Morgunblaðið - 23.03.1967, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. MARZ 1967.
Mynd þessi var tekin aí snekkju brezka sæfarans Sir Francis
Chichesters skömmu eftir að honum tókst að sigla fyrir suður-
odda Suður-Ameríku nú um helgina.
Listafélag M.R.
kynnir ,Barnalist'
1 DAG opnar Listafélag Mennta-
skólans í Reykjavik sýningu á
list barna á aldrinum 6—14 ára
úr fjórum skólum borgarinnar.
Sýningin er.nefnd Barnalist og
er til húsa í sýningarsal ný-
byggingar Menntaskólans (Casa
Nova). Arthur Ólafsson listamað-
ur hefur valið myndirnar á sýn-
Ingunni, en hann kennir við
Handíða- og Myndlistarskólann,
og eru nokkrar myndanna gerð-
ar af nemendum þess skóla.
Krossfestingin
Sýningin á lítt skylt við al-
inennar skólasýningar og er sér-
stæð að því leyti, að leitast er við
að sýna listþróunarferil barns
um nokkurra ára skeið, þannig
á lítil stúlka fimm myndir á sýn-
ingunni, sem gerðar eru á fimm
árum af sama eða svipuðu
„mótífi". Auk þess eru á sýning-
unni myndhópar, þ. e. nokkrar
myndir um sama mótíf, t. d.
krossfestinguna og myndir nokk-
urra barna, sem þau hafa teikn-
að eftir minni af sömu fyrir-
mynd.
Glöggt má sjá af þessu úrvali
mynda og teikninga á téðri sýn-
ingu, að yngsta kynslóðin á sér
mjög efnilega myndlistarmenn
hvað sem síðar kann að verða.
í sýningarskrá segir m. a. í á-
varpi Listafélags Menntaskólans:
„Barnateiknun hefur haft mikil-
vægu hlutverki að gegna i mynd-
listarþróun 20. aldar, á svipaðan
hátt og myndsköpun „ólærðra"
listamanna og frumstæðra þjóða
hefur verið aflvaki byltingar-
kenndra hugmynda. Myndlist
nokkurra merkustu listmálara
nútímans t. d. Klee, Dubuffet og
Miro ber ótvíræðan keim af
barnalist."
Svo sem fyrr er sagt eiga börn
úr fjórum skólum borgarinnar
myndir á sýningunni, en skólarn-
ir eru: Mýrarhúsaskólinn, Mynd-
listarskólinn á Freyjugötu, Æf-
ingardeild Kennaraskólans og
Handíða- og Myndlistarskólinn.
Listafélag Menntaskólans hef-
ur hlotið verðskuldað lof fyrir
mjög virka starfsemi, sem er orð-
in snar þáttur í menningarlífi
borgarinnar.
Hér bryddar félagið upp á nýju
og sérstæðu verkefni, sem lítill
gaumur hefur verið gefinn fram
að þessu og er ástæða til að
hvetja fólk til að kynna sér til-
tölulega þroskaða myndlist barna
sinna.
Ætlaöi að
setann af
París, 22. marz (AP)
FRÖNSK blöð skýra frá því a»
í dag hafl verið gerð tilraun til
að ráða Léopold-Sédar Senghor.
forseta Senegal, af dögum í Dak-
ar.
Forsetinn var í ökuferð um
höfuðborgxna . opinni bifreið
þegar maður nokkur ruddist að
bifreiðinni og dró upp skamm-
byssu, sem hann miðaði að for-
setanum. Tókst lífvörðum forset-
ráða for-
dögum
ans að handtaka manninn áður
en hanr. hleypti af. Óstaðfest
fregr. hermir að tilræðismaður-
inn hafi áðui verið opinber
starfsmaður í Senegal.
Eftir morðtiliaunina settust
fjórir eða fimm aí lífvörðum for-
setans upp á bifreiðina, sem síð-
an var ekið til forsetahallarinn-
ar. Þangað boðaði svo Senghor
yfirmann öryggxsmála á sinn
fund.
Danska stjérnin ræðir
flugmál Færeyinga
Síðusfu aðgerðir Fcereyinga breyfa engu um afsföðu hennar
JENS Otto Krag forsætisráð-
herra og Sv. Horn samgöngu-
málaráðherra ætluðu að ræða
srman í dag um það ástand, sem
komið er upp í sambandi við
flugsamgöngur til Færeyja. Eftir
að Lögþingið eftir öllu að dæma
mun verða aðalhluthafi í hinu
nýja félagi, sem taka á við eftir
„Faroe Airways", en á því var
fullkominn einkarekstur, hefur
málið komizt á pólitískara stig
en það var áður.
Hinar nýju aðgerðir Færey-
inga í þessu máli, sem miða
fyrst og fremst að því að hafa
áhrif á tíðni flugsamgangna,
munu ekki breyta neinu varð-
andi málefnalega afstöðu danskra
flugumferðaryfirvalda, segir í
frétt samgöngumálaráðuneytis-
ins. Ráðuneytið er áfram þeirrar
skoðunar, að grundvöllur flug-
ferða á Færeyjum sé of lítill til
þess að hann þoli reglulegar
ferðir tveggja flugfélaga, enda
þótt reiknað sé með þeirri aukn-
ingu, sem gjarnan kemur í kjöl-
far reglulegra samgangna.
