Morgunblaðið - 23.03.1967, Síða 32
HYJUNG!
hoíeGSÖ
NÚMfATAEFNI
FIMMTUDAGUR 23. MARZ 1967
hoieSSS
ÞARFNAST
fjritt STAAUINGA*
Tvær konur slas-
ast í árekstri
UMFERÐARSLYS varð í gær
á Sundlaugavegi, skammt frá
Otrateig. Voru atvik þau, að
fólksbíll var á leið vestur Sund-
laugaveginn er börn komu út á
veginn frá vinstri að sögn bíl-
stjórans. Hann hemlaði þá og
sveigði bílnum til hægri, en bíll
inn rann til og lenti alveg yfir á
hægri kant og skall beint framan
á bíl, sem ók austur Sundlauga-
veginn.
í þeim bil voru tvær konur og
skullu þær við höggið á fram-
rúðu bílsins, sem mölbrotnaði.
Munu konurnar hafa misst með
vitund nokkra stund. Þær hlutu
allmikla áverka á andliti og auk
þess einhverja áverka á fótum.
Voru þær fluttar á Slysavarð-
stofuna til aðgerðar, en ekki var
nánar kunnugt um meiðsli þeirra
ar blaðið fór í prentun um
kvöldmatarleytið í gær.
Rannsaka fuglakomur
í Surtsey í vor
Fáskastemning í Reykjavík. Myndin tekin í Suðurgötunni í gær. — (Ljósm. Mbl.: S. Þorm).
UM næstu mánaðamót hef jast J
fuglarannsóknir í Surtsey. Verða I
tveir menn staðsettir þar sam-1
fleytt í hálfan annan mánuð, til
að fylgjast með farfuglakomum.
Það eru þeir Arni Waag og
Völdundur Hermóðsson og fara
þeir út í eyna fyrir 1. apríl. Verða
þeir við almennar fuglaathuganir,
fylgjast með farfuglunum er þeir
koma og hvort þeir stanza í
Surtsey. Og annar þáttur er at-
huganir á magainnihaldi þessara
Flugfélag Islands ræöur ekki flug-
leyfishafa í Færeyjarfluginu
ForráÖamönnum þess er óskiljanlegt, ef samvinnan við SAS
og áframhaldandi Fœreyjarflug veldur óánœgju Fcereyinga
— ÞAÐ er engan veginn á valdi
Flugfélags íslands að bola Far-
oe Airways frá Færeyjarflugi.
Flugfélag íslands hefur ekki
ástæðu til að álasa SAS í sam-
bandi við Færeyjarflugið fyrir
neitt, enda hefur Flugfélagið
aldrei búizt við að fá einkaleyfi
á FæreyjaflugL Auk þess er
það ekki á valdi Flugfélagsins,
að hafa afskipti á leyfisaðstöðu
Faroe Airways til Færeyjaflugs.
Þessar upplýsingar komu
fram á fundi með fréttamönn-
um, er Örn Ó. Johnson, fram-
kvæmdastjóri Flugfélags ís-
lands og Sveinn- Sæmundsson,
blaðafulltrúi þess boðuðu í
gær. Tilefni fundarins var Fær-
eyjaflug Flugfélagsins og þau
viðhorf, sem skapazt hefðu um
þau mál.
Örn Ó. Johson sagði, að í
skrifum um málið hefði mann-
orð Flugfélagsins blandazt í um
ræður og kæmi það Flugfélags-
mönnum mjög á óvart, ef vin-
sældir félagsins hefðu beðið
hnekki við samninga sem það
gerði nú nýverið við SAS.
Taldi hann að ef þetta reynd-
ist rétt, væri það vegna rang-
færslu á staðreyndum
örn sagði, að strax eftir að
Flugfélag íslands hefði hafið
utanlandsflug hefði það fengið
áhuga á Færeyjum sem lend-
ingarstað. Hafi það verið
skömmu eftir stríðið. Árið 1954
hafi hann síðan farið ásamt Sig
urði Jónssyni frá Loftferðaeft-
irlitinu til Færeyja gagngert til
þess að kanna aðstæður til lend
inga. Sótti flugfélagið þá um
lendingarleyfi hjá færeyskum
Framhald á bls. 3.
fugla, með tilliti til þess hvort
þeir geta borið spýrunarhæft
Framhald á bls. 31
Er báturinn
af þýzka
togaranum?
Bolungarvík, 22. marz.
Mótorbáturinn Einar Hálf-
dáns fann í gær mannlausan
gúmíbjörgunarbát uppblásinn
á reki u.þ.b. 20 mílur frá Kóp.
Báturinn var án allra auð-
kenna, en fullútblásinn og
ekkert í honum af tækjum,
matvælum eða öðru, sem
venjulega er í björgunarbát
unum. Einar Hálfdáns tók
bátinn upp og kom með
hann hingað í nótt og verður
hann sendur til Reykjavíkur.
Ekki vita menn hvaða skipi
björgunarbátur þessi kann að
hafa tilheyrt, en þess hefur
verið getið til hér, að hann
gæti verið frá þýzka togaran-
um Johannes Kruss, sem horf
inn er og síðast heyrðist í ná-
lægt Grænlandi.
