. Ekki er þó síður hægt
að gera slíkt nú en þá, ef á þyrfti
að halda. í þessu sambandi er
rétt að benda á, að það er mjög
líklegt, að hægt sé að láta gæzlu-
þyrlu beita skotvopnum á sama
hátt og varðskip, til þess að
stöðva grunuð skip eða fá þau til
að fylgja settum fyrirmælum og
þar með stytta eða koma í veg
fyrir langa eftirför. Stór þyrla
ætti að hafa jafngóðar eða jafn-
vel betri aðstæður til þess en
venjulegt varðskip. Orsök þess
að Landhelgisgæzlan hefur hing-
að til ekki talið ráðlegt að láta
gæzluflugvélar sínar nota skot-
Framhald á bls. 22.
1967
Peugeot
1967
£04
404
5 mamia kr. 242 þús.
Sterkbyggbir
Sparneytnir
Háir frá vegi
204
7 manna station kr. 265 þús.
Frábærir aksturseiginleikar —
Ódýrastir sambærilegra bila
20^
5 manna station kr. 225 þús.
5 manna kr. 208 þús.
HAFRAFELL HF
Brautarholti 22.
Símar 23511 og 34560.