Morgunblaðið - 23.03.1967, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 23.03.1967, Blaðsíða 22
22 MORG.UiNBXAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. MARZ 1067. t Valdimar Stefánsson, stýrimaður, Holtgotu 39, lézt 22. marz. Hólmfríður Helgadóttir. t Unnusta mín, dóttir okkar og systir Áslaug Axelsdóttir Hlíðarvegi 1, Kópavogi, andaðist 11. marz. Jarðarförin hefur farið fram. Þökikum auðsýnda samúð. Unnusti, foreldrar og bróðir. t Eiginkona mín Guðfinna Jóna Jóhannsdóttir, Langholtsveg 51, andaðist 21. marz. Einar Ermenreksson. t Eiginmaður minn Ágúst Guðmundsson frá Vestmannaeyjum, sem andaðist 18. marz si. verð ur jarðsunginn frá Fossvogs- kirkju þriðjudaginn 28. marz 1967 kl. 1,30 e.h. Ingveldur Gísladóttir. t Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Guðleifur ísleifsson skipstjóri, Kirkjuveg 28A, Keflavík, sem andaðist 20. þjn. verður jarðsunginn frá Keflavíkur- kirkju laugardaginn 25. marz. Athöfnin hefst með bæn að heimili hins látna kl. 3 e.h. Sveinhiidur Helgadóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. t* Eiginmaður minn, faðir okk ar, tengdafaðir og afi, Sigurður Sigurðsson fyrrv. kennari, lézt 15. þ. m. Jarðarförin hef- ur farið fram. Þökkum auð- sýnda samúð. Kristín Friðriksdóttir, Arnþór Sigurðsson, Arndís Arnadóttir, Erling Jón Sigurðsson, Kolbrún Gunnarsdóttir, Þorgerður R. Sigurðardóttir, Hákon Magnússon og barnabörn. Sæmundur Gíslason fyrrv. lögregluþjónn f GÆRDAG var til grafar bor- inn Sæmundur Gíslason, fyrrv. lögregluþjónn. Hann var fæddur í Reykjakoti í Ölvusi 20. júlí t Faðir okkar, Sigurður Ólafsson, kennari, lézt að hieimili sínu, Tjarnar- braut 3, Hafnarfirði, miðviku- daginn 22. marz. Börnin. t Jarðarför Harðar Jónssonar, Hlíðarvegi 25, ísafirði, sem lézt 15. þ. m. fer fram frá ísafjarðarkirkju Laugardaginn 25. marz kl. 2. Sigríður Ásgeirsdóttir, Jón Valdimarsson, börn og tengdabörn. t Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir, bróðir og afi, Janus Guðmundsson verkstjóri, Rauðarárstíg 24, verður jarðsunginn frá Foss- vogskirkju þriðjudaginn 28. þ.m. kl. 10,30 f.h. Athöfninni verður útvarpað. Jóhanna Ásgeirsdóttir, Guðrún Janusdóttir, Jensína Janusdóttir, Óli Sigurðsson, Jóhannes Guðmundsson, Janus Ólafsson. 1888 og lézt á Hrafnistu 14. þ.m. Þeim fækkar nú óðum, sem voru starfsfélagar mínir í lög- regluliðinu á fyrstu árunum eft- ir 1920. Flestir þeirra mætu manna eru nú horfnir af sjónar- sviðinu eftir vel unnin störf og dygga þjónustu, og minnist ég þeirra ætíð með virðingu og þakklæti í huga. Þann 1. febrúar 1921 gekk Sæmundur í lögreglulið Reykja- víkur og gegndi því starfi óslitið til ársloka 1958, er hann hætti stönfum fyrir aldurs sakir. Við Sæmundur vorum samstarfsmenn í lögreglunni í 37 ár og mörg fyrstu árin í náinni samvinnu við næturvörzlu í bænum. Lög- reglan var fámenn í þá daga og illa búin að tækjum, en oft sukk- samt á köflum, og þá kom sér oft vel, hvað Sæmundur var mik ið karlmenni að burðum. Ekki hafði næturvakt lögreglunnar bifreið til umráða fyrstu árin, og kom þá stundum fyrir, þegar fjarlægja þurfti menn af al- mannafæri, sem ekki voru fær- ir til gangs, að Sæmundur tók þá á öxlina og hélt á þeim heim til þeirra eða í fangahúsið, eftir því sem efni stóðu til' Tel ég, að hann hafi haft tveggja manna afl til allra átaka. Sæmundur var glæsilegur maður á velli og létt- ur í spori. Hann var ágætur sam- starfsmaður, ósérhlífinn og æðru laus, stilltur og prúður í fram- komu, bæði í lögreglustarfinu og utan þess, og vildi hvers manns vanda leysa, ef hann átti þess kost. Sæmundur hafði mikið yndi af hljómlist og var gæddur frábærri söngrödd. Á yngri ár- um mun hann hafa stefnt að því að fara til Ítalíu til söngnáms, en orðið að hætta við þá ákvörð- un vegna fjárskorts. Sæmundur var einn af stofnendum Lög- reglukórs Reykjavífcur. Fyrsti söngstjóri kórsins var hinn þjóð- kunni söngstjóri og tónskáld, Brynjólfur Þorláksson, organ- leikari, og sagði hann í samtali við mig, að Sæmundur hefði svo mikla hæfileika frá náttúrunnar hendi, að hann hefði getað náð langt á listabrautiinni sem tenór- söngvari, hefði hann hlotið góða þjálfun á því sviði. Mun Sæm- undur löngum hafa harmað það að geta ekki notið þessara