Morgunblaðið - 23.03.1967, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. MARZ 1967.
IR vann Armann 50:48
Á ÞRIÐJUDAG voru leiknir
tveir leikir í fyrstu deild fslands
mótsins í körfuknattleik. KR
sigi-aði ÍS með 65 stigum gegn
3€ og ÍR vann Ármann með 50
stigum gegn 48.
Eins og við var að búast
höfðu KR-ingar ekki mikið fyrir
að víhna stúdentana. Þó áttu
þeir flestir fremur lélegan leik
og virðist þreytu vera farið að
gera vart við sig hjá liðinu, en
prógrammið hefur verið nokkuð
erfltt hj'á þvi undanfarið. Það
er fyrst eftir 10 mínútna leik að
KR tekur af skarið og breytir
stöðunni úr 14:10 í 27:10. Voru
þar mest að verki varamennirnir
sem fengu nú að koma inn á
stund og stund. í hálfleik var
staðan 30:16 og breikkaði bilið
jafnt og þétt allan síðari hálf-
leik, en leikurinn endaði, eins
og fyrr segir, 65:36 fyrir KR.
Beztur KR-inga var Brynjólfur,
sem skoraði 16 stig, en Einar var
stigihæstur með 18. Hjá stúdent-
um voru Steindór og Hjörtur
einna beztir og skoruðu 10 og 14
stig. Dómarar voru Guðmundur
Þorsteinsson og Ólafur Geirs-
son.
í síðari leiknum hafði Ár-
menningum nærri tekizt að sigra
ÍR, en þeir komu ÍR-ingum oft í
opna skjöldu með góðum leik
sínum. fR hafði 3-4 stig yfir mest
allan hálfleikinn, en u-ndir lok-
in tókst Ármenningum að kom-
ast eitt sig yfir 28,27. Seinni
hálfleikur var mjög jafn. ÍR-ing-
ar komust yfir 33:32, en Ár-
menningar jafna 38:38. ÍR nær
44:38 en þá skora Ármenningar
7 stig gegn 2, 48:45. í»á skora ÍR-
ingar 4 stig gegn 3 og þannig
endaði leikurinn, 50:48. fR-ing-
ar léku nú langt frá sínu bezta,
en Ármenningar, sem hafa ekki
tekizt sem bezt upp hingað til i
mótinu, léku nú ágætlega og
sönnuðu, að einhver lífsneisti
leyndist með þeim enn. Fyrir ÍR
skoraði Hólmsteinn 11 stig, Agn-
ar 10, Birgir 9 og Jón 7. Hjá Ár-
manni var Hallgrímur stiga-
hæstur með 12 stig, Birgir skor-
aði 11. Dómarar voru Gunnar
Gunnarsson og Kristinn Stefáns-
son.
4 skozkir skíðamenn
keppa á Stefánsmótinu
STEFÁNSMÓTIÐ svonefnda í
svigi og stórsvigi verður hald-
ið við skála KR í Skálafelli 1.
og 2. apríl. Meðal keppenda á
mótinu eru 4 skozkir skíðamenn
en á undanförnum árum hef-
ur verið efnt til bæjakeppni
FH drengir
heimsækja KFK
Á LAUGARDAGINN kemur
leggja 40 FH drengir á aldrinum
10, 11 12 og 13 ára upp frá Hifn-
arfirði i keppnidheimsókn til
fél^ga sinna í K.F.K. í Keflavík.
Siða-stliðin tvö sumur hafa
FH og KFK haft mjög náið sam-
starf með æfingaleiki yngri
knattspyrnuflokka félaganna, og
í fyrra vetur komu K.F.K. dreng
ir og kepptu við vini sína í FH
í Hafnarfirði, og eru nú FH-
dTengirnir að endurgjalda þeim
heimsóknina frá I fyrra.