Þar að auki er haldið fast
við yfirlýsingar forsætisráðherra
Norðurlanda frá viðræðum
þeirra í fyrrasumar, en þar kom
fram mikil andstaða af hálfu
Dana og Svía gegn þeirri ákvörð-
un norsku stjórnarinnar um að
láta „Braathens SAFE“ í té íviln-
anir á flugleiðinni um Norður-
Noreg.
Nýr hæstaréttar-
lögmaður
FYRIR skömmu lauk prófraun
sinni til þess að öðlast rétt til
málflutnings við Hæstarétt, Matt-
hías Á. Mathiesen, sparisjóðs-
stjóri Hafnarfirði.
Matthías er fæddur í Hafnar-
firði 6. ágúst 1931, sonur hjón-
anna Árna M. Mathiesen verzl-
unarstjóra, iem látinn er, og
konu hans Svövu E. Mathiesen.
Hann lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum { Reykjavík
1951 og embættisprófi í lögfræði
frá Háskóla íslands vorið 1957.
Matthías hóf að embættisprófi
lokknu störf í atvinnumálaráðu-
neytinu, en 1. ágúst 1958 var
hann ráðinn sparisjöðsstjóri
Sparisjóðs Hafnarfjarðar. H.'rr-
aðsdómslögmaður varð hann 21.
ágúst 1961.
Vorið 1959 var Matthías kosinn
alþingismaður Hafnfirðinga og
síðar um haustið einn af þing-
mönnum hins nýja Reykjanes-
kjördæmis. Hann skipar nú 1.
sæti lista Sjálfstæðismanna í
Reykjaneskjördæmi.
Á vegum Alþingis hafa Matt-
híasi verið falin ýmis trúnaðar-
störf. Hann á m. a. sæti í laga-
nefnd Norðurlandaráðs, í stjórn
þingmannasambands NATO-ríkj-
anna og í bankaráði Landsbanka
íslands.
Kvæntur er Matthfas Sigrúnu
Þorgilsdóttur og eiga þau þrjú
börn.
Lionsklúbburinn
Þór gefur til
• •
tlryrkja-
beimilisins
LION SKLÚBBURINN Þór
samþykkti á fundi sínum í gær
að gefa tuttugu og fimmþúsund
krónur til byggingar öryrkja-
heimilisins við Hátún.
öryrkjabandalagið þakkar gjöf
ina.
Vísai úr landi
fyrir njósnir
Róm, 22. marz (NTB)
TALSMAÐUR ítalska utanríkis-
ráðuneytisins skýrði frá því í
Róm í dag, að ríkisstjórnin hefði
vísað sovézkum sendiráðsstarfs-
manni úr landi. Er sendiráðsmað
urinn sagður hafa átt aðild að
alþjóða njósnahring, sem starf-
aði á Ítalíu, og er honum skipað
að hverfa úr landi innan tveggja
sólarhringa.
Upp komst um njósnahring-
inn meðan Svetlana, dóttir Stal-
íns, dvaldi í Róm, áður en hún
hélt til Sviss, að sögn dagblaða
í Róm. Þrír meðlimir njósna-
hringsins hafa verið handtekn-
ir og eru þeir sakaðir um njósn-
ir við Miðjarðarhafsstöðvar Atl-
antshafsbandalagsins. Þremenn-
ingar þessir eru Giorgio Rinaldi
Ghislieri, einn þekktasti fall-
hlífastökkvari Ítalíu, kona hans,
Mikið neta-
tjón Akrnnes-
bótn
AKRANESI, 22. marz: — Neta-
bátarnir lönduðu hér tvöhundr-
uð lestum af nnsgóðum fiski í
gær. Var reyndai sumt af hon-
um margra nátta í netunum, sem
hafa orðið fyrir miklum skemmd
um í undanger.gu óveðri og
brimi Vegna veðurs eru þessar
skemmdir þó hvergi nærri kann-
aðar. Bátarnir voru með tíu til
50 lestir hver. Línubáturinn Ás-
mundur var mtð þrjár lestir.
Danskt skip lestar hér 705
lestir af loðnumjöli til útflutn-
ings. Annars bíða menn eftir
góðu veðri og páskahrotunnL
h.j.þ.
sem er listmálari, og bifreiða-
stjóri hjónanna. Skýrir lögregl-
an svo frá að húr. hafi gert upp-
tæka sendistöð, filmur og skjöl,
sem fundust hjá þremenningun-
um.
Að sögn blaðanna hafa þre-
menningar þessir verið undir
eftirliti lögreglunnar um hríð.
Sannanir fengust hinsvegar ekki
fyrr en meðan á dvöl dóttur
Stalíns stóð.
Eggert Guðmundsson
Málverkasýning
í Keflavík
KL. 3 í dag opnar Eggert Guð-
mundsson listmálari málverka-
sýningu í Æskulýðsheimili Kefla
víkur. Sýningin verður opin til
kl. 10 fram á páskadagskvöld. Á
sýningunni verða um 35 mál-
verk, og eru sum þeirra til sölu.
Eggert mun svo síðar í vetur
halda málverkasýningu í vinnu-
stofu sinni við Hátún.
UM hadegið í gær var N-gola
eða kaldi hér á landi. Sunn-
an lands var iéttskýjað, en él
eða snjókoma fyrir norðan
Héraðsflóa og ísafjarðardjúp.
Frost var um allt land, allt
að 5 stxg fyrii sunnán, eri við
ast 5-8 stig fyrir norðan, mest
11 stig á Grímsstöðum.
Hæðin yfir Grænlandi færð
ist í aukana, óg því má búast
við norðlægri átt næstu daga.