hætfi- leika sinna til hlítar, þó að hann hefði þar um fá orð, því að hann var dulur maður og fámædtur um eigin hagi. Sæmundur var mikill hesta- maður og hestavinur og eignaðist hann marga góðhesta um æfina og annaðist hann þá af mikilli nákvæmni, bæði í húsi og á t Þakka af alhug auðsýnda samúð við andlát og jarðaríör konu minnar ferðalögum, enda var hann mikill dýravmur. Munu það hafa verið sannar sólskinsstundir í lifi hans, er hann átti þess kost að ferðast um landið á gæðingum sínum í góðra vina hópi. Ég ætla ekki að hafa þessi kveðjuorð til vinar míns öllu fleiri. Vammlaus heiðursmaður hefur fengið hvíld frá strífll þessa jarðneska Ufs, og vil ég færa honum innilegustu þakkir fyrir ánægjulegt samstarf, dreng- skap og vináttu og árna honum fararheilla til fagurra framtíðar- landa. Konu hans og ástvinum öllum votta ég dýpstu samúð. Guðbjörn Hansson. Jón L. Guðmnndsson — Kveðja — Fæddur 2. júlí 1949; fórst með mb. Freyju 1. marz 1967. ÞAÐ var okkur sorgarfrétt, þegar okkur skildist, að þú hefðir kvatt þennan heim. Við höfðum saknað þín í okkar hópi í vet- ur, fullan af æskufjöri og áræði, svo ung- ur, lífsglaður og bjartsýnn á komandi daga. Við munum ávallt minnast þín þannig. Unnustu, foreldrum, systkhuim og öðrum ástvinum vottum við okkar inni- legustu samúð, þér virðingu og þökk. Dunar við eyru gnýr af bylgjubroti, byrðingurinn lemur koldimm norðan hríð. Mannlegri orku beint gegn bana þroti, brimskaflar rísa, háð er lokastríð. Öldurnar brotna, bát í djúpið soga, baráttu lokið, tregi hjörtun sker, flogin að mönnum ör af bana boga, brimsúgur kaldur gegnum hugann fer. Liggur að baki sautján ára aldur, æskunnar vor í brjósti þínu hló. Nú ertu horfinn, hafsins faðmur kaldur huldi þig, vinur, djúpri grafar ró. Unnustu og móður megi Drottinn styðja, er mannlegu þreki sorgin gengur nær. Við skulum öll til Guðs um bætur biðja, blæðandi sár hans miskunn læknað fær. Yngstur þú varst af áhöfninni, vinur, örlög þér skópu gröf í votum reit. Niður að grunni gleði mannleg hrynur, glataðar vonir, brostin fyrirheit. Þökkum við samleið, nemendur að Núpi, náðarríkt vor í sporum þínum grær. Sofðu nú rótt, þó dimmt sé yfir djúpi, Drottinn þig blessi. Lifir minning kær. E.Þ. Alþjóðlegur boðskapur SJÖTTI Alþjóðaleikhúsdagurinn | veruleikans með skemmtilegum, er þann 27. marz 1967. í tiléfni ■ viturlegum og viðfelldnum hætti, af honum sendir Alþjóðaleikhús-; sem gerir því fært að viður- málastofnunin út ávarp, sem hin kenna veruleikann. Við, fólto fræga leikkona Helene Weigel leikhússins, reynum með starfi hefur samið og hljóðar þannig: | Framhald á bls. 24 Leiklistin og systurlistgreinar hennar geta aldrei metið skyldur sínar við mannfélagið um of. Áhrifamáttur okkar er mikill og ekki háður landamærum. Við bjóðum fólki til leikhúss okkar til þess að sýna því eftirmynd Kærar þakkir til allra, sem minntust mín á afmælisdag- inn 26/2 s.L með heimsóknum, Þakka hjartanlega allan þann hlýhug sem til mín hetf- ur streymt á sjötugsafmæli mínu. Bið öllum Guðs bless- unar og friðar. Gyðríður Pálsdóttir Seglbúðum. t Hjartans þakkir til allra þeirra mörgu nær og fjær, sem sýnt hafa okkur samúð og vinarhug við andlát og jarðarför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa Tryggva Siggeirssonar. Lára Guðlaugsdóttir, Helga Tryggvadóttir, Agnar Tryggvason, Lára Þorsteinsdóttir og barnbörn. Ásdísar Ólafar Þórðardóttur. Guð blessi ykkur öll. Guðmundur Benjamínsson Grund. t Þökkum innilega saanúð og hjálp við andlát og jarðarför Kristínar Þorsteinsdóttur hjúkrunarkonu. Fyrir hönd aðstandenda. Hólmfríður Þorsteinsdóttir. gjöfum og heillaskeytum. Lif- ið heil. Guðmundur Jónsson, Innra-HólmL Hjartanlegar þakkir færi ég þeim sem glöddu mig með gjöfum og skeytum á 85 ára afmæli mínu. Ólafur Auðunsson. Ég þakka af alhug vinum og velunnurum, nær og fjær, alla þá vinsemd og vildargjaf- ir, er ég varð aðnjótandi á sextugasta afmælisdegi mín- um þ. 15. þ. m. Sérstaklega þakka ég gömlu húsbændunum mínum og öðr- um félögum á Morgunblaðinu fágæta tryggð og rausn vifl gamlan starfsmann, sem legið hefur í lamasessi í 17 ár. Sá er vinur. er í raun reyn- ist trúr. Helga Jónasardóttir írá HólabakL

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.