Morgunblaðið - 23.03.1967, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. MARZ 1967.
Sögulegt
0 r eítir Stephen
SUmarfn Ransome
j..—— -— - — — --———
— Það er bersýnilegt, að einhver hefur ætlað að brjótast
hingað inn til mín.
heiman, nema rétt meðan hann
var við laganámið. Efri hluta
hússins hefur venð breytt í íbúð
ir, svo að aldrei hefur hann ver-
ið einn í húsinu, en einmanalegt
hlýfcur nú samt að vera þarna.
Ég fór að velta því fyrir mér,
hvort hann mund'. nú flytja í ný-
tízkulegri skrifstofu á torginu eft
ir að hafa hlotið þessa forfröm-
un, sero saksóknari — þó ekki
væri nema settur — og það fyr-
ir minn tilverknað.
Ég sá dyrnar á skrifstofu Mil-
es opnast — hægt. Ljósið skein
út og breikkaði, en mjókkaði svo
aftur. Það var ofurlítil vindgola.
Maðurinn, sem ég hafði séð flýta
sér svona mikið út, hafði ekk|
lokað almennilega á eftir sér.
Ég horfði á hurðina hreyfast
til og sá þá, að mér hafði ekki
skjátlazt. I>að var Brad, sem ég
hafði séð fara.
Ég gekk að dyrunum og inn I
biðstofu Miles — sem var forn-
leg og með leiðinlegum húsgögn
um og krukluðum skírteinum á
veggjunum. Þarr.a var dauða-
þögn. Ekkert hljóð nema utan af
götunni. Enginn var að tala
þarna fyrir innan.
Ég opnaði inn 1 innri skrifstof
una og stóð snögglega eins og
stirðnaður I sömu sporum.
Miles lá á gólfinu hjá skrif-
borðinu sínu. Hann var jakka-
laus og hvít skyrtan var með
sex blóðblettum. >að var ljótt
sár á hálsinum á honum og blóð-
pollur undir.
Það hafði verið rótað í skrif-
borðinu hans.
Þunnur reykui var utn stof-
una. Hann hafði komið frá ofn-
inum. Eitthvað hafði verið brennt
þarna og spjaldið ekki opnað.
Þetta gráa. sem lá í eldstæðinu
var pappirsaska.
Ég laut yfir Miles og tók á
slagæðinni. Hún var veik, en þó
varð hennar vart.
f þetta sinn hafði morðing-
inn verið of hroðvirkur — hon-
um hafði mistekizt. Gapandi sár-
ið á hálsinum á Miles hafði ver-
ið gert með einu hnífshragði, en
eitt hnífisbragð hafði bara ekki
nægt. Barkinn var í sundur en
aðalslagæðin ósnert. Aftur á
móti blæddi mikið úr smærri
æðunum. Ef Miles fengi ekki
hjálp eftir fáar mínútur yrði
hann dauður, þarna fyrir augun-
um á mér — en ef til vill var
enn hægt að bjarga honum.
Ég hljóp að simanum, hringdi
og sagði: — Sjúkravagn eins
fljótt og hægt er í Hirðstræti
124.
Svo fór ég út.
Ég flýtti mér ekkert, en gekk
þangað sem bíll Brads hafði stað
ið. Hann var farinn.
Ég var kominn inn í bílinn
minn, þegar sjúkrabíllinn kom
á tveim hjólum fyrir hornið,
með rauða ljósið uppi og bjöll-
unna í fullum gangi. Hann var
kominn að Kendallhúsinu og ég
af stað samtímis. Rétt við Feyju
hornið náði ég í Brad og elti
hann svo eftir það og gætti þess
að missa ekki sjónar af honum.
Hann stanzaði við bílahliðið og
þegar hann steig út úr bilnum
sínum, var ég þegar stiginn út og
beið hans.
— Tók nokkur annar eftir þér
Brad? ........Hlustaðu á mig,
Brad. Tók nokkuð annar eftir
þér. Þú ert í smóking.
Hann leit niður eftir sér og
var of utan við sig til þess að
evara, og sannfærðist um, að
hann væri í smóking.
— Þú verður mér nú kannski
ekki þakklátur fyrir það, en Vg
kallaði á sjúkrabíl.
— Sjúkrabíl? Til hvers? Hann
var steindauður.
— Nei, ekki alveg.
— Mér sýndist hann dauður
þegar ég sá hann, sagði Brad,
hásum rómi. — Ég gekk þarna
inn og þar lá hann á gólfinu.
Skorinn á háls, svo að ég gat
ekki efazt um, að hann væri
dauður.
— Hann kann að deyja. En ef
hann lifir þetta af, er málinu
lokið. Því að auðvitað veit hann
þá, hver gerði það.
— Ég fann hann svona, tafs-
aði Brad, — og ég hélt hann
væri dauður.
Hann sneri sér og gekk gegn
um myrkrið til vinnustofu sinn-
ar. Þar fór hann inn og læsti á
eftir sér. Ég horfði á eftir hon-
um og minntist þess, sem hann
hafði sagt við mig þar fyrir
nokkrum dögum. Hann hafði
sagt: — Miles veit það ekki, en
hann er að biðja um að verða
skorinn á háls.