Lagt verður af stað frá leik-
fimisihúsinu við Lækjarskólann í
Hafnarfirði kL 1. e.h. á laugar-
daginn. Fararstjóri verður Geir
Hallsteinsson, en hann hefir
þjálfað drengina í vetur.
milli Reykjavíkur, Glasgow og
Voss í Noregi en nú verður ekki
af þeirri keppni, en Skotarnir
koma hingað.
Á mótinu verður keppt í svigi
og stórsvigi og verða karlaflokk
ar tveir, 17 ára og eldri og 16
ára og yngri. Tveir flokkar
verða einnig meðal kvenna, 16
ára og eldri og 15 ára og yngri.
Mótið er haldið á vegum KR,
mótsstjóri verður Bogi Nilsson.
Mótið er opið öllum til þátttöku
en hana þarf að tilkynna fyrir
fimmtudagskvöld 30. marz.
Um páskana verður margt
um manninn í Skálafelli. Þegar
er allt gistirými fullskipað og
aðrir en þeir sem þegar hafa
gengið frá pöntunum sínum
komast ekki að. Hins vegar er
veitingasala alla daga og ferðir
til og frá skálanum. Mikill sn.iór
er þar sem annars staðar og færi
hið ákjósanlegasta.
IJrslit á .
þriðjudag
Á ÞRIÐJUDAGINN varður leik-
inn fimmti og síðasti leikurinn i
keppninm milli Reykjavikurúr-
valsins í körfuknattleik og úr-
vals úr varnarliðinu á Keflavík-
urflugvelli. Verður leikið í
íþróttahöl'linni í Laugardal og
hefst leikurinn kl. 8.15. Hvort
lið um sig hefur unnið tvo leiki,
og verður þetta þvi úrslitaleikur
inn í keppninni, en það lið vinn-
ur, sem vinnur þrjá leiki af
fimm. Keppt er um veglegan
bikar, sem James K. Penfield
hefur gefið.
Brynleifur
íslendingur varð nr. 4128
Vasagöngunni sænsku
Pressuleikur á
annan páskadag
Á ANNAN páskadag verður
efnt til „Pressuleiks" í hand-
knattleik og fer hann fram i
fþróttahöllinni kl. 8.15. Verður
þetta liður í lokaæfingum lands-
liðsins fyrir landsleikina við
Svía 9. og 10. apríl.
„Landsliðið" í þessum leik
verður þannig skipað:
Þorsteinn Björnsson Fram,
Logi Kristjánsson Haukum,
Gunnl. Hjálmarsson Fram,
Ingólfur Öskarsson Fram,
Sigurður Einarsson Fram,
Geir Hallsteinsson FH,
Örn Hallsteinsson FH,
Hermann Gunnarsson Val,
Stefán Sandlholt VaL
Jón Hjaltalín Víking,
Einar Magnússon Víking.
Blaðamenn völdu þann kost-
inn, þegar búið var að taka
„kanónur'- allra liða, að velja
liðið með uppistöðu frá Haukum,
sem ekki höfðu fundið náð hjá
„einræði'sherranum“. Liðið er
þannig skipað:
Kristófer Magnússon FH,
Finnbogi Kristjánsson Val,
Viðar Símonarson Haukum,
Þórarinn Ragnarsson Haukuna,
Mattlhías Ásgeirsson Haukum,
Þórður Sigurðsson Haukum,
Sig. Jóakimsson Haukum,
Stefán Jónsson Haukum,
Páll Eiríksson FH,
Auðunn Óskarsson FH,
Fyrirliði liðsins utan vallar
Halldórs Björnsson KR.
Fyrirliði utan vallar verður
Jóhannes Sæmundsson.
Þess skal getið að Ragnar Jóns
son og Einar Sigurðsson eru báð
ir forfallaðir og komu af þeim
sökum ekki til greina.
I
Brynleifur Steingrímsson
læknir vekur athygli í Sviþjóð
fyrir skíðaferðir
HÉR kemur læknirinn 1
Hultsfred á skíðum á 30 fcm,
brautinni á sunnudagsmorgni.
