Morgunblaðið - 28.02.1967, Qupperneq 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 1967.
I
Gríptu: Bjórkassarnir flugu þéttar en flugur á hásumardegi.
tonn áður en við komum til
Cuxhaven og þegar svoleiðis
er selt fæst fyrir aflann
hæsta verð sem er á markað-
inum þann daginn. Yfirleitt
er byrjað að selja klukkan
Aflaskipið Maí kemur í höfn.
Maí kemur úr metsúluferð
TOGARINN MAf kom til
Hafnarfjarðar sl. laugardag
eftir metsöluferðina til Cux-
haven. Það var margt manna
á bryggjunni og allir broshýr
ir og glaðir nema fréttamenn,
sem stóðu og börðu sér í kuld
anum. Við komum inn í
brúna mátulega til að heyra
skipstjórann hrópa þrumu-
röddu: „Ertu búinn að binda,
Guðmundur Marteinsson?“
Halldór Halldórsson, skip-
stjóri á Maí, hefur vakið
mikla athygli vegna aflasæld
ar sinnar, í vetur, og hefur nú
kórónað fyrri afrek með því
að selja tæp 290 tonn af karfa
fyrir 307,793 mörk og 1 pfenn
ing. Þetta vakti að sjálfsögðu
athygli hér heima, og ekki
síður í Þýzkalandi því að Maí
var fyrsta skipið sem seldi
ferskfisk í Cuxhaven fyrir
meira en þrjú hundruð þús-
und mörk. Flykktust því þýzk
ir blaðamenn um borð til að
ræða við Halldór og honum
var gefin forláta stytta í við-
urkenningarskyni.
— Við vorum um 24 daga
að þessu öllu saman, segir
Halldór, — fórum út um síð-
ustu mánaðamót og á miðin
við Austur-Grænland. Þar
fengum við strax sæmilegan
afla en fórum af þeim miðum
vegna veðurs og fikruðum
okkur heim á leið. En á
heimamiðum var ekkert að fá
svo við héldum aftur til
Grænlands á svipaðar slóðir.
Vorum þar einskipa lengst af,
en Sigurður og Víkingur
komu svo í restina.
Það var svo farið inn til
Keflavíkur áður en við héld-
um til Þýzkalands því að
nokkrir menn voru að fara í
frí. Við vorum 26 sem sigld-
um, en venjuleg áhöfn er 31
maður.
— Þeir fóru í frí, en er
annars sama áhöfn hjá þér?
Halldor Halldorsson, skipstjori, með styttuna sem hann fekk
fyrir sölumetið.
Sælgætisdós datt í sjóinn, og var veidd upp aftur.
— Já, það eru alltaf mikið
til sömu menn, prýðisdrengir
allir saman. í>að er ekki síður
þeim að þakka að við fáum
gott verð fyrir fiskinn. Verð-
ið fer mikið eftir því hvernig
farið er með vöruna um borð,
og meðferðin fer mikið eftir
mannskapnum. Ég hefi aldrei
orðið fyrir því að koma með
skemmdan fisk á erlendan
markað, jafnvel þótt það tæki
allt að 24 daga að koma hon-
um þangað.
— Nú, við vorum seinir á
markaðinn, komum ekki fyrr
en klukkan fimm um nóttina
en ákváðum að byrja strax
að landa. Við vorum raunar
búnir að selja rúm hundrað
átta á morgnana en við seld-
um tvisvar, fyrst klukkan
átta og svo klukkan tíu.
Þetta var frekar stór karfi,
jafn og góður.
Nú vilja þeir fá mig aftur
til Cuxhaven 17. til 21. marz
því að þá verður góður mark
aður. Ég vona svo bara að
heppnin haldist. Þessir síð-
ustu fjórir túrar hafa verið
mjög góðir. Tvö fullfermi,
17.100 punda sala í Englandi
og svo þetta.
— Og hverju viltu þakka
þessa veiðisæld þína?
— Tja, ég fer mínar eigin
leiðir og jafnvel helzt þar
sem engin önnur skip eru. Ef
menn eru sjálfstæðir — og
leita vel — þá gengur þetta
ágætlega.
Iðnaðarhúsnæði
Til sölu er réttur til að byggja 2. hæð, að stærð
250 fermetrar, ofan á iðnaðarhús á góðum stað í
Reykjavík. Með kaupunum fylgir allt mótatimbur.
Áml Stefánsson, hrl. Málflutningur. Fasteignasala.
Suðurgötu 4. — Sími 14314.
Bifvélavirkjar
Óskum eftir bifvélavirkjum. Uppl. gefur Matthías
Guðmundsson.
EGILL VILHJÁLMSSON HF.
Laugavegi 118. — Sími 22240.