Ég gekk inn í húsið bakdyra-
megin, til þess að forðast
Glendp og Kerry, og gekk upp
bakdyrastigann. Nú hef ég ver-
ið að horfa til vinnustofunnar
út um giuggann hjá mér. Brad
er þar enn, aleinn og gestirnir
eru farnir að brjóta heilann um,
hvað það geti verið, sem hefur
spillt skemmtuninni, sem þeir
bjuggust við þetta kvöld.
En það verður ekki langt þang
að til okkur berast fréttimar.
Vitanlega hefur þegar verið kall
að á lögregluna. Og á göngun-
um í sjúkrahúsmu í Crossgate
láta menn vafalaust dæluna
ganga. Og fregnin er vitanlega
kiomin út um allan bæinn. Og
nú verða ekki yfirvöldin neitt
væg, ef þau hreyfa sig á annað
borð. Það er ekki mikill vafi á
þvi, að áður en nóttin er liðin,
verður Brad kominn í varðhald.
Já, í varðhald. Nú dugar eng-
in trygging. Silkihanzkarnir
hafa verið teknir ofan. Brad
verður lokaður inni fyrir fullt
og allt.
Og ástæðan? Jú, hún er auð-
sæ. Sem varúðarráðstöfun. Þrjú
fórnardýr eru alveg nóg, ekki
sízt þegar það þriðja og síðasta
er saksóknarinn sjálfur.
30. kafli.
Sunnudagsnótt kl. 1.00.
hlusta á þetta segulband mitt.
Meðan ég var úti í kvöld, hef-
ur einihver spilað rúlluna á enda,
og ef til vill meira — það síð-
ast og það sem hefur mesta ásök
un í sér fólgna — það er að
segja uppljóstranir Brads um
Joyce — öðru nafni Zellu — og
eins skýrslu mína um morðtil-
raunina við Miles Kendall.
Þetta var gert meðan ég fór
til Crossgate — í annað sinn
sömu nóttina.
Og ég fór til Crossgate, vegna
þess hve Óhugnanlegt mér fannst
það. að engar fréttir skyldu hafa
borizt þaðan. Réttvísin á staðn-
um ætlaðj augsýnilega að veiða
vel, áður en nokkur gæti áttað
sig. Við þorðum þó ekki að
verða á undan henni á nokkurn
hátt, heldur þurftum við að fara
okkur sem hægast. En þegar mið
nættið var komið. án þess að ég
vissi, hvort Miles væri lifandi
eða dauður, þóttist ég neyddur
til að leika djarfan leik — sem
sé að fara til borgarinnar og
hlusta á mál manna.
Þeir sem voru að drekka við
skenkiboiðið, virtust forðast mig
eftir því sem hægt var og stein->
þögnuðu þegar ég nálgaðist. Ég
sá fljótt, að vænlegasta aðferðin
var sú að sýna ekki af mér neina
forvitni — heldur láta sem
minnst á mér bera, en reyna að
hlusta á það sem hægt væri.
Á þennan hátt komst ég brátt
að því, að Miles hafði komizt t
sjúkralhúsið með lífsmarki.
Hann hafði hitt svo á ,að Buck-
er, bezti skurðlæknirinn okkar,
stóð þveginn og sótfhreinsaður,
reiðubúinn til að fremja keisara-
skurð. Annar læknir tók við því
af honum, en Bucker tók til
starfa með nálar, umbúðir og
sótfchreinsunarlyf, og tókst að
bjarga lífi Miles. Hálsinn á hon-
um er nú saumaður saman og
hann kemst yfir þetta.
Það getur vel verið, að það
verði honum vonbrigði. Hitt
hefði verið ólikt áhrifameiri út-
ganga af sviðinu. og hann missti
af henni svo að ekki munaði
nema hársbreidd.
Oppþvottavélin, sem þcr hafið bciHi) eftir
fáenwood
Kenwood uppþvottavélin
ER FULLKOMLEGA SJÁLFVIRK.
KENWOOD uppþvottavélin tekur í einu
fullkominn borðbúnað fyrir 6.
KENWOOD uppþvottavélin getur verið
hvar sem er í eldhúsinu, innbyggð —- frí-
standandi, eða uppi á vegg.
Verð kr. 15.400,00. ,
Viðgerða og varahlutaþjónusta.
S'im!
11687
21240
Laugaveqi
170-172
1 ínrt Dmr.ni * Laugardag 1 | I> Á
L 1 V w DlllUvi KL. 8.00 L 11/ U
ÍJRVALS SKEMMTIATRIÐIÐ KEMUR FRAM í HLÉI Glaesilegasta páskamatarbingó ársins Spilaðar verða 15. umferðir.
Aðal vinningur: SKATTHOL og ARMSTÓLL ásamt Stórkostlegir vinningar. Matur fyrir alla fjölskylduna
Borðpantanir eftir kl. 4 í dag í síma 35936. MATARPAKKA. F. F.
ÍDÓ 1 RINChl A Laugardag 1 f |> Á
L Dlllllv* KL. 8.00 L 1 1/ U