Brynleifur Steingrímsson
héraðslæknir getur borið sig
saman við 'Lapplandslækninn
hvað viðkemur þjálfun og
aefingu. Hann er núna að æfa
á skíðum undir þátttöku í
Vasagöngunni 5. marz .
Brynleifur læknir myndi
ekki hika við að spenna á sig
skíðin og skunda af stað í
læknisvitjun gegnum skóginn
til sjúklings í stóra læknis-
héraðinu i Hultsfred um
miðja nótt, ef þörf krefði. Því
að þegar flestir borgarbúar
eru gengnir til náða og hafa
slökkt Ijósið má stundum sjé
glampa á ennisljós á milli
trjánna í skógarjaðrinum. Þá
er það Hultsfredlæknirinn,
sem er úti og æfir sig i skóg-
unum til að geta betur sinnt
læknisskyldum sínum.
Dukla og
Dynamo
unnu
DANSKA meistaraliðið í hand-
knattleik var slegið út i Ev-
Nýr maður
— Ég hætti að reykja og
byrjaði í þess stað að þjálfa
mig í skógunum, segir Bryn-
leifur læknir — Frá þvi 1
fyrravor hef ég hlaupið
minnst 30 km. á viku og auk
þess leik ég tennis. Þetta geri
ég auðvitað allt á kvöldin
eftir að Iæknisstörfum er lok
ið. Venjulega er liðið langt á
kvöldið þegar ég kemst út á
æfingabrautirnar, en ég hef
einnisljós svo að þetta gengur
vel. Nú meðan snjórinn er,
fer ég auk þess á skíði á laue-
ardögum og sunnudögum. í
dag hef ég gengið þrjár míl-
úr og þjálfa mig fyrir fyrstu
þátttöku í Vasagöngunni 5.
marz.
Ég byrjaði að æfa til að
geta betur sinnt læknisskyld-
unum, og ég er orðinn nýr
maður. Ég get mælt með þess
rópubikarkeppninni og komst
ekki í undanúrslit. Liðið mætti
Dynamo Bukarest. Töpuðu Dan
ir fyrri leiknum með 8 marka
mun í Rúmeníu en í síðari leikn
um sigruðu Danir með 21-16.
Munurinn varð því 3 mörk. Leit
vel út fyrir Dani í fyrri hálf-
leik síðari leiksins. Þeir skor-
um æfingum sem heilsubótar
meðali fyrir alla menn. Svo
kom keppnisiöngunin upp í
mér og ég ákvað að æfa fyrir
Vasagönguna.
Hultsfred hefur því bezt
þjálfaða lækni í sýslunni. En
héraðið er lika stærsta lækn-
ishérað sýslunnar og anna-
samast, með 9000 mannis og
auk þess skóla með 1700 nem-
endur. Frá og með nýári bæt-
ist svo Málilla-hérað við, því
að þangað hefur enginn sótt.
Það þarf góða líkamsþjálfun
til að afkasta læknisstarfinu.
Þjálfunin færst með því að
ganga á skíðum, hlaupa og
leika tennis. Eitthvað af
þessu gerir Hultsfredslæknir
inn á hverju kvöldi og hann
hefur aflað sér vinsælda í íér
aðinu. Tvö kvöld er leikinn
tenniis í íþróttaihöllinni og
þrjú kvöld er gengið á skíð-
um út í skóginn. Auk þess er
gengið á skíðum um helgar.
★
í annarri frétt segir, að
Brynleifur hafi gengið Vasa-
gönguna (85 km.) með rúm-
lega sex þúsund öðrum og ver
ið nr. 4128 á 9 klst. 24 mín.
(Úr sænskum biöðum).
uðu 6 fyrstu mörkin og síðar
varð staðan 10-2. En Rúmenarn
ir náðu að minnka bilið.
Þá vann DHFK Leipzig lið
Dukla Praag með 14-9 í síðari
leiknum en Dukla hafði unnið
fyrri leikinn 21-10 rvo fram-
hald Dukla var tryggt. Leipzig
liðið er handhaíi Evrópubikars-
ins.