IVIinnisblað lesenda
Fyrsti minkurinn
drepinn á Fjöllum
Grímsstöðum, 22. marz.
I DAG var drepinn fyrsti
minkurinn, sem næst hér um
slóðir. Þegar bændur á Ný-
hóli komu í húsin í morgun,
sáu þeir á slóðum kringum
húsin, að minkur mundi vera
Kominn í hiöðu, sem áföst
er við fjárhúsin. Þeir lokuðu
þá öllum útgönguleiðum og
gátu eftir dálítinn tíma unnið
á honum. Minkurinn hafði
ekkert gert af sér þarna.
í nóvember í haust varð
fyrst vart við slóðir eftir
inink hér á Fjöllum. Þykja
þetta ill tíðindi hér, því að
skilyrði fyrir mink eru góð
hér, allir lækir fullir af sil-
ungi, og erfitt að fylgjast með
miknum, ef hann kæmi hér að
ráði.
Hér snjóar látlaust og er
Kominn mikill gaddur. Virð-
ist ekki batna með einmán-
aðarkomunni. — Benedjkt.
MORGUNBLAÐIÐ hefur að
venju leitað upplýsinga, sem
handhægt getur verið fyrir les-
endur að grípa til um páskahátíð
ina. Auk þeirra almennu upp-
lýsinga, sem eru í dagbókinni
skal þessara getið:
Slysavarðstofan, sjá Dagbók.
Læknavarzla, sjá Dagbók
Tannlæknavarzla: Tannlækna-
félag íslands gengst fyrir þjón-
ustu við þá, sem hafa tannpínu
eða verk í munni. Skírdagur:
Eyjólfur Búsk, Laufásveg 12,
sími 10452 frá kl. 10 — 12 og
14. — 16. Föstudagurinn langi:
Hörður Einarsson, Austurstræti
14 (Tannlæknastofa Halls L.
Hallssonar, sími 11866) frá kl.
9 — 11. Laugardagur 25. marz:
Eyþór Ó. Þórhallsson, Lauga-
vegi 20B (Tannlæknastofa Gunn
ars Þormars, sími 19368) frá kl.
10 — 12 og sama dag Engilbert
Guðmundsson, Njálsgötu 16, sími
12547 frá kl. 13 — 14. Páskadag-
ur: Hörður Sævaldsson, Tjarnar
götu 16, sími 10086 frá kl. 14 —
16. Annar í páskum: Hængur
Þorsteinsson, Bolholti 4, sími
35770 frá kl. 14 — 16.
Lyfjavarzla, sjá Dagbók.
Messur, sjá Dagbók.
Útvarp, dagskráin er birt í
heild á bls. 13 í blaði II.
Sjónvarp, dagskráin er birt í
heild á bls. 16 í blaði II.
Rafmagnsbilanir tilkynnist í
síma 18230.
Símabilanir tilkynnist í sima
05.
Hitaveitubilanir tilkynnist í
síma 15359.
Vatnsveitubilanir tilkynnist í
sima 35122.
Matvöruverzlanir verða lokað-
ar skírdag, föstudaginn langa,
páskadag og annan páskadag.
Hins vegar eru þær opnar til
kl. 12 laugardaginn 25. marz.
Söluturnar verða lokaðir föstu
daginn langa og páskadag, en
opnir skírdag, laugardaginn 25.
marz og annan páskadag til kl.
23:30 eins og venjulega.
Benzinafgreiðslur verða opnar
skírdag frá 9.30 — 11.30 og 13
15, laugardag 25. marz til kl.
22.30, páskadag frá kl. 9.30
11.30 og frá kl. 13 — 15 og ann-
an páskadag frá kl. 9.30 — 11.30
og frá kl. 13 — 18, auk þess mun
unnt að fó afgreitt benzín nokk-
uð lengur á benzinafgreiðslunni
við Vitatorg.
Mjólkurbúðir verða opnar
skírdag frá kl. 9 — 13, lokaðar
föstudaginn langa, opnar laugar
daginn 25. marz frá kl. 8 — 13,
páskadag lokaðar, en opnar á
annan í páskum frá kl. 9 — 12.
Strætisvagnar Reykjavíkur
aka um páskana sem hér segir,
en frekari upplýsinga er að
leita í síma 12700:
Skírdagur Á öllum leiðum kl.
9 — 24. Á þeim leiðum, sem ekið
er á sunnudagsmorgnum og eftir
miðnætti á virkum dögum: kl.
7 — 9 og kl. 24 — 1.
Föstudagurinn langi. Á öllum
leiðum kl. 14 — 24. Á þeim leið-
um, sem ekið er á sunnudags-
morgnum og eftir miðnætti á
virkum dögum: kl. 11 — 14 og kl.
24 — 1.
Laugardagur Á öllum leiðum kl.
7 — 17,30. Á þeim leiðum, sem
ekið er á sunnudagsmorgnum og
eftir miðnætti á virkum dögum
verður ekið frá kl. 17.30 — 1.
Auk þess ekur leið 27 — Ár-
bæjarhverfi — óslitið til kl. 8
e.m.
Páskadagur Á öllum leiðum kL
14 — 1. Á þeim leiðum, sem ekið
er á sunnudagsmorgnum og eftir
miðnætti á virkum dögum: kL
11 — 14.
Framhald á bls. 31